Helgarpósturinn - 16.01.1986, Blaðsíða 26
POPP
Myndbandamúsík meö Lennon og Zappa
Tónlist á myndböndum verður æ meir
áberandi eftir því sem tímar líða. Fyrst í stað
var litið á myndskreytingar popplaga sem
hreina og klára auglýsingu fyrir viðkomandi
lag og tónlistarmann. Þær áttu að hjálpa til
við söluna — og gerðu það áreiðanlega. —
Þegar tímar liðu var farið að gera sérstaka
þætti með þessari myndbandamúsík, sér-
stök sjónvarpsstöð, MTV (Music Television),
varð til og nú er svo komið að nokkrar rásir
gervitungla sjónvarpa svotil engu nema
þessum fyrrum auglýsingamyndböndum við
miklar vinsældir þeirra sem tök hafa á að ná
sendingunum. Ný iðngrein er orðin til innan
poppbransans.
Vitaskuld er einnig farið að selja mynd-
bandsspólur með tónlist. Framboðið fer vax-
andi dag frá degi. Fyrir síðustu jól mátti til
dæmis vart á milli sjá hvort hljómplötur eða
músíkspólur voru meira auglýstar í breska
músíkiðnaðarblaðinu Music Week. Þarna
kenndi margra grasa: Maður gat valið um
heilu tónleikana með fjölda hljómsveita og
tónlistarmanna, einnig var boðið upp á safn
myndbanda með ákveðnum tónlistarmönn-
um eða jafnvel hinum og þessum, — ókynnt
Skonrokk. Meira að segja var boðið upp á
gamiar filmur með hijómsveitinni Doors sem
hætti störfum fyrir fimmtán árum. Þarna var
einnig spóla með John heitnum Lennon sem
var tekin upp sama ár og hann hljóðritaði
plötu sína Imagine.
IMAGINE - THE FILM - John Lennon
Picture Music/EMI — Fálkinn
Mér er ekki alveg ljóst hvað vakti fyrir
John og Yoko þegar þau réðust í gerð mynd-
arinnar Imagine árið 1972. Ætluðu þau að
búa til bíómynd sem síðan misheppnaðist?
Voru það aðeins að myndskreyta lögin sín?
Voru þau bara að drepa tímann? Ég treysti
mér ekki til að svara því.
„Gamlir aðdáendur Lennons og/eða konu hans
taka myndinni Imagine að minnsta kosti fegins
hendi."
Auðvitað á Imagine — The Film ekkert
skylt við þau músíkmyndbönd níunda ára-
tugarins sem við fáum að sjá heima í stofu
annað hvert föstudagskvöld. Miðað við þau
er myndin gamaldags og dálítið hallærisleg.
Barn síns tíma. Hins vegar hefur myndin
aldrei verið sýnd opinberlega fyrr en hún
kom út á spólu síðastliðið haust. Því á hún er-
indi. Gamlir aðdáendur Lennons og/eða
konu hans taka myndinni Imagine að
minnsta kosti fegins hendi.
Á spólunni eru tíu lög af plötu Lennons,
Imagine, tvö af Fly með Yoko Ono og síðan
lagið Power To The People. Myndin er tekin
hér og þar. Aðallega þó á setrinu Tittenhurst
Park í Énglandi. í byrjun koma hjónin gang-
andi heim að setrinu, fara inn og John sest
við hvíta flygilinn og syngur fyrir okkur lagið
Imagine. I Crippled Inside situr hann úti í
garði meðan ljósmyndari tekur af honum
andlitsmynd. Leikurinn berst síðan niður að
vatni í landi setursins. Þau róa út í hólma,
fara þar inn í garðhús, taka skák og snæða
taflmennina. A meðan hljóma lögin Jealous
Guy og Don’t Count The Waves. I Power To
The People lendum við í mótmælagöngu
með hjónunum, lítum síðar inn á sniðuga
listsýningu, heilsum upp á Dick Cavett, Fred
Astaire, George Harrison og fleiri, förum
með hjónunum í bað og þannig mætti lengi
telja. Söguþráður er sem sagt enginn, heldur
skot héðan og þaðan.
Ef hægt er að segja að einhver rauður
þráður sé í gegnum myndina Imagine fyrir
utan tónlistina þá eru það lærin á Yoko Ono.
Hún sýnir þau mjög örlátlega allt frá upphafi
til enda. Mjög álitleg læri og fallega sköpuð og
vel þess virði að virða fyrir sér í heila klukku-
stund meðan hlýtt er á fallega tónlist. Maður
veit þó á eftir, að Yoko er með Iærðari kon-
um!
DOES HUMOR BELONGIN MUSIC? -
Frank Zappa
Picture Music/EMI — Fálkinn
í upphafi er rétt að taka það fram, að ég er
ekki og hef aldrei verið aðdáandi Franks
Zappa. Myndaðist þó við að hlusta á hann á
árum áður en leiddist karlinn alltaf frekar.
Nema á plötunni Fillmore East June 1971
sem var tekin upp á tónleikum í Fillmore
eftir Ásgeir Tómasson
East í San Francisco. Þar fóru Zappa og félag-
ar á kostum.
Á spólunni sem hér er til umfjöllunar lítum
við inn á tónleika hjá Frank Zappa og hljóm-
sveit hans í tæpa klukkustund. Inn á milli
laga er skotið stuttum viðtalsbútum við
Zappa. Þeir eru ósköp klénir en tónleikarnir
eru þeim mun skemmtilegri. Þarna er ekki
boðið upp á lasergeislasjó, þokuvélar, þús-
undir ljóskastara né aukahljóðfæri á tón-
böndum. Zappa og hljómsveitin hans standa
og falla með tónlistinni og húmornum. Og
þar með erum við komin að titli spólunnar:
Á húmor heima í rokktónlist? Svarið er hik-
laust já eftir að hafa fylgst með tónleikunum.
Þeir voru í einu orði sagt bráðskemmtilegir.
Auðvitað hefur tónlist Zappa ekkert skán-
að í mínum eyrum. Það er einfaldlega flutn-
ingurinn sem gerir hana skemmtilega.
Hljómsveit Zappa er skipuð sex klárum körl-
um, öllum bráðflinkum hljóðfæraleikurum
og til viðbótar eru þeir ágætir húmoristar.
Á spólunni Does Humor Belong In Music?
flytja þeir fjórtán lög, öll eftir Zappa utan
Whippin’ Post sem Gregg Allman er skrifað-
ur fyrir. Best þykir mér hljómsveitinni takast
upp í He’s So Gay, Be In My Video, Bobby
Brown og Whippin’ Post. Zappa er skemmti-
legur á sviði, fyndinn, hæfilega líflegur og
tengir lögin skemmtilega saman. Aðrir í
hljómsveitinni ærslast óspart. Öll eru ærslin
þó vandlega úthugsuð, Þegar best lætur dett-
ur manni í hug Spike Jones og hljómsveit
hans. Sá sem skarar fram úr í hljómsveitinni
er Bobby Martin hljómborðsleikari. Hann
bregður einnig fyrir sig saxófóni og frönsku
horni auk þess sem hann syngur og raddar
skemmtilega.
Þrátt fyrir jákvæða umsögn um Does
Humor Belong In Music? er ég ekki orðinn
aðdáandi Franks Zappa. Ég ætla þó að vera
á verði gagnvart næstu hljómleikaplötu
þessa undarlega háðfugls og húmorista.
Dekraðu víð sjálfan þig
og dveldu hjá okkur
Við erum miðpunktur allra ferðalaga innan lands og utan
* Þeir sem fara srtemma á fætur fá
sér auðvitað rjúkartdi kaffi með
glóðvolgu morgurtbrauði í kaffi-
teríurmi.
Húrt er opin frá kl. 05.00-20.00 á
hverjum degi.
<
U)
* Við bjóðum hótelgestum okkar í
einkasundlaugina og nuddpott-
inn.
Sundlaugin er opin alla daga frá
kl. 07.00-22.00 alla daga.
HÚTEL
LOFTLEIÐIR
FLUGLEIDA (S HÓTEL
* Blómasalurinn er einnig opinn
alla daga ársins. - Víkingaskipið í
hádeginu er löngu orðið frægt. -
En þú ættir að reyna nýja mat-
seðilinn okkar á kvöldin, hann
svíkur ekki.
Heill heimur út af fyrir sig í hringiðu alheimsins
26 HELGARPÓSTURINN