Helgarpósturinn - 16.01.1986, Blaðsíða 15
iiggja og nú er ég afar þakklát fyrir
að hafa fengið tækifæri til þess að
kynnast íslandi og þjóðinni hérna.
Ég vil þó taka það fram, að endan-
leg ákvörðun um aila hluti er auð-
vitað tekin af hverjum einstaklingi
fyrir sig — við erum ekki þvinguð til
neins!
Jógakennarar eins og ég verða að
yfirgefa föðurland sitt til þess að
kynnast öðrum menningarheim-
um. Það er óhjákvæmilegt."
— Hvaö greinir Ananda Marga
frá öörum jóga-kerfum?
„Ja, það eru til margar jóga-að-
ferðir og þetta er einfaldlega ein
þeirra, en þar að auki höfum við þá
sérstöðu að hafa andlegan leiðtoga
sem hefur þá hugsjón að leiðarljósi
að fórna sér fyrir mannkynið. Öll
hans heimspeki gengur út á það að
hjálpa öðru fólki og það kennir
hann okkur. Stundum beitir hann
okkur þrýstingi til þess að við kom-
um hlutunum í verk. A síðustu árum
hefur hann lagt mikla áherslu á
stofnun og rekstur barnaheimila og
skóla og þessi leikskóli hér í Skerja-
firðinum er einmitt afrakstur þess.
Þar með er sagan þó ekki öll, því nú
vill hann að ég opni annan skóla.
Eins og ég sagði áðan, verður það
skóladagheimili."
— Ykkar andlegi leiðtogi er sem
sagt sprelllifandi?
„Já, hann er það. Hann fæddist á
Indlandi og býr þar. Það er mjörg
erfitt að skilja persónuleika hans til
fulls. Kærleika hans eru engin tak-
mörk sett, þvi hann vill hjálpa dýr-
um og gróðri engu síður en mann-
fólkinu. Honum þykir vænt um allt,
sem lifir.
Hánn kom reyndar hingað til
lands fyrir allnokkrum árum, en
hann ferðast töluvert um heiminn
og heimsækir Ananda Marga með-
limi. Það stendur til að hann komi
hingað aftur á næstu árum.
Mig langar til þess að taka það
fram að leiðtogi okkar býr ekki í
neinum munaði. Hann býr í höfuð-
stöðvum samtakanna í Kalkútta á
Indlandi, en þær eru reknar fyrir fé
sem féiagarnir gefa af fúsum og
frjálsum vilja.“
— Hefuröu komiö þangaö sjálf?
„Ég hef verið þar einum fjórum
eða fimm sinnum, þó ég hafi ekki
beinlínis búið undir sama þaki og
hann, því þarna er fólki skipt í hús
eftir kynjum. Þetta er stórt húsnæði,
enda er þarna miðstöð alls þess
starfs, sem fram fer vítt og breitt um
heiminn. Þarna eru skrifstofur sam-
takanna og yfirstjórn fer fram það-
an.“
ÖNNUM EKKI
EFTIRSPURNINNI
— Er það þitt hlutverk að vera hér
áfram um einhvern tíma og gœta ís-
lenskra barna?
„Ekki veit ég annað. Það er mjög
mikið að gera hér á leikskólanum —
alltaf langir biðlistar og mikil pressa
á okkur. Eg geri mér vel grein fyrir
því að aðsóknin stafar einfaldlega af
þeim skorti á dagvist, sem ríkir hér
á höfuðborgarsvæðinu, en ekki
vegna þess að fólki sé ljós árangur-
inn af dvöl barna hér hjá okkur. Við
höfum hreinlega ekki nægilega
langa reynslu af barnaheimilinu
enn, því það hefur aðeins verið
starfrækt með núverandi sniði í ör-
fáa mánuði. Áður fyrr gátum við að-
eins tekið við fáum börnum, því við
vorum í mjög þröngu bráðabirgða-
húsnæði. Ég er hins vegar viss um
að sérstaða okkar mun koma betur
fram þegar hægt er að benda á
nokkurra ára reynslu og árangur. Þá
mun fólk sækjast eftir plássi fyrir
börnin sín af því að við skerum okk-
ur úr öðrum leikskólum. Við verð-
um að visu vör við að margar græn-
metisætur vilja gjarnan koma börn-
um sínum hingað, því hér fá heils-
dags börn heitan grænmetismat í
hádeginu."
— Segðu mér hvað þér finnst um
lífið á Islandi—þaö lífsem foreldrar
skjólstœðinga þinna lifa.
„Ég held að lífsgæðakapphlaupið
sé komið út í algjörar öfgar hér á
landi. Fólk er sífellt að safna að sér
veraldlegum gæðum á kostnað hins
andlega. Það má ekki gleyma til-
finningalegum þörfum barnanna í
þessu kaupæði. Þau þurfa svo mikið
á öryggi að halda og það er einmitt
á heimilunum, sem grunnurinn er
lagður. Ég er viss um að það má
rekja mikið af vandamálum fólks til
erfiðleika á heimilunum."
VIL EKKI VERÐA
VÖLD AÐ ÁREKSTRI
Þrátt fyrir að ýmsir annmarkar
væru á því að blaðamaður gæti set-
ið öllu lengur á hinum harða barna-
stól, var ekki hægt að slíta samtal-
inu án þess að spyrjast fyrir um við-
brögð íslendinga við dökkbrúnni
nunnu frá framandi landi. Spurning-
in vakti augljóslega kátínu, því við-
mælandi minn fór að skellihlæja.
„Þeir einu, sem gefa sig á tal við
mig eru börn og stundum gamalt
fólk. Aðrir tala ekki við mig að fyrra
bragði. Frumkvæðið verður því að
koma frá mér sjálfri.
Stundum verð ég að berjast við að
fara ekki að skellihlæja, þegar ég sé
að fólk í bílum snýr sér við til þess að
stara á mig, og mig langar mest til
þess að hrópa til þess að aka nú var-
lega og hafa augun á veginum. Mig
langar ekki til þess að verða völd að
árekstri! Ef þetta fólk hæfi samræð-
ur við mig, myndi ég tala við það
með mestu ánægju og fræða um
það sem vekur forvitni þess. Þetta
er hins vegar hlutur, sem maður
venst og ég finn ekkert fyrir þessu
lengur. Ekki get ég farið úr nunnu-
kuflinum eða breytt litarhætti mín-
um, svo það er ekki um annað að
ræða en taka þessari athygli með
jafnaðargeði.“
MARABMJÖL
íslenskir bændur kannast viö ásælni húsdýra i Ijorur Par sækja þau steinefni, snefilefni og
vitamin i valdar þorungategundir
Nu fæst þetta sælgæti í 10 kg umbúðum á skaplegu veröi
• MARAMJOL eykur hárvöxt og gefur
feldinum glansandi áferö.
• MARARMJÖL atyrkir og herðir hófa.
• MARARMJÖL bætir meltingu dýranna,
eykur vellíöan þeirra og gefur þeim
hraustlegt útlit.
• MARARMJÖL eykur viðnámsþrótt gegn
sjúkdómum.
ÚTSÖLUSTAÐIR
M.R. búðin Laugavegi
Hestamaðurinn Ármúla 38
Ástund Austurveri
Háaleitisbraut 68
KEA Akureyri
Dagsammtur er u. þ. b. 60 gr. (1 tebolli).
MARARMJÖL á aö blanda saman viö annaö fóður.
ÞÖRUNGAVINNSLAN HF.
Reykhólum 360
Simi 93-4740
algemarm
w ®
hársins
vegna...
Dreifing:íSKLASS S. 51020*
HELGARPÖSTURINN 15