Helgarpósturinn - 05.04.1986, Síða 12
eftir Jónínu Leósdóttur mynd: Árni Bjarnason
Karvel Pálmason,
alþingismaður
Lœknaráð átelur meðferð hlutaðeigandi lœkna
á Karvel Pálmasyni alþingismanni:
ÞUNGUR
*
segir Karvel, sem
hugleiðir málshöfðun
— lögfrœðingur
kannar málið
FORSÍÐA HELGAR-
PÓSTSINS, þegar
Karvel Pálmason skýrði
frá hrottalegri reynslu
sinni og sakaði lækna
um mistök.
Læknarád hefur kuediö upp úrskurö í máli
Karvels Pálmasonar alþingismanns, sem vard
fyrir hrikalegri reynslu í framhaldi af hjarta-
uppskurdi, sem hann gekkst undir sl. haust.
Urskurdur Lœknaráðs er stuttur en afdráttar-
laus. í fjórum liðum ályktar ráðið, að lœknar,
sem höfðu með Karvel að gera, hefðu brugðist
ofseint við. Sjálfur telur Karvel, að niðurstaða
Lœknaráðs gangi í sumu lengra en þœr at-
hugasemdir sem fram komu í ítarlegu viðtali
hans við Helgarpóstinn í janúar sl.
Sjúkrasaga Karvels Pálmasonar alþingis-
manns er orðin kunnari en frá þarf að segja.
Frá því að blaðamaður Helgarpóstsins tók við-
tal við þingmanninn í janúarlok hefur vart ver-
ið meira um annað talað og í febrúar birti HP
síðan grein með svarbréfi lækna Borgarspítal-
ans við ásökunum Karvels í þeirra garð.
Nú hefur „Karvelsmálið" svokallaða verið
tekið fyrir af Læknaráði og landlæknir, for-
maður ráðsins, hefur sent Karvel Pálmasyni
niðurstöður þéirrar umfjöllunar. Okkur þótti
forvitnilegt að kanna viðbrögð þingmannsins
við bréfi Læknaráðs og spurðum hvort hann
væri sáttur við árangur þess að gera málið op-
inbert í fjölmiðlum.
„í þessu bréfi eru nú enn hrikalegri ásakanir
um vanrækslu Borgarspítalans en ég gerði
mér nokkurn tíma í hugarlund. Mín gagnrýni
snerist minnst um þau höfuðatriði, sem þarna
eru viðurkennd.
Mér finnst hræðilegt til þess að hugsa að
sjúklingar geti átt von á slíkri meðferð af hálfu
læknastéttarinnar. Þó vil ég ítreka það, að
þessi vinnubrögð réttlæta ekki alhæfingar um
stéttina í heild. Það er af og frá."
Mannlega hliðin brdst
— Er málinu þá ekki lokið með þessu bréfi
frá Lœknaráði?
„Mér sýnist viðkomandi læknar ekki hafa
lært mikið af þessum mistökum sínum —
a.m.k. er það ekki að sjá svona utan frá. Eg fór
með þessa reynslusögu mína í fjölmiðla til þess
að kynna hana almenningi, í þeirri von að
læra mætti af mistökunum og koma þannig í
veg fyrir að þau endurtækju sig. Minn læknir
hefur enn ekki við mig rætt, frá því að ég var
fluttur til London nær dauða en lífi í byrjun
október síðastliðins.
A meðan viðkomandi aðilar viðurkenna
ekki mistökin, getur fólk enn átt það á hættu
að lenda í svipuðu, eða jafnvel einhverju enn
verra. Eg er ekki einungis að tala um það að
læknarnir viðurkenni þetta fyrir mér persónu-
lega, heldur ekki síður að þeir viðurkenni það
fyrir sjálfum sér. Fyrr verður engra breytinga
von, held ég.“
— Það er sem sagt afsökunarbeiðni frá við-
komandi lœkni, sem þér finnst vanta?
„Ég er ekki að bíða eftir neinni slíkri afsök-
unarbeiðni, enda væri hún lítils virði ef hóta
þyrfti málshöfðun til þess að kalla hana fram.
Það hefði hins vegar verið allt annað mál, ef
slík viðbrögð hefðu komið fram strax og ljóst
var hvað skeð hafði. Þar með hefði mannlega
hlið málsins greinilega verið í lagi og þá er
hægt að fyrirgefa margt."
Þungur ófellisdómur um lækna
* — Hefur þú fengið sjúkraskýrsluna í þínar
hendur núna, Karvel?
„Já, ég hef það. Þar staðfestist m.a. að í
henni kemur hvergi fram að mér hafi verið
sagt að gefa mig fram við sjúkrahúsið á ísa-
firði, þegar gröftur var kor.únn í skurðinn og
ég farinn að pissa blóði. Ég hef einnig undir
höndum bréf sérfræðings, sem Læknaráð leit-
aði til vegna sinnar umfjöllunar, og hann kveð-
ur sterkt að orði. Þessi sérfræðingur talar um
„óhóflegan drátt" á innlögn minni á Borgar-
spítalann.
I bréfi því frá þremur læknum og einni deild-
arhjúkrunarkonu Borgarspítalans, sem birtist í
HP í febrúar, skrifa þrjú þeirra undir það að
mér hafi verið sagt af mínum lækni að gefa
mig fram við sjúkrahúsið á ísafirði. Þau taka
það sem sagt á sig að votta um eitthvað, sem
fór einungis á milli mín og viðkomandi læknis.
Það verður til þess að þau geta ekki talist hlut-
laus í þessu máli. Bréf Læknaráðs verður að
teljast þungur áfellisdómur fyrir bæði þau þrjú
og formann læknaráðs Borgarspítalans, sem
vottaði um þetta sama atriði í grein í Morgun-
blaðinu án þess að geta nokkuð um það vitað."
— Þér finnst úrskurður Læknaráðs þá snerta
fleiri en þinn hjartalækni á Borgarspítalan-
um?
„Já, mér sýnist úrskurður ráðsins ekki bein-
ast einvörðungu að mínum lækni, heldur öll-
um þeim sem undirrituðu bréfið til mín á dög-
unum og einnig formanni læknaráðs spítalans.
Það er ekki lítið að það skuli geta hent svona
marga lækna að haga sér á svo ámælisverðan
hátt."
Ur. tlþinglbiwöur
c/o Alþlngi
v/Auuturvöll
lOi Reykjavlk
LANDLÆKNItt .
25.0J.198Í
ÖÖ/hþ
llr. Karvol Pálnason,
A fundi Laknaráös þann 05.03.19ib var lögö Cra». ályktun Slöa-
■naladolldar Utknaráðs ua aál yöar. Niöurstööur uaraöna urðu
uítirfarandi.
Lcknaráö álýtur:
- -aö ot langur tlmi hafi llóiö frá þvl aó siókomin iguró I
sxurói yfir bringubcini K.p. gerói vart vlö slg 114.09.1985
par til hann var innlagóur á Uorgarspitalann (23.09.19851*
- *aö of langur tlmi hafi liðió frá innlögn og þar til venjul.
lungnasiynd var twktn 30.09.1985*
*aó óeölllega langur timi hafi llóió frá pvi aó blóðþynning
mcld (26.08.1985) og þar tll ný mcling var geró (22.09.1985
enda þótt geró hafi verið acut TT mcling á Bolungarvik 06.0'
1985 acm cýndi l\',
’aó eólilegt hafl verió aó leggja K.P. inn á sjúkrahús þegai
hann lót vlta af þlóómlgu"
BRÉF LÆKNARÁÐS,
undirritað af Ólafi Ólafs-
syni landlækni, þar sem
viðurkennd eru fern
mistök af hálfu lækna.
Gögn í höndum lögfræðings
— Þú gagnrýndir það mjög á sínum tíma að
Omari Ragnarssyni skyldi fengið bréf með til-
vitnunum í sjúkraskýrsluna þína, en því var
mótmœlt að svo vœri. Nú hefur þú skýrsluna
undir höndum — er bréfið samið upp úr skýrsl-
unni?
„Já svo sannarlega. Bréfið er hluti af skýrsl-
unni."
— Þú ert greinilega með ákaflega „sterkt"
plagg í höndunum þar sem þessi úrskurður
Lœknaráðs er. Hvað œtlastu fyrir núna?
„Þessu máli er ekki lokið, en það mun koma
í ljós síðar hvert framhaldið verður. Ég hef haft
samband við lögfræðing, sem nú er að kynna
sér öll gögn í málinu með þann möguleika í
huga að fara meö þetta fyrir dómstóla."
12 HELGARPÖSTURINN