Helgarpósturinn - 16.01.1986, Blaðsíða 25

Helgarpósturinn - 16.01.1986, Blaðsíða 25
BOKMENNTIR Vilmundur Jón Ormur Halldórsson: Löglegt en sidlausl Stjórnmálasaga Vilmundar Gylfasonar Bókhlaöan 1985. Það er ekki lítið færzt í fang að semja stjórnmálasögu Vilmundar Gylfasonar tveimur árum eftir að hann féll frá. Það er tvíeggjað að því leyti, að svo skammt er liðið, að heildarsýn er ekki að hafa á atburði, en á hinn bóginn kostur, að flestir þeir sem komu við sögu hans eru enn til frásagnar. Og út- koman er læsileg bók, þótt ýmislegt orki tví- mælis í frásögn Jóns. Hann segir reyndar í formála bókar að ritið sé ekki sagnfræði og jb*y'í fari fjarri, ad hann sé tilntlaus; ætli ritiö flokkist ekki undir blaðamennskusagnfræði, sem svo hefur verið nefnd, og sjónarmið og hagsmunir Vilmundar njóta vildar höfundar. Að auki er bókin samin á skömmum tíma, níu mánuðum, og að mestum hluta til er- lendis. Ég hef ekki borið tifvitnanir í greinar saman við heimildir, nema þá búta sem birtir eru úr Nýju landi, og bera þeir þess vott, að samlestur hefur verið í molum. Bókin virðist hafa farið í prentun í október, en kom út fyrir jól, og það skýrir sjálfsagt þann mýgrút af prentvillum, sem lýtir bókina. Frágangur hennar er til vanvirðu fyrir formann Bók- salafélags íslands, og raunar hefði bókin að ósekju mátt bíða til næstu jóla. Frásögn Jóns ber þess merki, að hún er hraðsoðin. Endur- tekningar eru margar og oftast óþarfar, og hefði án efa mátt forðast þær með skipulegri efnistökum. Þessi bók fjallar um síðasta áratuginn í lífi Vilmundar. Hann kom heim frá námi 1973, og hafði þá fleira reynt í einkalífi sínu en flestir jafnaldrar. Að því leyti gekk hann út í lífið „með fjöll á herðum sér“, eins og ágætt skáld segir í ljóði. Hann hugðist hasla sér völl í blaðamennsku, og gerði það með sínum hætti. Hann varð blaðamaður á Alþýðublað- inu hálfan dag, en varð síðan kunnur og um- deildur fyrir útvarps- og sjónvarpsþætti, að ekki sé minnzt á vikulegar greinar hans í Vísi. Mér finnst sem í blaðamennsku Vil- mundar komi fram öll þau atriði, sem síðar einkenndu hann sem stjórnmálamann: Hann var hugmyndaríkur og tilfinninganæmur, metnaðargjarn og mikið niðri fyrir, óþolin-_ móður, ágengur og fór stundum offari. í greinum sínum vakti hann iðulega athygli á þörfum málum, beindi geiri sínum að valds- mönnum og fékk iðulega skammir fyrir málsmeðferð. Og víst var blaðamennska hans umdeild. Rannsóknarblaðamennska, sögðu sumir, ofsóknablaðamennska hét hún í annarra munni. Og þetta voru viðburðarík ár: Kröflumál, Klúbbmál, Geirfinnsmál, próf- kjörsslagur, kosningasigurinn 1978, innan- flokksátök krata, Alþýðublaðsdeilan, Nýtt land, Bandalag jafnaðarmanna. Víst mætti fleira telja. Vilmundur kom við sögu í öllum þessum málum og var oft í aðalhlutverki, og þó er of djúpt í árinni tekið, að hann hafi orð- ið „þjóð sinni örlagavaldur á þrítugsaldri". (349) Vilmundur fór fyrst í framboð 1974, á Vest- fjörðum, og skipaði annað sæti á lista Al- þýðuflokksins. Jón Ormur segir að Vilmundi hafi verið boðið efsta sæti listans, en hann hafi vikið fyrir Sighvati Björgvinssyni. Eftir þessar kosningar tók Vilmundur sífellt meiri þátt í stjórnmálum. Hann barðist fyrir breyt- ingum á stefnu og starfi Alþýðuflokksins og varð ágengt að ýmsu leyti, t.d. voru lögfest opin prófkjör. Hann veittist að verkalýðsfor- ystunni, spilltu dómskerfi, embættaveiting- um, valdakerfi flokkanna o.fl. Barátta hans skilaði honum síðan öðru sæti á framboðs- lista Alþýðuflokksins í Reykjavík við kosn- ingarnar 1978. Þá var kosið um „samning- ana í gildi“ og A-flokkarnir unnu stórsigur á kostnað Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar- flokksins. Jón Ormur telur næsta víst, að Vil- mundur hafi átt snaran þátt í þessum sigri. Hann var feiknalega ötull í kosningabarátt- unni, fór um land allt og á ótal fundi hér syðra. Á hinn bóginn lagði hann minni áherzlu en aðrir frambjóðendur á kosninga- slagorðin. Víst hefur Vilmundur laðað kjós- endur að flokknum, og þó hygg ég að hin al- menna krafa stjórnarandstöðunnar í heild hafi ráðið mestu: samningana í gildi; hún var í senn einföld og áhrifarík. Alþýðuflokkurinn vann stórsigur í þessum kosningum, bætti við sig 9 þingmönnum. Það féll hins vegar í hlut Olafs Jóhannesson- „Móta menn söguna eða eru þeir skilgetin af- kvaemi hennar?" spyr Sölvi Sveinsson sig m.a. eftir að hafa lesið bók Jóns Orms Halldórssonar um Vil- mund Gylfason, „löglegt en siðlaust". ar að leiða saman í ríkisstjórn sigurvegara kosninganna, A-flokkana. Sú stjórn var frá upphafi veik, og líklega hafa ýmsir aðstand- endur hennar ekki verið heilir í samstarfinu, og alþýðuflokksmenn lutu í lægra haldi — sögðu sig úr stjórninni haustið 1979, og efnt var til vetrarkosninga. Þetta stjórnarár einangraðist Vilmundur í þingflokknum. Hann var í stjórnarandstöðu að heita mátti. Baráttumál hans úr kosning- unum fengu lítinn hljómgrunn, valddreifing, uppstokkun á efnahagskerfinu o.fl. Alþýðu- flokkurinn, sigurvegari kosninganna, varð að láta í minni pokann fyrir Alþýðubanda- lagi og Framsókn. Vilmundur hélt uppi harð- vítugu andófi í þingflokknum, en varð ekki ágengt. Ætli skýringin gæti verið sú, að hann hafi brostið pólitískt úthald, þrek til að vinna baráttumálum sínum framgang? Enn má nefna, að Vilmundur studdist ekki við neinn hóp innan flokksins. Hann var pólitísk- ur einfari í eigin flokki að því leyti, að hann beindi skeytum sínum til allra átta í senn: ráðherrar, valdamenn í flokknum, verka- lýðsforusta urðu fyrir brandi hans. Hann skorti bakhjarl í flokkskerfinu ef svo má segja, en taldi sig framfylgja vilja fjöldans. Vilmundur varð síðan ráðherra dóms- og menntamála í minnihlutastjórn Alþýðu- flokksins, starfsstjórn til bráðabirgða. Lík- lega voru það pólitísk mistök af hálfu Vil- mundar. Hann gat litlu áorkað á skömmum tíma með lítinn hluta þings að baki. Auk þess gaf hann slæman höggstað á sér með skipun flokksbróður í embætti. Andstæðingar hentu það vitaskuld á lofti og neru honum um nasir, siðvæðingarpostulanum. Á hitt er einnig að líta, að andstæðingar hefðu borið honum hugleysi á brýn, ef hann hefði hafnað þessu tækifæri. Alþýðuflokkurinn tapaði í kosningunum 1979, en raunar minna en bú- ast mátti við, vegna þess að krötum tókst ásamt öðrum flokkum að gera stefnu sjálf- stæðismanna tortryggilega, leiftursóknina sálugu; færri en ella sneru aftur til Sjálfstæð- isflokks. Árið 1980 bauð Kjartan Jóhannsson sig fram til formannskjörs í Alþýðuflokki gegn Benedikt Gröndal, og Vilmundur afréð að gefa kost á sér til varaformennsku. Jón Orm- ur telur skýringu þess vera þá, að Vilmundur hafi ekki ætlað að láta einangra sig aftur í flokknum eins og eftir kosningarnar ’78 (bls. 296). Jón Ormur gerir lítið úr persónulegum metnaði Vilmundar í þessu samhengi, honum hafi nær einungis gengið til að tryggja, að hugsjónir hans og baráttumál yrðu ekki snið- gengin á nýjan leik. Mér sýnist hins vegar augljóst á allri bókinni, að Vilmundur hefur haft til að bera mikinn persónulegan metn- að. Víst hafði hann ákveðnar hugsjónir, og barðist fyrir þeim af þeirri hörku, sem knúin er persónulegum metnaði. Vilmundi fannst gengið freklega á vilja kjósenda í stjórnar- mynduninni 1978, því stefnumál þau, sem hann hélt hæst á loft í kosningabaráttunni fengu lítinn hljómgrunn í málefnasamningi stjórnarinnar. Og víst má líklegt telja, að Al- þýðubandalag og Framsókn hafi notfært sér reynsluleysi þingflokks krata, enda voru hvorir tveggja fullir pólitískrar afbrýðisemi vegna kosningasigurs þeirra. Vilmundur vildi tryggja sér meiri áhrif innan flokks- kerfisins til að styrkja sjálfan sig í sessi og baráttumál sín. Það þótti mörgum mótsagna- kennt eftir hörð orð hans um flokksapparat- ið og kann persónulegur metnaður að hafa nokkru ráðið. Vilmundur gerði aðra tilraun tveimur ár- um seinna, en var þá í raun kominn með annan fótinn úr flokknum. Alþýðublaðsdeil- an sumarið 1981 dýpkaði gjána milli Vil- mundar og forystu flokksins, og virðist jafn- vel hafa lokið með fullum fjandskap milli Vil- mundar og Jóns Baldvins Hannibalssonar, ef frásögn Jóns Orms er rétt. Upp úr því kom Nýtt land, vikublað og lagði upp laupana írman frdar, öar sig ekki, encfa öfaupíd fff úf- gáfunnar. Vilmundur bauð sig fram til vara- formennsku móti Magnúsi á flokksþingi 1982 og féll með 12 atkv. mun. Og þar með var Vilmundur horfinn á braut, Bandalag jafnaðarmanna var í burðarliðnum. Eitt að- aibaráttumál Bandalagsins var aðskilnaður framkvæmdavalds og löggjafarvalds, en með þeim hætti vildi Vilmundur girða fyrir þann möguleika að sigurvegari í kosningum yrði ofurliði borinn við stjórnarmyndun. Kjósendur áttu að velja beint og milliliða- laust forsætisráðherra. Því má segja, að Bandalagið eigi rætur að rekja til stjórnar- myndunar 1978, nema að því leyti sem rekja má til persónulegs metnaðar. Ég leiði hest minn hjá því að fjalla um get- gátur og fullyrðingar þess efnis, að Vilmur.d- ur hafi verið geðveikur. Víst er margt ófag- urt, sem eftir mönnum er haft um geðheilsu Vilmundar, sem og ýmislegt, sem um hann var ritað, ekki sízt í Tímann. En á hitt er einn- ig að líta, að tiltektir hans voru ekki hvers- dagslegar, sbr. Alþýðublaðsdeiluna, grín- blaðið. Þá er einnig vert að hafa í huga, að sjálfur var hann fjarska óvæginn í blaða- greinum. Hann sá þó yfirleitt ýmis sjónar- mið. Mér finnst að hann hafi virt andstæð- inga sína, þótt hann þyldi þá illa, suma. Og vert er að benda á, að margir rangfluttu það sem Vilmundur hafði skrifað, en hann var síðan gerður ábyrgur fyrir öllu saman, sbr. Klúbbmálsgreinina frægu og málflutning Sighvats Björgvinssonar á Alþingi og Ólafs Jóhannessonar í framhaldi af því. Ég er sammála Jóni Ormi og fleirum, að Vilmundur vann pólitískt afrek með stofnun Bandalagsins og framboði um allt land í kosningunum 1983. Starfsþrek hans virðist hafa verið með ólíkindum, a.m.k. þegar vel gekk, metnaður hans var slíkur, að allt var lagt í sölurnar, og það tókst. Hann fékk til samstarfs hæfa menn og konur, flokkurinn fékk fjóra menn kjörna. Það var vissulega sigur, en þó minni en Vilmundur hafi vænzt. Móta menn söguna eða eru þeir skilgetin afkvæmi hennar? Hefði einhver annar kom- ið í staðinn fyrir Vilmund? Víst hafa einstakl- ingar áhrif á gang sögu, þótt ætla megi, að einhverjir hefðu fyllt skörð þeirra, gegnt hlutverki þeirra. Vilmundur átti sinn þátt í að breyta fjölmiðlum hérlendis. Jafnvel minnk- aði hann bilið milli valdsmanna og almenn- ings. Þó fer víðs fjarri, að hann hafi staðið einn að verki. Hugmyndir hans áttu hljóm- grunn vegna þess að hann var ekki einn á báti. Öll reynsla Vilmundar og fas olli því að hann var áberandi og sífellt milli tanna fólks. Hann var stór í sigrum sínum og ósigrum eins og hann sagði sjálfur, gekk ekki hvers- dagsleiðir. Hann var hávær í opinberu lífi, gustmikill, en átti til aðra og hljóðlátari strengi: Ég elska þig af mœtti minna drauma í mínu hjarta er sláttur fyrir þig, ó, þú sem gafst mér guösins beztu veigar og gekkst svo hnuggna dali fyrir mig, ég elska þig. Vilmundur spillti stundum fyrir sér með fasi sínu og orðum, en hann átti erindi og náði árangri. s.S. Jónasarfóstri lítur um öxl Halldór E. Sigurösson: í fóstri hjá Jónasi Halldór E. Sigurösson rekur minningar sínar. Andrés Kristjánsson bjó til prentunar. Örn og Örlygur 1985. Ekki er bókin beinlínis kölluð fyrsta bindi, en sterklega gefið í skyn í lokin að framhalds sé að vænta, enda lýkur henni þar sem stjórnmálaferill Halldórs er að hefjast með því að hann bregður góðbúi sínu á Staðarfelli 1955 til að gerast sveitarstjóri í Borgarnesi og þingmannsefni Framsóknarflokksins í Mýrasýslu. Ekki var þingsætið þó öruggt, og starfið ekki heldur tryggt til neinnar fram- búðar, og ef illa færi „hefði ég gloprað úr hendi mér lífsafkomu, sem ég hefði nú allörugga. Hermann og Eysteinn sögðu, að þeir yrðu auðvitað að taka á sig þá ábyrgð að útvega mér lifvæn- legt starf, ef ég hyrfi að þeirra ráði, og verr færi en þeir vonuðu. Ég efaðist að vísu ekki um, að þei'r mundu standa víð þau orð ef tíí kæmi, en mér var það heldur hvimleið hugs- un að verða þannig háður annarra hjálp, og ég hef oft hugsað um það síðar, hve lán mitt var þó mikið að ég skyldi ekki þurfa að verða þannig upp á aðra kominn með lífsframfæri mitt og fjölskyldu minnar, úr því að svo fór að ég sleppti því landi sem ég hafði náð.“ Svona geta hrotið af penna Halldórs hrein gullkorn yfirlætislausrar hreinskilni; og svona er stíll hans, hægur, skýr, og geðþekk- ur. Hins vegar er bókin sundurleit að efni og misjafnt hve vel tekst til um úrvinnsluna. Á undan lokakaflanum, sem hér var vitnað í, fer t.d. langur kafli, röskar 20 síður, um er- indrekstur Halldórs fyrir Framsóknarflokk- inn víða um land veturinn 1953-54, sem er eintómt minningahrafl um ferðalög og fólk, en naumast vottur af pólitískum fróðleik. Þar á undan hins vegar smákafli um stofnun Stéttarsambands bænda þar sem Halldór kostar kapps um að skýra hinn pólitíska kjarna þess máls. Þar á undan kafli um 9 Ijóð- skáld, að jafnaði tæp blaðsíða um hvert, sem uxu upp í Dalasýslu á 20. öld, og er nauðalít- ið sem tengir kaflann raunverulegum minn- ingum Halldórs. Einkum er það seinni helmingur bókarinn- ar, um 18 búskaparár Halldórs á Staðarfelli, sem er æði sundurlaus, m.a. fyrir það hve gríðarlegum fjölda af samferðafólki sínu Halldór vill gefa nokkurn vitnisburð, og þá jafnan loflegan. (Það er annars óttaleg níska af forlaginu að láta ekki semja nafnaskrá við svo mannmarga bók.) Þó er ýmislegt innan um bæði fróðlegt og læsilegt, og allur andi frásagnarinnar er jákvæður og viðkunnan- legur. Fyrri helmingur minninganna fjallar um uppvaxtarár Halldórs til 21 árs aldurs, og er þar öllu samfelldari þráður, þótt mikið sé þar raunar líka af laustengdum skyndimyndum. Langlengsti kaflinn, og sá sem bókin í heild dregur nafn af, heitir „I fóstri hjá Jónasi frá Hriflu" og er bæði fróðlegur og prýðilega sagður. Jónas boðaði Halldór til sín tvítugan, án þess að þekkja hann nema af afspurn, og hélt hann nokkra mánuði sem hið kynleg- asta millistig milli einkaritara, fóstursonar og pólitísks lærisveins; en sú starfsþjálfun átti eftir að fleyta Halldóri býsna langt. Hér örlar að vísu eins og víðar á veikleika Halldórs fyr- ir óviðkomandi efni; hann er á einum stað allt í einu farinn aö birta valda kaíla úr minn- ingargreinum sem Jónas skrifaði í Tímann. En í heild er kaflinn hinn ágætasti, bæði sem heimild um Jónas og einkar fallegur vitnis- burður um aðdáun Halldórs — ekki þó blinda — á sínum stórbrotna velgerðar- manni. Minningar Halldórs E. Sigurðssonar minna talsvert á sjálfsævisögu annars framsóknar- ráðherra, Steingríms Steinþórssonar. Enda að vissu leyti úr sama aflinum, því að báðar hefur Andrés Kristjánsson búið til prentunar. Þó hygg ég samkennin séu ekki síður frá höf- undunum runnin en Andrési; hið víða (ef ekki losaralega) efnisval; misföst tök á póli- tísku fróðleiksefni; og rík viðleitni til að minnast sem flestra einstaklinga. En þar skil- ur með þeim flokksbræðrum hve umtals- frómur Halldór er, og raunar virðist hann á allan hátt vera miklu sáttari maður en Stein- grímur að kvöldi starfsævi. Það gerir minn- ingar hans hlýlegar aflestrar. Þær eru líka á góðu máli og lýtalausu, enda svo sem ekki hætt við öðru þar sem Andrés Kristjánsson hefur farið höndum um. En Andrés virðist ekki hafa gaumgæft mjög efnisskipunina, t.d. að eyða endurtekningum sem vottar fyr- ir í seinni partinum, og ekki athugar hann að gera það orðrétt sem vitnað er í kunnan kveðskap, bæði Þorsteins Erlingssonar (bls. 132) og sjálfa Passíusálmana (bls. 95). H.S.K. HELGARPÓSTURINN 25

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.