Helgarpósturinn - 16.01.1986, Side 7
BORGARÍSJAKINN E R AÐ BRÁÐNA:
HJA
• ENGAR ÁKVARDANIR OG MÁLIÐ í HNÚT
• SAMBANDIÐ OG BORGIN ERU TVÍSTÍGANDI
• FRJÁLS FJÖLMIÐUJN Á ÚTLEIÐ
• ÚTVARPSRÉTTARNEFND LOKAR DYRUNUM
eftir Friðrik Þór Guðmundsson myndir: Jim Smart
Það ríkir upptausn hjá fjötmidla-
rísanum Isfitm. Fyrirtœkid getur sig
hvergi hrœrt og engar ákvardanir
tekið, annars vegar vegna þess að
reg/ugerð Utvarpsréttarnefndar er
ekki komin, en hins vegar og ekki
síst vegna þess að engin samstaða
er á milli hinna stóru htuthafa um
framhaldið. Útgáfufélag DV er þeg-
aráútleið, Sambandið er tvístígandi
og í viðrœðum við aðra og borgin
hefur samþykkt að setja hlut sinn ef
ekki verður ár fyrirhuguðum fram-
kvœmdum. Isfilm er rekið með tapi
og starfsmenn fyrirtœkisins eru á
förum. Stjórnarformaðurinn segir
samt að allt sé í fína tagi!
Þegar fjölmiðlunarfyrirtækið ís-
film var stofnað í upphafi árs 1984
var haft á orði að líkja mætti fyrir-
tækinu við borgarísjaka; það væri
aðeins blátoppurinn sem sæist,
stærsti hluti væri hulinn í undirdjúp-
unum. Nú tveimur árum síðar virð-
ist allt benda til þess að svo hafi hitn-
að í hafinu að borgarísjakinn sé að
bráðna og leysast upp í frumeindir
sínar.
Frumeindirnar voru sem kunnugt
er hið upphaflega ísfilm, sem Indriði
G. Þorsteinsson veitti forstöðu, en
nefnist nú Haust hf, Almenna bóka-
félagid, Frjáls fjölmidlun (útgáfufé-
lag DV), Árvakur (útgáfufélag
Morgunblaðsins), Samband ísl.
samvinnufélaga og svo Reykjavík-
urborg. Allt eru þetta öflugir aðilar
-undir forystu valinkunnra fram-
sóknar- og sjálfstæðismanna og sáu
hörðustu andstæðingar þessara afla
ástæðu til að kalla ísfilm „Stóra
bróður". Núverandi stjórn skipa þeir
Indridi G. Þorsteinsson, formaður
(Haust), Kristján Jóhannsson (AB),
Haraldur Sveinsson (Árvakur),
Hördur Einarsson (Frjáls fjölmiðl-
un), Kjartan P. Kjartansson (SIS) og
Björn L. Halldórsson (Reykjavíkur-
borg).
DV: Á ÚTLEIÐ
Þegar verið var að setja ísfilm á
laggirnar benti allt til þess að fyrir-
tækið yrði að einu stærsta virkinu í
íslenskri fjölmiðlun er fram liðu
stundir. Markmiðið var (og er) aug-
ljóslega öflugt útvarp og sjónvarp,
en þeir hjá Frjálsri fjölmiðlun voru
þeir einu sem lýstu slíku yfir opin-
berlega. Og nú hefur það gerst að
Frjáls fjölmiðlun hefur lýst því yfir í
blaði sínu DV að þeir ætli út úr
Isfilm-samstarfinu. Við þetta bætist
að þátttaka SlS er nú talin mögulega
vera úr sögunni.
Skoðanir voru og hafa alltaf verið
mjög skiptar í stjórnun borgarinnar
og SIS um þátttöku í þessu fjölmiðl-
unarfyrirtæki. Hvað borgina snertir
lá á borðinu á sínum tíma að Davíd
Oddsson borgarstjóri réði einn ferð-
inni og afgreiðslu meirihluta sjálf-
stæðismanna. Aðrir fulltrúar flokks-
ins komu lítt nálægt málinu og voru
sumir hverjir afar óánægðir með
hvernig að þessu var staðið af hálfu
borgarstjórans. En þeir samþykktu
það sem Davíð lagði fyrir þá. Borg-
arstjórnarminnihlutinn gagnrýndi
vinnubrögðin harðlega og sagði
Sigurdur E. Guömundsson, borgar-
fulltrúi Alþýðuflokksins, að það
væri mikill tvískinnungur hjá sjálf-
stæðismönnum, að fara út í þetta í
ljósi afstöðu þeirra til þátttöku hins
opinbera í atvinnurekstri almennt.
En hinn 1. mars 1984 samþykkti
borgarstjórn með 12 atkvæðum
meirihlutans gegn 9 atkvæðum
minnihlutans að fara út í þetta fjöl-
miðlunarsamstarf og leggja 2 millj-
ónir króna í púkkið.
BORGIN: ANNAÐ
HVORT EÐA
Nú hefur það síðan gerst á þessum
vettvangi að borgarstjórnarmeiri-
hlutinn hefur samþykkt að verða
við tilmælum stjórnar ísfilm um
hlutafjáraukningu fyrirtækisins úr
12 milljónum króna í 48 milljónir.
Borgarstjórn samþykkti þannig
heimild til að auka sitt hlutafé upp í
8 milljónir króna. En um leið var
samþykkt að frumkvæði borgar-
HELGARPÖSTURINN 7