Helgarpósturinn - 16.01.1986, Blaðsíða 3
FYRST OG FREMST
NÚ STYTTIST í frumsýningu
á kvikmynd Hilmars Oddssonar.
Eins og skepnan deyr. Hins vegar
höfum við þegar heyrt titillag
myndarinnar sem nefnist „Allur
lurkum laminn" og er texti og lag
eftir leikstjórann eftir því sem að-
standendur myndarinnar hafa
gefið upp á samnefndri plötu sem
komið hefur út. Eins og alþjóð
veit syngur Bubbi Morlhens þetta
ágæta lag sem fjallar um ungan
mann sem illa er á sig kominn
andlega og líkamlega eftir að hafa
meðal annars klesst mótorhjólið
sitt og þar fram eftir götunum.
Upplýsingarnar á plötunni um höf-
und lagsins munu þó aðeins að
hálfu sannar. Lagið er vissulega
eftir Hilmar Oddsson en textinn er
margra ára gamall og er eftir
virðulegan opinberan starfsmann
sem ekki mun vera allur lurkum
laminn núorðið samkvæmt bestu
fáanlegu heimildum. Við getum
hins vegar ekki stillt okkur um að
koma upp um textahöfundinn sem
er enginn annar en Guöni Braga-
son fréttamaður hjá fréttastofu
sjónvarpsins. Guðni mun hafa gert
það að skilyrði fyrir notkun text-
ans að nafn hans yrði ekki gefið
upp. En eins og kunnugt er, mun
Helgarpóstinum ekki vera neitt
heilagt í þessum efnum.
Guöni Bragason: Allur lurkum laminn (en
ekki lengur)
ÞJÓÐVILJINN hefur oft birt
beinskeyttar vísur um menn og
málefni. Hirðskáld Þjóðviljans er
starfsmaður ritstjórnar, blaðamað-
urinn Sleindór Steindórsson.
Ferskeytlur Steindórs hafa fjallað
um viðburði líðandi stundar, og
um daginn settist Steindór niður
og orti þegar fréttir af endurkjöri
Gardars Sigurössonar alþingis-
manns Alþýðubandalagsins í
bankaráð Utvegsbankans bárust.
Hins vegar tvístigu ritstjórar Þjóð-
viljans títt og oft þegar þeir sáu
framleiðslu Steindórs enda ekki
daglegur viðburður þar á bæ að
þingmaður flokksins sé skensaður.
Að lokum var vísunni stungið
undir stól. Vísan þótti hins vegar
það góð að hún flaug hraðbyri um
húsið og út úr því og leið ekki á
löngu þangað til að hin opnu eyru
HP tóku skáldskapinn inn. Við
birtum því vísuna án ábyrgðar:
Vitsmunum beita af lipurd og list
þótt leiðin sé oftlega þyrnum stráð.
Þeir hneykslast á mönnum sem
krossfestu Krist
en kjósa svo Garðar í bankaráð.
FORVAL Alþýðubandalagsins til
borgarstjórnarkosninga á þessu ári
er þegar hafið í afmörkuðum
hópum vinstri manna. Niðurstöður
úr einu slíku forvali bárust inn á
ritstjórnarskrifstofur okkar um
daginn. Sextán vinstri menn sem
vinna hjá rannsóknarstofnuninni
að Keldnaholti kusu í forvali
Alþýðubandalagsins. (Það er
reyndar íhugunarefni út af fyrir
sig að af rúmlega tuttugu starfs-
mönnum rannsóknarstofanna í
Keldnaholti skuli 16 vera
kommar.) Niðurstöður voru þessar:
1. Kristín Ólafsdóttir, 2. Guöni
Jóhannesson (hann er starfsmaður
í Keldnaholti), 3. Össur Skarp-
héöinsson, 4. Þorbjörn Broddason,
5. Skúli Thoroddsen, 6.-7.
Guörún Ágústsdóttir og Helga
Sigurjónsdóttir, 8. Siguröur Rist, 9.
Sigurjón Pétursson.
Ef þessar niðurstöður eru vís-
bendingar um hræringarnar í
flokknum er víst að dagar gömlu
borgarstjórnarfuiltrúa Alþýðu-
bandalagsins eru taldir og hin nýja
kynslóð er tekin við. Hin nýja
kynslóð gengur reyndar oft undir
nafninu „valddreifingarkynslóðin",
nefnd eftir hugsjón sinni. Hins
vegar benda gamlir sósíalistar
(sem þekkja söguna vel) á það, að
umrædd Kristín Ólafsdóttir, fulltrúi
valddreifingarkynslóðarinnar sé
orðin varaformaður, stjórnar-
maður í útgáfufélagi Þjóðviljans,
formaður miðstjórnar og verðandi
starfsmaður flokksins og senni-
legur oddviti borgarstjórnarfull-
trúa Alþýðubandalagsins. Þessir
menn benda HP á að saga sósíal-
ismans endurtaki sig alltaf.
MANNLÍF hefur fengið nýjan
ritstjóra eins og rækilega hefur
komið fram í fréttum, Árna
Þórarinsson, stofnanda og guð-
föður HP. Hins vegar velta menn
því mjög fyrir sér hvað hafi ollið
því að upp úr sauð milli Herdísar
Þorgeirsdóttur og Anders Hansen
útgefanda og eiganda Mannlífs.
Munu samstarfsörðugleikar vera
meginástæðan en einnig launa-
kröfur Herdísar sem fóru langt
fram úr hugmyndum útgefandans
um ritstjóralaun. Herdís vildi ekki
lengur una þessum kjörum þar eð
hún á mikinn þátt í velgengni
blaðsins og stofnaði því eigið tíma-
rit þar sem hún getur fleytt
rjómann ofan af útgáfunni betur
en áður. Ýmsir velta því fyrir sér
hvað nýja tímaritið eigi að heita.
En það þykir ljóst að orðið líf
verður að koma fyrir í heitinu líkt
og hjá flestum íslenskum tíma-
ritum. Kunnugir segja að Herdís
hyggist storka Anders Hansen og
hinum smánarlegu ritstjóralaunum
sem hann greiddi henni og kalla
nýja tímaritið Hundalíf. Við full-
yrðum hins vegar ekkert og
bíðum átekta.
Herdís Þorgeirsdóttir: Ekkert hundalíf
(lengur).
HELGARPUSTURINN
Litróf Þjóðviljans
Allt frá kerfisins penustu pössurum
og pirruðum stalínískum djössurum
að ungum og þrýstnum Össurum
og alls konar pólitískum flössurum,
sýruhausum og hössurum.
Niðri
SMARTSKOT
LJÓSMYND JIM SMART
Ætlarðu að fara
í föt Bryndísar
Schram, Megas?
, Jahá — veistu, en sniðugt! Ég var einmitt að velta fyrir mér
áðan hvernig ég ætti að opna þennan þátt og mér flaug í hug
að segja að hér væri ekki á ferðinni neitt af því tagi. Ég gæti svo
sem alveg farið í fötin hennar Bryndísar, ég hefði bara gaman
af því. Sem unglingur í menntaskóla lék ég meira að segja Ástu
í Dal í Skugga-Sveini og hlaut mikið lof fyrir. Góður vinur minn,
sem ekki vissi hver fór þarna í kvenmannsklæðum, spurði
meira að segja hvaða sæta stelpa þetta hefði verið! En að öllu
gamni slepptu þá svara ég náttúrulega því til að ég sé ekki ný
Bryndís. Það er ekki leiðum að líkjast en það get ég aldrei orðið
því að essensinn vantar alveg. Ég útlista það ekki nánar.
Síðan er ég vel að merkja aðeins spyrill í þessum eina þætti.
Hins vegar er þetta þáttaröð sem Hrafn og hans deild er að
hrinda af stað og það vill bara svo til að ég er sá sem spyr
Bubba. Svo kem ég ekki meira við sögu. Ég er út — exit — þeg-
ar þessi þáttur er búinn."
— En telurðu að samtal þitt við Bubba skeri sig aö
einhverju leyti frá samtölum Bryndísar, t.a.m.?
„Ég veit ekki, kannski sker það sig ekkert frá þeim. Ég er
reyndar ekki svo vel verseraður í „Það eru komnir gestir". En ég
get mjög vel ímyndað mér að það muni því að ég hef hugsað
mér að hafa mig afskaplega lítið í frammi. Ég ætla í raun og veru
bara að skjóta þannig dúmm-dúmm-sprengjum á hann Bubba
að hann tætist í sundur. Þá eru spurningarnar þannig lagaðar
að þær kveikja I raun bara upp mónólóg.
Þetta er aðeins fjörutíu mínútna þáttur og er aðallega „Bubbi
Morthens spilar á gítar og syngur". Síðan eru þessar spurningar
settar inn til að fá meiri fjölbreytni og eitthvað annað interess-
ant efni. Við Bubbi erum það góðir vinir að það fer afskaplega
vel á því að láta okkur sitja saman og spjalla eins og við höfum
svo oft gert án sjónvarpsvéla. Ég ætla að spyrja hann út í hitt
og þetta sem mér leikur forvitni á að heyra hann segja og ég
hef ekki haft tíma til að spyrja hann út í."
— Áttu ekki von á að ég og hinar stelpurnar slefum
af hrifningu fyrir framan skerminn á sunnudagskvöld-
ið?
„Þú og hinar stelpurnar? Ætlarðu að segja mér að þú slefir
fyrir framan sjónvarpstækið? Ég vil nú ekki orða þetta þannig,
en ég geri samt fastlega ráð fyrir að það verði margir af öllum
fjórum kynjum sem sitji fyrir framan sjónvarpstækið og horfi og
hlusti með athygli því að þetta er dúndurefni. Málið er að Bubbi
hefur ábyggilega verið á svörtum lista hjá sjónvarpinu hingað
til. Enginn þáttur hefur verið gerður um hann. Og ég verð að
segja fyrir sjálfan mig, að enginn þáttur hefur heldur verið gerð-
ur með mér fyrir utan þessi bannaði þáttur fyrir tíu árum. Þetta
er nú sögulegt, því bæði erum við tvö interessant númer og
þarna er Bubbi í fókus, og síðan höfum við ekkert verið í þess-
um miðli."
— Veistu hvort ætlunin er að þú verðir sjálfur í fókus
í einhverjum þessara þátta síðar meir?
„Það er aldrei að vita. Jafnvel. En ég tel að mikill áhugi verði
fyrir þessari þáttaröð."
— Ætlarðu e.t.v. í framhaldi af þessu að reyna að ota
þínum tota innan sjónvarpsins í framtíðinni?
„Ég hef nú annað við tímann að gera en að berjast til valda
innan sjónvarpsins, það er utan míns áhrifasvaeðis. Og þar sem
við Bubbi og sjálfsagt margir fleiri höfum ekki komist að hjá
sjónvarpinu síðasta áratug og rúmlega það, þá hef ég ekkert
hugsað um þennan miðil. Tilviljunin stýrði því að vísu að sjón-
varpið var á sviði Austurbæjarbíós fyrir rösklega ári þegar ég
var þar með tónleika en mér skilst að það hafi ekki gengið styrj-
aldarlaust fyrir sig. En það er auðvitað ekki mitt mál. Það var
góður vinur minn innan sjónvarpsins sem kom þessu í gegn.
Af þessum sökum hef ég ekkert pælt í þessum miðli fyrir
mig. Og það að ég skuli vera spyrill og að því leytinu til umsjón-
armaður þáttarinsá sunnudaginn, er bara persónulegt milli mín
og Bubba. Það var hann sem átti upptökin að því að ég væri
spyrillinn og ég var eðlilega til í það. En bara vegna þess að það
var Bubbi."
Á sunnudagskvöld kl. 20.50 hefur göngu sína i sjónvarpinu ný þáttaröð
sem ber yfirskriftina Kvöldstund með listamanni. Elfn Þóra Friðfinns-
dóttir stjórnar upptöku þáttarins en í honum mun Magnús Þór Jóns-
son, Megas, ræða við Bubba Morthens sem auk þess tekur lagið. Þetta
er algjört nýmæli því þessum ágætu tónlistarmönnum hefur báðum
meira og minna verið úthýst úr sjónvarpinu fram til þessa. Blaðið sló
á þráðinn til Megasar
HELGARPÖSTURINN 3