Helgarpósturinn - 05.04.1986, Síða 4

Helgarpósturinn - 05.04.1986, Síða 4
 INNLEND YFIRSYN „Það er ekki hiti í mönnum, langt í frá. Það er öllu heldur ískalt raunsæi og vonleysi í bland, sem kallar fram þessar aðgerðir okk- ar lögreglumanna. Við erum hreinlega að gefast upp. Svo einfalt er það.“ Þetta voru orð eins þeirra 300 lögreglu- manna sem hafa skilað inn uppsögnum sín- um og munu að öllu óbreyttu hætta störfum um mitt sumar. Það hefur sennilega ekki farið framhjá mörgum, að lögreglumenn hafa verið einkar óánægðir með hlutskipti sitt varðandi kaup og kjör, réttindamál sín og starfsmenntunar- möguleika. Hafa talsmenn lögreglunnar á síðustu misserum vakið athygli á sívaxandi fólksflótta úr stéttinni og varað við frekari þróun í þeim efnum. Og með fjöldauppsögn- unum má segja að stíflan hafi brostið; flóð- bylgjan er skollin á. Það er ýmislegt sem orsakar hina víðtæku óánægju sem hefur grafið um sig í stétt lög- reglumanna. Fyrst og síðast eru það þó launamálin sem standa í mönnum. Og víst er það, að lögregluþjónar eru langt í frá ofaldir í þeim efnum. Fastalaunin eru rýr; byrjunar- laun rétt rúmar 20 þúsund krónur. Þetta þýð- ir að lögregluþjónar verða að vinna gífur- lega aukavinnu til að endar nái saman. Lög- regluþjónar vinna alla jafna vaktavinnu og ofan á grunnlaunin kemur því vaktaálag, en til viðbótar er það regla fremur en undan- tekning að hver einasti lögreglumaður vinni frá 100—150 tíma í aukavinnu í hverjum ein- asta mánuði. Og til viðbótar er það algengt að margir lögreglumenn vinni síðan ýmis aukastörf hér og þar á vinnumarkaðnum í sínum frítímum, sem eru þó vart margir, þeg- ar vinnutímarnir á viku hverri eru 70—80 talsins. Sumarlidi Gudbjartssori lögreglumaður í Hafnarfirði sagði í samtali við HP, að málið væri einfaldlega það, að lögregluþjónar yrðu að vinna langtum lengri vinnutíma en flestar aðrar stéttir fyrir boðlegum launum. „Við er- um eitt og hálft ár að vinna fyrir venjulegum árslaunum launamanns,“ sagði Sumarliði. Hann bætti því við, að hann hefði sjálfur tek- ið saman frídagana sína á síðustu tveimur ár- um og þar hefði komið í ljós að frídagarnir á. ári hefðu verið 100 talsins að sumarleyfinu Það virðist full alvara á ferðum og sumir þeirra 300 lögreglumanna, sem hafa sagt upp störfum, hafa þegar tryggt sér störf úti á hinum al- menna vinnumarkaði. Lögreglumenn sýna hnefana og öllu meðtöldu. Hjá venjulegu daglauna- fólki eru aðeins laugardagarnir og sunnu- dagarnir, hinir hefðbundnu frídagar, yfir 100. Eru sumarleyfisdagar þá ótaldir, svo og hefðbundnir frídagar, svo sem yfir jól og páska. Sumarliði sagði það Ijóst, að mönnum væri full alvara með þessum uppsögnum og kné yrði látið fylgja kviði. í sama streng tók Ævar Pálmi Eyjólfsson lögreglumaður í Reykjavík og sagði langlundargeð lögreglu- manna þrotið. „Eg er sjálfur búinn að starfa í lögreglunni í 20 ár og vil gjarnan leggja mitt . af mörkum áfram, en ég get hreinlega ekki boðið sjálfum mér né fjölskyldunni upp á þetta lengur," sagði hann. „Launin byggja á gífurlegri yfirvinnu, og þá einkanlega um nætur og helgar. Eðlilegt fjölskyldulíf er vart fyrir hendi og þegar launamálin eru í jafn- miklum ólestri og raun ber vitni, þá hlýtur auðvitað eitthvað undan að láta.“ Það er fyrirliggjandi að þeir sem hafa sagt upp störfum eru þeir sem bera þungann af starfi lögreglunnar um allt land. Það eru menn á besta aldri, sem hafa að baki reynslu og þekkingu. Að sögn heimildarmanna HP eru það fyrst og fremst nýliðarnir og þeir sem rosknir eru, sem ekki hafa sagt upp störfum. Þá er ennfremur á það bent að yf- irmennirnir í lögreglunni hafa ekki sagt upp, þótt þeirra kjör séu litlu betri en undirmanna þeirra. Aður en til uppsagnanna kom gekk listi milli lögregluþjóna varðandi uppsagnar- málin. Á listann skrifuðu sig um 90%, en ERLEND YFIRSYN Einvíginu um olíuverðið er lokið, og ridd- ari sólarbeltisins bandaríska varð fyrri til að ’biðja arabahöfðingjann vægðar. Texasbúinn George Bush lýsti yfir í Washington í fyrra- dag, að erindi sitt til Saudi-Arabíu væri fyrst og fremst að fá stjórnina í Rijad til að stöðva lækkun olíuverðs á heimsmarkaði. Tilvon- andi forsetaefni Repúblíkanaflokksins í kosningunum 1988 kærir sig ekki um að heyja baráttu fyrir tilnefningu flokks síns með bandariskan olíuiðnað í rúst. Eftir að síðasti fundur OPEC, samtaka olíu- framleiðsluríkja, fór út um þúfur, hefur olíu- verð haldið áfram að lækka. Daginn sem Bush varaforseti gerði grein fyrir ferðaáætl- un sinni til ríkja við Persaflóa, fór verðið á' viðmiðunarolíunni frá Vestur-Texas niður fyrir tíu dollara á hvert olíufat. Olíumálaráð- herra Sameinuðu arabisku furstadæmanna spáir því að olíufatið fari niður í fimm doll- ara, haldi áfram sem nú horfir á olíumarkaði. þegar til kastanna kom fóru ýmsir í baklás, þannig að það eru um 50—60% lögreglu- manna sem hafa sagt upp. Einn lögreglumaður sagði við HP, „að það væri rjóminn af lögregluliðinu, sem hefði sagt upp“. Hann sagði: „Það eru góðu lögg- urnar, menn með reynslu og þekkingu og innsæi í starfi, sem eru að gefast upp. Eftir munu sitja pappírsdrengirnir, nýliðar, blautir bakvið eyrun, sem ekkert þekkja til lögreglu- starfa." Það hefur verið hreyfing á lögreglumönn- um á síðustu misserum. Um 50 lögreglu- menn hafa hætt í Reykjavík á síðasta eina og hálfa árinu. Lögregluþjónar í borginni sögðu að þetta hefði þýtt að hlutfall nýliða væri meira en áður. Að sögn væru margir ný- komnir úr skóla og hefðu viðdvöl í lögregl- unni um skeið meðan þeir væru að ákveða næstu skref í námi eða vinnu. Þessir menn væru eins og farandverkamenn og ætluðu alls ekki að gera löggæslustörfin að ævi- starfi. „Margir þessara stráka nýtast mjög illa. Við reyndir lögreglumenn erum hrein- lega oft hræddir við að fara í erfið útköll með óreynda stráka okkur við hlið. Ofbeldi og al- varlegir glæpir færast í vöxt, en á sama tíma er lögreglan veikari en fyrr. Þetta ástand býður hættunni heim,“ voru orð lögreglu- manns í Reykjavík. Bjarki Elíasson yfiriögregluþjónn sagði í samtali við HP að þessar uppsagnir lögreglu- manna kæmu honum ekki á óvart. Hann sagðist þó vonast til þess og reikna með því Bush varaforseti fer bónarveg að Jamani olíumálaráðherra Saudi-Arabíu. Bandaríkin biðjast vægðar í stríðinu um olíuverðið Síðan Saudiarabar gáfust upp á að halda olíuverði háu með því að takmarka sína eig- in olíuvinnslu, hefur hráolíuverð lækkað um tvo þriðju í dollurum, og enn meira sé tillit tekið til lækkandi gengis bandaríkjadollars á sama tíma. Þetta eru fagnaðartíðindi fyrir .olíuinnflytjendur. Efnahags- og framfara- stofnunin í París spáir auknum hagvexti í iðnríkjum samfara þverrandi verðbólgu fyrir tilstilli lækkandi orkukostnaðar. En sé á heildina litið, eru það fyrst og fremst Japan og olíuinnflutningsríkj Vestur- Evrópu sem hagnast á lækkuðu olíuverði. Fyrir Bandaríkin eru áhrifin í besta falli tví- bent og geta hæglega orðið ískyggileg. Ástæðan er, að í fyrsta skipti um langan ald- ur leggjast áhrif verðsveiflna á orkugjöfum á heimsmarkaði af fullum þunga á bandaríska hagkerfið. Fram á þennan áratug hefur bandarískur orkumarkaður verið verndaður. Nú er sú vernd úr sögunni. Miðstýring á verði hráolíu- framleiðslu innanlands var afnumin upp úr 1980. Afnám miðstýringar á gasverði fylgdi á eftir 1985. Afleiðingin er versnandi sam- keppnisstaða bandarísks iðnaðar, sem ekki nýtur lengur hagstæðara orkuverðs en keppinautarnir. Sívaxandi viðskiptahalli Bandaríkjanna gagnvart umheiminum fylgir í kjölfarið. Samtímis leggst uppsöfnuð skuldabyrði frá undangengnum verðbólguáratug af ofur- þunga á bandarískar fjármálastofnanir. Það á jafnt við um erlenda og innlenda skuldu- nauta. Bandarískir bankar tóku að sér að ávaxta féð sem ríki OPEC græddu á olíuverð- hækkun síðasta áratug. Að miklu leyti var þessum fúlgum komið í lóg með lánum til þróunarlanda, einkum í Rómönsku Ameríku. Eftir að samdráttarskeið hófst í heimsviðskiptum, eru skuldugu löndin í greiðslukröggum. Lenging lána er sífelldur höfuðverkur á alþjóðlegum fjármagnsmark- aði. Nú er svo komið, að allir viðurkenna, að afskrifa verður áður en lýkur vænan hluta af 360 milljarða dollara skuldum landa í Róm- önsku Ameríku. Svipuð vandkvæði eru uppi á fjármagns- markaði innanlands í Bandaríkjunum. Kreppa hefur ríkt í bandarískum landbúnaði árum saman, og hafa bændur safnað skuld- um sem taldar eru nema 225 milljörðum dollara. Ljóst er að verulegur hluti af því fé innheimtist aldrei og bakar lánastofnunum fyrr eða síðar þungan skell. Reagan forseti beitti á síðasta ári neitunar- valdi til að afstýra gildistöku lagasetningar þingsins um að fjármagna skuldaskil fyrir bændur með fé úr opinberum sjóðum. Bændur skyldu fá að takast á við aðlögun að ríkjandi markaðsskilyrðum án samfélags- aðstoðar. Annað hljóð er nú komið í strokkinn, eftir að markaðsöflin tóku að bitna harkalega á bandarískum olíuiðnaði. Þá gerir Reagan varaforseta sinn út af örkinni til Saudi-Arabíu til að leggja að Jamani olíumálaráðherra að hemja samkeppnina, sem þegar hefur orðið neytendum um víða veröld til ómældra hags- bóta. Ástæður eru margar til að Reagan og Bush rjúka upp til handa og fóta, þegar að olíuiðn- aði Bandaríkjanna þrengir. Pólitískt vígi beggja er sólarbeltið, frá Flórída í austri til Kaliforníu í vestri, og þar eru olíuvinnsla og hliðargreinar hennar höfuðatvinnuvegur. Óhemju fjárfesting er orðin óarðbær við ríkj- andi olíuverð, og vanskil á útistandandi skuldum í þeirri grein boða enn eitt reiðar- slag fyrir bandaríska bankakerfið. Lækkandi olíuverð hefur áhrif á verðmæti annarra orkugjafa. Hátt olíuverð undanfarin ár hefur ýtt undir stórframkvæmdir við kola- ,nám, sérstaklega í vesturfylkjum Bandaríkj- anna. Kolin sem þar koma úr jörðu eru ekki lengur samkeppnisfær við innflutta olíu. eftir Guðmund Árna Stefánsson að viðræður milli aðila, lögreglumanna og ráðuneytis, kölluðu fram lausn á þessu máli. „Ég skil hins vegar vel gremju manna hér,“ sagði Bjarki. „Föst laun lögreglumanna eru fyrir neðan allar hellur." Margir viðmælendur HP í hópi lögreglu- manna voru hins vegar svartsýnir á lausn þessa máls. „Það virðist lítill vilji meðal ráða- manna um að leiðrétta þetta óréttlæti," sagði Ævar Pálmi Eyjólfsson lögreglumaður. „Og ég veit til þess að margir þeirra sem hafa sagt upp eru ákveðnir í því að hætta, hvernig svo sem mál fara. Sumir þeirra jafnvel búnir að tryggja sér atvinnu. Flestir vilja þó starfa áfram, en þá aðeins aö verulegar umbætUr sjái dagsins ljós.“ Það virðist svo sem víðtæk reynsla og þekking lögreglumanna sé hátt skrifuð á hin- um almenna vinnumarkaði. Að sögn hefur lögreglumönnum, sem hætt hafa störfum, gengið vel að fá vel launaða vinnu annars staðar í þjóðfélaginu. En hvað gerist, ef ekki næst saman í deil- unni og uppsagnirnar verða að veruleika? Bjarki Elíasson yfirlögregluþjónn svaraði þeirri spurningu: „Það verður neyðarástand. Lögreglan mun þá ekki getað sinnt öðru en hreinni neyðarþjónustu. Og það myndi taka fleiri ár að þjálfa og byggja upp nýtt lið.“ „Lögreglan verður að sinna öllum erind- um hversu ógeðfelld og erfið sem þau eru. Við verðum að hirða það sem hinir þjóðfé- lagsþegnarnir ýta frá sér og vilja ekki taka á. Fólk myndi ekki trúa því ef sagt væri frá öll- um þeim verkefnum sem lögreglan er neydd til að taka á. Og fyrir þessa erfiðu vinnu eru okkur síðan skömmtuð lúsarlaun. Þetta gengur ekki lengur," voru orð lögregluþjóns sem hefur starfað sem slíkur í 25 ár. Erfitt er að spá um framvindu málsins, en víst er að ef ekki semst og íslenskir lögreglu- menn halda sínu striki og hverfa frá störfum í hundruðavís á miðju sumri, þá mun hrikta í stoðum löggæslunnar hérlendis. Og enginn er herinn hérlendis til að ganga inn í störf lögreglunnar, eins og þekkist erlendis. eftir Magnús Torfa Ólafsson Fram til þessa hefur Bandaríkjastjórn látið svo, sem hún fagnaði lækkun olíuverðs og myndi gera sitt til að þar fengi frjáls verð- myndun á opnum markaði að ráða neytend- um til hagsbóta. í samræmi við þetta hafa Bandaríkjamenn stappað stálinu í stjórnir Bretlands og Noregs að vísa á bug öllum beiðnum OPEC um samvinnu af hálfu olíu- ríkjanna við Norðursjó um að stýra fram- leiðslumagni og þar með heimsmarkaðs- verði. Mótleikur Jamani olíumálaráðherra, þeg- ar Bush kemur til Rijad kvartandi og kvein- andi, virðist því nokkuð Ijós. Saudi-arabiski ráðherrann hlýtur að benda bandaríska varaforsetanum á, að lykillinn að sæmilega stöðugu olíuverði og það háu að kjósendur hans í Texas megi við una, sé að Bandaríkja- stjórn beiti áhrifum sínum til að fá stjórnir Bretlands og Noregs til að taka upp samráð og samvinnu við OPEC. Sé því skilyrði full- nægt, verði Saudi-Arabíu ekki skotaskuld úr að ráða við bandamenn sína í samtökum olíuframleiðsluríkja. Margaret Thatcher og Káre Willoch mega því eiga von á bandarískum þrýstingi, sem beinist að því að þau vendi sínu kvæði í kross hvað varðar olíuframleiðslustefnu og leggist nú allt í einu á sveif með OPEC. För George Bush til Saudi-Arabíu til að biðjast vægðar fyrir bandarískan olíuiðnað sýnir enn einu sinni, að Jamani hefur manna skýrasta yfirsýn yfir valdahlutföll og aðstöðu á olíumarkaði, þegar til langs tíma er litið. Hann hefur ekki látið kveinstafi illa settra OPEC-ríkja á sig fá, og það dugði til að Bandaríkjastjórn varð loks að beygja sig. Nú getur nýtt aðlögunarskeið hafist, en það ger- ist ekki í skyndi frekar en aðrar vendingar á þýðingarmesta hráefnismarkaði heims. Saudiarabar vita sem er, að áköf olíuleit síðasta áratug hefur ekki haggað því, að þeir og næstu nágrannar þeirra eiga í jörðu meiri- hluta sannaðs olíuforða jarðar. Olíumarkaðs- fræðingar hafa fyrir satt, að við aldamót verði aðeins tvö olíuútflutningsríki sem nokkurs megi sín utan Persaflóasvæðisins, Mexíkó og Noregur. Þá verður ekki vandi að ráða markaðnum. 4 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.