Helgarpósturinn - 10.07.1986, Page 17
svipta Reiknistofuna hf. leyfinu þeg-
ar mistökin voru ljós og þeir vissu
að þau voru ekki ný af nálinni? „Við
sáum ekki ástæðu til að svipta þá
starfsleyfi, þótt sá möguleiki væri
ræddur," sagði Þorgeir Örlygsson,
formaöur tölvunefndar og borgar-
dómari, í samtali við HR „Mistök
þessi eru mjög alvarleg en við höfð-
um ekki ástæðu til að ætla að þau
væru gerð af ásetningi, en við tók-
um hins vegar fram í bréfi sem við
sendum þeim að ef nefndin yrði vör
við frekari misfellur í starfsemi
þeirra gæti það varðað sviptingu
starfsleyfis." Þorgeir sagði að kvört-
un Auglýsingastofunnar GBB, aug-
lýsingaþjónustunnar væri eina
formlega kvörtunin sem tölvunefnd
hefði borist vegna starfsemi Reikni-
stofunnar hf. og svo skjótt hefði ver-
ið brugðist við þeim að þau hefðu
verið leiðrétt 5 dögum eftir að þau
urðu ljós. Skiljanlega væru þeir sem
orðið hefðu fyrir barðinu á þessum
mistökum ekki hressir og ef Reikni-
stofan hf. fengi á sig skaðabótamál
yrði hún auðvitað bara að bregðast
við með eðlilegum hætti.
„ÖNNUR MISTÖK GETA
VERIÐ VERRT'
„Jú, Gylfi Sveinsson viðurkenndi
á fundi með okkur að mistök þessi
væru ekki ný. Þau hafa hins vegar
ekki komið í ljós fyrr, því sjaldnast
hefur reynt á þau. Látnir menn eiga
auðvitað ekki í neinum viðskiptum
og sama gildir um fyrirtæki og
hlutafélög sem hafa verið lögð nið-
ur,“ sagði Jón Thors, ritari tölvu-
nefndar. Jón sagði að eldri skrár
Reiknistofunnar hf. væru ekki leng-
ur í gildi og því ættu eldri mál af
þessu tæi ekki að valda neinum
óþægindum lengur fyrir þá sem lent
hefðu í þeim. Önnur mistök skrán-
ingaraðila á borð við Reiknistofuna
hf. gætu og valdið meiri óþægind-
um. Þannig gæti Jón Guðmundsson
t.d. lent í því að vera skráður sem
vanskilaaðili í stað alnafna síns
vegna þess að skráningaraðilar
hefðu farið línuvillt í þjóðskránni og
fært inn rangt nafnnúmer. „Öllum
geta orðið á mistök, það er bara hið
eilífa vandamál í mannlegri nátt-
úru."
„MEGUM EKKI KAF-
FÆRAOKKUR í EFTIR-
LITSMÖNNUM"
En hvað ef fyrrnefnt auglýsinga-
fyrirtæki hefði ekki lagt inn kvörtun
vegna þessarar röngu skráningar?
Hefðu tölvunefndarmenn uppgötv-
að mistökin að fyrra bragði eða
hefðu þeir fyrst uppgötvað þau þeg-
ar næsti aðili, sem orðið hefði fyrir
barðinu á þeim hefði kvartað til
nefndarinnar? „Það er erfitt að
segja nokkuð um það vegna þess
hve lítið hefur reynt á þessi mistök,"
sagði Jón. Hann taldi það líka vera
matsatriði hvort setja ætti inn í
tölvulögin ákvæði um aukið og hert
eftirlit tölvunefndar með skráning-
araðilum.
„Að mínu mati eru þessi ákvæði
um eftirlit nægileg. Við verðum að
varast að kaffæra okkur í eintómum
eftirlitsmönnum. Tölvulögin voru
endurnýjuð á síðasta ári til fjögurra
ára og nýr formaður skipaður fyrir
nefndinni. Viss endurskoðun á
stefnunni fer nú fram, en það var
stefna fyrri nefndar að forðast alla
skriffinnsku og allt kerfisbákn. Það
er auðvelt að búa til bákn, en hvort
það er nauðsynlegt eða æskilegt er
svo aftur annað mál.“
ENGAR KRÖFUR UM
HÆFNI EÐA MENNTUN
Jón sagði að ekki hefði verið sett
reglugerð með tölvulögunum en
tölvunefnd setti ákveðin skilyrði
fyrir starfsleyfi og þau væru breyti-
leg eftir því hvers eðlis þjónusta
skráningarfyrirtækisins væri. Þann-
ig væri t.d. kveðið á um í starfsleyfi
Reiknistofunnar hf. að ef fyrirtækið
léti annað fyrirtæki vinna fyrir sig
yrði hið síðara einnig að hafa starfs-
leyfi tölvunefndar, og að tölvunefnd
og starfsmenn hennar mættu hve-
nær sem væri skoða starfsemi
Reiknistofunnar hf., tækjabúnað og
vinnubrögð. En hvorki í tölvulögum
né í starfsleyfum væri krafist ákveð-
innar hæfni eða menntunar þeirra
sem rækju slíka skráningarþjón-
ustu. „Gylfi Sveinsson er hins vegar
viðskiptafræðingur að mennt og
það væri varla hægt að fara miklu
hærra í kröfum um hæfni eða
menntun, ef þær væru gerðar,"
sagði Jón að lokum.
LÁTIÐ OKKUR TAKA
BETRI MYND
TRÖNUHRAUNI 8 HAFNARFIRÐI SÍMI 54207
BJARNI JÓNSSON LJÓSMYNDARI
Rúmgódir og vinalegir
rádstefnu- og veislusalir
vid öll tækifæri
Leigjum út sali fyrir stærri og smærri hópa tilvalið fyrir
ráðstefnur, fundi, stórar og smáar veislur.
Við sjáum um fjölbreytta þjónustu í mat og drykk.
Allar nánari upplýsingar veitir veitingastjórinn í síma
82200.
‘MI0TIÍIL‘&
iBaiB
FLUGLEIDA
HOTEL