Helgarpósturinn - 10.07.1986, Qupperneq 19
KONA 29 — 34 ÁRA
Andlit
Konur á vinnumarkaðnum eiga að
vera málaðar í framan en hóflega
mjög. Mjúkir tónar og látlausar lín-
ur prýða konur sem vita að starfs-
fólk er andlit fyrirtækisins. Mikil
málning ber vott um persónugalla
og þörf fyrir að láta taka eftir sér fyr-
ir annað en kemur starfinu beint
Gleraugu
Gleraugu eru tilkynning um að kon-
ætlist til þess að gerðar séu
sömu kröfur til hennar og hún eigi
að fá sömu möguleika og karlinn.
Afskaplega traust. En þess verður
gæta að þau séu smekkleg.
eiga að tala skýrt og hafa
símarödd. Konur eiga ekki aö
reyna að vera fyndnar eöa segja
brandara, en þeim á að líka kímni-
gáfa karlanna. Hláturinn á að vera
mildur en má vera dillandi. Konur
verða að gæta þess sérstaklega vel
vera með á nótunum og helst
vita meira en viðmælandinn því um
leið og konan strandar á einhverju
vaknar upp grunur um að hún eigi
betur heima innan um börn og buru
en íhörðum heimi karlanna. Konan
verður einnig að hrista af sér alla til-
finningasemi, þó án þess að verða
of karlaleg í ummælum.
Tennur
Varalitur á framtönnum er háska-
og býður af sér slæman
Tyggigúmí er í raun umsókn
um verksmiðjustarf.
Hendur
Um handtak kvenna gildir það
og um handtak karla. Negl-
urnar eiga að vera vel lagaðar, ekki
langar og ekki heldur of rauðar.
skal þess að sami litur sé á
nöglum og vörum. Giftingarhring-
ur er allt að því nauðsynlegur.
Búkur
Fita utan á starfsfólki er afskaplega
illa séð og kannski enn frekar á
kvenkyns starfsfólki. Fita ber vott
um óheilbrigt líferni og ákveðið
hirðuleysi gagnvart sjálfum sér og
jafnframt viljaleysi að hafa ekki los-
að sig við hana. Feitt fólk hefur líka
á sér orð fyrir að vera glaðlynt og
kjaftaglatt og getur því valdið trufl-
un á vinnustað. Glaðlyndi þess er
líka sagt vera komið af minnimátt-
arkennd og það orð er bannað í við-
skiptaheiminum.
Dragt
Konur sem tilbúnar eru að etja
kappi við karla gefa það til kynna
með því að klæðast líkt og þeir. Þó
verða þær jafnframt að gæta kven-
legs yndisþokka. Hin klassíska
dragt gerir þetta hvorttveggja og
hentar því þessum konum afskap-
lega vel. Um litaval gildir það sama
og um föt karlanna; litvana sam-
ræmi. Grátónar eru áhættuminnstir
og ágætur útgangspunktur fyrir þá
sem eru að þreifa sig áfram.
Blússa
Blússan má vera skrautleg en þó
ekki æpandi. Hún verður að vera
eins og aðrar flíkur í litlitlu sam-
ræmi við heildarútlitið.
Skór
Skórnir mega ekki vera of háhælaö-
ir, kvenlegir en ekki svo að þeir mis-
þyrmi fótunum. Skórnir eru óend-
anlega mikilvægir og annar hver
starfsmannastjóri lítur fyrst á þá er
umsækjandi kemur í viðtal. Því ber
að vanda mjög til vals á þeim og
hirða vel um þá.
Fótleggir
Sokkarnir eiga að vera húölitir. Allt
annaö er óðs manns æði. Og
lykkjufall er að sjálfsögðu við-
skiptalegt sjálfsmorð.
Úr
Úrið á helst að vera af Cartier-gerð.
Fallegt og úr gulli.
Slaufa
Settleg slaufa hæfir konum á
vinnumarkaðnum vel og kallast á
við bindi karlanna á fundum. Best
er aö hún sé í sama litartón og
blússan.
Limaburður
Það er afskaplega vandasamt fyrir
konur á vinnumarkaðnum að sitja,
ganga og bera sig rétt. Þær
verða að brúa bilið á milli tískusýn-
ingardömunnar og ábyrgs við-
skiptarefs og í þeirri brú má ekkert
vera of eða van. Þær mega ekki
sitja of pempíulega og ekki of
groddalega heldur. Það sem er
þokkalegt göngulag hjá karli getur
verið eins og slugs á konu o.s.frv.
/erður að eiga mann og börn sem
comin eru af dagheimilisaldri og
)úin að fá flesta barnasjúkdóma.
Dgiftar konur og barnlausar eru lík-
egar til að ætla sér lengra en nokk-
jr kærir sig um. Nýfráskilið fólk er
illtaf dálítið vafasamt, krambúlerað
j sálinni og eyðir stundum of mikilli
)rku í að koma sér aftur í hjóna-
?and.
Imvatnslyktin má ekki vera of
^berandi. Estée Lauder lýsir góðum
»mekk og Chanel 5 er alltaf klass-
’skt.
Konur sem ætla sér langt á vinnu-
markaðnum ættu ekki að flíka
skoðunum sem hugsanlega er
hægt að tengja kvennabaráttu.
Starfsferillinn verður að hafa stíg-
andi, þótt hún megi vera hægari en
hjá karlmönnum þar sem konur
verða oft að sjá á eftir karlpeningn-
um á uppleiðinni. Þó ber að hafa
það í huga að konur fá yfirleitt hóg-
værari starfstitla en karlar og svip-
uð ábyrgð getur legið á bakvið
skrifstofustjórastarf hjá konu og
deildarstjórastarf hjá karli. Allt að
tíu ár starf með sama titil þarf ekki
að lýsa dugleysi hjá konum, heldur
miklu fremur þolinmæði og vissri
viðurkenningu á reglum viðskipta-
lífsins.
Hár
Uppsett hár, og helst í hnút, er ákaf-
lega traustvekjandi. Þó eru undan-
tekningar þolaðar þar sem konan
verður að bjóða af sér kvenlegan
yndisþokka í einhverjum mæli. En
yndisþokkinn má aldrei verða gálu-
legur heldur hógvær; þótt konur
komist alltaf eitthvað áfram á gálu-
hætti verða þær að sýna eitthvað
annað ef þær ætla að ná virkilega
langt.
Um menntun kvenna gildir flest
það sama og karla. Og eins og þeir
verða þær að sýna að þær hafi
menntað sig fyrir starfsferilinn.
Strax að námi loknu verður fólk að
þurrka af sér allt námsmannaútlit
sem oft á tímum lyktar af námslán-
um, kjallaraíbúðum og hálfgerðu
basli. Sá sem Iftur út eins og náms-
maður þegar hann kemur út á
vinnumarkaðinn er í raun aö gefa út
yfirlýsingu þess efnis að ábyrgðar-
laust skólalíf eigi í raun best við
hann og hann sé ekki enn hæfur til
að takast á við harðan heim við-
skiptanna.
Þannig hafa með tímanum orðið
til venjur og síðan hafa reglur verið
dregnar eftir útlínum þeirra. Þá hef-
ur verið fundið upp kerfi út frá regl-
unum og þar sem þeir sem allir eiga
allt undir nota sér þetta kerfi hefur
það orðið að reglum þeirra sem á
eftir koma. Og þar sem þeir verða
að lifa í einu og öllu eftir þessum
reglum hafa þær orðið þeim sem
venjur.
En þar sem enginn er heill, slæð-
ast alltaf einhverjir ósiðir með góðu
siðunum. Því er nauðsynlegt fyrir
þá sem ætla sér langt að skilja hism-
ið frá kjarnanum. Þótt aðferð Páls
postula; að reyna allt og halda því
sem gott er, sé góðra gjalda verð, er
hún langtum of tímafrek fyrir þá
sem lifa nú á dögum. Því hafa menn
í ríkari mæli treyst á reynslu annarra
og drukkið af henni, bæði af vörum
holiráðra og eins af rituðu máli.
Fyrir þó nokkrum árum kom
nokkur afturkippur í útgáfu góðra
bóka sem leiðbeindu fólki er var að
leggja af stað í lífsbaráttuna á ung-
um og óstyrkum fótum. Þetta var á
þeim tímum er sjálfsbjargarviðleitn-
in þótti ekki lengur hreyfiafl góðra
hluta heldur einhverskonar óhrein-
indi er menn áttu helst að þrífa af
sér hið fyrsta. En þessi bylgja stóð
stutt yfir í rússibanaferð tímans og
brátt þótti speki hennar hin versta
ólyfjan og enn þjást margir af timb-
urmönnum vegna inntöku hennar.
Síðan hafa leiðbeinandi bækur
fyrir fólk í leit að virðingu aftur öðl-
ast sinn fyrri sess meðal þjóða. Þó
að Islendingar séu á meiri hraðferð
en aðrar þjóðir og þarfnist slíkra
leiðarvísa kannski mest allra, virðist
þeim þó ætla að skola hér á land
bæði seint og illa. Því reikar marg-
ur íslendingurinn um frum-
skóg viðskiptanna leiðsagnarlaus
og lærir af engu öðru en trjánum
sem hann rekst á.
Sökum þessa hefur Helgarpóstur-
inn ákveðið að draga saman stuttar
leiðbeiningar og birta þær, ef það
kynni að verða einhverjum til hjálp-
ar. Þær eru dregnar saman úr upp-
lýsingum sem þeir hafa góðfúslega
veitt blaðinu er hafa sérhæft sig í því
að velja hentuga starfsmenn fyrir þá
sem þurfa. Og þar sem Helgarpóst-
urinn reynir að fylgjast með hring-
iðu tímans var leiðarvísirinn settur
upp sem einföld skýringarmynd og
bæði talmálið og myndmálið nýtt
til hins ýtrasta.
Megi einhver hafa gagn af.
BÍLEIGENDUR
BODDÍHLUTIR!
Framleiðum trefjaplastbretti á eftirtaldar bifreiðar: Lada
1600, 1500, 1200 og Lada Sport, Subaru '77, '79, Mazda
323 '77, '80, Mazda 929 '76-'78, Mazda pickup '11-82,
Daihatsu Charmant '78, '79. Brettaútvikkanir á Lödu Sport.
BÍLPLAST .
Vagnhöfða 19, simi 688233. | Tökum að okkur trefjaplastvinnu
Póstsendum. I Veljið islenskt.
Höfum opnað teiknistofu í Kópavogi ad Álfhólsvegi 79.
Viðtalstími mán,—-föst. milli kl. 14—16.
Sími 641099
Fyrir hönd Arkitektaþjónustunnar s/f
Guðmundur Gunnarsson arkitekt F.A.Í.
FREE
STYLE
FOmSKUM
LfOREAL
*
Já
— nýja lagningarskúmið
frá L'ORÉAL!
og hárgreiðslan verður
leikur einn.
Passamyndir
Ljósmyndastofa Reykjavíkur
er á horni Hverfisgötu
og Snorrabrautar.
Handstækkum litmyndir eftir
þínum eigin litnegatífum.
Verið velkomin.
Hverfisgötu 105, 2. hæð. Sími 621166
HELGARPOSTURINN 19