Helgarpósturinn - 10.07.1986, Blaðsíða 6

Helgarpósturinn - 10.07.1986, Blaðsíða 6
SEM TALAÐ ER UM HEIMSMYND er blað sem er virkt í þjóöfélagsumrœöunni. Alþjóöamál, stjórnmál, tíska, tídarandi, listir og viötöl sem eiga sér vart hlidstœðu! HEIMSMYND er blað sem vitnað er í og ekki að ástœðulausu. Við gerum kröfur ykkar vegna! ÁSKRIFTARSÍMI 622020/622021 HEIMSMYND ÓFEIGUFS HF. AÐALSTFSÆTI 4 101 FSEYKJAVÍK að er ekki bara markaðs- nefnd Félags hrossabænda og búvörudeild Sambandsins sem standa í hestaútflutningi. Einstakl- ingar og einkafyrirtæki hafa í gegn- um árin einnig flutt út hesta þótt í minna mæli sé. Og ný fyrirtæki spretta upp. Þannig munu Ingvar J. Karlsson, læknir og mikill áhuga- maður um hesta, og fleiri Islending- ar hafa tekið sig saman við Banda- ríkjamenn og á síðasta ári stofnað hlutafélagið íslandssport sem helgar sig útflutningi á hestum til Bandaríkjanna. Islendingarnir eiga 60% í fyrirtækinu og skrifstofa þess er á íslandi en einn bandarísku hlut- hafanna á búgarð í heimalandi sínu þar sem fyrirtækið geymir og sýnir forvitnum Bandaríkjamönnum ís- lenska hesta. Þannig munu Kanar þegar hafa pantað um 10 reiðhesta og bíða spenntir eftir að fá þá í hendur síðar á þessu ári. Sam- kvæmt heimildum HP hafa forsvars- menn hlutafélagsins viljað fara hægt af stað og ekki rasa um ráð fram og einbeita sér að hestasölu í New-Yorkríki en fyrirtækinu hefur nú tekist að fá inni á einhverri stærstu hestasýningu í heimi „National Horseshow“ sem hald- in er árlega í New York. Það mun vera mjög erfitt að koma hrossum inn á þá sýningu. Fyrir sýninguna eru t.d. haldin ein 600 hestamanna- mót í Bandaríkjunum og þeir hestar sem þar komast í úrslit eru síðan valdir á stóru sýninguna. 4—10 ís- lenskir hestar munu þannig verða til sýnis meðan á sýningunni stend- ur og vænta forráðamenn Islands- sports þess að áhrifin verði gífurleg, þvi þúsundir manna alls staðar úr hinum vestræna heimi sækja hana. Bandaríkjamenn munu þegar hafa mikinn áhuga á íslenska hestinum og meðan fyrirtækið er að fóta sig á markaðnum hefur verði hestanna verið haldið nokkuð niðri, en vonir eru bundnar við að fljótlega eftir sýninguna muni reynast unnt að sprengja það upp. Og þá er bara að vita hvort draumur forráðamanna íslensk-bandaríska fyrirtækisins um að þeim takist að hafa lifibrauð sitt af hrossaútflutningnum einum sam- an kunni að rætast. . . |U| ■ W Weð nýjum mönnum virð- ast ameríkaníseraðir starfshættir vera að ryðja sér til rúms á útvarp- inu. Aukinheldur mun þróunin vera í þá átt að vald einstakra deildar- stjóra smáminnkar, en miðstýringin verður meiri. Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri hefur unnið ósleitilega að því að safna öll- um þráðum í sínar hendur, og beitir þar mjög fyrir sig Elfu Björk Gunn- arsdóttur, framkvæmdastjóra stofnunarinnar. Það er Elfa sem einkum þykir hafa tileinkað sér bandarísk vinnubrögð, sem meðal annars felast í því að frá henni ganga í gríð og erg tilskipanir á litl- um bréfsneplum, sem gjarnan er lætt undir hurðir — einsog kvað vera háttur amerískra. Það fylgir sögu að þessi nýi stjórnarmáti fari svolítið illa í gamla starfsmenn sem eru vanari því að stjórna yfir kaffi- drykkju eða þegar þeir eiga leið um ganga útvarpsins.. . 6 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.