Helgarpósturinn - 10.07.1986, Page 25

Helgarpósturinn - 10.07.1986, Page 25
áhorfendum þegar sprelligosarnir úr Madness-flokknum birtust á skjánum um daginn og fóru á kostum í viðtali við Jón Gústafsson. Þeir sögðust hafa farið í partí til Davíðs borgarstjóra Oddssonar, og báru honum vel söguna, það hefði verið nóg að drekka, þetta hefði sumsé verið gott partí — enda hefur það að líkindum verið haldið á nýja, fína barnum í Höfða. Hinsvegar hnykkti mörgum við þegar Madness-piltarn- ir tjáðu þjóðinni að Davíð hefði greitt þeim fyrir að koma í partíið, 50 pund hverjum fyrir sig, eða 3000 krónur íslenskar. Auðvitað voru þeir bara að djóka — en það skyldi þó aldrei vera... A Æ^^^hugamenn um astalif hafa eflaust tekið eftir því að á tímabili voru þrjú fyrirtæki í þeim bransa farin að auglýsa í smáauglýsinga- dálkunum. Fyrst verður auðvitað að telja þetta gamla góða sem oftast er kennt við guðinn Pan, síðan Hauk „Uppi og Niðri“, en þriðja fyrir- tækið nefndist Rómeó og Júlía og mun hafa verið rekið af einhverju áhugasömu pari, eftir því sem næst verður komist. Nú er hins vegar hinn eini, sanni Pan-umboðsmað- ur aftur orðinn aleinn um hituna, því Rómeó og Júlía eru horfin af sviðinu og Haukur fær ekki að aug- lýsa fyrr en hann hefur greitt skuld sína við viðkomandi dagblað. . . || I lér kemur saga úr banka- kerfinu. Sjómaður nokkur og sam- býliskona hans skildu að skiptum. Eitt af fyrstu verkum sjómannsins var að taka nafn sambýliskonunnar fyrrverandi útúr bankabókinni sinni en bókin var geymd í bankanum eins og alsiða er. Konan hafði að mestu leyti séð um fjármálin meðan maðurinn var úti á sjó. Til að vera alveg öruggur um að hún kæmist ekki í bókina bætti hann við sem ,,merki“ leyninúmeri sem ekki hafði verið áður. En hann var ekki lítið hissa nokkru seinna þegar hann kom í Iand. Þá var nánast búið að hreinsa út úr bókinni. Fyrst höfðu verið teknar út 43.000,- krón- ur, síðan voru laun sjómannsins lögð inn á bókina en þau fóru sömu leið og hinir peningarnir, 31.000,- krónur út. Þetta gerðist þremur mánuðum eftir að hjónaleysin voru skilin að skiptum. Ekki var sjó- maðurinn ánægður með að konan skyldi geta tekið út úr bókinni, enda taldi hann sig tryggðan. Við eftir- grennslan í bankanum kom í ljós að gleymst hafði að strika nafn kon- unnar út. Og það sem verra var, konan fékk uppgefið í bankanum leyninúmerið. Sjómaðurinn fékk að sjá úttektarmiðana og á þeim fyrri var skrift starfsmanns í bankanum og undirskrift konunnar. Starfsmað- urinn hafði skrifað leyninúmerið fyrir hana. Þannig að þegar búið var að leggja laun sjómannsins inn á bókina var hægur vandinn fyrir konuna að taka þau út þar sem hún kunni nú leyninúmerið. Konan hafði þannig hvorki þurft að sýna að hún kynni leyninúmerið né að fram- vísa geymslukvittun bókarinnar. Sjómaðurinn, sem hélt að hann væri tvítryggður, fékk þau svör hjá bankastjóranum að ekki hefði verið um mistök af hálfu bankans að ræða. Þetta væri alfarið hans mál og sambýliskonu hans fyrrverandi. Sjó- maðurinn kærði til Rannsóknarlög- reglu ríkisins og þar hefur málið verið í heilt ár. Þeir munu vera að bíða eftir greinargerð frá bankan- um... fjj V C/.*/ r -m C'kj MEÐ HENRÍETTU 15. -22. JÚLÍ VERÐAÐEINSKR. 26.940.- í París ætlum við að: • Fara í tyrkneskt kvennabað • Skoða stærsta markað í París, þar sem konur geta skoðað allar þærtuskur sem þær vilja • Ganga settlega um skrautgarða Parísarþorgar • Horfa á Eiffelturninn (það verður beðið eftir þeim sem þora upp) • Fara á flot á Signu • Heimsækja Pompidou-safnið • Fara á kvennakaffihús — og fullt af götukaffihús- um • Horfa á sæta stráka bera að ofan og í stuttbuxum Fara í skoðunarferð um borgina Þetta er bara brot af því sem hægt er að gera i Paris. En fyrst og fremst ætlum við kellurnar að hlxgja saman, kjafta saman, borða saman, og skoða og skemmta okkur Innifalið: Flug til Parisar, gisting á 3ja stjörnu hóteli ogfararstjórn Helgu Thorberg. ^mTerro ^ — ekki bara fyrir herra. LAUGAVEGI 28,101 REYKJAVÍK, SÍMAR 29740, 621740. SUMARSÆLA I NATTURUPARADIS Hrífandi náttúrufegurð Snæfellsness og Breiðafjarðar lætur engan náttúruunnanda ósnortinn Kynnið ykkur sumartiboðin frá Hótel Stykkishólmi LÆGRA VERÐ I MIÐRl VIKIJ VERTU VELKOMINN Á NESIÐ Njótið sumars á vistlegu hóteli í paradís íslenskrar náttúru Möguleikar á siglingu um Breiðafjörð með Baldri eða hraðskipinu Brimrúnu : M :l - .. n iii HELGARPÓSTURINN 25

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.