Helgarpósturinn - 10.07.1986, Síða 29
MOTOR&LM
marine
ísafjörður:
Póllinn hf.
Akureyri:
Norðurljós sf.
ALTERNATORAR
6/12/24/32 VOLT
í bíla, báta og
vinnuvélar
A Haukur&Ólafur
ARMULA32 - REYKJAVIK - SÍMI: 37700
s
^^^amband DV við hina svoköll-
uðu „fyrrverandi yfirmenn Haf-
skips“ hefur vakið verðskuldaða at-
hygli. Þótt þeir hafi lýst því yfir við
önnur blöð að þeir væru í fjölmiðla-
fríi og RLR hefði tekið af þeim eið
þess efnis að þeir töluðu ekki við
blaðamenn, hafa þeir gaukað ýms-
um upplýsingum að þeim DV-mönn-
um. DV hefur nokkurn hag af þessu
en þó fylgir sá böggull skammrifi að
„fyrrverandi yfirmennirnir" gefa
DV-mönnum ekki mikla yfirsýn yfir
málið í heild heldur velja úr örfá
smáatriði er þeim finnst koma sér
vel. Fúsastir eru þeir að gefa upplýs-
ingar er koma þeim illa er hafa fjall-
að um Hafskipsmálið á opinberum
vettvangi. Hafskipsmenn virðast
því hafa ákveðið að kallast á við
óvildarmenn sína sem hafa notað
aðra fjölmiðla en hægri pressuna í
gegnum DV...
■J
■ ú mun í undirbúningi fyrsta
kæra til Siðanefndar Blaða-
mannafélags íslands sem kemur
frá hagsmunasamtökum ákveðins
þjóðfélagshóps en ekki frá einstakl-
ingi eða einstaklingum. Það eru
Samtökin ’78, félag lesbía og
homma á íslandi, sem hyggjast
kæra Þór Jónsson, blaðamann á
Tímanum vegna greinar hans og
viðtals við íslenskan karlmann, sem
heldur því fram að sér hafi verið
nauðgað af homma. Munu forsvars-
menn samtakanna vera að semja
greinargerð sína í málinu og hafa
þeir fjölmargt við þessa blaðagrein
að athuga. ..
á hefur stjórn Byggðastofn-
unarinnar endaníega skorið úr um
staðsetningu stofnunarinnar. Eftir
miklar umræður á stjórnarfundi á
ísafirði í gær var tillaga um flutning
stofnunarinnar til Akureyrar felld
með fjórum atkvæðum gegn tveim-
ur, en einn sat hjá. Með flutningi
voru þeir Halldór Blöndal, Sjálf-
stæðisflokki, og Geir Gunnarsson,
Alþýðubandalagi, en mótatkvæði
greiddu Ólafur Þ. Þórðarson og
Stefán Guðmundsson frá Fram-
sóknarflokki, Eggert Haukdal og
Ólafur G. Einarsson frá Sjálfstæð-
isflokki, en fulltrúi Alþýðuflokksins,
Kristján Jónasson — sem sat
fundinn sem varamaður Sigfúsar
Jónssonar, bæjarstjóra Akureyrar
— sat hjá. Samkvæmt því sem Helg-
arpósturinn hefur hlerað er ekki
víst að þessu máli sé þar með lokið,
því möguleiki er talinn á því að sam-
þykkt verði að stofna e.k. útibú fyrir
norðan þegar fram líða stundir...
l kynningarbæklingi um sam-
norrænt verkefni, sem hefur
þann tilgang að auka fjölbreytni í at-
vinnuþátttöku kvenna, er að
finna ýmsar fróðlegar upplýsingar.
Þar kemur m.a. fram að konur
vinna einungis í 25—30 starfsgrein-
um, sem flestar eru framhald þeirra
starfa sem konur hafa unnið og
vinna enn innan veggja heimilisins.
Karlar vinna hins vegar í um það bil
200 til 300 starfsgreinum...
einum elsta byggðarkjarna HafnarQarðar
þarsem dönsku kaupmennimir höfðu aðsetur
stendur virðulegt hús sem áratugum saman
hefur verið kallað Hansenshús.
nn í dag er Hansenshúsið
miðstöð mannlegra samskipta
í firðinum, því þar njóta gestir
og gangandi góðra veitinga
í mat og drykk
Ver steininn gegn vætu...
...án þess að útiloka loftstreymi.
VENJULEG UTANHÚSSMÁLNING veitir takmarkaða
vörn. Til þess að verja steinsteypu gegn veðri og vindum
þarf utanhússmálning að vera slitgóð. Algeng þurrfilmu-
þykkt er 40 - 60 micron og því þarf margar yfirferðir til að
eitthvert gagn sé af. En einangrunin má ekki vera svo
mikil að raki sem leitar út úr steypunni komist ekki leiðar
sinnar. Þegar svo er komið telst málningin vera „lokuð“
og þannig er því farið með margar tegundir utanhúss-
málningar.
STEINSÍLAN, silikon-málning, skarar fram úr að öllu
leyti. STEINSÍLAN er vatnsfælin málning með óvenju-
mikla þurrfilmuþykkt (150-225 micron/umferð) en sér-
stakir silikon-eiginleikar STEINSÍLAN gera það að verk-
um að málningin helst „opin“ þrátt fyrir mikla einangrun.
STEINSÍLAN er þar að auki vatnsþynnanleg, og með-
færilegri að öllu leyti. Engin venjuleg málning það!
SlippfUagið IReykjavíkhf
Málningarverksmiðjan Dugguvogi
Siml84255
HELGARPÖSTURINN 29