Helgarpósturinn - 10.07.1986, Qupperneq 35
■ ýr bæjarstjóri hefur verið
ráðinn á Selfossi. Sá heitir Karl
Björnsson og er sonur Björns
verkalýðsforkólfs Þórhallssonar
og er víst góður og gegn sjálfstæð-
ismaður eins og pabbinn. Karl
starfaði áður hjá Byggða-
stofnun og hugsa Selfyssingar sér
gott til glóðarinnar að hafa innan-
búðarmann úr þeirri stofnun við
stjórnvölinn. Uppbygging atvinnu-
lífsins er eitt af þeim málum er nýi
bæjarstjórinn þarf að fást við og þar
ættu tengsl við gamla vinnustaðinn
að nýtast eitthvað.
Fyrrverandi bæjarstjóri, Stefán
Ómar Jónsson, hefur látið af störf-
um og bíður fyrrverandi meirihluti
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar
nú með öndina í hálsinum eftir því
hvort hann ætli að flytja úr bænum
eða sitja um kyrrt. Þannig er í pott-
inn búið að þegar Stefán sem er
framsóknarmaður, réðst til bæjarins
fyrir 4 árum gekk illa að útvega
honum leiguhúsnæði. Þá bauðst
Stefán til þess að selja húseign sína
í Mosfellssveit og kaupa sér aðra á
Selfossi, gegn því að meirihlutinn
keypti húsið af honum aftur ef hann
yrði ekki endurráðinn. Þetta sam-
þykkti meirihlutinn og var gerður
samningur sem kvað á um fulla
verðtryggingu á kaupverðinu og
gilti hann til 8 ára. Síðan þá hefur
fasteignaverð á Selfossi nær staðið í
stað og því fengi Stefán verð sem er
langt yfir markaðsverði, ef hann
seldi meirihlutanum húsið. En
meirihlutinn sem var er ekki meiri-
hluti lengur og þar sem hann bar
þennan samning aldrei undir þáver-
andi minnihluta ætlar núverandi
meirihluti nýrra manna úr Sjálf-
stæðisflokki, A-flokkanna og
Kvennaframboðs, ekki að sam-
þykkja þennan samning. Því er ekki
ólíklegt, ef Stefán hugsar sér til
hreyfings, að fyrrverandi meðlimir
meirihlutans verði að greiða honum
verðtryggt kaupverð hússins úr eig-
in vasa. Það gæti þýtt að hver bæjar-
stjórnarmaður tapaði hátt í 400 þús.
kr. á 4 ára bæjarstjóratíð Stefáns
þegar þeir síðan seldu húsið aftur. . .
v
insælt umræðuefni — út-
varpið: Nú er komið á daginn að inn
á þessa stofnun allra landsmanna
hefur laumast úlfur í sauðargæru.
Hann heitir Guðmundur Sæ-
mundsson, norrænufræðingur,
vinstrimaður og fyrrum öskukarl á
Akureyri, og sér nú um þáttinn
Daglegt mál í útvarpinu. Þetta er
vinsælt útvarpsefni og ávallt um-
deilt, og varla líkur á að það breytist
í umsjónarmannstíð Guðmundar.
Nú munu þeir hafa komist að þeirri
niðurstöðu að viðhorf Guðmundar
til íslenskrar tungu gangi í berhögg
við opinbera málstefnu Ríkisút-
varpsins, sem Arni Böðvarsson
málfarsráðunautur hefur verið sett-
ur til að framfylgja. Eftir því sem
Helgarpósturinn hefur komist næst
af stopulli hlustun á þætti Guð-
mundar er það skoðun hans að best
og frjóast íslenskt mál sé talað af
unglingunum í Efra-Breiðholti. Þar
sé aldeilis ekki stöðnuninni fyrir að
fara — sem er náttúrlega ekki verri
skoðun en hver önnur. . .
Einstakur safngripur
— einstakt tœkifœri!
í dag veröa seld í Gramminu 100 einfök af
„Blús fyrir Rikka“ sérpressuö ó bláan vinyl.
Þau veröa árituö og tölusett og þeim fylgir
sérprentað litplakat 31cm x 63cm.
Þetta er einstakt safntœkifœri sem gefst
ekki aftur!
Loksins sendir Bubbi frá sér ekta trúbador-
plötu þar sem hann kemur einn fram meö
kassagítarinn og munnhörpuna. „Blús fyrir
Rikka“ er tvöföld 24 laga plata hljöörituö á
tónleikum og í stúdíói. Megas er gestur í
tveimur lögum þar sem þeir félagar fara á
kostum. Á „Blús fyrir Rikka“ tekst Bubba enn
einusinni aökomaáóvartmeö einstaklega
nœmum söng og blœbrigöaríkum flutn-
ingi.
THESMITHS
1'hrXþtern h Drot!
THE QUEEN IS DEAD
Biöin er liðin! Nýja
Smiths platan er
komin! The Queen
Is Dead veröur
vafalítiö fyrir mörg-
um plata þessa árs
líkt og síðasta plata
Smiths í fyrra. alla
vega viröist svo
œtla aö veröa hjá
bresku músíkpress-
unni, sem keppist
við aö lofa plöt-
una, enda er hér á
ferðinni ein fremsta
poppsveit undan-
farinna ára.
„Stórkostleg tónlist,
eitthvad sem er dýr-
mœtt og blómstrar
Melody Maker
„Besta hljómsveit
Breta heldur sér vid
þad sem hún gerir
best, ad vera einfald
lega The Smiths."
m ANNETTE PEACOCK - I Have No Feelings
■ BJARNI TRYGGVA - Mitt líf, bauðst eitthvað betra?
■ CABARET VOLTAIRE - Drain Train 12”
■ CRIME & THE SITYLUTION - On The Kenturky Click 12”
■ EINSTURZENDE NEÚBAUTEN - Drawings of E.T.
■ GENESIS — Invesible Touch
■ GO BETWEENS - Liberty Belle
■ HIPSWAY - Hipsway
■ LLOYD COLE & THE COMMOTION - Easy Pieces
■ MEGAS - Allur
■ MICRODISNEY - The Clock Comes Down The Stairs
■ NICK CAVE - The Folk Singer 12"
■ PREFAB SPROUT - Devol Have All The Best Tubes”
■ PETER GABRIEL - So
■ RAMONES — Animal Boy
■ RICHARD LLOYD - Feeld of Fire
■ ROBERT WYATT w/SWAPO SINGERS - Wind of Change
■ SIMPLE MINDS - Allar Lp
■ SIMPLY RED - Picture Books
■ SMITHS - Bigmouth Strikes Again 12”
■ - Hatful of Hollow
■ — How Soon is Now? 12”
■ - Smiths
■ SWANS - Greed
■ YOUSSOU N'DOUR - Nelson Mandela
EASTERH'
Fyrsta breiöskífa einnar
umtöiuöustu hljóm-
sveitar Breta í dag.
Kraftmiklu rokki og text-
um Easterhouse hefur
einna helst veriö líkt viö
U2 og Joy Division.
Kynnist hljómsveitinni,
sem BBC bannaði.
EIGUM FYRIRLIGGJANDI STÓRKOSTLEGT ÚRVAL AF
Blús. Jazz. Rokk'n’Roll. Sogl o.fl.
aramm
Laugavegi 17 101Reykjavík
NÝJA OG VINSÆLAR PLÖTUR:
GÆÐATÓNLIST Á GÓÐUM STAÐ
Sendum í póstkröfu sami dægurs
HFI ^ARPÓSTURINN 3R