Helgarpósturinn - 05.04.1986, Blaðsíða 17

Helgarpósturinn - 05.04.1986, Blaðsíða 17
Lára Júlíusdóttir, lögfræðingur ASÍ HP KYNNIR SÉR FÉLAGS- DÓM, SEM ÚRSKURÐAR í VIN N UMARKAÐSMÁLUM OG Á „HVERGI" HEIMA Félagsdóm felldur niður, þó það sé ekki algild regla. Það þarf þó alltaf að borga lögfræðingnum. Ég held nú að langalgengast sé að verka- lýðsfélag standi á bakvið málin. Það er algjör undantekning að menn séu að bauka í því sjálfir, en ef svo er, verða þeir eflaust sjálfir að standa straum af því." — Er oft um þad að rœða að mál, sem rekin eru fyrir Félagsdómi, eru einfwers konar „prófmál"? „Það gildir ekkert frekar um Fé- lagsdóm en Hæstaréttardóma, en það eru líkur til að farið verði eftir dómunum í Félagsdómi í svipuðum málum, þó réttarþróunin breytist auðvitað smám saman. Þær breyt- ingar eru samt óskaplega hægar." Dómur ó flakki — Hvar er Félagsdómur til húsa? „Hann hefur ekkert fast húsnæði, heldur hefur fylgt forseta réttarins. Fyrsti forseti Félagsdóms og sá, sem hefur verið það einna lengst, var Hákon heitinn Guðmundsson, hæstaréttarritari. Hann hafði dóm- inn í sérstökum sal í húsnæði Hæsta- réttar. Síðan var Guðmundur Jóns- son, borgardómari, forseti réttarins og þá hafði hann þetta uppi í bæjar- þingi við Túngötu. Þorsteinn Thor- arensen, borgarfógeti, hafði þetta hjá sér við Skógarhlíð. Bjarni K. Bjarnason borgardómari fór aftur með dóminn upp á Túngötu, en nú er Bjarni orðinn hæstaréttardómari og búinn að losa sig út úr þessu. með aðeins 20% útborgun og afganginn á allt að 12 mánuðum Dæmi: HTH 2400 Kr. 123.260, við pöntun — 24.000, við afhendingu —. 24.000, eftirst. 75.260, sem greiðist á 12 mánuðum. Afborgun án vaxta á mánuði kr. 6.771.- 240 •l L o 0 Við erum einnig með í mil úrvali: parket, innihurðii eldhúsvaska og heimilista innréttingahúsið Háteigsvegi3 Verslun Slmi 27344 HTH eldhúsinnréHingar Varamaður hans er núna forseti Fé- lagsdóms, en sá er Olafur St. Sig- urðsson." — Ekki hefur hann farið með Fé- lagsdóm í Sparisjóðinn í Kópavogi? „Nei, en Olafur var lengi búinn að vera hjá bæjarfógetaembætti Kópa- vogs og núna hefur rétturinn sín þing að Auðbrekku 10, hjá bæjar- fógetanum í Kópavogi. Það er ekki hægt að hafa Félags- dóm hvar sem er, því salurinn verð- ur að taka 5 dómara og slíkir salir eru ekki á hverju strái. Sú aðstaða er bara á þessum þremur stöðum, sem ég nefndi. Ég veit ekki annað." — Eru miklar annir hjá Félags- dómi? „Mér hefur fundist þetta ganga svolítið í bylgjum, án þess að það séu neinar sérstakar reglur um það. í fyrra var t.d. ákaflega lítið, en mik- ið árið 1984. Núna undanfarið hefur líka verið dágóð rispa." — Nú eruð þið allir í öðrum stöð- um, dómararnir. Er ekki erfitt að finna tíma til að sinna þessu? „Jú, það getur verið það, en alltaf tekst það nú einhvern veginn." — Hvernig skiptast þau mál, sem Félagsdómur fœr lil meðferðar? „í upphafi voru þetta aðallega mál milli verkalýðsfélaga, þ.e.a.s. Alþýðusambandsins og Vinnuveit- endasambandsins. Þannig var það lengi framan af og er auðvitað stór þáttur enn. Þegar ríkisstarfsmenn fóru að fá meiri samningsrétt og verkfallsrétt, komu BSRB og ríkis- sjóður inn í dæmið. Núna eru þau mál svona um það bil 40%, þó það sé ekki nákvæm tala hjá mér. Verka- lýðsfélögin og vinnuveitendur eru samt enn í meirihluta hvað varðar mál fyrir Félagsdómi." Auk hínnar margrómuðu þjónustu, sem ásamt hlýlegu umhverfi og fjölbreyttum matseðli hafa aflað veitingahúsinu svo mikilla vinsælda, eykur AmarhóII enn við umsvif sín. Víð hinn almenna veitingarekstur hefur berlega komið í Ijós að margir af viðskiptavinum Arnarhóls hafa brýna þörf fyrir aðstöðu til lokaðra funda og samkvæma. Tíl þess að koma til móts við þessar þarfir gesta sinna hafa aðstandendur Amarhóls ákveðið að veita þessa þjónustu og eins og alltaf þegar ArnarhóII er annars vegar situr fjölbreytnin í fyrirrúmi. Að aflokinni hagræðíngu á salarkynnum veitingastaðarins getur AmarhóII nú boðið fjölbreyttum hópi viðskiptavina sinna margvíslega þjónustu. KLÚBBAR FÉLAGASAMTÖK FYRIRTÆKI ~ Amarhóll býður ykkur aðstöðu til fastra hádegisverðafunda jafnt sem einstakra og einnig einkasamkvæma._________________________ ARNARHÓLL BÝÐUR AÐSTÖÐU FYRIR: - — —————————-------------------------------------------- Smærri hópa (frá 10 manns) hádegí og kvöld alla virka daga(í koníakssal). EINKASAMKVÆMI Stórar veíslur jafnt sem smáar. Sama hvert tilefníð er, brúðkaup, afmæli, fermingar, próflok, Arnarhóll annar öllu._________________ ARNARHÓLL BÝÐUR AÐSTÖÐU FYRIR:________________________ Stærri samkvæmi (allt að 100 manna matarveislur og 200 manna hanastél til kl. 18.00) hádegi laugardaga og sunnudaga. Gestir utan aflandi -Ópera-Leikhús____________________ AmarhóII tekur á móti hóppöntunum ópem- og leikhúsgesta utan af Iandi. HELGARPÖSTURINN 17

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.