Helgarpósturinn - 06.02.1986, Blaðsíða 14

Helgarpósturinn - 06.02.1986, Blaðsíða 14
^ 1.............................................................................................................................................................................................................................................................................................................. mmmsmmmmm Steingrímur Hermannsson og ráðherralið hans rétt komið af nýstárlegri ráðstefnu um fíkniefni og áhrif þeirra: „FYNDIN ÁHRIF“ — segir forsætisráðherra sem t.d. langaði allt í einu í jarðar- berjatertu þegar prófanir stóðu sem hæst „Ég var fyrst furöulegur þegar ég prófaði belgina, þessa.mislitu, en að öðru leyti fannst mér þetta vera eins og ég hafði ímyndað mér,“ sagði Steingrímur Hermannsson forsætis- ráðherra við Aðalblaðið í morgun, en hann sat sem kunnugt er um síð- ustu helgi ráðstefnu í ráðherrabú- staðnum um fíkniefni og áhrif þeirra. Allir ráðherrar stjórnarinnar mættu á fundinn, þó aðeins þrír þeirra hefðu verið boðaðir þangað sérstaklega. „Við létum fyrst pípuna ganga í svolitla stund,“ heldur forsætisráð- herra áfram, „en hún fór fijótt svo illa í dómsmálaráðherra að við hættum bara. Okkur hinum fannst heldur ekki mikið fútt í því sem hún hafði að brenna, nema kannski Ragnhildi sem lét einna best af henni. Svo prófuðum við þetta hvíta. Blessaður vertu, ég hnerraði nú bara eins og vitlaus væri, en þetta var nú samt fyndið — ég meina áhrifin. Allavega langaði mig alltíeinu alveg óstjórnlega í jarðar- berjatertu." Á þessari ráðstefnu um fíkniefni og áhrif þeirra kom fram að notkun vímuefna hefur stóraukist hjá ungl- ingum frá því sem kom fram í könn- unum á síðasta áratug. Steingrímur Hermannsson sagði Aðalblaðinu að lokum: „Mér finnst ég fyrst núna geta sett mig í spor þessa fólks sem ánetjast þessum óttalegu efnum. Þessi reynsla frá síðustu helgi hafði djúpstæð áhrif á mig. Ég held bara að þingmenn ættu að prófa þetta svo þeir vissu betur hvað þeir eru að fjalla um þegar þeir flytja há- stemmdar ræður um fíkniefna- vandamálið." Frá fíkniefnaráðstefnunni um helgina, en hún var haldin í ráðherrabústaðnum að viðstöddum öllum ráðherrum lands- ins. Á myndinni sést einn af fyrirlesur- unum lýsa áhrifum (...) á jafnvægisskyn manna. Sigurjón aftur tekinn við starfi framkvæmdastjóra LIN: HITTI SVERRIÁ ÆTTAR- MÓTI UM HELGINA „Þetta mál horfir auðvitað allt öðruvísi við í dag en það gerði fyrir nokkrum vikum. Ég fer ekki í laun- kofa með það að álit mitt á þessum unga manni hefur breyst úr engu í mikið. Ég vil jafnvel kveða hart að og segja að mér stórlíki við kauða. Það er geypilega mikið varið í þenn- an dreng.“ Svona hefur skoðun Sverris Her- mannssonar menntamálaráðherra á Sigurjóni Valdimarssyni fyrrver- andi framkvæmdastjóra LÍN breyst á einni nóttu. Eins og kunnugt er hafa samskipti þessara manna ekki verið með ágætum og má reyndar segja að fullur fjandskapur hafi myndast milli þeirra þegar ráðherra rak Sigurjón úr starfi í byrjun ársins. Þeir hittust hinsvegar á ættarmóti um helgina. Þótt ótrúlegt megi virð- ast höfðu þeir aldrei hist fyrr undir fjögur augu, aðeins skipst á boðum fyrir milligöngu manna. En mönn- um varð strax ljóst að þeir hlytu að vera eitthvað meira en mikið skyldir þegar þeir sáust heilsast, að vísu kuldalega, á umræddri samkomu. Svipurinn er svo sterkur. Það tók heldur ekki ættfróðustu menn langan tíma á mótinu til að gera þeim grein fyrir þeim böndum sem þeir hafa í rauninni alltaf verið bundnir. Salurinn ku hafa þagnað þegar niðurstaðan var ljós: Þre- menningar. Þeir féllust í faðma. Sunginn var sálmur. Síðan farið í þrautakóng eins og venja hefur ver- ið á þessum ættarmótum. Við þetta er aðeins því að bæta að Sigurjón Valdimarsson tók við fyrra starfi sínu strax á mánudagsmorgni og hefur á þeim fáu dögum sem síð- an eru liðnir verið sterklega orðað- ur við starf aðstoðarmanns mennta- málaráðherra. Altént hefur hann sést snæða í hverju hádegi frá helgi með Sverri frænda. KOSNINGAHERFERÐ BRYNDÍSAR SCHRAM VAKTIATHYGLI (sjá bls. 2 og leiðara) AROÐURSBRAGÐ BJARNA P. MAGNÚS- SONAR VAR SAMT SÝNU ÓVÆNTARA (sjá bls. 17 og dagbók) VARILLA FARIÐ MEÐ SIGURÐ E. GUÐMUNDSSONÍ PRÓFKJÖRIKRATA? (sjá bls. 8 og smá- auglýsingar) mm Erleiídur Einarsson forstjóri SIS í æðislega opinskáu viðtali: „HVORT SEM ER AI.T.TAF FUNDIST TE MIKLU BETRA" MER LIKA (( segir Valur Arnþórsson stjórnarformaður Sambands- ins og baunar hressilega á forystuna syðra. SEGJA SIS“ Utlit fyrir að auglýsinga- og ,,image“-herferð Sambandsins í kjölfar neikvæðrar fréttaumfjöllunar síðustu mánuði, muni kosta það hátt í þúsund krónur. sjá úttekt Aðalblaðsins á kaffibauna- svindlinu á bls. 2, 3, 5, gengisskráningu og myndasögur. 14 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.