Helgarpósturinn - 16.01.1986, Síða 11

Helgarpósturinn - 16.01.1986, Síða 11
7. Sjá svar nr. 2. Ég fæ engan veginn skilið hvers vegna H.Ó. skrifar þetta gegn betri vitund. Skýrslan stööluö markieysa? Því miður er ekki hægt að birta skýrsluna alla, en lesendum til glöggvunar ætla ég að reyna að lýsa henni í samantekt. Boraðir voru 5 kjarnar 23/4 ’85. Einn þeirra molnaði sundur á staðn- um. Eftirfarandi rannsóknir voru gerðar: 1. Kjarnar skoðaðir og þeim lýst nánar. 2. Þann 23/5 var styrkur (brotþol) 3ja kjarna mældur. Taldir fullnægja kröfum um gæðaflokk S-200. 3. Frostþol var kannað með aðferð sem skv. skýrslunni var ,,of ströng til þess að vera eðlileg viðmiðun fyrir venjulega húsasteypu“!!! Við þessa prófun molnuðu kjarnarnir en það var bara ekkert að marka því prófið var of strangt! Því er enn algerlega óljóst hvert frostþíðuþol steypunnar er. Við vitum bara að steypan þolir ekki of mikið! 4. Skv. nótum frá Steypustöðinni átti steypan að innihalda minnst 5% loft. Niðurstöður RB frá júní '85 sýndu verulegan skort á loftblendi. (Sjá mynd 4.) Rannsóknir gerðar í maí og júní, en skýrslan tilb. í ág. Nidurstaða rannsóknarinnar: í skýrslunni er umsögnin orðrétt: „Eins og fram kemur hér að framan var lofthiti ekki hár fyrstu dagana. Því hefur styrkur steypu ekki verið orðinn nægur til að þola áhrif frosts og yfirborð steypunnar því frosið og steypan molnað. Misjöfn dreifing á skemmdum í plötunni stafar af því að kæling plötu getur verið misjöfn frá einum stað til annars og það get- ur líka valdið því að eigin hitamynd- un í steypunni verður misjöfn. Mis- munur á steypu milli bíla kemur einnig til greina"!! Ég læt lesendur sjálfa um að dæma þessa niðurstöðu um leið og ég bendi á, að í umsögninni er ekk- ert minnst á það, sem mér finnst skipta mig hvað mestu máli: A. Að skortur sé á loftblendi og því sé hér um gallaða vöru að ræða. B. Veðrunarþol steypunnar (m.a. svalir hússins) sé enn óþekkt því of strangt próf hefði verið notað eins og vitað var fyrirfram! Lokaorð Þessi grein er annars vegar skrif- uð til að svara Hákoni Ólafssyni for- stjóra RB sem virðist, í umfjöllun sinni um þetta dapurlega mál, halda þvi blákalt fram, að ég hafi fengið af- henta gallalausa steypu, sem hafi einfaldlega skemmst í frosti. Ég veit ekki hvers vegna hann leggur svona mikið á sig til að hvítþvo steypusal- ann, en hitt sjá allir siðvandir menn, að tengslin milli RB og Steypustöðv- arinnar h/f eru með öllu óþörf og raunar óþolandi. Hins vegar birti ég þetta bréf til að vekja væntanlega steypukaupendur til umhugsunar um þessa galdrastöppu, sem stein- steypan virðist enn þurfa að vera hér á landi, um leið og ég hvet þá til að láta taka sýnishorn úr aðkeyptri steypu og láta gera a.m.k. sigmáls- próf, athugun á burðarþoli, veðrun- arþoli og loftblendi. Að lokum vona ég að RB braggist á næstunni og losni endanlega úr hagsmuna- tengslum við alla framleiðendur byggingarefna. Læt ég þá lokið um- fjöllun um RB-þátt þessa máls en sný mér næst beint að Steypustöð- inni h/f með skaðabótakröfu. Virdingarfyllst Gunnar Ingi Gunnarsson. Helgarpóstinum hefur bor- ist bréf frá Halldóri Jóns- syni forstjóra Steypustööv- arinnar og stjórnarmanns í Rannsóknarstofnun bygg- ingariðnaðarins. Þar ed greinin barst of seint fyrir prentun þessa blaðs mun hún verða birt í næsta tölu- blaði HP, þ. 23. janúar. - Facit 4510 og 4511 prentarar ganga við flestar gerðir af einka- og heim- ilistölvum. Þeir eru áreiðanlegir, mjög fljótvirkir og prentun er í háum gæðaflokki. Hver leturhaus endist fyrir meira en 100.000.000 stafi og blekborðinn fer létt með 4.000.000 stafa. < co ro c c 3 O 4510 kostaði áður kr. 18.300 4511 kostaði áður kr. 22.800 kostar nú kr. 12.900 kostar nú kr. 16.900 Þetta er verðtilboð sem ekki er hægt að hafna og þar að auki eru í boði greiðslukjör við allra hæfi. GÍSLI J. JOHNSEN SF. n i NÝBYLAVEGI 16 • P.O BOX 397 • 202 KOPAVOGUR • SIMI 641222 SUNNUHLlÐ, AKUREYRI, SÍMI 96-25004 HELGARPÓSTURINN 11

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.