Helgarpósturinn - 10.07.1986, Blaðsíða 15

Helgarpósturinn - 10.07.1986, Blaðsíða 15
segja hvaða skoðanir maður hafði um fermingu, það er held ég enn langt í land með að menn fái að kjósa á þeim aldri," sagði Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands Islands, og sagði sitt tilfelli lítt áhugavert. En Þórarinn hefur áður rætt við Helgarpóstinn. í viðtali við hann fyrir hálfu ári kom einmitt fram að Þórarinn hefði verið sendill fyrir Þjóðviljann — málgagn sósíalisma og verkalýðsbaráttu. I prentsmiðju Þjóðviljans starfaði verkamaðurinn Þórarinn Vigfússon, faðir Þórarins framkvæmdastjóra VSÍ. Úr því að Þórarinn vildi ekki tjá sig um sitt til- felli nú, endurprentum við örstuttan kafla úr þessu viðtali: „Minn bakgrunnur er vissulega á vinstri vængnum og fram yfir ferm- ingu aðhylltist ég mína æskutrú. Ég starfaði meðal annars á Þjóðviljan- um. Þar var ég sendill í eitt eða tvö ár. Á árunum upp úr fermingu tók af- staða mín til lífsins og tilverunnar hins vegar breytingum og hefur haldist óbreytt síðan.“ Afstaða Þórarins breyttist einkum á menntaskólaárunum þegar hann stofnaði fyrirtæki ásamt meðal ann- ars Þorsteini Pálssyni, núverandi fjármálaráðherra og formanni Sjálf- stæðisflokksins. Birgir Björn er sonur Sigurjóns Sig- urðssonar, lögreglustjóra um fjögurra áratuga skeið Sigurjón var ætíð talinn hlið- hollur Sjálfstaeðisflokknum og Birgir var fyrr á árunum hægra megin, en segist hafa kynnst þvi hvernig úlfarnir borða litlu mýsnar og dregið sinar ályktanir af þvi... BIRGIR BJÖRN SIGURJÓNSSON HAGFRÆÐINGUR: „REYNSLAN HEFUR SANNFÆRT MIG" ,,Ég held nú að faðir minn hafi ávallt lagt áherslu á að vera óháður stjórnmálaflokkum og var ekki starfandi í neinum þeirra, heldur leit fyrst og fremst á sig sem embættis- mann. Ég er nú mikill jafnræðis- sinni, en var á sínum tíma sannfærð- ur um ágæti markaðskerfisins, var t.d. í Vöku á háskólaárunum. En reynsla mín eftir það hefur sannfært mig um að forsendur þessa kerfis eigi ekki við rök að styðjast." Það er Birgir Björn Sigurjónsson hagfræðingur sem þannig lýsir breyttum viðhorfum sínum í stjórn- málum. Faðir Birgis er Sigurjón Sig- urdsson, sem nýlega lét af störfum sem lögreglustjóri í Reykjavík eftir 40 ár í embættinu. Birgir segir föður sinn hafa verið óháðan stjórnmála- flokkum, en hitt er almannarómur að Sigurjón hafi ætíð verið á hægri vængnum, þó einkum fyrr á árum. Og samanber orð Birgis hér á undan var sonurinn á hægri vængnum — en söðlaði um. „Þegar maður sér úlfana borða Stefán Thors er af hinni nafntoguðu Thorsætt, hann er sonur Björns Thors, blaðamanns á Morgunblaðinu og Helgu Valtýsdóttur. Afar hans voru Valtýr Stef- ánsson, fv. ritstjóri Morgunblaðsins, og Kjartan Thors, sem lengi var fram- kvæmdastjóri Vinnuveitendasambands- ins. Atvinnurekendur og sjálfstæðismenn eru fjölmargir í ætt Stefáns. litlu mýsnar dregur maður sínar ályktanir — ég kynntist ójafnræð- inu innan og á milli landa, fjölþjóða- auðhringum á borð við ISAL. Ég hef ekki fengið neinar patentlausnir og er fyrst og fremst gagnrýninn á það kerfi sem fyrir er. Ég er andsnúinn öllu ofstæki og það er faðir minn líka. Ég lít ekki svo á að ég sé af e.k. hægri-heimili, slíkum hugmyndum var alls ekki haldið að mér, frekar þá almennum manngildissjónarmið- um. Manneskjan er mér enda mikils virði.“ Frá Vöku yfir á vinstri vænginn. Þarf ekki nokkuð sterka lífsreynslu til að skoðanir breytist svo mjög? „Ég vil nú meina að Sjálfstæðis- flokkurinn hafi siglt frá mér en ekki öfugt. Ég lít svo á að hann hafi horfið frá sínum prinsippum. En ég hef svo ávallt verið á móti her- setunni og barðist meðal annars fyrir því innan Vöku að félagið tæki upp frjálsa stefnu, óháða Sjálfstæð- isflokknum, í þeim efnum. En það gekk alls ekki og ég gafst upp á Vöku. Þetta herstöðvamál er annars almennt séð hneppt í mikið svart- nætti. En það er sem sagt fyrst og fremst mín reynsla sem hefur mótað mínar skoðanir, ég hef séð hvernig for- sendur markaðskerfisins eru alls ekki fyrir hendi; t.d. hvernig erlend Árni Hjartarson er sonur Hjartar E. Þór- arinssonar, sem um skeið var á þingi fyrir Framsóknarflokkinn og er stjórnar- formaður KEA. Mikið er um framsóknar- menn í ætt Árna, en hann kaus að fara aðrar leiðir... stórfyrirtæki halda niðri íslenskum iðnaði í nafni frjálsrar verslunar, hvernig lágu launin í landinu gera það að verkum að við missum okk- ar besta fólk, en það er innlendum korpóratisma fyrst og fremst að kenna og almennt séð hef ég kynnst því hvernig stóru risarnir éta litlu peðin," segir Birgir Biörn. STEFÁN THORS, SKIPULAGSSTJÓRI RÍKISINS: „MINN RÉTTUR VAR VIRTUR" „Það að ég hafi hneigst til vinstri í pólitíkinni hefur ekkert með for- eldra mína eða ætt að gera. Það var reyndar lítið rætt um pólitík á mínu heimili og ég varð aldrei var við þrýsting frá minni fjölskyldu eða ætt um að tileinka mér ákveðnar skoðanir í pólitík. Minn réttur til eig- in skoðanamyndunar var virtur," sagði Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins, þegar Helgarpósturinn innti hann eftir því hvers vegna í ósköpunum Thorsari eins og hann væri vinstri sinnaður! Bakgrunnur Stefáns er slíkur, að engan hefði undrað þótt hann veldi sér hægri slagsíðu. Stefán er sonur Björns Thors, blaðamanns Morgun- bladsins og Helgu Valtýsdóttur rit- stjóra Morgunblaðsins Stefánsson- ar. Afi Stefáns var Kjartan Thors, sem lengi var formaður Vinnuveit- endasambands íslands, bróðir Ólafs (Thors, forsætisráðherra og for- manns Sjálfstæðisflokksins. 1 hinni voldugu Thorsætt er að finna ótal atvinnurekendur og sjálfstæðis- menn og varla að glitti í fölbleikan lit — nema hjá Stefáni og reyndar bróður hans Kjartani. „Það er rétt, ættin er nokkuð ein- lit i pólitíkinni, en ég hef svo sem ekki gert neina úttekt á þessu né velt þessu mikið fyrir mér. Ég hef myndað mér mínar skoðanir sjálf- stætt og óháð ættinni. Það má segja að á námsárum mínum í Kaup- mannahöfn hafi ég farið að líta á þjóðfélagið öðrum augum en ég hafði gert — augu mín opnuðust með öðrum orðum. Ég fór að setja spurningarmerki við ýmislegt sem ég hafði áður tekið sem gefið. Þann- ig þróuðust hugmyndir mínar að ég met meira samhjálp og samfélags- eign en einkaframtak og einka- eign,“ sagði Stefán. Stefán viðurkennir sem sagt ekki neinn pólitískan þrýsting frá fjöl- skyldu sinni eða ætt. Á hinn bóginn sagði hann aðspurður um viðbrögð vinstri manna gagnvart honum sem Thorsara: „Ég get ekki sagt að ég hafi orðið var við tortryggni út í mig vegna fjölskyldu minnar og ættartengsla. Þó verður maður alltaf af og til smá- vegis var við slíkt, en ég er yfirleitt tekinn fyrir það sem ég er, en ekki fyrir það af hvaða fólki ég er kom- inn,“ sagði Stefán Thors. ÁRNI HJARTARSON JARÐFRÆÐINGUR: „MOTAÐIST AF HER- STÖÐVAMÁ Ll N U " „Það má vel vera að einhverjar vonir hafi verið bundnar við það að ég gengi í Framsóknarflokkinn, en við deildum þó aldrei um pólitík. Mín pólitíska afstaða mótaöist fyrst og fremst af afstöðunni til her- stöðvamálsins og ég ólst upp við andstöðu við allt hernaðarbrölt. í minni sveit fyrir norðan (Svarfaðar- dalnum) voru flestir andvígir her- stöðinni og það mótaði auðvitað mínar pólitísku skoðanir. En ég varð sem sagt ekki fyrir neinum þrýstingi frá föður mínum eða fjöl- skyldu." Svo mælir Árni Hjartarson, jarð- fræðingur hjá Orkustofnun. Hann er vinstrisinnaður og var meðal annars í Fylkingunni þegar hún var og hét. Árni er sonur Hjartar E. Þór- arinssonar, stjórnarformanns Kaup- félags Eyjafjarðar — KEA. Þá var Hjörtur um skeið varaþingmaður og sat á Alþingi um hríð fyrir Fram- sóknarflokkinn. Talsvert er af fram- sóknarmönnum í fjölskyldu Árna og ætt, en hvers vegna skyldi hann þá ekki hafa orðið „grænn“? „Skoðanir mínar mótuðust mjög á skólaárunum, við Vietnam-andóf- ið á mennta- og háskólaárunum og sú þróun hjá mér er á engan hátt sérstæð eða merkileg. Það er fyrst og fremst réttlætiskenndin sem ræður minni afstöðu, en ég hef aldrei ætlað mér að vera flokkspóli- tískur. Ég var vissulega í Fylking- unni, en það mótaðist fyrst og fremst af herstöðvamálinu, en þar firrti ég mig þeim vonbrigðum sem maður hafði orðið fyrir. Það urðu t.d. margir fyrir miklum vonbrigð- um með frammistöðu Alþýðu- bandalagsins á þeim vettvangi," sagði Árni. HELGARPÓSTURINN 15

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.