Helgarpósturinn - 05.04.1986, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 05.04.1986, Blaðsíða 10
* HP HELGARPÓSTURINN Ritstjórar: Ingólfur Margeirsson og Halldór Halldórsson Blaðamenn: Friðrik Þór Guðmundsson, Jóhanna Sveinsdóttir, Jónína Leósdóttir og Sigmundur Ernir Rúnarsson Útlit: Jón Óskar Hafsteinsson Ljósmyndir: Jim Smart Handrit og prófarkir: Magnea J. Matthíasdóttir Útgefandi: Goðgá h/f Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson Auglýsingar: Steinþór Ólafsson Dreifing: Garðar Jensson (heimasími: 74471) Afgreiðsla: Berglind Björk Jónasdóttir Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 36, Reykjavík, simi 68-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa eru að Ármúla 36. Sími 68-15-11 Setning og umbrot: Leturval s/f Prentun: Blaðaprent h/f Sækist ríkið eftir meðaljónum? Á undanförnum árum hefur sú þróun átt sér stað, að sífellt fleiri opinberir starfsmenn hverfa úr störfum hjá ríki eða sveitarfélög- um út á frjálsan vinnumarkað. Ástæðan er ákaflega einföld. Rík- ið t.d. er ekki samkeppnisfært. Það hefur haldið uppi launa- stefnu, sem beinlínis fælir fólk úr störfum hjá því. Nú hafa löggæslumenn um allt land sagt upp störfum og mun lunginn af þeim, sem ætla að hætta vera þeir, sem kallaðir eru á besta aldri. Eftir situr svo lög- gæslan í landinu með „unglinga" og nánast „gamalmenni", eins og Einar Bjarnason varaformaður Landssambands lögreglumanna hefur sagt. Áður fékk þjóðin að finna fyrir verkfalli rafeindavirkja hjá Ríkis- útvarpinu og Pósti og síma. Hin alvarlega staðreynd er sú, að ríkið er alls ekki samkeppnis- fært við hinn almenna markað. Raunar gegnir það furðu, að ríkis- starfsmenn, sem ekki sitja í yfir- mannastöðum, skuli yfirleitt geta lifað af laununum sínum. önnur alvarleg staðreynd er sú, að ríkið getur ekki laðað til sín hæfustu starfskraftana. Þetta kemur slæmu orði á opinberar stofnanir. Fólk fær það á tilfinn- inguna, að þangað sækist ein- göngu og fáist eingöngu ein- hverjir meðaljónar, sem ekki fái vinnu á frjálsa markaðnum. Þetta er að vísu ekki rétt, en þó er það sannleikskorn í þessu, að meðal yngra fólks er það ekki lengur keppikefli að leita starfa hjá rík- inu. Hjá stjórnvöldum og stjórn- endum opinberra stofnana á það að vera keppikefli að laun starfs- mannanna séu sambærileg við laun á almennum markaði. Opin- berar stofnanir hafa gríðarlega miklu og mikilvægu hlutverki að gegna. En af launastefnu stjórn- valda verður ekki séð, að forráða- menn þjóöfélagsins teljí svo vera. Má vera, að frjálshyggja sitjandi ríkisstjórnar og einhliða áróður gegn ríkisafskiptum ráði ein- hverju þar um. Síðustu árin hafa Japanir verið það ríki í heiminum, sem hefur náð bestum árangri á efnahags- sviðinu. Ef frjálshyggjumenn kynntu sér afstöðu ríkisvaldsins til viðskipta- og atvinnulífsins í Japan, þá má víst telja, að þeir myndu læra margt. Þar í landi vinna hinn frjálsi markaður og rík- ið saman að sameiginlegu mark- miði og einhver eftirsóttustu og best launuðu störfin í Japan eru einmitt hjá ríkinu. Sumir ganga raunar svo langt að segja, að lykillinn að efna- hagslegri velgengni Japana byggist á þessu samspili ríkis og atvinnurekenda. Og eftirsóttustu störfin, og þau sem mestrar virð- ingar njóta, eru einmitt störf í þágu ríkisins. Það er skoðun Helgarpóstsins að engum, hvorki ríki né öðrum, sé sæmandi að greiða laun undir fátæktarmörkum. BRÉF TIL RITSTJÓRNAR Athugasemd Um langt skeið hafa birst reglu- lega í Helgarpóstinum „fréttir" þess efnis, að rekstur útgáfufyrirtækisins Frjáls framtaks h/f gangi illa og nú síðast, að undirritaður aðaleigandi og stjórnarformaður fyrirtækisins hafi reynt að selja það af þeim sök- um — en ekki tekist. Til viðbótar þessu er þess svo getið í síðasta tölu- blaði Helgarpóstsins, að undirritað- ur ætlaði sér að setjast í stól fram- kvæmdastjóra Arnarflugs eftir sölu á Frjálsu framtaki h/f. Um þennan „fréttaflutning" Helgarpóstsins hef ég þetta að segja: 1. Rekstur Frjáls framtaks h/f hefur gengið vel undanfarin ár og það' skilað arði. 2. Frjálst framtak h/f gefur út 12 tímarit reglulega auk nokkurra bóka árlega. Er það langstærsta tímaritafyrirtæki á landinu og þriðja stærsta fjölmiðlafyrirtækið. — Á þremur árum, frá 1982 til 1985, hefur Frjálst framtak þrefaldað út- breiðslu tímarita sinna. 3. Frjálst framtak h/f er ekki til sölu. 4. Undirritaður hefur ekki haft í hyggju að setjast í stól fram- kvæmdastjóra Arnarfiugs. En hon- um hafa eins og mörgum úr við- skiptalífinu verið boðin hlutabréf tii kaups í hlutafjáraukningu þess, sem nú stendur til að verði. Ég vona, að ef Helgarpósturinn sér til þess ástæðu að fjalla eitthvað um málefni Frjáls framtaks h/f í framtíðinni, að hann afli sér heim- ilda um þau, ef hann vill skrifa um þau af þeirri nákvæmni, sanngirni og metnaði, sem allir blaðamenn ættu að hafa. Með þökk fyrir birtinguna, Magnús Hreggviðsson stjórnarformaður I smáfréttum HP hefur stöku sinnum veriö vikið að „lang- stærsta tímaritafyrirtæki á land- inu“ og „þriðja stærsta fjöl- midlafyrirtækinu“. í athuga- semd sinni breytir Magnús Hreggviösson vangaveltum í smáfréttum okkar í staðreyndir. Fyrir lesanda var þaö og gat ekki verið neinum vafa undir- orpið, að um vangaveltur var að ræða. Þar að auki leggur stjórn- arformaður Frjáls framtaks okk- ur orð í munn. Við höfum t.d. aldrei staðhæft, að Magnús hafi haft í hyggju að setjast í stól framkvæmdastjóra Arnarflugs, heldur sögðum við, að það kæmi til álita. Vanur fjölmiðlamaður eins og Magnús á að vita að smá- fréttir HP eru oft blandaðar vangaveltum innanum gallharð- ar staðreyndir. Ritstj. Flokki mannsins. Júlíus Valdi- marsson sem verið hefur formað- ur, mun láta af störfum og helga sig kosningabaráttunni sem framund- an er. 1 hans stað mun koma Pétur Guðjónsson, sem veriö hefur með- limur í flokknum frá upphafi ög reyndar einn aðalstofnandi Flokks mannsins... fM ■ ú rennur senn út frestur til að skila smásögum í smásagna- keppni þá sem haldin er vegna 200 ára afmælishátíðar Reykjavíkur- borgar. Um 70 smásögur hafa þegar borist og býst dómnefndin við mik- illi gusu síðustu dagana en frestur- inn rennur út. þ. 10. apríl. Vegleg LAUSNÁ SKÁKÞRAUT 57. Það þarf dálítið ímyndunarafl til þess að sjá fyrir sér mát eftir 3 leiki, jafn opin og staðan er. Þó er leiðin til máts einföld og mátið snoturt og samhverft. 1. Rf5 Kg6 2. Hg8+ Kxh5 3. g4 mát 2. - Kxf5 3. g4 mát 2. - Kh7 3. Rf6 mát 2. - Kf7 3. Rh6 mát 58. 1. Kh2 og síðan 2. g3 mát strandar á Dc7+ eða Db8+. En þessa vörn er hægt að koma í veg fyrir með 1. Dd6 Hxd6 2. Kh2 og 3. g3 mát. Reyni svartur 1.-Dc7 (eða De7 eða Df6), valdar hvíta drottningin g3 og hvítur getur leikið 2. g3+og Bfl mát. ENDURSKINS- MERKI ERU NAUÐSYNLEG FYRIR ALLA ER.GO-DATA stóllinn frá DRABEFCT heklur þér í góðu skapi allandaginn. Sá sem er undir álagi viö vinnu ætti aö eiga kost á góðum stól. Spenna minnkar afköst. Veittu þérog starfsfólki þínu þægindi, sem gera ykkur óþvinguö og auka vellíöan: Ergo-Data stóllinnfrá Drabert með Relaxof lex bakstuöningi virkar afslappandi á allan líkamann í hvaða stellingu sem er. í Drabert siturðu rétt. Eitt lítið símtal getur þýtt betri vinnuaðstöðu. Síminn hiáokkurer83211.Hrinadu og við sendumþér □ Ergo-Style bæklinginn □ Ergo-Data bæklinginn o Drabert heildarbæklinginn HALLARMÚLA 2, 105 REYKJAVÍK 10 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.