Helgarpósturinn - 05.04.1986, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 05.04.1986, Blaðsíða 2
ÚRJÓNSBÓK A fermingartíd eftir Jón Örn Mprinósson Enda þótt við hjónin höfum gert með okkur þegj- andi samkomulag um að sjá hvorugt aldursmerki á hinu, hef ég að undanförnu gert mér Ijósa grein fyrir að ég eldist. Ég hafði þó aldrei hugleitt fyrr en í janúar í vetur að til þess kæmi að ég yrði að láta ferma. Þá var mértilkynnt ofur nærfærnislega að ívor yrði ferm- ingarveisla heima hjá mér og ég látinn vita jafnframt að ég ætti að bera kostnað af þessari veislu. Svona var ég þá gamall orðinn. Ég horfði grafalvarlegum augum á unglinginn minn og innti eftir hvort hann skynjaði hversu mikil- vægt skref væri stigið frammi fyrir altarinu í þá átt að setja viðkvæma feður með sístækkandi kollvik á hausinn. Svarið man ég ekki orðrétt, en megininntak þess var að ég hefði sjálfur látið fermast og fengið segulbandstæki. Þrátt fyrir lífsreynslu og þroska hafði ég ekki rökþrótt í frekari umræðu um grundvallartil- gang fermingarinnar. Ég sat þögull og horfðist í augu við konuna og þáttaskilin í lífi mínu. Og nú er upp runnin fermingartíð. Ég er búinn að flísaleggja baðið, setja nýjan kork á eldhúsgólfið, sparsla og mála í stofunnj, láta skipta um krana í gestasalerninu og svíða af mér vörtu á gagnauganu. Unglingurinn minn þvertók fyrir að faðir hans birtist í kirkjunni með þetta persónulega auðkenni í andlit- inu. „Hverju máli skiptir það!" andæfði ég en konan sagði að þetta væri dagur unglingsins okkar og ég ætti að gera sisona smáræði fyrir hann. Læknirinn rak upp stór augu þegar ég sagði að þetta væri nokkurs konar fermingargjöf. Unglingurinn okkar rétti mér um daginn óskalista yfir fermingargjafir. Á honum var að finna öll tæki sem mig hefur dreymt um að eignast síðan ég giftist. Jafn- framt var okkur hjónum tjáð að Dabbi á tuttugu og þrjú hefði fengið hljómtækjasamstæðu með tvöföldu kasettuborði, vídeó-myndavél, skrifborð, svefnsóffa og allt nýtt í herbergið. Ég sagðist halda að fólk væri gengið af vitinu en konan sagðist þekkja mig og vera fullviss um að pabbi, það er að segja ég, gerði allt sem í mínu valdi stæði til þess að gleðja unglinginn okkar. Síðan hefur andlit unglingsins okkar, þrungið eftirvæntingu, fylgt mér á nóttu sem degi. Ég hef orð- ið mér til skammar margoft á mannfundum með því að spyrja vinnufélaga og kunningja hvort ekki sé al- gengt að gefa svefnpoka eða lítið kasettutæki. Mér skilst að það séu einvörðungu al-fjarskyldustu frænk- ur sem sleppa með svefnpoka. Ég hafði það í gegn að unglingurinn okkar verður fermdur fyrsta sunnudag á nýju greiðslukortatímabili. Ég hafði hálfpartinn gert mér vonir um að einhver annar í fjölskyldunni væri líka að ferma þennan dag og við gætum þannig skipt á milli okkar frænkunum og frændunum, en svo er ekki. Ég fæ allar frænkurnar og frændana. Ég er á kafi í ættartölum þessa dagana að leggja nöfnin á minníð. Þetta verður eftirminnilegur dagur og veislan von- andi góð, unglingurinn okkar ánægður og fjölskyldan í sjöunda himni yfir að fá að kynnast sjálfri sér. Én ég er kvíðinn samt. Hvers vegna ætti ég að sleppa betur en nágranni minn? Hann fermdi á sunnudaginn var, blessaður maður- inn. Klukkan sjö að morgni var hann kominn framúr að berja í sundur hjónarúmið. Höggin heyrðust langt út á götu því að þetta var traust rúm og gróið saman í samskeytum sem höfðu ekki verið losuð í þrettán ár. Nú átti að fjarlægja rúmið og bera fram veislumat í svefnherbergi hjóna. Ég vaknaði við sárt ópið í mann- inum þegar hann af slysni missti höfðagaflinn niður á fótinn á sér. Klukkan var þá tuttugu mínútur yfir sjö og það tók tvo tíma á slysadeild að búa þannig um tábrotið að nágranni minn gæti staðið uppréttur fyrir veislunni sem eiginkonan, nær lömuð af taugaáfalli, hélt um hríð að hún yrði að aflýsa. Unglingurinn þeirra tók þessu af mikilli stillingu enda vissi hann af hljómtækjasamstæðu frammi í geymslu. Veislan fór reyndar hið besta fram, sagði nágranni minn þegar ég skaust yfir til hans seint um kvöldið að setja saman hjónarúmið fyrir hann. Fjölskyldan hefði öll hlegið sig máttlausa og þrátt fyrir kvalirnar hefði sér tekist með hjálp deyfilyfja að vera að öllu leyti eins og hann væri vanur í fermingarveislum. Einungis ein gráhærð kona hefði haft við orð að hann væri ekki líkur sjálfum sér enda hefði komið í Ijós að konan var frænka sem átti að fara í fermingarveislu í húsinu á móti. Ekki er að efa að þetta verður eftirminnilegur dagur. Þegar ég verð búinn að taka í sundur hjónarúmið og bogra með það í hlutum og dýnurnar út á svalir (niður í þvottahús ef rignir), þá reyni ég að snurfusa mig eitt- hvað til, kem að mér sparibuxunum vonandi, skil ekk- ert í hvar ég lét skyrtuhnappana síðast, þ.e. á brúð- kaupsnóttina, og um leið og ég virði fyrir mér kollvik- in, krónuskallann og yfirdrættina kringum augun á föðurnum reyni ég að fullvissa unglinginn minn um að enginn taki eftir fílapenslunum og vangabólunum í kirkjunni. Síðan gerir öll fjölskyldan dauðaleit að sálmabókum í skrifborðum og skápum og tíminn líð- ur; konan sannfærð um að sálmabókin, sem hún var með á fermingarmyndinni sem hún reif eftir að hún fríkkaði, hljóti að vera einhvers staðar. Fjölskyldan gengur að því búnu tígulegum skrefum út að bílnum sem uppgötvast allt íeinu að hefur gleymst að þvo og bóna. En nú er allt um seinan. Unglingurinn okkar svitnar í aftursætinu með dauðans áhyggjur út af því að verða fullorðinn, konan vingsar höndum til þess að þurrka nýlakkaðar neglur og hefur áhyggjur af matnum og faðirinn hefur áhyggjur af að sé of lítið loft í hægra framdekkinu. Síðan leggjum við bílnum hjá kirkjunni. Unglingurinn okkar hverfur inn um fremri dyr hjá kórnum, en við hjónin göngum fram kirkju- gólfið í leit að sæti. Svona er ég þá gamall orðinn. Presturinn, sem bograr framan við altarið, lánaði mér einu sinni nafnskírteinið sitt svo að ég gæti svindlað mér inn í Glaumbæ. Við hjónin horfumst í augu. Guði sé lof. Konan mín er hvorki vitundar ögn yngri né vitundar ögn eldri en ég sjálfur. Þó að við eigum ungling uppi við altarið er hún núna eins og þá jafngömul og ég sjálfur. HAUKURIHORNI T T /L MJÍÍítflll rrrrr W| mMn fjlí í | “ p 1 ' i 1 lilll HÍIlfi m i l| 1 HVALVEIÐAR f VÍSINDASKYNI „Þaö var sætt af grænfriðungum að senda okkur rugguhest í vísindaskyni." 2 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.