Helgarpósturinn - 10.07.1986, Qupperneq 27
að í rútu á morgnana og ég segi
krökkunum framhaldssögu á leið-
inni. Annars er þetta fyrst og fremst
reiðskóli þarna í Saltvík og krakk-
arnir læra að umgangast hestana og
ríða þeim. En ég er ekkert í hesta-
mennskunni, heldur er ég „kallinn í
rútunni“.“
— Finnst þér ekkert lýjandi ad
vera innan um krakka allan lidlang-
an daginn?
„Nei, nei, þetta eru svo fínir
krakkar. Og þeir lofa mér stundum
að leggja mig smástund. Ég fer
nefnilega mjög snemma á fætur á
sumrin — aldrei seinna en hálfsjö á
morgnana — og eftir hádegið er ég
orðinn svolítið syfjaður. Þá segi ég
stundum við krakkana: „Nú skuluð
þið taka tímann; ég ætla að fá að
leggja mig í eina mínútu. Þau hafa
svo gaman af þessu að þau stein-
þegja á meðan. Ég sit kannski í stól
og þau horfa á úrin sín. Eftir eina
eða tvær mínútur vekja krakkarnir
mig og ég er endurnærður og eld-
hress. — Og á leiðinni heim með rút-
unni held ég áfram með framhalds-
söguna."
— Hefurdu gefid út einhverja
sögu eftir þig?
„Nei, ekki ennþá en vonandi hef
ég einhvern tímann efni á því.“
— Finnst þér hafa ordid miklar
breytingar á íslensku œskufólki á
þessum 25 árum sem þú hefur sinnt
œskulýdsstörfum?
Ketill er fljótur til svars: „Nei, í
raun og veru ekki. Krakkar eru allt-
af krakkar. En á seinustu árum hefur
reyndar mikill vágestur komið til
sögunnar. Það eru vímuefnin. Þau
eru vágestur sem allt æskufólk þarf
að vísa á dyr.“
Myndir frá öðrum
heimi
— Eg hef fyrir satt ad þá hafir
aldrei sett deigan dropa af áfengi
inn fyrir þínar varir. Er það rétt?
„Já, það er rétt og það þykir þér
fréttnæmt! Ég held að þetta ævi-
langa bindindi mitt sé áhrif frá upp-
eldinu. Einu sinni sagði mamma
mín við mig þegar ég var lítill dreng-
ur: Ef þú verður bindindismaður þá
skaltu erfa þennan ættargrip. Hún
var þá að meina gullhring sem
frændi minn hafði átt. Ég strengdi
þess heit að bragða aldrei áfengi,
hef staðið við það og núna á ég
þennan gullhring!"
— Finnst þér sjálfum þú hafa adra
lífsstefnu en flestir samferdamenn
þínir?
„Já, að mörgu leyti. Mér finnst
margir fara allt of geyst í sakirnar. í
og upp úr síðasta heimsstriði rann
einhvers konar gullæði á íslendinga
og þetta æði er ekki runnið af þeim
enn þá. Mér finnst fólk gera allt of
lítið af því að staldra við og skoða
blómin sem vaxa við fætur manns."
— Þú minnist á blóm. Þú málar
mikið af blómum ekki satt?
„Jú, ég hef alltaf málað blóm
mikið. Og myndirnar kalla ég Mynd-
ir frá öðrum heimi!"
— Öðrum heimi segirdu —
hvaða heimur er það?
„Ja, það er þessi ævintýraheimur
sem við getum öll leitað til. Það er
bara spurning um að láta það eftir
sér og þora að leita þangað.“
— Hefurðu aldrei fengið það á til-
finninguna að fólki finnist þú vera
skringilegur?
„Það er nú líkast til,“ svarar Ketill
góðlátlega. „Sumum finnst ég skrít-
BILALEICA
REYKJAVÍK: 91-31815/686915
AKURHYRI: 96-21715/23515
BORGARNES: 93-7618
VÍDIGERÐI V-HÚN : 95-1591
BLÖNDUÓS: 95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR: 95-5884/5969
SlGl.UFJÖRÐUR: 96-71498
HÚSAVÍK: 96-41940/41594
EGILSTADIR: 97-1550
VOPNAFJORDUR: 97-3145/3121
SEYDISIJÖRDUR: 97-2312/2204
FÁSKRÚDSFJÖRDUR: 97-5366/5166
HÖFN HORNAI IRDI: 97-8303
interRent
inn. En ég hef aldrei orðið fyrir
barðinu á fólki og það skiptir mig
ansi litlu máli hvað fólk heldur og
hugsar um mig. Ef maður væri alltaf
að spekúlera í því þá mundu manni
ekki endast þessir 24 tímar sem eru
í sólarhringnum."
Ilmur augnabliksins
— Svo ég víki nú að öðru, Ketill.
Er það rétt að þú stundir grasalœkn-
ingar?
„Nei, það er af og frá. Þótt margt
megi segja um mig þá hef ég nú
aldrei stundað grasalækningar. Hins
vegar hef ég oft leitað til konu hér í
bæ sem heitir Ásta Erlingsdóttir og
kölluð er Ásta grasakona. Hún býr
til alls konar seyði og smyrsl og not-
ar eingöngu íslenskar jurtir til þess.
Ég hef margoft leitað til hennar,
bæði vegna mín, móður minnar og
barnanna minna. Einu sinni var ívar
sonur minn með slæmar innantökur
og ég fór til Ástu. Hún var ekki lengi
að búa til seyði handa honum og
hann varð albata á stuttum tíma.
Það er nefnilega alltaf verið að gefa
krökkum meðul sem eru ekki bein-
línis holl fyrir magann. En meðulin
sem hún Ásta býr til virka eins og
matur og eru ekkert slæm fyrir
meltinguna.
Ég hef aðeins verið að leika mér
að nærast á íslenskum jurtum, til
dæmis finnst mér fjarskalega gott
að fá mér fjallagrasate á síðkvöld-
um. Sérstaklega með hunangi. —•
Og svo er njólinn líka ágætur, og
miklu hollari en rabarbarinn. Og
ekki má gleyma arfanum. Hann er
ágætur í salat."
— Viltu koma einhverjum boð-
skap á framfæri að lokum — öðrum
en þeim að það sé hollt að borða
njóla og arfa?
Nú verður hann alvarlegur á
svipinn og heimspekilegur. „Jú, ég
vil hvetja alla til að staldra við og
anda að sér ilmi augnabliksins og
láta ævintýri dagsins lifa!“ — Og
Ketill Larsen lygnir aftur augunum
og raular frumsamið lag og ljóð:
Svanirnir kvaka
kvöldljóðin sín.
Blœrinn hann ber mig,
ber mig til þín.
Ég er hún Litbrá
með lykilinn sinn.
Leyfðu mér mamma
að koma hér inn.
Ég verð hjá afa
uns komið er kveld.
Er kvöldklukkur hringja
til baka ég held.
NÝJUNG!
Nýtt álkerfi. Fallegt útlit!
Sníðum eftir pöntunum
innréttingar í uerslanir,
hillur, skápa, sýningarskápa, afgreiösluborð.
Smíðum einnig eftir máli
sturtuklefa.
Akrýlplast í plötum, sníðum eftir pöntunum,
sagað eftir máli.
Vönduð uinna, fljót og góð afgreiðsla.
AL OG PLASThf
Ármúla 22 - Pósthólf 8832
Sími 688866 - 128 Reykjavík
LANDSRANKASYNING
100ÁRA AFMÆLl LANDSBANKA ÍSLANDS OG ÍSLENSKRAR SEÐLAÚTGAFU
/ /
/ r r
28.JUNI—20.JULI I SEÐLABANKAHUSINU
iMitlSWÍSW lSlAStlS-SWMI'ASJKtl
rr
Itilefni 100 ára afmælis Landsbankans og
íslenskrar seðlaútgáfu hefur verið sett upp
vegleg sýning í nýja Seðlabankahúsinu við
Kalkofnsveg. Þarerm.a. rakin saga gjaldmiðils
á Islandi allt frá landnámsöld, fyrsta afgrelðsla
bankans endurbyggð, skyggnst inn í
framtíðarbankann, sýndar gamlar gullfallegar
vélar og fylgst með hvernig peningaseðill
verður til.
rr
sýningunni verða seldir sérstaklr
minnispeningar og frímerki, þarer vegleg
verðlaunagetraun og léttur útibúaleikur
og daglega eru sýndar kvikmyndir um
Landsbankann og sögu íslenskrar seðla- og
myntútgáfu.
Þá eru einnig sýnd saman opinberlega í fyrsta
sinn malverk I eigu bankans eftir marga bestu
listmálara þjóðarinnar.
Veitingasala er á sýningunni og leiksvæði
fyrir börn.
ýningin er opin virka daga frá
kl. 16.00-22.00 og frá 14.00-22.00
um helgar.
Við hvetjum alla til þess að sjá þessa
stórskemmtilegu sýningu.
Aðgangur er ókeypis.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna 1100 ár
HELGARPÓSTURINN 27