Helgarpósturinn - 10.07.1986, Blaðsíða 33
Grafik og Greifarnir
í kvöld, fimmtudaginn 10. júli,
munu hljómsveitirnar Grafík og
Greifarnir verða með rokkhljóm-
leika á Hótel Borg. Að sögn Helga
Björnssonar, söngvara Grafíkur, eru
þetta m.a. afmælishljómleikar, því
Helgi fyllir tuttugu og átta ár í dag.
Nýverið kom Grafík fram á Listahá-
tíðarhljómleikunum í Laugardais-
höllinni og frumflutti þá ýmislegt
nýtt efni, en að þeim slepptum er
langt síðan Grafík hefur leikið á
rokkhljómleikum og mannskapur-
inn því ferskur. Á Borginni munu
þeir leika eins konar þverskurð af
lögum sínum sl. ár, þ.á m. efnið sem
frumflutt var í Höllinni.
Hljómleikarnir standa yfir frá kl.
tíu til eitt. Að sögn Helga Björnsson-
ar er það alveg yfirdrifið: kl. eitt er
nóttin enn ung og fólk hefur tíma til
að huga að öðrum málum. Grafík
ætlar semsé bara að hita fólk upp
fyrir þunga næturinnar . . .
JAZZ
Dizzy, fönk og rafvœding
Norðursjávarhátíðin hefst í dag. 1 frétt frá
skipuleggjendum segir m.a. að í Garden
Pavilion, sem rúmi sex þúsund manns, megi
hlýða á jafn þekkta tónlistarmenn og Miles
Davis, Ál Jarreau, David Sanborn, Joe
Zawinul’s Weather Update, Spyro Gyra, Stan-
ley Clarke, Neville Brothers, Wayne Shorter,
John Scofield, Bhaskara ’86, John McLaugh-
lin’s Mahavishnu Orchestra, Randy Brecker,
Mezzoforte, Koinonia og fleiri. Ljúft er að sjá
Mezzoforte í hópi fremstu rafdjasssveita
heimsins og þótt íslenskir sýni þeim oft tóm-
læti gera evrópskir það ekki.
Rafdjassinn hefur ekki verið jafn vinsæll
hérlendis og í Bandaríkjunum og Evrópu. Þó
eru sveitir á borð við Weather Report vel
þekktar og gaurar einsog altistinn Dave San-
born. Hann hefur nýlega sent frá sér skífu í
samvinnu við hljómborðsleikarann Bob
James.
(Bob James/David Sanborn: Double Vision
— WB Records/Steinar.)
Þar leikur Marcus Miller á rafbassa, Steve
Gadd á trommur og Paul Milton Jackson jr. á
gítar. Paulinho Da Costa er bætt við á síag-
verk, Eric Gale á gítar í tveimur lögum og svo
syngur A1 Jarreau hið sígilda verk Buddy
Jöhnsons: Since I Fell for You. Önnur verk
eru eftir þá hljómsveitarstjóra og Marcus
Miller utan You Don’t Know Me. Þetta er ljúf
skífa og átakalítil einsog tónlist þeirra félaga
er jafnan. A1 Jarreau syngur Since 1 Fell for
You af tilfinningu og Sanborn blæs blúsað
með urrandi sprengingu í bræðingsskærum
tóninum. Þetta lag mætti heyrast í rásarþátt-
um til að lyfta hugum hlustenda yfir verk-
smiðjuframleidda staðalinn. Kannski gæti
góður bræðingur þroskað íslenskan æskulýð
betur en margt annað. í það minnsta hefur
Pat Metheney haft heillavænleg áhrif — en
meira um hann og Ornette Coleman í næstu
viku.
Annars er mér jafnan þannig farið er ég
hlusta á tónlist á borð við þá er þeir David
Sanborn og Bob James leika að mér finnst ég
sitja í einhverju farartæki og landið þjóta hjá.
Það er sól og sumar og sjór í grennd — enda
ég gjarnan við borðstokk. Ekki amaleg upp-
lifun það.
Marcus Miller rafbassameistari og bræð-
ingsbrýni er líka í stóru hlutverki á nýju
Dizzy Gillespie skífunni: Closer to the Source
(Atlantic/Steinar). Upphafslagið: Could It Be
You, er eftir hann og raflínurnar ólga undir
heitum trompet Gillespies. Það þarf ekkert
að koma á óvart þó Dizzy kveðji til liðs við
sig ungmenni. Þegar hann lék í Háskólabíói
fyrir nokkrum árum kaliaði Gérard Chinotti
tónlistina diskódjass og var ekki margt sem
þar var spilað kórrétt bíhopp. Dizzy sjálfur
blæs þó jafnan á þeim nótum, þótt umgerðin
breyti tónlistinni mjög. Branford Marshalis
biæs í tenórsaxafón á þessari skífu og Kenny
Kirkland slær hljómborðin. Þeir voru báðir á
nýlegri Dizzy skífu: New Faces (GRP 1012)
þarsem gamlir og nýir Dizzy ópusar voru
blásnir. Á þessri skífu er ekkert verk eftir
Dizzy og útsetningar flestar Branfords,
Marcusar og Kennys. í einu lagi bætist Stevie
Wonder í hópinn og þenur munnhörpuna.
Angel Rodgers syngur og hefði verið betra
að hafa Jarreau í því hiutverki. Þetta er ekki
síður bræðingsskífa en sú er Sanborn og
James sendu frá sér og létt og leikandi og nú
getur þáttagerðarliðið á rásinni leikið Dizzy
Gillespie fyrir íslands unglingfjöld, heima-
vinnandi húsmæður og aðra hlustendur
ánþess að eiga á hættu að kvörtunum rigni
yfir. Það er þó nokkuð!
Ekki amast ég við ævintýrum Dizzys og
hef lúmskt gaman af að heyra gömlu frasana
hljóma úr trompetnum við undirleik fönk
bassa og diskórýþma.
Vesturgötu 4 Hafnarfirði
SÝNING
Föstudag kl. 14—21 á Háskólavellinum
v/Hringbraut.
Færanleg áhorfendasæti fyrir
1. Útihátídahöld
2. Félagsheimili
3. íþróttaleiki úti/inni
4. Leiksýningar o.fl.
PÓSTHÓLF 165 HAMRABORG 1 200 KÓPAVOGUR ÍSLAND
HELGARPÓSTURINN 33