Helgarpósturinn - 10.07.1986, Blaðsíða 9

Helgarpósturinn - 10.07.1986, Blaðsíða 9
Hverjir segja satt um 117 þúsund krónurnar til Alberts? VORU NOTAÐAR í HANASTÉLSBOÐ — segja Björgólfur og Páll Bragi — Afsláttargreiðsla segir Albert Við yfirheyrslur hjá Rannsóknar- lögreglu ríkisins hafa bæði Björgólf- ur Guðmundsson og Páll Bragi Krist- jónsson borið að ávísun, að fjárhæð 117 þúsund krónur, sem Albert Guð- mundsson fékk af einum af leyni- reikningum Hafskipsmanna hafi verið ætluð til kaupa á áfengi vegna mörg hundruð manna afmælis- veizlu, sem þáverandi fjármálaráð- herra efndi til að Hótel Sögu 5. októ- ber 1983, á afmælisdaginn sinn. í viðtali við Helgarpóstinn þann 12. júní sl. kannast Albert Guð- mundsson við þessa ávísun, en segir að um hafi verið að ræða afsláttar- greiðslu vegna viðskipta heildverzl- unar Alberts Guðmundssonar við Hafskip og ekkert sé óeðlilegt við þessa greiðslu. Víst er, að 5. október þetta ár varð Albert sextugur og er mörgum enn í fersku minni sá höfðingsbragur sem var á veizlu Alberts á Hótel Sögu, þar sem á milli 500 og 1000 manns mættu og samglöddust með nýbökuðum fjármálaráðherra nú- verandi ríkisstjórnar. Fram hefur komið, að við rann- sókn á Guðmundaranga Hafskips- málsins hafi einnig verið sérstak- lega kannaðar þrjár greiðslur til Alberts Guðmundssonar, þ.e. ferða- styrkur Guðmundar J. til Flórída, sem Albert hafði milligöngu um fyr- ir Ragnar Kjartansson, Björgólf Guðmundsson og Hörð Sigurgests- son, forstjóra Eimskips, tvíborgaða ferðin til Nizza 1984 og svo þessi 117 þúsund króna greiðsla, sem Albert heldur fram að sé afsláttur vegna viðskipta. Allar eru þessar greiðslur ættaðar af leynireikningum og allar fara þær um hendur Alberts Guðmundsson- ar eftir að hann hætti stjórnarfor- mennsku hjá Hafskipi. Raunar er Helgarpóstinum kunnugt um fleiri leynireikningsgreiðslur til Alberts Guðmundssonar, sem ekki verða skýrðar sem afsláttargreiðslur, m.a. hefur RLR eina ávísun upp á um 20 þúsund krónur og aðra, sem nálgast 80 þúsund krónur. Þessu til viðbótar má nefna, að kannaðar hafa verið sérstaklega tvær aðrar ferðir í nafni Alberts, þ.e. ferð eiginkonu hans til Nizza 1983, þegar Albert komst ekki vegna stjórnarmyndunar, og önnur Frakk- landsferð árið 1985. Alls mun Albert hafa þegið greiðslur hjá Hafskipi, sem vitað er um, er nema fjárhæð á bilinu 500 þúsund til einnar milljónarkróna. Fæst af þessu eru afsláttargreiðslur, eða geta flokkazt sem slíkar, og hafa sakborningar raunar vitnað um að svo sé ekki. Algengara mun, að hér hafi verið um að ræða gjaldeyris- og ferðagreiðslur. Þá er vert að undirstrika að hér er verið að tala um greiðslur, sem Al- bert Guðmundsson fékk eftir að Sextugsafmæli Alberts Guðmunds- sonar 1983 viröist hafa reynst fjárfrekt; samanlagðan kostnað við veisluhald og afmælisferð til Nizza má áætla á milli 300—400 þúsund krónur. hann var orðinn ráðherra og form- lega skilinn að skiptum við Hafskip. Sem einstaklingur virðist hann hafa þegið fé þaðan oftar en aðrir. Jafnframt er rétt að benda á, að afsláttargreiðslur til Heildverzlunar Alberts Guðmundssonar voru ekki tíðari en til annarra viðskiptavina Hafskips. Albert var hins vegar tíð- ari viðtakandi fjár frá Hafskipi en flestir viðskiptavina Hafskips. Helgarpósturinn hlýtur að vekja athygli á því, að í fyrrnefndu viðtali við Helgarpóstinn 12. júní kannast hann strax við ávísun upp á ná- kvæmlega 117 þúsund krónur og skýrir tilkomu hennar hikstalaust sem afsláttargreiðslu. Hins vegar kemur í ljós í svari við spurningu HP, að hann virðist ekki vera vel að sér um afsláttargreiðslur til Heildverzlunar Alberts Guð- mundssonar. Albert var spurður: Þú hefur fengið þessa afslætti eftir að þú hættir stjórnarformennsk- unni hjá Hafskipi? „Það kemur málinu ekkert við, en ég reikna satt að segja með því. Þetta er nú svo lítið fyrirtæki að ég veit ekki hversu mikla frakt það skaffaði." Hér er rétt að fram komi, að sam- kvæmt heimildum Helgarpóstsins mun það allajafna hafa verið sonur Alberts, sem gekk eftir afsláttar- greiðslum til fyrirtækis föður síns, en það er hann sem rekur fyrirtæk- ið. Albert Guðmundsson skipti sér ekki af og vissi lítið um afsláttar- greiðslur til fyrirtækis síns nema þessa tilteknu 117 þúsund króna greiðslu haustið 1983, sem skrifuð var út af leynireikningi Páls Braga Kristjónssonar til brennivínskaupa vegna þessa einkar fjárfreka sex- tugsafmælis, sem samkvæmt ófull- komnum fréttum fjölmiðla hefur þegar kostað ríkið tæpar 132 þús- und krónur í fargjald og dvöl í Nizza, Hafskip eitthvað annað eins og svo sama fyrirtæki 117 þúsund í veizlu- kostnað. Bara þetta gerir 300—400 þúsund krónur. Svo enn sé vitnað í fyrrgreint við- tal HP við Albert segir hann þar, að sextugsafmælisgjöf Hafskips til sín hafi verið ferðin til Nizza. Ef fram- burður tveggja sakborninganna í Hafskipsmálinu er réttur hefur gjöf- in verið mun veglegri. Pólitískt hugrekki eða hræðsla: MARGIR HUNDAR GRAFNIR Eins og fram hefur komiö í frétt- um hefur Albert Guömundsson ver- iö yfirheyröur hjá Rannsóknarlög- reglu ríkisins sem grunaður maöur en ekki sem vitni og beinist rann- sóknin aö því hvort ráðherrann hafi meö aögeröum eöa aögeröaleysi gerzt brotlegur í Hafskipsmálinu. Meö þessu er átt viö þaö hvort Albert hafi gerzt brotlegur meö at- höfnum sínum eða meö aögeröa- leysi, eins og t.d. meö því að hafa lát- iö saknœmt brot viögangast án þess aö aöhafast. Þetta á bœöi viö um þœr greiðslur, sem Albert hefur fengið greiddar af leynireikningun- um svokölluöu, milligöngu Alberts um greiöslu skipafélaganna til Guö- mundar J. Guðmundssonar, við- skipti Hafskips og Útvegsbankans og meintar blekkingar fyrirtœkisins viö skýrslugerö og gerö ársreikn- inga. r Á hinum pólitíska vettvangi velta menn því lalvarlega fyrir sér hvað muni gerast næst í Hafskipsmálinu. Svo virðist sem þeir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins hafi gefið frá sér að taka af skarið um pólitíska framtíð Alberts Guð- mundssonar. Þetta kemur mörgum manninum spánskt fyrir sjónir, ef höfð eru í huga ýms orð, sem þessir leiðtogar stjórnarflokkanna og þeirra nán- ustu samverkamenn létu falla fyrir 2—3 vikum. Þá virtist ljóst, að Stein- grímur vildi láta til skarar skríða og HP er kunnugt um, að í Sjálfstæðis- flokknum var sterkur vilji til þess að hreinsa flokkinn af þessu óþægilega máli og lausnin var fólgin í því að Albert Guðmundsson iðnaðarráð- herra yrði látinn segja af sér ráð- herraembætti. Það sem gaf þessum vangaveltum byr undir báða vængi voru upplýs- ingar um að Albert Guðmundsson hefði óhreint mél í pokahorninu. Helgarpóstinum er t.d. kunnugt um að ýmsir stjórnarliðar settu ■■eftir Halldór Halldórsson* mörkin um athafnir eða athafna- leysi við það hvort iðnaðarráðherra yrði kallaður fyrir hjá Rannsóknar- lögreglu ríkisins sem vitni eða grun- aður maður. Ef hann yrði yfirheyrður sem grunaður maður hlyti t.d. þingflokk- ur Sjálfstæðisflokksins að grípa til sinna ráða. í millitíðinni gaf rannsóknarlög- reglustjóri þáverandi út eitthvað í líkingu við sýknuyfirlýsingu og þá drógu stjórnmálamennirnir að sér höndina. Hins vegar hefur Helgarpósturinn það eftir öðrum heimildum, að í þessu máli liggi margir hundar grafnir, hótanir gangi á víxl um hefndir og það sé hin raunverulega ástæða fyrir því, að forystumenn stjórnarflokkanna ætli að láta ráð- herra í ríkisstjórn landsins liggja undir grun um saknæmt athæfi þar til réttvísin hafi haft sinn gang. Nú snúist spurningin um hreina skildi annarra en Alberts og þeim tromp- um hafi enn ekki verið spilað út. 2ja-5 manna hústjöld Verð frá kr. 22.000. - Tjaldteppi. Göngutjöld, 3ja-4ra manna tjöld með framlengdum himni, kr. 12.000. Tjaldbúðir, Geithálsi, sími 44392 GEISLI ERFLUTrUR AÐ FUNAHÖFÐA 8 rvk alhliða bílamálun vönduð vinna unnin af fagmönnum tilboðin hjá stanaa O 685930 HELGARPÖSTURINN 9

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.