Helgarpósturinn - 05.04.1986, Blaðsíða 30

Helgarpósturinn - 05.04.1986, Blaðsíða 30
HELGARDAGSKRÁVEIFAN Föstudagur 4. apríl 19.25 Krakkaefni. 20.00 Fróttir. Edda ábúðarfull og einhver annar við hliðina á henni. Blátt um- hverfi og einhver stórborg í baksýn. 20.40 Rokkarnir geta ekki þagnað. Því miður. Endursýning í svart-hvítu sem allir geispa yfir og enginn botnar í af hverju er verið að sýna. 21.00 Þingsjá. Skyggnst inn í draumaverk- „ smiðjuna viö Austurvöll. 21.15 Kastíjós. Smámál gerð að stórmál- um. 21.50 Sá gamli. (Ekki bein útsending með Steingrími.) Þýskur krimmi. 22.50 Seinni fréttir. 22.55 Brotinn spegill. Bresk sakamála- mynd frá árinu 1980. Handrit eftir sögu Agötu Christie. ★★ 00.50 Góða nótt. Laugardagur 5. apríl 16.00 íþróttir. Enska knattspyrnan. 19.25 Búrabyggð. Þáttur í brúðuformi af æsku Jóns Helgasonar ráðherra. 20.00 Fréttir. Edda situr ennþá og enn. ábúðarfyllri á svip. Einhver af strákun- um við hennar hfið. 20.35 Dagbókin hans Dadda (ekki Denna). 21.05 Spurningakeppni framhaldsskól- anna. Hverjir spyrja? Hverjir svara? Fylgist með! 21.40 Töfraheimur Paul Daniels. Breskur skemmtiþáttur. 22.30 Undir álminum. Bandarísk bíó- mynd gerð eftir leikriti Eugene O'Neil. ★ ★★ 00.30 Allt búið. Sunnudagur 6. apríl 17.00 Hugvekja. Prestur fær okkur til að hugsa um það sem við ætluðum að hugsa um en gleymdum af því að við vorum að horfa á sjónvarpið. 17.10 Á framabraut. Hrafn Gunnlaugsson segir frá störfum sínum. 18.00 Stundin okkar. Hverra? 18.30 Endursýnt efni. Enn einu sinni! Hvað, eigum við ekki að borga afnota- gjöldin í gömlum krónum? 20.00 Fróttir. Edda situr enn og ekki sést votta fyrir brosi. Var kauphækkuninni synjað? Hvað er að gerast? Fylgist með útsendurum Ingva Hrafns brjóta þjóðfélagið til mergjar. 20.35 Sjónvarp næstu viku. Hugvekja frá dagskrárdeild. 20.50 Kvöldstund með listamanni. Haf- liði Hallgrímsson segir Skotabrand- ara. 21.30 Kjarnakonan. Bandarískur fram- haldsþáttur. Uppáhaldsþáttur Sigríð- ar Dúnu. 22.20 önnur veröld. Fyrri hluti. Kanadísk sjónvarpsmynd um konu sem ber brjóstkrabba. 23.50 Dagskrárlok. Að sinni. .© Fimmtudagskvöldið 3. apríl 19.00 Kvöldfrétt af miðunum. 19.50 Daglegt mál. Sigurður G. Tómasson kvartar. 20.00 Á ferö. Sveinn Einarsson fer hjá sér... 20.30 Jónfóníumúlinn í Háskólabíói. Árnason lýsir göngulagi stjórnandans fram og aftur um sviðið sviðið. 21.15 Um skáld á Spáni. 22.25 Fimmtudagsumræðan. Atli Rúnar ræðir. 23.25 Kammertónleikar þangað til allir geispa svo mikið að útvarpinu verður ekki stætt að senda lengur út. Þá frétt- ir, þularkveðja. Suð. .. 24.00 Suð. Föstudagurinn 4. apríl 07.00 Þulur býður góðan dag og Hann hon- uml 07.15 Morgunvaktin og trimm (plús has- sperrur síðdegis...) 09.05 Morgunstund barnanna. Einar Bragi gúddígallarallírælar í eyru yngstu kynslóðarinnr sem hlustar með öðru. 09.45 Þingfréttir eru góðar fréttir. 10.40 Þáttur að norðan! 11.10 „Sorg undir sjóngleri" Séra Gunnar celló Björnsson grætur þýðingu sína. 11.30 Morguntónleikarnir. 12.20 Hádegisfrétt af Leidí Dæ til dæmis. 14.00 Miðdegissagan. 14.30 Sveiflur. Sverrir Páll Erlendsson sveiflar nokkrum tónum milli lands- hluta. Rúvak — sænska sjónvarpið. 16.20 Síðdegistónleikarnir vinsælu. 17.00 Helgarútvarp Vernharðs Linnets. Börnin sjá um hann. 17.40 Úr atvinnulífinu. Ekkert spaug um það. 19.00 Spaugilegar kvöldfréttir. Aðallega sniðugar en sumpart broslegar og nokkrar næstum kitlandi. 19.45 Þingmál. Atli Rúnar ræðir meira. 19.55 Daglegt mál. örn Ólafsson flytur þáttinn (en hvert, eru menn bara ekki sammála um. . ?) 20.00 Lög unga fólksins. Aldurstakmark óákveðið. 20.40 Kvöldvaka. Aldurstakmark ákveðiö. 21.30 Frá tónskáldum. Atli Heimir ákveð- inn (að vanda). 22.25 Kvöldtónleikar. „Gott heiti á þætti" einsog fram kom svo glögglega í slð- ustu hlustendakönnun RUV. 23.00 Heyrðu mig — eitt orð. Kolbrún Halldórsdóttir sperrir vinstra eyrað en klórar sér með því hægra! 00.05 Djassþáttur. Jón Múli Árnason spil- ar ekki diskó. 01.00 Diskó-dagskrárlok í beinni útsend- ingu. Laugardagurinn 5. apríl 07.00 Gú-da. .. 07.30 Söngur kóranna í útvarpssal. * Eg mœli meö Rás 2, sunnudaginn 6. apríl, klukk- an 18.00 — Nýjung — „Um þetta leyti". Þáttur í umsjón Sigfinnar Schiöth og fjölskyldu. I þessum þáttum, sem veröa alls 1800 að tölu en er samt ætlað að verða sjaldan á dagskrá — eða eftir því sem hjá verður komist — verður eiginlega bara spiluð tónlist (mjög létt) og samt þannig að svolítið heyrist í umsjónarmönnunum sem verða sjö hverju sinni, ásamt Georgi Magnússyni, tæknimanni. 09.30 Óskir vinsælustu sjúklinganna. . . 11.00 Á tólfta tímanum. 12.20 Hádegisfréttir af árekstrum á götum úti og heima fyrir. 13.50 Hér og nú. Fréttaþáttur. 15.00 Miðdegissagan. 15.50 íslenskt mál. 16.20 Listagrip. 17.00 Leikrit. 17.30 Klassík. 19.00 Fróttir. 19.35 Grín. 20.00 Harmóníkuþáttur. „Og ég sem hélt að þessi þáttur ætlaði aldrei að byrja," kvað þá Gunnlaugur gamli og saug grimmilega upp í nefið svo snörlaði miður geðslega. 20.30 Þáttur að norðan! 21.20 Vísnakvöld. 22.25 Þáttur að noröan. 00.05 Jón örn Marinósson. . . 01.00 . . .með þátt sem endar. Sunnudagurinn 6. apríl 08.00 Morgunandakt. Séra Þórarinn Þór til- biður Hamarinn. 08.35 Létt morgunlög? 09.05 Þung morgunlög? 10.25 Út og suður. Friðrik Páll Jónsson kem- ur ferðasögum á framfæri. 11.00 Messa. Séra Erik Guðmundsson kem- ur Guði á framfærslu hins opinbera. 12.20 Frétt. 13.30 Grímur Thomsen. Þáttur um hann og pabba og mömmu. 14.30 Miðdegistónleikar. 15.10 Um leyniþjónustur. Friðrik Páll Jóns- son segir frá kynnum sínum af KGB, CIA og álíka traustum vinnustöðum. 16.20 Vísindi og fræði. 17.00 Síödegistónleikar. 19.00 Fréttir. 19.35 Erindi. 20.00 Stefnumót. 21.00 Ljóð og lag. 21.30 Útvarpssagan. 22.25 íþróttir. Samúel örn Erlingsson fjallar um helstu beinbrot og náratogn- anir vikunnar. 22.40 Svipir. 23.20 Kvöldtónleikar. 00.05 Milli svefnsog vöku. Einn svona Ijúfur í dagskrárlok sem eru. . . 00.55 núna! £ Fimmtudagskvöldið 3. apríl 20.00 Spilaö. . . 21.00 . . .spjallað. . . 22.00 . . .sprangað. . . 23.00 . . .spurt. . . 24.00 . . . Föstudagurinn 4. apríl 10.00 Morgunþáttur. Páll Þorsteinsson og Ásgeir Tómasson leika sér að plötu- safni stofnunarinnar. Tæknimaður Georg Magnússon. 12.00 Matur. 14.00 Fttsthólfiö. Valdís Gunnarsdóttir leitar full örvæntingar í galtómu boxinu. 16.00 Jón Ólafsson leitar líka. Og finn- ur. . . 17.00 . . .á sér! 18.00 Matur. 20.00 Hljóðdósaverksmiðjan. Tækni- maður Georg Magnússon. 21.00 Dansrásin. Hermann Ragnar Stefáns- son stígur sporin á Singer, Husquarna og Mulinette... eftir Sigfinn Schiöth 22.00 Rokkrásin. Snorri Már og Skúli Helga tala milli laga. 23.00 Á næturvakt með Georgi Magnús- syni. 03.00 Hún búin. Laugardagurinn 5. apríl 10.00 Morgunþáttur. Grautþunn þjóð plöt- uð framúr með framúrstefnutónlist. 12.00 Matur (frá því í gær (að hætti Georgs Magnússonar)). 14.00 Laugardagur til lukku. Svavar Gests sprangar sig í gott skap. (Og hringir í nokkra „löggilta hálfvita" að eigin sögn. ) 16.00 Listapopp. Sigurður Þór Salvarsson kynnir maís-uppskeruna sunnan hafs og norðan. 17.00 Hringborðið. Erna Arnardóttir spyr fólk hvort því finnist hitt lagið betra en hitt... 17.15 .. .það hugsar sig um. . . 17.20 .. .vel og lengi. . . 17.35 . . .þannig að umsjármaður ör- væntir... 17.45 . . .tekur loks af skarið sjálf... 17.50 .. .og svarar bara, prívat og persónu- lega, í fullri einlægni, opinskátt og hreinskilnislega: „Nei, mér hefur nú alltaf líkað betur við McCartney!" 18.00 Hlé, þessvegna. 19.00 Framhaldshlé vegna þess. 19.30 Hlé vegna framhaldsins. 19.45 Hlé á táknmáli. 20.00 Línur. Þáttur án spiks. 21.00 Milli stríða. Þáttur í friði. 22.00 Bárujárn. Þáttur með klæðningu. 23.00 Svifflugur. Þáttur í loftinu. 24.00 Á næturvakt. Þáttur í þættinum. 03.00 Ding-dong: „Nei, hann er ekki heima..." Sunnudagurinn 6. apríl 13.30 Salt í samtíðina. 15.00 Dæmalaus þáttur. 16.00 Vesældarlistinn. 18.00 Um þetta leyti. Þáttur í umsjón Sig- finnar Schiöth og fjölskyldu. í þess- um þáttum, sem verða alls 1800 að tölu, en er samt ætlað að verða sjald- an á dagskrá — eða eftir því sem hjá veröur komist — verður eiginlega bara spiluð tónlist og samt þannig að svolítið heyrist í umsjónarmönnum sem verða sjö hverju sinni, ásamt Georgi Magnússyni, tækni- manni. 18.00 Fine. Svæðisútvarp virka daga. 17.03—18.00 Reykjavík án Hveragerðis — FM 90,1 MHz. 17.03—18.30 Akureyri meö Hrafnagils- stræti — FM 96,5 MHz. UTVARP Að rabba í eina átt SJÓNVARP eftir G. Pétur Matthíasson Dýrðardagar um páska Það var svolítið kostuleg tilviljun, og kannski ekki tilviljun, að í fjölmiðlapistli sinum á þriðjudagskvöld kvartaði Margrét S. Björnsdóttir, einn af ræðumönnum út- varpsins um fjölmiðla, yfir því, að þær breytingar, sem orðið hafa á dagskrá sjón- varpsins hefðu allar verið á einn veg. Hún var semsé ósátt við þá áherzlu, sem lögð hefur verið á að skemmta landslýð á kostn- að uppfræðslu að hennar mati. Kostuleg tijviljun vegna þess, að fyrsti þáttur eftir fréttir í sjónvarpinu sama kvöld var alveg prýðisgóður skemmtiþáttur í tilefni dags- ins, fyrsta apríl, allt í plati náttúrlega. Uti í sjoppu heyrði ég unga stúlku segja frá þættinum og sagði hún eitthvað á þá leið, að í sjónvarpinu hefði ,,bara verið heilt ára- mótaskaup". Og það er engin furða, að stúlkan skuli hafa tekið svona til orða, því fram til þessa hefur sjónvarpið talið það skyldu sína aðeins einu sinni á ári að skemmta landslýð, hafa á dagskrá skemmtiþátt, sem þjóðin hefur beðíð eftir í eftirvæntingu í heilt ár. En stöldrum nú við, þetta á víst að vera útvarpspistill. Og það var reyndar útgangs- punkturinn. Hvers vegna er Margrét að kvarta? Og er kvörtun hennar á rökum reist? Að mínu mati er það út í hött að kvarta yfir því, að loksins skuli vera kominn húmor og léttleiki í innlenda dagskrárgerð. Hins vegar má jafnframt til sanns vegar færa, að þessi dagskrárgerð hafi komið nið- ur á annarri innlendri dagskrárgerð. En hvaða lærdóma drögum við af þessu? Að minnsta kosti þann, að hingað til hefur ekki verið lagt nógu mikið fé, og ekki nógu mikil áherzla, á frétta- og fræðsluefni. Eg tek undir með Margréti um það. Nú er ég aftur kominn í sjónvarpsumræðuna og ef pistillinn á að standa undir nafni verð ég að fara að snúa mér að útvarpinu. Og skal það reynt nú. Það var vel til fundið hjá útvarpsmönn- um að fá fólk úti í bæ til þess að rabba um fjölmiðlana. Þarna koma oft þarfar ábend- ingar og athugasemdir og stundum sitt- hvað, sem maður vildi gjarnan ræða frekar. Það er nefnilega svo, eins og Margrét benti á í framangreindum pistli, að við sem sitj- um fyrir framan útvarp erum ,,passívir“ áheyrendur. Við erum mötuð af þessum einhliða (einnar leiðar) miðli og vildum gjarnan svara talandanum strax. En því verður ekki viðkomið. Við erum mötuð og höfum illa færi á því að andmæla eða rök- ræða sjónarmiðin við þann, sem flytur þau. Sama gildir um mötun Margrétar og þá mötun, sem Margrét kvartaði yfir. Og er það ekki svo með flesta miðla, Margrét? Ekki fer maður að rífast við bók- ina, sem maður heldur á? Einhvern veginn finnst mér, að Margrét hafi verið að kvarta yfir því, sem kallað er á ensku „one way communication", þ.e. miðlun, sem gengur eingöngu í aðra áttina, sem er áhorfandinn, hlýðandinn eða lesandinn. Um þetta má svo ræða á málþingum. Eða í blöðum. Þetta er stórt og mikið mál. Heilu kvöldin án sjónvarps, er hægt að hugsa sér það skemmtilegra? Nú er ég viss um að allir hafi gert það sem þeir hafa ætlað að gera lengi en hafa ekki gert vegna þess að sjónvarpið var svo áhugavert. Stað- reyndin er að sjónvarpið er gifurlegur timaþjófur og hefur verið það í vetur þar sem dagskráin hefur verið mjög góð, of góð! Framhaldsþættirnir eru verstir, þeir góðu. Að ánetjast einum slíkum þýðir nokkur kvöld. T.d. hafa þriðjudagskvöldin í vetur byrjað með stórgóðum þáttum um sjónvarpið sjálft og síðan verið á dagskrá framhaldssakamálaþættir, margir mjög góðir. Sérstaklega þó sá ítalski, Kolkrabb- inn. Því sat maður límdur við kassann og fór hvergi. Núna er önnur tíð. Þegar þetta er skrifað er ekki vist hvern- ig fer, hvort rafeindavirkjar snúi til baka eða snúi baki við sjónvarpinu. Það skiptir ekki máli nema helst fyrir rafeindavirkjana og svo auðvitað myndbandaleigueigendur sem hafa grætt á tá og fingri þessa sjón- varpslitlu daga. Vitanlega var horft á það sem upp á var boðið um páskana, svona að mestu leyti. Þættirnir um Jesú okkar frá Nasaret voru alveg ágætir, nema hvað í þeim var engin spenna, ef til vill vegna þess að maður hafði lesið bókina og vissi hvernig hún end- aði. Annars var greinilega reynt að gera söguna trúverðugri en hún er í Biblíunni, sennilega fyrir hina lítttrúuðu. Svik Júdas- ar voru mun skiljanlegri eftir að búið var að gera hann að pólitíkusi og mennta- manninum í lærisveinahópnum. Svikin voru ekki svik heldur misskilningur, því Júdas var með opinn huga en lokað hjarta einsog pólitíkusar gjarnan eru. Hitt atriðið sem mér þótti mjög trúverðugt og skemmtilegt að sjá, var hvernig staðið var að krossfestingunni. Að Jesú og morðingj- arnir tveir skyldu hafa verið hífðir upp á stóra grind en ekki sjálfstæða krossa er mun líklegra en hitt. Hér voru líka morð- ingjarnir negldir upp en vanalega hefur Jesú einn verið negldur sem auðvitað er óskiljanlegt, svo sérstakur hefur hann ekki verið í augum Rómverja. Sem sagt, ágætir þættir en það vantaði í þá spennuna. Það eru flestir búnir að gleyma því að fyrir fáum árum var sjónvarpið lokað í einn mánuð á ári, í júlí. Þá fóru allir starfsmenn sjónvarpsins í sumarfrí og þurfti ekki að ráða sumarafleysingafólk. 1 ljósi þessara fáu sjónvarpsdaga uppá síðkastið legg ég til að aftur verði tekin upp júlílokun. Með þvi sparast stórfé sem mætti í staðinn nota í innlenda dagskrárgerð, þjóðin fær frí frá sjónvarpinu í heilan mánuð og það verður kannski aftur menningarlegasta sjónvarp í heimi samkvæmt Guinness. 30 HELGARPÖSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.