Helgarpósturinn - 05.04.1986, Blaðsíða 9

Helgarpósturinn - 05.04.1986, Blaðsíða 9
„SEGIÞÉR EKKERT" Gylfi Sveinsson, forstjóri Reikni- stofunnar hf, harðneitaði að taka á móti blaðamanni Helgarpóstsins ,,Ég vil ekki rœða vid bladamenn. Ég veiti þér engar upplýsingar, það er alveg af og frá ad ég fari ad hjálpa þér að búa til blaöagrein Petta hafði Gylfi Sveinsson, forstjóri Reiknistofunnar hf. í Hafnar- firði, að segja þegar blaðamaður Helgarpóstsins fór þess á leit við hann að fá að heimsœkja fyrirtœkið og hafa við hann viðtal. i þessu óhrjálega húsnæði rekur Reiknistofan hf. í Hafnarfirði starfsemi sína: Þarna verður „svarti listinn" til með nöfnum yfir 10 þúsund einstaklinga, fyrirtækja og félaga, sem teljast vafasamir aðilar í viðskiptum. „Þetta er ekkert svakalega við- kvæmt mál, þetta er bara mín persónulega afstaða. Ég er búinn að fá leið á þessari umræðu blaða- manna sem kannski skilja ekki það sem þeir eru að fjalla um,“ sagði Gylfi ennfremur. Pó honum væri skýrt frá því að það væri ein- mitt ætlun Helgarpóstsins að fræðast um málið frá fyrstu hendi til þess að geta veitt lesendum sín- um sannreyndar upplýsingar, þá gaf Gylfi ekkert eftir og neitaði al- farið að verða við beiðninni um viðtal. Reiknistofan hf. starfar í nýju húsnæði að Flatahrauni 29 í Hafn- arfirði. í stjórn fyrirtækisins eru ásamt Gylfa Valur Tryggvason 'og Anna M. Sigurðardóttir, en aðrir stofnendur eru Laufey Jóhanns- dóttir, Skúli G. Böðvarsson og Reiknistofan í Hafnarfirði hf. Það var einmitt Reiknistofan í Hafnar- firði hf. sem upphaflega fékk starfsleyfið frá tölvunefnd, en á síðastliðnu ári fór Gylfi úr því fyr- irtæki og stofnaði Reiknistofuna hf. Skúli og Laufey eiga sæti í stjórn Reiknistofunnar í Hafnar- firði hf. ásamt Magnúsi Gunnars- syni. um lágar upphæðir að ræða. Fáeinir einstaklingar á listanum höfðu á hinn bóginn aragrúa mála á sínum herðum, t.d. var þarna að finna ein- stakling með alls 57 mál á sinni könnu. Fjölmörg fyrirtæki og félög eru svo og á „svarta listanum". Aður var minnst á að Hagkaup færu strangt eftir listanum og því ekki úr vegi að nefna að sú verslun var einnig á skrá með eitt mál! Að öðru leyti má nefna að á listanum var að finna alls 14 kaupfélög um Iand allt, fjölmörg sjávarútvegsfyrirtæki, ýmiss konar málefnafélög og jafnvel nokkra hreppa! Aður hefur komið fram að það er tölvunefnd sem veitt hefur fyrirtæk- inu Reiknistofunni hf. leyfi til sinnar starfsemi. Um síðustu áramót var tölvunefnd endurskipuð og starfar nú samkvæmt endurskoðuðum lög- um sem Alþingi samþykkti á síðasta ári. Formaður nefndarinnar er Porgeir Örlygsson, dósent við laga- deild Háskóla íslands. Meginverk- efni hinnar nýju nefndar hefur að undanförnu verið að endurskoða starfsleyfi sem eldri nefndin gaf út. Þorgeir sagði í samtali við Heljjar- póstinn að það væri á dagskrá hinn- ar nýju tölvunefndar að ræða hvort ástæða þætti að endurskoða þær reglur sem giltu um framkvæmd skráningar á upplýsingum um fjár- mál og lánstraust einstaklinga og „lögpersóna". Þannig hefði t.d. kom- ið fram það sjónarmið að e.t.v. væru 5 ár of langur tími áður en upplýs- ingar teldust ónothæfar með öllu, en Þorgeir sagði þetta óútkljáð mál og í raun afar erfitt að draga mörkin svo vel væri. í tölvulögunum er að finna eftir- farandi ákvæði: „Beita skal virkum ráðstöfunum, er komi í veg fyrir að upplýsingar séu misnotaðar eða komist til óviðkomandi manna. Af- má skal allar skráðar upplýsingar, sem vegna aldurs eða af öðrum ástæðum hafa glatað gildi sínu, mið- að við það hlutverk, sem skrá er ætl- að að gegna. Skrár sem sífellt eru í notkun, skulu geyma upplýsingar, sem á hverjum tima eru réttar, en úreltar upplýsingar skal afmá.“ Takmarkað eftirlit með skráningaraðilum Aðspurður um „virkni" þessa eft- irlits tölvunefndar sagði Þorgeir að hún væri ekki nákvæmlega skil- greind í lögunum og að vissulega væri þar ýmislegt óskýrt. Hann nefndi að víða erlendis hefðu slíkir eftirlitsaðilar heimild til fyrirvara- lausrar skoðunar hjá aðilum með tölvuþjónustu og sagði að eldri nefndin hefði nokkrum sinnum far- ið í slíkar heimsóknir. Nefndi hann sem nýmæli að núorðið væru alltaf sett í einstök starfsleyfi ákvæði um að skráningaraðilar tilkynntu tölvu- nefnd um úrvinnslu gagna og um eýðileggingu gagna. Fráfarandi tölvunefnd lagði fyrir Alþingi tillögur sínar um breytingar á tölvulögum, sem síðan voru sam- þykktar í fyrrasumar. En nefndin lagði aðeins fyrir þær breytingatil- lögur sem hún náði samstöðu um. Meðal tillagna sem ekki náðist sam- staða um og eru því ekki í núgild- andi lögum, var einmitt ákvæði um heimild tölvunefndar til slíkra fyrir- varalausra „heimsókna" nefndar- innar til skráningaraðila — án dóms- úrskurðar. Þá má nefna að við umfjöllun Al- þingis á tölvulögunum lagði Guð- mundur Einarsson, þingmaður BJ, fram breytingatillögu þess efnis að sérhver skráningaraðili hefði eigin greiningarlykil vegna annarra upp- lýsinga en teknar eru úr þjóðskrá og að lykillinn væri trúnaðarmál. Til- laga Guðmundar kom seint inn í málið og dró hann hana til baka með þeim orðum að hann myndi leggja fram sérstakt þingmál um þetta þá um haustið. Enn hefur það þingmál reyndar ekki séð dagsins ljós, en Guðmundur sagði við Helg- arpóstinn að hann myndi hugsan- lega leggja slíkt þingmál fram til kynningar, enda um mikilsvert mál að ræða. Af ofantöldu má ráða að í raun er ekki hægt að tala um „virkt eftirlit" krisdAn siggeirsson töivunefndar. Þannig verður ekki séð að fylgst sé með því hvað Reiknistofan hf. skráir umfram það sem birtist á „svarta listanum". Frá- farandi formaður tölvunefndar, Benedikt Sigurjónsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, sagði einmitt í samtali við eitt dagblaðanna síðast- liðið haust, að tölvunefndin hefði mjög takmarkaða möguleika til þess að fylgjast með því að farið væri eftir þeim reglum sem nefndin setti, „einfaldlega vegna skorts á mannafla". „Verði ekki að skrifstofu- bókni'' I ársskýrslum tölvunefndar má aftur á móti lesa að tölvunefndin hafi sett sér það markmið strax í upphafi að „verða ekki að skrif- stofubákni". Nefndin hefur aðstöðu til fundarhalda í fundarherbergi dómsmálaráðuneytisins í Arnar- hvoli og hefur einnig til afnota her- bergi að Laugavegi 116 til fámennra funda og þar er og vinnuaðstaða fyrir nefndarmenn. Árið 1984 nam kostnaðurinn við nefndina í heild rúmlega 516 þúsundum króna, sem á núvirði gera um 840 þúsundir króna. Nefndin kemur saman hálfs- mánaðarlega. Auk Þorgeirs sitja í nefndinni Bjarni P. Jónasson, fyrr- verandi forstjóri, Bogi J. Bjarnason, aðalvarðstjóri, Bjarni K. Bjarnason, hæstaréttardómari, Gunnlaugur G. Björnsson, skipulagsstjóri á Akra- nesi og Benedikt Jónmundsson, framkvæmdastjóri. Ritari nefndar- innar er Jón Thors, deildarstjóri í dómsmálaráðuneytinu. Á höndum þessara manna hvílir sú ábyrgð að sjá til þess að upplýsingar er varða einkamálefni einstaklinga séu ekki misnotaðar eða komist til óvið- komandi manna. Og fylgjast með skráningu fyrirtækja á borð við Reiknistofuna hf. í Hafnarfirði á fjármálum einstaklinga og annarra „lögpersóna". „Svarti listinn" er afurð upplýs- ingabyltingar tölvualdarinnar. Gildi hans í þjóðfélaginu er ótvírætt; þeg- ar þú, lesandi góður, ákveður að slá til og ferð í einhverja stórverslunina eða bankann til að kaupa dýra vöru með afborgunum eða fá lán, er nán- ast bókað mál að áður en af við- skiptum verður hefur afgreiðslu- maðurinn eða bankastjórinn kann- að hvort þér sé fjárhagslega treyst- andi eða ekki. Hann veit á auga- bragði hvort þú hefur lent í gjald- þrotamáli, hvort eignir þínar hafi ítrekað verið auglýstar á nauðung- aruppboð eða hvort þú hafir fengið dóm hjá einhverju fógetaembætt- anna. Og hafir þú lent í einhverju slíku máli, kannski vegna hand- vammar annarrar manneskju og hversu lítilvægt sem málið er í krón- um talið, þá ferð þú á listann og mátt búast við því að heyra „Nei, því mið- ur, þér er ekki treystandi". Þá stend- ur þú í sömu sporum og þúsundir annarra einstaklinga, sem á undan- förnum kreppuárum hafa átt æ erf- iðara með að standa við skuldbind- ingar sinar og hafa því hlotið stimpil sem gildir í að minnsta kosti tvö ár: Þú ert óalandi og óferjandi í við- skiptum! Tölvuborð sem uppfylla þínar þarfir. Verð kr. Vinsamlegast athugið breytt heimilisfang að Hest- hálsi 2—4 og nýtt símanúmer 91-672110. SPENNUM BELTIN £ sjálfra okkar vegna! Helgartilboð A Stór nautavorrúlla, súrsæt sósa, kryddhrísgrjón og salat aðeins kr. 180- B Stór lambavorrúlla með karrýsósu kryddhrísgrjónum og salati aðeins kr. 180,- C Stór pissuvorrúlla með oreganosósu, kryddhrísgrjónum og salati aðeins kr. 180.- D Raekjubitar m/súrsætri sósu kryddhrísgrjónum og salati aðeins kr. 185- E Steikt ýsa m/sellerisósu, hrísgrjónum og salati aðeins kr. 185.- F Steiktur karfi m/sveppasósu, hrísgrjónum og salati aðeins kr. 185- G Svínakjöt sweet and sour m/hrísgrjónum og salati aðeins kr. 285- H Kjúklingabitar m/hrísgrjónum, salati og karrýsósu aðeins kr. 290.- Það þarf ekki að vera dýrt að borða góðan mat. Allt gos í flöskum á búðarverði. Kipptu með þér Kínamat Reynið viðskiptin Sími 687.455 HELGARPÓSTURINN 9

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.