Helgarpósturinn - 20.02.1986, Blaðsíða 13

Helgarpósturinn - 20.02.1986, Blaðsíða 13
að getur verið erfitt að gera fjárhagsáætlanir á íslandi. Þannig brá konu sem við þekkjum heldur betur í brún, þegar hún fór að kanna hvað hún ætti að borga nákvæm- lega fyrir íbúð sína sem var verið að klára á vegum Verkamannabú- staða. í ljós kom, að prísinn var um 3,6 milljónir króna fyrir rösklega 90 fermetra íbúð. En þegar hún fékk úthlutað af guðs náð fyrir einu og hálfu ári var uppgefið verð 2 millj- ónir. íbúðin hafði semsé hækkað um 90% á einu og hálfu ári. Og er blessuð konan óskaði eftir skýring- um á þessari gífurlegu hækkun var svarið: „Verðbólgan!" En okkar kona var ekki svo vitlaus, að fallast á 90% verðbólgu á einu og hálfu ári og spurði frekar, en þá fékk hún engin svör. Skrambi væri gaman að fá skýringu á þessu... lEins og flestum mun kunnugt hefst heimsmeistarakeppnin í hand- knattleik í Sviss undir lok þessa mánaðar. Héðan frá Islandi fer lið íþróttafréttamanna og annarra blaðamanna, sem munu senda frétt- ir af keppninni. Þannig fara tveir frá Ríkisútvarpinu, Samúel Örn frá út- varpinu og Bjarni Fel frá sjónvarp- inu, og síðan blaðamenn frá öllum dagblöðunum að Degi á Akureyri meðtöldum en Tímanum frádregn- um. Þá mun Helgarpósturinn senda mann á vettvang. Hjá Tíman- um var það Þórmundur Bergs- son, sem átti að fara til Sviss og hef- ur hann raunar staðið að ýmsum undirbúningi fyrir aðra íþrótta- fréttamenn fyrir ferðina. En þegar stjórn Tímans fékk erindi ritstjórnar og kostnaðaráætlun gripu þeir Kiddi Finnboga og Alfreð Þor- steinsson hjá Sölu varnarliðseigna í taumana. Töldu þeir þessa ferð upp á 80—100 þúsund of dýra fyrir nýja tíma á Tímanum. Miðað við vinsældir íþróttaefnis í blöðunum þykir þetta ekki mjög dýrt og að auki þykir mönnum skondið, að móðurskip framsöknarmanna tími ekki að senda menn til Sviss á sama tíma og Litli Tími telur sér fært að þjóna sínum 4—5 þúsund lesendum með því að senda fulltrúa á heims- meistarakeppnina... u r Hafnarfirðinum heyrum við, að Markús Á. Einarsson bæj- arfulltrúi Framsóknarflokksins þar í bæ ætli ekki fram aftur. Ekki höfum við heyrt skýringuna. Ef til vill er Markús einfaldlega þreyttur á póli- tíska stússinu eða þá, að honum líst ekkert á blikuna, eins og frömm- urum í Reykjavík, sem eiga í mestu erfiðleikum með að koma saman lista. . . u ■ ú fer útvarps- og sjónvarps- bylgjan nýja að leggjast yfir íslenska þjóð. Einar Sigurðsson fréttamað- ur á sjónvarpi er orðinn fyrsti „frjálsi" útvarpsstjórinn. Hins vegar situr yfir honum stjórn íslenska út- varpsfélagsins og þar eru töffarar á ferð. Raunar er félagið almenn- ingshlutafélag. Hlutabréf hafa að vísu ekki selst ýkja vel enda er fólk sjálfsagt óvisst um' hver hagnaðar- vonin af nýju fyrirtæki sem þessu geti orðið. En formaður stjórnar Is- lenska útvarpsfélagsins Jón Ólafs- son í Skífunni velkist sennilega ekki í vafa um hagnað til handa einhverj- um aðstandenda, því eftir því sem HP hefur fregnað verður tækjabún- aður nýju stöðvarinnar af MBI gerð eða sams konar tæki og keypt voru, þegar rás 2 var sett á laggirnar. Og hver skyldi svo hafa umboð fyrir MBI tækjabúnaðinn? Jú, enginn annar en formaður stjórnar hins nýja almenningshlutafélags, áður- nefndur Jón Ólafsson og því getur hann fyrirfram gert ráð fyrir vænni summu frá íslenska útvarpsfélaginu í formi umboðslauna. Hér er um að ræða miklar summur og vænar. . . |k| ■ ^H iðrí sjónvarpi eru kjara- mál einstakra starfsmanna orðin svolítið einkennileg og jafnframt ákaflega óréttlát. Þannig er, að tæknilið sjónvarpsins, eins og flestir aðrir, er illa launaður hópur og hafa starfsmenn úr þessum hópi sagt upp störfum unnvörpum. En sjónvarpið má ekki missa þetta fólk og getur því ekki annað en gengið að kröfum þess um laun, sem eru allt að helmingi hærri en sjónvarpið greið- ir allajafna. Þannig eru dæmi þess, að tæknimenn á myndbandsdeild vinni hlið við hlið og þeir sem sögðu upp fái helmingi meira um mánaða- mótin. Sama má segja um suma út- sendingarstjórana. Þannig hefur ríkisfyrirtækið neyðst til að horfast í augu við þá staðreynd, að það verður að greiða helmingi hærri laun til sumra, ef það ætlar ekki að missa allt starfsfólkið út á frjálsan markað. . . u m daginn var skýrt fra þvi, að Ólafur Örn Haraldsson hefði verið ráðinn til Útsýnar sem yfir- maður einhverrar deildarinnar á þeim bæ. Ólafur var áður fram- kvæmdastjóri Hagvangs. Nú er hvískrað um það í miðbænum, að þetta sé aðeins fyrsta skrefið í átt að breytingum á forstjórn Útsýnar. Ing- ólfur Guðbrandsson ætli nefni- lega að draga sig í hlé og forstjóra- starfið sé ætlað Ölafi. En við seljum þetta ekki dýrara en við keypt- Ertu ekki búinn aö finnaþaðennþá? verið slaemt að týna kvittun.. Hjá Pennanum finnur þú allt, sem þarf til aö skipuleggja heimilisbók- haldið, — möppur, geymslubindi, tímaritagáma, gatara, límmiða, teygjur, bréfaklemmur, o.s.fr. Hjá Pennanum finnur þú allt, sem þú þarft til að finna þína eigin pappíra á augabragði. Komdu og finndu okkur í Hallarmúla! Einföld vömgegn svita. pHarma-medica svitaeyðir Svlfakrem með mildum ilmi f 25 og óO ml túpum. Sértega áhrifamikið krem sem ertfr ekki húðina. Heldurvlrknl slnni þráttfyrir báðun eða þvotta. .Roll-on*, lyktarlaust svitakrem sem hentar flestum. Úðl - lykfarlaus en óflugur svitaéyðlr í handhœgum umbúðum. Fótapúður, lyktariaust. Er borlð á fœtur strax eftfr þvott og þurrkun og má einnig nota Innan á sokka og skó ef fátrakl er miklll. Fótakrem með ferskum llml. Þvottar mlnnka ekki virknl efnisins. PU . : anti- perspirant °g deodorant ANH pHarma-medica viðurkenndar gœðavörur sem standa undir nafni. Fást í ðllum apótekum og öllum helstu snyrtivöruverslunum landsins. HEILDSÖLUBIRGÐIR: FARMASÍA HF. PÓSTHÓLF 5460,125 REYKJAVÍK. SÍMI: 91 -25933 HELGARPÓSTURINN 13

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.