Helgarpósturinn - 17.07.1986, Side 7
4Ti
r**mv<
FYRRVERANDI AÐSTOÐARSPARISJÓÐSSTJÓRI SPARISJÓÐS REYKJAVÍKUR OG NÁGRENNIS:
VEini LÁN ÚR SPRON
Tll KAUPA Á FYRIRTÆKI
EIGINKONU SINNAR
KAUPENDURNIR TELJA SIG HAFA VERIÐ BLEKKTA TIL AÐ KAUPA HLUT EIGIN-
KONUNNAR í LÍKAMS- OG HEILSURÆKTINNI. RANNSÖKNARLÖGREGLAN
RANNSAKAR FJÁRREIÐUR SAMHLIÐA KAUPUNUM.
Rannsóknarlögregla ríkisins hef-
ur nú til rannsóknar kœru eins af
eigendum Líkams- og heilsurœktar-
innar þess efnis ad Bent Bjarnason,
fyrrverandi adstoðarsparisjóds-
stjóri Sparisjóðs Reykjavíkur og ná-
grennis og núverandi útibússtjóri
hans á Seltjarnarnesi, hafi haft af
sér fé í kjölfar útgöngu Helgu Helga-
dóttur, eiginkonu Bents, úrfyrirtœk-
inu. Þá hafa þeir sem keyptu hlut
Helgu í Líkams- og heilsurœktinni
ákveöið að kœra Helgu og eigin-
mann hennar fyrir að hafa vísvit-
andi blekkt sig er gengið var frá
kaupunum. Báðar þessar kœrur
tengjast aðstöðu Bents Bjarnasonar
sem aðstoðarsparisjóðsstjóra í
SPRON en hann gegndi því embœtti
þar til fyrir nokkrum vikum að
hann var fluttur um set eftir ákvörð-
un sparisjóðsstjórnar.
Að gjaldþrotum komið
Upphaf þessa máls er að árið 1984
var Líkams- og heilsurœktin h/f í
verulegum fjárhagserfiðleikum.
Samkvæmt skattframtali fyrir árið
1983 hafði taprekstur fyrirtækisins
numið um 1,6 milljónum kr. á því
ári. Fyrirtækið skuldaði nokkrar
milljónir kr., mest í Sparisjóð
Reykjavíkur og nágrennis en hann
hafði alla tíð verið aðalviðskipta-
banki fyrirtækisins. Kristinn Þór-
hallsson, einn af eigendum fyrir-
tækisins, sagði í samtali við HP að ef
ekki hefði notið sérstakrar velvildar
Bents Bjarnasonar, aðstoðarspari-
sjóðsstjóra og eiginmanns eins af
eigendunum, hefði fyrirtækið sjálf-
sagt orðið gjaldþrota um þetta leyti.
Auk skulda er fyrirtækið hafði stofn-
að til höfðu eigendurnir, Kristinn
Þórhallsson og frú, Finnur Karlsson
og frú og Helga Helgadóttir eigin-
kona Bents, lánað til fyrirtækisins
svo hægt væri að reka það áfram.
Vegna þessara rekstrarerfiðleika
og vegna anna við annað fyrirtæki
hafði Kristinn látið í ljós áhuga á að
selja hlut sinn og konu sinnar í
Líkams- og heilsuræktinni. Einnig
höfðu Helga Helgadóttir og Bent
Bjarnason, sem að sögn hinna eig-
endanna talaði ávallt fyrir munn
konu sinnar á fundum í félaginu,
gefið í skyn að þau vildu losna úr
fyrirtækinu.
Fundnir kaupendur
í júní 1984 buðu þau Helga og
Bent Ævari Agnarssyni og Friðþjófi
Bragasyni hlutabréf Helgu í Líkams-
og heilsuræktinni til kaups. Kaup-
verðið skyldi vera 400 þús. kr. og
auk þess skyldu þeir Ævar og Frið-
þjófur yfirtaka lán að upphæð rúm-
ar 200 þús. kr. í Sparisjóði vélstjóra
er Helga og Bent voru ábyrgðar-
menn að og var tryggt veði í hús-
eign þeirra að Hrauntungu 24,
Kópavogi.
í samningum um verð og skulda-
stöðu Líkams- og heilsuræktarinnar
lögðu Helga og Bent fram skrá yfir
skuldir félagsins og samkvæmt
henni voru skuldir fyrirtækisins um
4,5 milljónir kr. Ævar og Friðþjófur
segjast síðan hafa komist að því að
töluvert eftir að kaupin voru um
garð gengin að skuldir félagsins
voru um 2,6 milljónum kr. hærri.
Einnig telja þeir að Helga og Bent
hafi leynt fyrir sér tapi ársins 1983
og gefið í skyn að rekstrarafkoma
fyrirtækisins væri mun betri en hún
í raun var og þeim Helgu og Bent
átti að vera Ijóst. Af þessum sökum
hafa þeir nú ákveðið að kæra Helgu
og Bent fyrir svik og ætla sér að rifta
kaupsamningnum vegna þeirra vís-
vitandi blekkinga er þeir telja sig
hafa verið beitta.
Leyndur kaupsamningur
Þar sem Kristinn Þórhallsson,
einn af eigendum Líkams- og heilsu-
ræktarinnar, hafði lýst yfir sterkum
vilja sínum til að selja sinn hlut í fyr-
irtækinu og hefði getað undirboðið
þau Helgu og Bent, lögðu þau á það
áherslu að sölunni yrði haldið
leyndri fyrir honum. Því fengu þau
Finn Karlsson, annan af eigendun-
um, til þess að hafa milligöngu um
endanlegan frágang kaupanna svo
þau gengju sem hraðast fyrir sig.
Finnur greiddi þeim hjónum því
andvirði kaupverðsins með skulda-
bréfum og víxlum er hann hafði
fengið er Líkams- og heilsuræktin
seldi sólbaðsstofu sína til að losa
Helgu og Bent sem fyrst undan
ábyrgðum fyrir hlutafélagið. Bent
Bjarnason mun síðan hafa selt þessi
skuldabréf og víxla í Sparisjóð
Reykjavíkur og nágrennis. Finnur
fékk síðan andvirði sjálfsskuldar-
ábyrgðarbréfa er Ævar og Friðþjóf-
ur höfðu greitt fyrir hlut Helgu f fyr-
irtækinu að frádregnum rúmlega
200 þús. kr. er Bent hélt eftir sem
tryggingu fyrir að þeir Ævar og
Friðþjófur yfirtækju lánið í Spari-
sjóði vélstjóra. Síðan hafði Finnur
hlutabréfin í sinni vörslu og átti að
afhenda þeim Ævari og Friðþjófi
þau er þeir hefðu staðið við sinn
hlut af samningnum.
Kaupendum lánað
kaupverðið
Þegai kom til tals að Ævar og
Friðþjófur keyptu hlut Helgu í Lík-
ams- og heilsuræktinni kom fljót-
lega fram að þeir höfðu enga pen-
inga til reiðu er dygðu fyrir kaup-
verðinu. Því bauðst Bent Bjarnason
til þess að kaupa af þeim sjálfsskuld-
arábyrgðarbréf fyrir kaupverðinu,
þó ekki persónulega heldur í nafni
Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrenn-
is.
Bent Bjarnason hafði sem aðstoð-
arsparisjóðsstjóri heimild til þess að
veita lán að upphæð kr. 75 þús. án
þess að bera það undir sparisjóðs-
stjórnina. Ævar og Friðþjófur fengu
því ættingja sína til þess að vera
skuldarar og ábyrgðarmenn ásamt
sér að 6 skuldabréfum með sjálfs-
skuldarábyrgð. Fjögur bréfanna v-
oru að upphæð kr. 75 þús. og tvö að
upphæð kr. 50 þús. Ekkert bréfanna
hafði sama skuldara og auk skuldar-
anna skrifuðu átta mismunandi
ábyrgðarmenn undir bréfin. Það er
því fátt sem bendir til að þau hafi öll
verið notuð til þess að kaupa hlut
Helgu Helgadóttur í Líkams- og
heilsuræktinni. En þau eru öll í
númeraröð: frá 29335—29340 og
keypt af Sparisjóði Reykjavíkur og
nágrennis sama daginn, þann 29.
júní 1984.
Týndir peningar
Þann sama dag voru greiddir inn
á ávísanareikning Finns Karlssonar
tæpar 190 þús. kr. sem hann síðan
lánaði Líkams- og heilsuræktinni til
þess að hægt væri að halda rekstri
hennar áfram. Þegar Ævar Agnars-
son og Friðþjófur Bragason, er
keyptu hlutina af Helgu, höfðu stað-
ið við sinn hlut af kaupsamningnum
og yfirtekið lánið í Sparisjóði vél-
stjóra hugðist Finnur endurheimta
þau 200 þús. kr. er Helga og Bent
höfðu haldið eftir af andvirði kaup-
verðsins sem tryggingu fyrir yfir-
tökunni. En þegar Finnur hafði ár-
angurslaust reynt að innheimta
þetta fé óskaði hann eftir rannsókn
hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins á
því hvert andvirði skuldabréfanna,
er Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis keypti af Ævari og Firðþjófi,
hafði runni. Helmingur þess hafði
verið lagður inn á reikning Finns en
hinn helmingurinn, sem Finnur
taldi að ætti að koma sem loka-
greiðsla fyrir þau skuldabréf og
víxla sem hann hafði fengið er sól-
baðstofan var seld og hann hafði lát-
ið Bent fá, virtist að sögn Finns hafa
týnst í meðförum Sparisjóðsins. Eft-
ir að rannsóknarlögreglan hafði yf-
irfarið þau gögn er Finnur lagði
fram féllst hún á rannsókn og sú
rannsókn stendur enn yfir.
Mistúlkuð yfirlýsing
Við yfirheyrslur yfir þeim Ævari
Agnarssyni og Friðþjófi Bragasyni
vegna þessarar rannsóknar hafa
kaup þeirra á hlut Helgu Helgadótt-
ur i Líkams- og heilsuræktinni flétt-
ast saman við rannsóknina er Finn-
ur Karlsson óskaði eftir. Þeir hafa
báðir í viðtölum sínum við rann-
sóknarlögregluna lýst því yfir að
þeir telji sig hafa verið vísvitandi
blekkta er þeir keyptu sig inn í fyrir-
tækið.
Þess hefur einnig verið farið á leit
grennis að hann upplýsi hvert hin
umdeilda fjárhæð fór. Með greinar-
gerð sinni sendi Sparisjóðurinn yfir-
lýsingu undirritaða af þeim Ævari
og Friðþjófi þar sem þeir segja efnis-
lega að andvirði skuldabréfanna
hafi farið í það sem samkomulag
hefði verið um milli þeirra og Helgu.
Þó svo túlka megi þessa yfirlýsingu
á þann veg að skuldarar bréfanna
séu samþykkir afgreiðslu Spari-
sjóðsins á fénu, sem þeir hafa viður-
kennt að skulda honum sagði Frið-
þjófur Bragason í samtali við HP að
þegar hann undirritaði þessa yfir-
lýsingu hafi hann einungis verið að
lýsa því yfir að bréfin hafi verið gef-
in út til þess að kaupa hlutabréf í
Líkams- og heilsuræuktinni. Frið-
þjófur sagðist ekkert vita um hvern-
ig samkomulag Bent Bjarnason og
Finnur Karlsson hefðu gert um ráð-
stöfun á þessu fé þegar skuldabréfin
höfðu verið seld, hinsvegar vissi
hann að fyrir þessi bréf höfðu þeir
Ævar fengið hlut Helgu í Líkams- og
heilsuræktinni.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst
HP ekki að ná sambandi við Beut
Bjarnason eða Helgu Helgadóttur
þar sem þau eru bæði í sumarleyfis-
ferð.
Sígur á ógæfuhlið
Eftir söluna á hlut sínum í Líkams-
og heilsuræktinni stofnaði Helga
Helgadóttir innheimtuþjónustuna
Skuldaskil ásamt öðrum. Hún seldi
síðan hlut sinn í því fyrirtæki fyrir
nokkru. Bent Bjarnason var fluttur
úr starfi aðstoðarsparisjóðsstjóra
fyrir nokkru eftir 26 ára starf að
ákvörðun sparisjóðsstjórnar og
gerður að útibússtjóra á Seltjarnar-
nesi. Yfirmenn sparisjóðsins vildu
ekki gefa HP upplýsingar um þessa
tilfærslu en neituðu því ekki að hér
væri um stöðulækkun að ræða.
Líkams- og heilsuræktin lagði upp
laupana nokkru eftir að kaupin
voru gerð og nýtt fyrirtæki, Líkams-
rœktin, hefur hafið samskonar starf-
semi á sama stað. Sjálf Líkams- og
heilsuræktin bíður nú gjaldþrota-
skipta enda varð, að sögn Friðþjófs
Bragasonar, annars þeirra er keyptu
hlut Helgu, ljóst fyrir jólin árið 1984
að innkoma fyrirtækisins þyrfti að
vera um 1 milljón kr. á mánuði ef
það ætti að eiga fyrir skuldum. Að
hans sögn var litla fyrirgreiðslu að
fá hjá Sparisjóði Reykjavíkur og ná-
grennis eftir að hann kom inn í fyrir-
tækið.
Finnur Karlsson seldi fasteign sína
upp í skuldir sem hann hafði stofnað
til í tengslum við Líkams- og heilsu-
ræktina. Hann rekur nú Líkams-
ræktina ásamt öðrum aðilum í hús-
næði Líkams- og heilsuræktarinnar.
Það fyrirtæki mun leigja aðstöðuna
en bú Líkams- og heilsuræktarinnar
hefur enn ekki verið tekið til gjald-
þrotaskipta.
Kristinn Þórhallsson missti hús-
eign sína að Hofslundi 17 undir
hamarinn að kröfu Sparisjóðs
Reykjavíkur og nágrennis vegna
skulda er hann hafði stofnað til
vegna rekstrar Líkams- og heilsu-
ræktarinnar.
Hvorki Ævar Agnarsson né Frið-
þjófur Bragason hafa reynst borgun-
armenn fyrir skuldabréfunum sem
þeir gáfu út þegar |>eir keyptu hlut
Helgu Helgadóttur í Líkams- og
heilsuræktinni. Fyrirtækið gat varla
greitt þeim laun eftir að þeir komu
inn í það og enn síður ágóðahlut.
Þeir telja sig hafa verið blekkta er
þeir gengu að kaupunum. Þeir voru
gripnir af fíkniefnalögreglunni á
Grandagarði seinnipart vetrar með
umtalsvert magn af amfetamíni í
fórum sínum og bíða nú báðir dóms,
en þeir segjast hafa ætlað að koma
sér og ættingjum sínum, sem skrif-
uðu undir skuldabréfin, út úr skuld-
um með sölu á efninu.
eftir Gunnar Smára Egilsson
myndir Árni Bjarnason
HELGARPÓSTURINN 7