Helgarpósturinn - 16.01.1986, Síða 21
+
hræringar eru að
gera vart við sig hjá Hagvangi.
Vegna samdráttar og ánnarra mark-
aðserfiðieika er rekstrar- og fjár-
hagsstaða fyrirtækisins orðin slæm.
Væntanlegar eru breytingar á skipu-
lagi og mannahaldi fyrirtækisins og
mun forstjórinn Óladfur Örn Har-
aldsson vera á förum frá Hagvangi.
Hver kemur í hans stað vitum við
hins vegar ekki. . .
|J
U ú styttist í prófkjör Alþýðu-
flokksins í Reykjavík, en frestur til
að skila framboðum rennur út
næsta þriðjudag. HP hefur fyrir því
áreiðanlegar heimildir að um þessa
helgi muni hins vegar draga til mik-
illa tíðinda.
Þannig standa mál, að beðið er
eftir svari frá þremur aðilum, sem
verulega er þrýst á um að gefa kost
á sér í prófkjörið með efsta sætið í
huga. Þessir þrír aðilar eru sem áð-
ur hefur komið fram Bryndís
Schram, en hún verst og óttast að
framboð sitt yrði túlkað á verri veg-
inn, en hún er eins og alþjóð veit
eiginkona formanns flokksins. í
öðru lagi er þrýst á Jóhönnu Sig-
urðardóttur, varaformann, en hún
mun vera treg vegna vinnuálags á
þinginm í þriðja lagi er síðan enn
þrýst á Árna Gunnarsson ritstjóra,
en hann á erfitt um vik vegna kjör-
dæmis síns í Norðurlandi eystra.
Verulega hefur verið þrýst á þetta
fólk og standa vonir til þess að
a.m.k. eitt bjóði sig fram. . .
E
nda þótt Ragnar Hall skipta-
BILALEIGA
REYKJAVÍK:
AKUREYRI:
UORGARNES:
VÍDIGEROI V-HÚN.:
BI.ÖNDUÓS:
SAU DÁRKRÓKUR:
SIGLUFJÖRD.UR:
HÚSAVÍK:
EGILSTAÐIR:
VOPNAFJÖRDUR:
SEYDISFJÖRDUR:
FÁSKRÚÐSFJÖRDUR:
HÖFN HORNAFIRDI
91-31815/686915
96-21715/23515
93-7618
95-1591
95-4350/4568
95-5884/5969
96-71498
96-41940/41594
97-1550
97-3145/3121
97-2312/2204
97-5366/5166
97-8303
interRent
ráðandi i Reykjavík hafi lýst því yfir
að formleg rannsókn á Hafskips-
óreiðunni hefði átt að hefjast í gær,
miðvikudag, þá hafa þeir félagar
Ragnar og Markús Sigurbjörns-
son (Eiríkssonar ríkisskattstjóra)
verið á bullandi kafi í málinu frá því
,það kom á borð fógetaembættisins í
Reykjavík. Það mun einkum vera
Markús sem hefur með höndum
rannsókn á hugsanlegu misferli í
rekstri Hafskips, og mun hann hafa,
að því er HP veit best, grafið upp hitt
og þetta er vafasamt getur talist.
Einn af upplýsingabrunnum Mark-
úsar er að sjálfsögðu Útvegsbank-
inn og þar á bæ kvarta menn sáran
yfir óhemjulegri aukavinnu . í til-
teknum deildum bankans vegna
stöðugra óska frá Markúsi um upp-
lýsingar um hvaðeina er snertir
samskipti bankans og Hafskips. ..
■ regnir af sprengjuhættu og
vopnuðum öryggisvörðum virðast
ekki hafa áhrif á ferðalög Breta til ís-
lands, enda er það fyrir löngu orðið
daglegt brauð á stærstu flugvöllum
þarlendis að sjá vopnum búna her-
menn á vappi. Á fyrstu tveimur vik-
um ársins bárust skrifstofu Flug-
leiða í London 8.500 fyrirspurnir
um ferðamöguleika hingað til lands
og talsvert hefur verið um slíkar fyr-
irspurnir til sendiráðs okkar þar í
borg og til þeirra ferðaskrifstofa,
sem selja Islandsferðir. Þakka menn
þennan mikla áhuga m.a. þætti
Magnúsar Magnússonar um föð-
urland sitt, sem sýndur var á besta
tíma á annan jóladag. Einnig hefur
kjör Hólmfríðar Karlsdóttur sem
Ungfrú heimur haft sitt að segja,
ásamt kraftamanninum Jóni Páli
Sigmundssyni, sem er fastagestur
á sjónvarpsskermum í Bretlandi og
afar vinsæll. . .
A
^^^^lþýðuleikhúsið er orðið 10
ára og hefur afmælissýningin verið
lengi í undirbúningi og æfingu. Er
það leikritið ,,Tom og Viv“ sem fjall-
ar um breska skáldið T.S. Elliot og
eiginkonu hans. Leikstjóri verksins
er Inga Bjarnason en aðalhlut-
verkin í höndum Viöars Eggerts-
sonar, Sigurjónu Sverrisdóttur,
Maríu Sigurðardóttur, Margrét-
ar Ákadóttur og Arnórs Benó-
nýssonar. Þá mun hinn kunni
kennari og leikhúsgagnrýnandi
Sverrir Hólmarsson fara með
hlutverk í leikritinu og mun þetta
vera í fyrsta skipti sem leikhúskrítík-
er hættir sér á fjalirnar. Listakonan
Gerla hefur séð um búninga og
leiktjöld. Stykkið er nú að mestu
fullæft og það eina sem Aiþýðuleik-
húsið vantar er sýningaraðstaða.
Lengi vel var leikhúsið í samningum
við Þjóðleikhúsið um að leigja Þjóð-
leikhúskjallarann undir sýningarn-
ar og var málið tekið oft upp á fund-
um þjóðleikhússráðs en engin nið-
urstaða fékkst. Um daginn komu
loks boð frá Þjóðleikhúsinu og var
það afsvar við beiðni Alþýðuleik-
hússins. En ekki var ævintýrið úti.
Kjarvalsstaðir aumkuðu sig yfir hið
húsnæðislausa leikhús sem vildi
halda upp á áratug í starfi og gekkst
Reykjavíkurborg sem rekur Kjar-
valsstaði í að ganga frá leigusamn-
ingum við Alþýðuleikhúsið. Af-
mælissýningin verður því frumsýnd
30. janúar á Kjarvalsstöðum. Það er
reyndar einnig saga í sjálfu sér af
hverju Alþýðuleikhúsið komst inn á
Kjarvalsstaði. Fyrirhugað hafði ver-
ið að taka niður hið umdeilda loft og
var það áætlað þriggja mánaða
verk og voru fyrstu mánuðir ársins
skrifaðir undir þær breytingar á
dagskrá Kjarvalsstaða. Arkitekt
hússins, Hannes Davíðsson setti
hins vegar lögbann á þessar aðgerð-
ir, en myndlistarmenn hafa beitt sér
gegn þessu lögbanni. Meðan það
mál er í járnum hefur stjórn hússins
ekki getað ráðstafað húsinu og því
ágæt lausn að kippa Alþýðuleikhús-
inu inn af kaldri götunni. Það má
sannarjega segja að menningarmál
okkar Islendinga séu hverful...
TRYCGIR ÞER ÞÆCINDIFYRSTA SPOUNN
HREVRLL
685522
Eitt gjald fyrir hvern farþega
Viö flytlum þig a notaiegan og oOyran natt a
fiugvollinn. Hver farþegi oorgar fast gjald. Jafnvel þott
þu sert einn a ferö borgarðu aðeins fastagjaldið
Við vekjum þig
Ef þrottfarartimi er að morgni þarftu að nafa samÞand
við okkur miili kl. 20 00 og 25 00 kvoldið aður. Við
getum seð um að vekja þig með góðum fyrirvara, ef þu
oskar. Pegar brottfarartimi er siðdegis eða að kvoldi
nægir að nafa samband við okkur milli kl. 10 00 og 12 00
sama dag
Bill fra Hreyfli fiytur þig þægilega og a réttum
tinia a flugvöllinn.
Pú pantar fyrirfram
við hja Hreyfli erum tilUunir að flytja þig a keflavikur-
flugvoll a rettunr tima i mjukri limosinu. Malið er
einfalt. Pu hringir i sima 85522 og greinir fra dvalarstað
og brottfarartima. Við segjum þer hvenær billinn
kemur
RAGNAR BJÖRNSSON hf.
Dalshrauni 6 Haí narílröi - Simi 50397
\
fyrir þá sem sætta sig ekki við það næstbesta
Þú þarft ekki aö bua á enskum herragarði til aö geta leyft þer aö pryöa stofuna meö
Chesterfield sófasetti. Þaö fer allstaðar vel. Og eitt getur þú veriö viss um: þaö
kemur aldrei neitt annað i staöinn fynr Chesterfield. Ef þu sættir þig ekki við þaö
næstbesta skaltu snúa þér til Ragnars Bjornssonar hf. bolstrara sem i áraraöir hefur
framleitt Chestertield sófasett úr vtöurkenndu leöri - oa á verði. sem þu ræöur við.
4
HELGARPÓSTURINN 21