Helgarpósturinn - 20.02.1986, Page 14

Helgarpósturinn - 20.02.1986, Page 14
Gunnar Páll Ingólfs- son segir frá til- raunum til útflutn- ings á lambakjöti til Bandaríkjanna og greinir frá því að þær hafi misheppn- ast vegna áhuga- leysis SIS og land- búnaðarráðu- neytisins. i yrir skemmstu var í Helgarpóstinum fjallað um tilraunir til útflutnings á lambakjöti til Bandaríkjanna. Var fjallað um sérstaka ferð tveggja full- trúa Landssambands sauðfjár- bœnda vestur í þessu skyni, þeirra Sigurgeirs Þorgeirssonar og Gunn- ars Páls Ingólfssonar. Ein megin nið- urstaða greinarinnar var að tilraun- ir þessar hafi misheppnast vegna tregðu SÍS-veldisins og áhugaleysis um útflutning þennan og vitnað til ummœla hugsanlegra kaupenda ytra eins og þau voru tilfærð í skýrslu Sigurgeirs um ferðina. „Þeir voru ekki í stakk búnir" Forstjóri búvörudeildar SIS sagði við þetta tækifæri að það væri þvert á móti kappsmál fyrir SIS að íosna við allt kjöt sem fyrst. Um útflutn- ingstilraunirnar sagði Magnús: „Ég held að báðir aðilar hafi metið góð- an vilja þessara aðila ytra um of og síðan kom í ljós að þeir voru einung- is að tala um hluta viðskiptanna. Kaupandinn í þessu dæmi var raun- verulega of nálægt neytandanum; hann hefur ekki bolmagn til að vera innflytjandi eða heildsali, hann hangir í að ráða við að vera dreifing- araðili eða smásali — og þá á ég við Pride of Iceland. Gallinn við tilraun- irnar var einmitt þessi og á þessu strandaði. Við seldum þó 4,5 tonn sem ekki komu á réttum tíma þar sem bankaábyrgðir voru ekki veitt- ar tímanlega. Og þessir aðilar voru síðan eftir allt saman ekki í stakk búnir til viðskiptanna." Gunnar Páll Ingólfsson hefur aðra sögu að segja. „Við Sigurgeir gerðum að tillögu okkar að aðilar hér heima héldu birgðir í Bandaríkjunum, að greiðslutryggingar yrðu settar fyrir hverri úttekt og að Ivari Guðmunds- syni yrði falið það verkefni í Banda- ríkjunum að sjá um að ekkert færi úrskeiðis. I þessu sambandi höfðum við einmitt í huga að ekki yrðu gerð sömu mistökin og hentu sig 1984 þegar búvörudeild SIS reyndi fyrir sér á þessum markaði í samstarfi við sömu aðila. En þessu var hafnað hér heima. Spyrja má hvers vegna.“ Gunnar Páll Ingólfs- son: „Það hafa ekki dugað okkur 6 mán- uðir að koma 100 tonnum á þennan eftirsótta markað. Hvað skyldi það taka okkur langan tima að koma þangað 1000 tonnum? 5 ár?" SÍS MEÐ1ÓMAR BLEKKINGAR „Skipti aldrei við þessa menn" „Okkur tókst í þessari ferð að endurvekja áhuga þriggja aðila með á annað hundrað verslanir á bak við sig, á að markaðssetja íslenskt lambakjöt. Þeir settu meðal annars þau skilyrði að umbúðir væru smekklegar, að prentaðir yrðu hillu- miðar og plaköt og að gerðar yrðu vel útfærðar mataruppskriftir. Ahugi þessara aðila var mikill, þeir töldu verkefnið spennandi og töldu góða möguleika á því að skapa eftir- spurn.“ — Hvað var það þá sem fór úr- skeiðis? „Við byrjuðum á því þegar heim kom að fara á fund forstjóra búvöru- deildar SIS, Magnúsar Friðgeirsson- ar. Svörin hjá honum voru skýr: „Ég skipti aldrei við þessa menn.“ Hann vildi ekki koma nálægt þessari til- raun, sem er broslegt, því stað- reyndin er sú, að Magnús hefur aldrei sleppt hendi af þessari til- raun, hefur verið ráðgjafi landbún- aðarráðuneytisins í málinu og hald- ið fast við þá skoðun að birgðahald í Bandaríkjunum komi ekki til greina. Því hefur verið haldið fram í skrif- um um þetta mál, að landbúnaðar- ráðuneytið hafi með öllum ráðum stutt við bakið á þessari tilraun, en það er algjörlega út í hött. Fyrir mik- inn þrýsting frá Landssambandi sauðfjárbænda lét ráðuneytið und- an og samþykkti val á 100 tonnum af kjöti uppi í Borgarnesi. 1 raun var með þessari ráðstöfun tilrauninni drepið á dreif og þurfti aftur og aftur mikinn þrýsting til þess að fá sam- þykkta heimsókn hins erlenda aðila til að hægt væri að reifa samninga. í fimm daga samningaþófi má segja að endanlega hafi verið gengið frá þessari tilraun. Fulltrúi ráðuneytis- ins setti fram skýlausar kröfur um fullar tryggingar og jafnframt tekið fram að birgðahald frá okkar hálfu kæmi ekki til greina." Allt tómar blekkingar — Var þá tilraunin úr sögunni við þetta? „Já. Og þetta urðu mikil von- brigði fyrir hinn erlenda aðila, sem þó vildi ekki hætta við málið endan- lega. Þyngst þótti honum að þurfa að snúa til baka og segja kaupmönn- um ytra að tilraunin og málið í heild hafi verið tómar blekkingar. Mála- lok urðu þau að ráðgjafar John McGoortys, hins bandariska um- boðsaðila, neituðu að verðtryggja birgðir og töldu það alfarið mál framleiðenda og söluaðila hér heima — sem og tíðkast þar ytra. Tilboð þeirra var að þeir skyldu verðtryggja það sem tekið yrði af birgðum og að greiðsla yrði komin inn á reikning sauðfjárbænda 21 degi eftir að varan væri tekin út. Þeir höfnuðu 3ja mánaða krít, sem var talið aðal trompið hér heima. Ráðuneytið hafnaði þessu góða boði. Umsvifamikill kjötsölukaup- maður í Bandaríkjunum lét í ljós þá skoðun, að við þyrftum ekki að ímynda okkur að nokkur ytra feng- ist til að selja kjötið okkar nema út úr vöruhúsi. Ráðuneytismenn fréttu af þessu og barst út frá þeim að e.t.v. yrði leyft örlítið birgðahald í Banda- ríkjunum og þannig standa málin í dag. Það hafa ekki dugað okkur 6 mánuðir til að koma 100 tonnum á þennan eftirsótta markað. Hvað skyldi það taka okkur langan tíma að koma þangað 1000 tonnum? 5 ár?“ — / samtali okkar við Magnús Friðgeirsson, forstjóra búvörudeild- ar SIS segir hann að hlutverk John McGoortys hafi verið takmarkaö, „hangi í því aö vera dreifingaraðili eða smásali". Var hann e.t.v. ekki réttur aðili? „Þetta er rangt hjá Magnúsi. John McGoorty er hátt skrifaður í banda- rísku viðskiptalífi. Nefna má að á meðan Magnús var önnum kafinn við að ráðleggja landbúnaðarráðu- neytinu um útflutningsmál þá datt inn á borð hjá honum samningsupp- kast um dilkakjötssölu til allra bandarískra herstöðva í Evrópu. Þetta var í annað sinn sem slíkur samningur lá fyrir, en í bæði skiptin lét Magnús það ógert að svara. Þessi samningsuppköst komu fyrir til- stuðlan John McGoortys og segir það sig sjálft, að maður sem nær viðskiptasamningi við bandaríska herinn er ekki lágt skrifaður. Magn- ús segir að vandamál hefði verið með þann hluta skrokksins sem ekki var í samningi þessum, en slíkt flokka ég fyrst og fremst undir hug- myndafátækt." Of mörg mistök að verja — Magnús lét svo um mœlt í fyrra að þýðingarlaust vœri að hugsa um útflutning þennan, meðal annars vegna strangra krafna bandarískra heilbrigðisyfirvalda — sem hefðu í för með sér tugmilljóna króna út- gjöld að uppfylla. „Kröfurnar voru þær, að fjarlægja þyrfti tæki sem notuð voru við inn- yflavinnslu, loka rifum og götum, setja hurð milli innyflasalar og mör- salar, setja upp eina handlaug, lag- færa málningu á gólfi og sótthreinsa sal og tæki áður en sögun og pökk- un hæfist. Og þetta var gert hjá Kaupfélagi Borgfirðinga. Verkið var klárað á rúmri viku af 3—4 mönn- um og kostnaðurinn varla yfir 100 þúsund krónum." — Þú ert eindregið á þeirri skoðun að það sé vegna viljaleysis landbún- aðarráðuneytisins og búvörudeild- arinnar að útflutningur á lamba- kjöti til Bandaríkjanna sé ekki þeg- ar hafinn? „Það er persónuleg skoðun mín að ef landbúnaðarráðuneytið hefði haft löngun í sér til að taka skelegga og sjálfstæða afstöðu í þessu máli og forstjóri búvörudeildar ekki haft svo mörg mistök að verja, þá væri sala á dilkakjöti til Bandaríkjanna og herstöðva í Evrópu komin vel á veg. Það er augljóst á öllu, að þessir aðil- ar hafa viljað halda þessu máli undir yfirborðinu. Nú þegar umræður hafa opnast bera þeir hins vegar rangfærslur á borð, svo sem að allt hafi verið gert til að tilraun þessi tækist, sem er auðvitað út í hött. Að lokum vil ég benda á, að það hlýtur að hvíla talsverð ábyrgð á höndum þeirra sem með markaðs- málin hafa farið, að nú á sér stað mikill samdráttur hjá íslenskri bændastétt. Það hefði breytt miklu ef útflutningurinn hefði verið kom- inn á góðan rekspöl." eftir Friðrilc Þór Guðmundsson mynd: Jim Smart 14 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.