Helgarpósturinn - 10.07.1986, Blaðsíða 39

Helgarpósturinn - 10.07.1986, Blaðsíða 39
FRÉTTAPÓSTUR Brotlending á Reykjavíkurflugvelli Eins hreyfils einkaflugvél brotlenti á Reykjavikurflug- velli um sjöleytið á þriðjudag og kastaðist við það harkalega á eina af Fokkervélum Flugleiða sem var nýkomin frá Fær- eyjum. Fjórir voru í litlu vélinni en engin teljandi slys urðu á fólki. Það höfðu ekki allir farþegar Fokker-vélarinnar gengið frá borði og þeir siðustu áttu fótum sínum fjör að launa. Litla vélin er gjörónýt en Fokkervélin Dagfari skemmdist lítið sem ekkert. Eldur kom upp við áreksturinn en fyrir snarræði Ævars Björnssonar flugvirkja sem var í Dagfara náðist að slökkva eldinn strax og er talið að það hafi komið í veg fyrir stórslys. Viðtal vekur úlfaþyt í viðtali við Össur Skarphéðinsson ritstjóra Þjóðviljans í timaritinu Heimsmynd lýsir hann gauragangi í Alþýðu- bandalaginu og gerir ráð fyrir slag milli Ásmundar Stefáns- sonar, Ólafs Ragnars Grimssonar og Ragnars Arnalds við næsta formannskjör flokksins. Einnig telur ritstjórinn mikla hættu á að Alþýðubandalagið liðist í sundur. Svavar Gestsson formaður flokksins telur þetta vera alrangar og ótímabærar vangaveltur hjá Össuri og að innanflokksmál Alþýðubandalagsins leysist yfirleitt á farsælan hátt innan flokksins. Forstigseinkenni alnæmis Útbreiðsla alnæmisveirunnar hefur aukist hægt á síð- ustu mánuðum ef tekið er mið af mótefnamælingum. Það hefur hinsvegar dregið mjög úr því að fólk komi til læknis- rannsóknar í þessu sambandi, sérstaklega fólk úr svo- nefndum áhættuhópum. Útbreiðslan gæti því verið mun hraðari en mótefnamælingarnar gefa til kynna. Nú eru tíu einstaklingar á íslandi með forstigseinkenni alnæmis svo vitaö sé, en talsvert fleiri hafa mælst með mótefni. Land- læknir, Ólafur Ólafsson, telur það verulegt áhyggjuefni hve fáir sjá ástæðu til að koma til rannsóknar. Tveir Pólverjar verða eftir Pólverjarnir tveir sem struku af pólsku hafrannsókna- skipi fyrir viku eru komnir til ættingja annars þeirra sem búa utan Póllands. Eftir strokið leituðu mennirnir aðstoðar lögreglu og útlendingaeftirlits við að komast úr landi. Dóms- málaráðuneytið féllst á að aðstoða mennina en þeir báðu ekki um pólitískt hæli hér á landi. Lögreglan hélt upplýsing- um um málið leyndum þar til öruggt var að mennirnir væru komnir heilu og höldnu til ættingja annars þeirra. Báðir Pól- verjarnir eru kvæntir og eiga börn í Póllandi. Mái Guðmundar J. hjá RLR Rannsókn Rannsóknarlögreglu ríkisins sem fram fór að beiðni Guðmundar J. Guðmundssonar á tilkomu þeirra peningagreiðslna tii hans sem Albert Guðmundsson hafði milligöngu um að afhenda honum, er lokið. Gögn málsins hafa verið send ríkissaksóknara til ákvörðunar. Athugun- um á gögnum og ákvarðanatöku af hálfu ríkissaksóknara- embættisins verður hraðað eftir megni en ekki er hægt að vita hvenær niðurstaða liggur fyrir. Fréttapunktar • Maður frá Blönduósi fannst drukknaður á mánudag í Mjóavatni á Auðkúluheiði. Maðurinn var 66 ára gamall og einhleypur. • Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hefur hætt innflutn- ingi á hinum vinsæla drykk Campari Bitter vegna ágrein- ings ÁTVR og framleiðenda um innkaupsverð. Framleiðandi hækkaði verðið á drykknum um 28,33% á dögunum en ÁTVR telur ekki rétt að framleiðandi ákveði einhliða hækk- un á verði Camparis. • Jón L. Árnason skákmaður bættist í hóp stórmeistara okkar í skák á mánudaginn þegar hann fór með sigur af hólmi á alþjóðlega skákmótinu í Plovdin í Búlgaríu. Hann hlaut 7Vz vinning og þriðja áfangann að stórmeistaratitli. íslensku stórmeistararnir eru þá orðnir sex talsins. • Brynja Benediktsdóttir hlaut á mánudaginn hinn árlega styrk úr menningarsjóði Félags leikstjóra. Hún hlaut styrk- inn til að skrifa bók um leikstjórn. • Hafís tók land í norðanverðum Húnaflóa í byrjun vik- unnar og var kuldalegt um að litast í Trékyllisvík og víðar. Spáð var sunnanátt svo ólíkegt verður að teljast að hafísinn staldri lengi við. • Vísitölufjölskyldan, sem telur 3,66 einstaklinga, þarf 83.500 krónur á mánuði til framfærslu samkvæmt útreikn- ingum Hagstofu íslands. • Tveir menn er brutust inn á heimili í Reykjavík fyrir tæpu ári og stálu þaðan allverðmætu frímerkjasafni höfðu sam- band við eiganda safnsins fyrir skömmu og buðu honum það til kaups. Mennirnir höfðu verið handteknir fyrir ári en neituðu staðfastlega að hafa stolið safninu, nú eru þeir hins- vegar ekki í aðstöðu til að neita. • Félagi kjúklingabænda og Framleiðsluráði hefur borist fyrirspurn frá Noregi um sölu á 50—60 tonnum af kjúkl- ingakjöti á markað þangað. Málið er til athugunar í norska landbúnaðarráðuney tinu. • Guðmundur J. Guðmundsson var lagður inn á sjúkrahús á þriðjudag' þar sem hann þjáist af of háum blóðþrýstingi og hafa læknar ráðlagt honum að taka sér algera hvíld frá dag- legu amstri. ÞAÐ BESTA KOSTAR OFT MINNST HEIMALIST HF HÚSGAGNAVERSLUN SÍÐUMÚLA 23 SÍMI 84131 HELENA SPENNANDI NÁTT- OG UNDIR FATNAÐ LADY OF PARIS taugavegi 84 (2. hœð) - Sími 1 28 58 HELGARPÓSTURINN 39

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.