Helgarpósturinn - 05.04.1986, Síða 24
Kammermúsikklúbburinn:
Beethoven, Shosta-
kovich og Brahms
Mánudaginn 7. apríl heldur
Kammermúsikklúbburinn sína
fimmtu og síðustu tónleika á starfs-
árinu. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30
á Kjarvalsstöðum. Flytjendur eru
Halldór Haraldsson sem spilar á
píanó, Guðný GuðmundsdóUir spil-
ar á fiðlu og á knéfiðlu leikur Gunn-
ar Kuaran.
Flutt verða þrjú tríóverk fyrir
þessi hljóðfæri, píanó, fiðlu og kné-
fiðlu; eftir Ludwig van Beethoven
tríó í Es-dúr, op. 1.1 frá árinu 1795,
eftir Dmitri Shostakovich verður
flutt tríó í E-moll, op. 67 frá 1944 og
loks eftir hlé þriðja tríóið eftir
Johannes Brahms í H-dúr, op. 8 frá
1854.
Allir eru velkomnir á Kjarvals-
staði 7. apríl.
-gpm
Gunnar Kvaran.
Guðný Guðmundsdóttir.
MYNDBÖND
*
Af skáldsögum, leikritum og Oskurum
eftir Ingólf Margeirsson
Þessi myndbandaþáttur er dálítið undar-
lega samsettur: Hér greinir frá skáldsögu í
kvikmyndaformi, sem er gömul og göfug
kvikmyndagerðarlist sem verið hefur á stöð-
ugu undanhaldi en virðist vera að koma fjör-
kippur í á nýjan leik. Þá segir frá kvikmynd-
uðu leikriti sem einnig er listgrein á undan-
haldi og loks frá ýmsu smámeti sem finna má
á hillum videóleiganna. En byrjum þáttinn á
argentínskri kvikmynd sem nýlega hlaut
Oskarinn sem besta erlenda kvikmyndin.
The Official
Version
Argentínsk. Árgerð 1985 ★★★★
Framleiðandi: Marcelo Pineyro
Leikstjóri: Luis Puenzo
Kuikmyndataka: Felix Monti
Handrit: Aida Borlnik og Luis Puenzo
Liststjórn (Art Directorj: Abel Facello
Búningar: Ticky Garcia Esteuez
Tónlist: Atilio Stampone og Maria Elena
Walsh
Aðalhlutuerk: Norma Alenandro og Victor
Alerio.
The Official Version eða Hin opinbera túlk-
un, fékk Óskarinn í ár sem besta erlenda
kvikmyndin. Þessi afbragðsgóða mynd hefur
reyndar verið til í allan vetur á mörgum
myndbandaleigum höfuðborgarinnar og lít-
ið farið fyrir henni og gott ef videóeigendur
hafa ekki litið á spóluna sem algjört slys í sín-
um innkaupum. Enda myndin argentínsk og
þarafleiðandi á spænsku. En enskir textar
eru þó undir. Væntanlega hafa Óskarsverð-
launin breytt afstöðu myndbandaleigueig-
enda og sennilega afstöðu viðskiptavinanna
einnig, því ekki hef ég séð spóluna staldra
við eftir að Bandaríkjamenn sæmdu hana
hinum eftirsóknarverða titli. The Official
Version gerist í Argentínu á árum herfor-
ingjastjórnarinnar. Miðaldra kennslukona í
borgarastétt er gift yfirmanni í fyrirtæki sem
hefur allt sitt undir Ameríkönum. Þau ,,eiga“
fimm ára dóttur. Þegar gömul vinkona
kennslukonunnar kemur úr fangelsisprísund
og upplýsir vinkonu sína að mjög tíðkist að
börn fangelsiskvenna sem fædd eru í prís-
und, séu gefin, og ekki ósjaldan til yfirstéttar-
fólks, vakna grunsemdir kennslukonunnar
að barn þeirra hjóna sé illa fengið. Spenn-
andi og djúpstæð athugun á þjóðfélags-
ástandi í Argentínu herstjóranna sem drepur
á „Las madres de la Plaza“ og baráttu þeirra
fyrir horfnum ættingjum. N. Aleandro hlaut
1. verðlaun fyrir leik sinn í Cannes 1985. Sál-
fræðileg uppbygging hlutverksins makalaust
vel gerð. Þetta er kvikmynd sem enginn
kvikmyndaunnandi má láta fram hjá sér
fara.
Hammet
Bandarísk/þýsk. Árgerð 1982 ★
Framleiðandi: Francis Ford Coppola
Leikstjóri: Wim Wenders
Handrit: Ross Thomas/Dennis OFIaherty
eftir bók Joe Gores
Kuikmyndataka: Philliph Lathrop
Asc/Josepli Biroc Asc
Tónlist: John Barry
Aðalhlutuerk: Frederic Forrest, Peter Boyle,
Marilu Henner, Roy Kinnear, Lydia Lei,
Elisha Cook
Lengd: 93 mín.
Leiöinleg og vandræðaleg Wenders-mynd
um persónu í glæpahandriti sem verður lif-
andi. Fallega lýst mynd og leikgerðin góð en
atburðarásin langdregin. Fyrsta mynd
Wenders í Bandaríkjunum og tók þrjú ár að
klára. Coppola, sá góði og frægi leikstjóri,
borgaði brúsann. En það verður að segjast
sem er; þrátt fyrir listræn tilþrif og mikinn
metnað, verður þessi blanda þýskrar kvik-
myndanýbylgju og hefðbundins bandarísks
glæpaþrillers ákaflega vafasöm blanda og
langdregin.
Cat On A
Hot Tin Roof
Bandarískt sjónuarpsleikrit. Árgerð 1984
★★★
Framleiðandi: Pylis Geller
Leikstjóri: Jack Hofsis
Handrit eftir leikriti Tenessee Williams
Aðalhlutuerk: Jessica Lange, Tommy Lee
Jones, Rip Torn, Kim Stanley, Penny Fuller,
David Lukes o.fl.
Hið fræga leikrit Tenessee Williams, Cat
On A Hot Tin Roof hefur verið helsta við-
fangsefni amerískra leikara sem túlka
bandarísk sálfræðileikrit í anda O’Neilles.
Þegar verkið var frumsýnt á sjötta áratugn-
um þótti það mikil sprenging í leikhúsheim-
inum enda ósminkað fjölskylduuppgjör þar
sem ekkert er dregið undan, og lýginni að
lokum sópað út úr húsinu. En þá er líka mik-
ið búið að ganga á og einkalíf aðalpersón-
anna; ofdrykkja, kynlíf og brall með peninga
og völd, fengið að glymja um allt leikhús.
Bandaríkjamenn hafa síðar reynt að kvik-
mynda þetta verk. Svo skjótt sem 1958 gerði
leikstjórinn Richard Brooks mynd sem
byggðist að mörgu leyti á hinni rómuðu
Broadway-uppsetningu. Þessi sígilda mynd
er kannski hve eftirminnilegust fyrir leikara-
valið. Elizabeth Taylor lék Maggie, Paul
Newman soninn Brick og Burl Ives var í hlut-
verki Big Daddy. En myndin líður auðvitað
fyrir það að hún hefur farið í gegnum þvotta-
vélar kvikmyndaiðnaðarins á sjötta áratugn-
um í Bandaríkjunum og allt hið mergjaða
tungumál og safaríki prósi skolast burt með
löðrinu. Hið hrjúfa og grófgerða inntak leik-
ritsins hefur fengið að halda sér í tveggja ára
gamalli sjónvarpsleikgerð sem nú er hægt að
verða sér út um á videóleigum höfuðborgar-
innar. Þar leikur Jessica Lange hlutverk
Maggie, Tommy Lee Jones leikur Brick og
Rip Torn fer með hlutverk Big Daddy. Þráður
verksins er í stuttu máli þessi: Stórlax í Suð-
urríkjunum (Big Daddy) sem unnið hefur sig
upp á eigin rammleik, kemst að því að hann
er með ólæknandi krabbamein. Fjölskyldan
er saman komin til að halda upp á afmæli
ættarhöfðingjans; eldri sonur hans með
konu og fimm börn (sem bíða með eftirvænt-
ingu að hann fari í gröfina svo þau geti sölsað
undir sig búgarðinn), og yngri sonurinn sem
býr á búgarðinum ásamt konu sinni. Þau eru
barnlaus, hann er frægur íþróttafréttamaður
sem lagstur er í drykkju og hefur nóg af
ástæðum til að afsaka drykkjuna. Verkið ger-
ist allt á einum degi og afhjúpar alla samsetn-
ingu fjölskyldunnar og einstaklinga hennar.
Þessi útgáfa á verki Williams hefur bæði
sína kosti og galla. Kostirnir eru aðallega
þeir að verkið er tekið réttum tökum og allur
hrjúfleiki og gróf áferð látin halda sér. Leik-
urinn er einnig afbragðsgóður á sumum leik-
endum. Þannig er Tommy Lee Jones frábær
sem hinn drykkfelldi og glataði sonur, Rip
Torn er skínandi sem hin aldna kempa með
margt misjafnt að baki og langt frá því að
vera hinn réttsýni og föðurlegi Big Daddy
sem Burl Ives túlkaði á gömlu spólunni. Enn-
fremur leikur Penny Fuller eiginkonu hans,
Big Mama, með dásamlegum tilþrifum. Sú
kona er reyndar þess virði að horfa á þessa
mynd þótt ekki væri fyrir annað. En það
verður að segjast sem er, að Jessica Lange
sem á að vera aðalstjarna myndarinnar, nær
hvergi tökum á persónu Maggie. Hún lendir
í vandræðum með persónutúlkun sína frá
upphafi og kemst eiginlega aldrei inn í verk-
ið. Hún reynir þó ýmislegt; sperrir fingurna
eins og klær, gengur kynþokkafull um á ilj-
unum í náttkjólnum einum saman og hvíslar
textann, en ekkert gengur upp. Elizabeth
Taylor hefur vinninginn þar. Þrátt fyrir mis-
heppnaðan leik Lange er myndin mjög þess
virði að horfa á hana, því þarna eru á ferð-
inni margir afbragðsleikarar og verkið
klassískt. Takið gjarnan með ykkur báðar
spólurnar heim (gamla myndin er nefnilega
til á sumum leigunum) og berið þessar útgáf-
ur saman!
Missing
Pieces
Bandarísk. Árgerð 1982 ★★
Leikstjóri: Mike Hodges.
Handrit: Mike Hodges eftir sögu Karl
Alexander
Aðalhlutuerk: Elizabeth Montgomery, Ron
Karabatos, John Reilly, Louanne, Robin
Gammel.
Ágæt leynilögreglumynd í Sam Spade-
stílnum, nema í stað Bogarts er Elizabeth
Montgomery sem einkaspæjarinn Sara
Scott. Eiginmaður hennar sem er blaða-
maður er myrtur er hann yfirgefur bíl þeirra
síðla kvölds í grenjandi rigningu. Sara þjáist
af martröðum þar sem hún sér atburðinn er
maður hennar var skotinn fyrir augum
hennar, aftur og aftur (aftur og aftur fyrir
áhorfendur einnig svo þeir munu þjást af
þessari martröð einnig nokkur kvöld). Dag
einn fær hún hins vegar það verkefni að
fylgja ótrúum eiginmanni eftir og það verður
upphafið að lausninni á morði blaðamanns-
ins. Með góðri aðstoð yfirboðara síns, Claude
Papazin (Ron Karbatsos) tekst henni að lok-
um að leysa gátuna. Ágætlega skemmtileg
og spennandi mynd gerð eftir vel skrifuðu
handriti sem er fullt af húmor og kvenrétt-
indagáska, en endurtekningar koma í veg
fyrir að myndin verði afbragðsgóð.
Sizzle
Bandarísk. Árgerð 1981 ★★
Framleiðandi: Lynn Loring/Douglas S.
Cramer
Leikstjóri: Don Medfored
Aðalhlutuerk: Loni Anderson, John
Forsythe, Leslie Uggans og fl.
Illa leikin mynd um unga stúlku sem
kemur ásamt kærastanum til Chicago bann-
áranna. Kærastinn drepinn og stúlkan hefnir
sín á skúrkunum með því að beita kvenlegri
slægð. Pínlega illa gerð á köflum en sögu-
þráðurinn heldur nokkurn veginn. Meðal-
mynd. Gengur sem afþreying ef engin önnur
spóla er við höndina. Sæmilegar sviðsetn-
ingar og góðir búningar geta vakið áhuga
þeirra sem hafa gaman af bannárunum í
Bandaríkjunum og sveiflu þriðja áratugar-
ins.
The Razor’s
Edge
Bandarísk. Árgerð 1984 ★★★
Framleiðandi: Robert P. Marrcucci & Harry
Benn
Leikstjóri: John Byrum
Handrit: John Byrum og Bill Murray eftir
skáldsögu W. Somerset Maugham.
Tónlist: Jack Nitzsche
Lengd 124 mín.
Aðalleikarar: Bill Murray, Theresa Russell,
Catherine Hicks, Denholm Elliot, James
Keach.
„A thin line seperates love from hate,
success from failure, life from death, a line as
difficult to walk as a razor’s edge,” segir í
sögu W.S. Maughams. Myndin nær vel utan
um skáldsögu Maughams sem segir frá leit
ungs Bandaríkjamanns eftir hremmingar
fyrri heimsstyrjaldar að tilgangi lífsins og leit
að sjálfum sér. Sögusviðið er París millistríðs-
áranna, Himalajafjöll og Bandaríkin meðan
þau voru enn einangruð. Magnað og vel leik-
ið drama um lífið, ástina og hverfula veröld
og vist á jörðinni. Hugljúf og vel gerð mynd
þar sem Bill Murray á hörkugóðan leik.
Mynd sem fyllilega er hægt að mæla með.
24 HELGARPÓSTURINN