Helgarpósturinn - 17.07.1986, Side 38

Helgarpósturinn - 17.07.1986, Side 38
HELGARDAGSKRÁVEIFAN % Föstudagur 18. júlí 19.15 Á döfinni. 19.25 Hrossabrestur. Kanadísk teikni- mynd, byggð á einu ævintýra bræðranna Grimm. 20.00 Fréttir. 20.35 Rokkarnir geta ekki þagnað — og Bubbi ekki heldur. 21.10 Sá gamli. Lokaþáttur. 22.10 Seinni fréttir. 22.15 Flóttinn til Berlínar ★★★ (Flight to Berlin). Bresk-þýsk bíómynd frá árinu 1983. Leikstjóri Christopher Petit. Að- alhlutverk: Tusse Silberg, Paul Free- man og Lisa Kreuzer. Ung kona fer til Berlínar og hefst þar við undir fölsku nafni. Hún hefur samband við systur sína en virðist að öðru leyti hafa snúið baki við fortíð sinni. Henni er mikið í mun að halda fortíðinni leyndri en það reynist erfiðara en á horfist. 23.,50 Dagskrárlok. Laugardagur 19. júlí 17.30 íþróttir. 19.20 Ævintýri frá ýmsum löndum. í hverjum þætti er sögð sjálfstæð saga og eru ævintýrin sótt til allra heims- hluta. 20.00 Fréttir. 20.35 Fyrirmyndarfaðir. Bill Cosby. 21.00 Með silfurskeið í munni ★★★ (The V.I.R's) Bresk bíómynd frá árinu 1963. Leikstjóri Anthony Asquith. Handrit Terence Rattigan. Aðalhlutverk: Eliza- beth Taylor, Richard Burton, Louis Jourdan, Elsa Martinelli, Margaret Rutherford og Orson Welles. Margt stórmennið hyggst taka sér far með flugvél frá Lundúnaflugvelli en vegna þoku seinkar flugvélinni. Sú töf getur reynst ýmsum farþeganna afdrifarík. 23.00 Mansal ★★ (Ashanti) Bandarísk bíó- mynd frá árinu 1979. Leikstjóri Ric- hard Fleischer. Aðalhlutverk: Michael Caine, Feter Ustinov, Omar Sharif, Rex Harrison, William Holden. Enskur læknir er giftur konu af afrískum ætt- um sem einnig er læknir. Þau starfa í Vestur-Afríku en þar kemur að eigin- konan hverfur. Allt bendir til þess að illræmdur þrælasali hafi numið hana á brott. Eiginmaðurinn neytir allra bragða til þess að endurheimta konu sína. 01.05 Dagskrárlok. Sunnudagur 20. júlí 18.00 Sunnudagshugvekja. 18.10 Andrés, Mikki og félagar. 18.35 Sumardagar í Hagavík. Mynd um dvöl fjölskyldu í sumarbústað. 20.00 Fréttir. 20.35 Sjónvarp næstu viku. 20.50 Listahátíð í Reykjavík 1986 - The New Music Consort á Kjarvals- stöðum. 21.45 Aftur til Edens. Lokaþáttur., 22.40 Færeyingar koma ef veður leyfir. Dönsk heimildamynd um Færeyinga, samfélag þeirra og þjóðarvitund í tæknivæddum heimi. 23.35 Dagskrárlok. © Fimmtudagskvöld 17. júlí 19.00 Fréttir. 19.50 Daglegt mál. 20.00 Leikrit: ,,Sparisjóðurinn“ eftir Henrik Hertz. 21.20 Reykjavík í augum skálda. 22.00 Fréttir. 22.20 Finnsk sönglög. Sauli Tiilikainen og Petteri Salomaa syngja. 22.45 ,,Sunnudagur" smásaga eftir Úlf Hjörvar. Höfundur les. 23.00 Á slóðum Jóhanns Sebastians Bach. 24.00 Fréttir. Föstudagur 18. júlí 07.00 Fréttir. Bæn. 07.15 Morgunvaktin. 08.00 Fréttir. 08.30 Fréttir á ensku. 09.00 Fréttir. 09.05 Morgunstund barnanna: „Pétur Pan og Vanda" efti J.M. Barrie. 09.20 Morguntrimm. 09.45 Lesið úr forystugreinum dagblað- anna. 10.00 Fréttir. 10.05 Daglegt mál. 10.30 Ljáður mór eyra. 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. 12.20 Fréttir. 14.00 Miðdegissagan: „Katrín" saga frá Álandseyjum eftir Sally Salminen. 14.30 Nýtt undir nálinni. 15.00 Fréttir. 15.20 Á hringveginum — Austurland. 16.00 Fréttir. 16.20 Síðdegistónleikar. Sinfóníuhljóm- sveitin í San Francisco, Edith Piaf syngur og Sinfóníuhljómsveit Lund- úna leikur. 17.00 Fréttir. 17.03 Barnaútvarpið. 17.45 í loftinu. 19.00 Fréttir. 19.55 Daglegt mál. 20.00 Lög unga fólksins. 20.40 Sumarvaka. Heljarmennið í Krossa- vík. Kórsöngur. Steinunn í Höfn. 21.30 Frá tónskáldum. 22.00Fréttir. 22.20 Hljómskálamúsík. 23.00 Frjálsar hendur. 24.00 Fréttir. '00.05 Lágnætti. Edda Þórarinsdóttir ræðir við Karólínu Eiríksdóttur tónskáld. 01.00 Dagskrárlok. Laugardagur 19. júlí 07.00 Fréttir. Bæn. 07.30 Morgunglettur. Eg mœli meö Sjónvarpið,vika lokaþáttanna: Eftir að hafa séð lokaþætti Kolkrabb- ans, Dagsins sem veröldin breyttist og lokaþátt Hótels býð- ur sjónvarpið upp á lokaþátt Þess gamla og lokaþátt Aftur til Ed- ens. Allt fínir lokaþættir. 08.00 Fréttir. 08.30 Fróttir á ensku. 08.35 Lesið úr forystugreinum dagblað- anna. 08.45 Nú er sumar. Haft ofan af fyrir ung- um hlustendum. 09.00 Fréttir. 09.20 Óskalög sjúklinga. 10.00 Fréttir. 10.05 Daglegt mál. 10.25 Morguntónleikar. Spænsk svíta og Dans máraþrælanna. 11.00 Frá útlöndum. 12.20 Fréttir. 13.00 Af stað. 13.50 Sinna. 15.00 Píanótónleikar Vovka Ashkenazy í Austurbæjarbíói 3. maí sl. 16.00 Fréttir. 16.20 Á söguslóðum í Suður-Þýska- landi. Þátturinn fjallar um ævintýra- kónginn Lúðvík II. í Bæjarlandi. 17.00 íþróttafréttir. 17.03 Barnaútvarpið. 17.40 Frá tónlistarhátíðinni í Ludwigs- burg í fyrrasumar. Rascher saxafón- kvartettinn leikur á tónleikum. 19.00 Fréttir. 19.35 Hljóð úr horni. 20.00 Sagan: „Sundrung á Flambardssetr- inu" eftir K.M Peyton. 20.30 Harmoníkuþáttur. 21.00 Úr dagbók Henrys Hollands frá árinu 1810. 21.40 íslensk einsöngslög. Sigurður Björnsson syngur. 22.00 Fréttir. 22.20 Laugardagsvaka., 23.30 Danslög. 24.00 Fréttir. 00.05 Miðnæturtónleikar — Úr fórum Franz Liszt. 01.00 Dagskrárlok. Sunnudagur 20. júlí 08.00 Morgunandakt. 08.10 Fréttir. 08.15 Lesið úr forystugreinum dagblað- anna. 08.35 Létt morgunlög. 09.00 Fréttir. 09.05 Morguntónleikar. Thomas August- ine Arné, Georg Friedrich Hándel og Johann Christian Bach. 10.00 Fréttir. 10.25 Út og suður. 11.00 Messa í Stykkishólmskirkju. 12.20 Fréttir. 13.30 Karen Blixen og myrkraöflin. 14.30 Allt fram streymir. Um sögu kór- söngs á íslandi. 15.10 Alltaf á sunnudögum. 16.00 Fréttir. 16.20 Framhaldsleikrit: „í leit að söku- dólgi" eftir Johannes Solberg. 17.00 Sumartónleikar í Skálholti 1986. Helga Ingólfsdóttir leikur á sembal. 18.00 Sunnudagsrölt. 19.00 Fróttir. 19.35 Una Elefsen syngur aríur. 20.00 Ekkert mál. Þáttur fyrir ungt fólk! 21.00 Nemendur Franz Liszt túlka verk hans. 21.30 Útvarpssagan: ,,Njáls saga". 22.00 Fréttir. 22.20 „Tíðindalaust". Ljóð frá ýmsum löndum. 22.35 ,,Camera obscura". Þáttur um stöðu kvikmyndarinnar sem fjölmiðils á ýmsum skeiðum kvikmyndasög- unnar. 23.15 Kvöldtónleikar. Gioacchino Rossini, Pjotr Tsjaíkovskí og Franz Schubert. 24.00 Fréttir. 00.05 Gítarstrengir. 00.55 Dagskrárlok. fD Fimmtudagskvöld 17. júlí 20.00 Vinsældalisti hlustenda rásartvö. 21.00 Um náttmál. 22.00 Rökkurtónar. 23.00 Strákarnirfrá Muswellhæð. Kinks. 24.00 Dagskrárlok. Föstudagur 18. júlí 09.00 Morgunþáttur. 12.00 Hlé. 14.00 Bót í máli. 16.00 Frítíminn. 17.00 Endasprettur. 18.00 Hlé. 20.00 Þræðir. 21.00 Rokkrásin. 22.00 Kvöldsýn. Tónlist af rólegra taginu. 23.00 Á næturvakt. 03.00 Dagskrárlok. Laugardagur 19. júlí 10.00 Morgunþáttur. 12.00 Hlé. 14.00 Við rásmarkið. 16.00 Listapopp. 17.00 íþróttafréttir. 17.03 Nýræktin. Þáttur um nýja rokktón- list, innlenda og erlenda. 18.00 Hlé. 20.00 Bylgjur. Framsækin rokktónlist. 21.00 Djassspjall. 22.00 Framhaldsleikrit: „I leit að söku- dólgi" eftir Johannes Solberg. 22.45 Svifflugur. 24.00 Á næturvakt. 03.00 Dagskrárlok. Sunnudagur 20. júlí 13.30 Krydd í tilveruna. 15.00 Tónlistarkrossgátan. 16.00 Vinsældalisti hlustenda rásartvö. 18.00 Dagskrárlok. Svæðisútvarp virka daga vikunnar frá mánudegi til föstudags 17.03-18.00 Svæðisútvarp fyrir Reykja- vík og nágrenni — FM 90,1 MHz. 17.03-18.30 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni — FM 96,5 MHz. ÚTVARP 'mt eftir Egil Helgason Besti útvarpsmaöur allra tíma SJONVARP Sjón varpsfréttir F.itt af því fyrsta sem ég vissi um útvarpið var að Helgi Hjörvar hefði verið besti út- varpsmaður allra tíma. Þetta held ég að hérumbil öll börn á mínu reki hafi fengið að heyra og þessu trúði maður, þetta var staðhæfing sem ekki þurfti að sannprófa — þetta var óvefengjanlega satt. Jón Múli og Svavar Gests komust ekki með tærnar þar sem Helgi Hjövar hafði hælana. Það fylgdi líka sögunni að þegar Helgi Hjörvar las norska rómaninn Bör Börson í útvarp hafi náðst þvílíkur hátindur á stuttu æviskeiði þessa fjölmiðils að slíkt yrði varla leikið eft- ir. Ekki veit ég hvort ungu kynslóðinni, þessari sem á að erfa landið, eru ennþá inn- rætt þessi sannindi, en frekar þykir mér það ólíklegt — téð kynslóð hefur ekki frem- ur en ég og mínir jafnaldrar heyrt Helga Hjörvar lesa Bör Börson, og líklega hafa foreldrar hennar og uppalendur ekki held- ur heyrt þennan mikla skemmtilestur. Það er orðið svo langt síðan. Það má kannski fljóta með að einhvern tíma reyndi ég að lesa Bör Börson, sem ku vera eftir mann sem hét Falkenberget, og fannst það frekar leiðinleg bók, minnir mig. . . Þetta rifjaðist upp fyrir mér hérna um daginn þegar ég hlýddi á Stefán Jökulsson hafa viðtal við Solveigu Hjörvar, dóttur þessa orðlagða útvarpsmanns, hið fróðleg- asta spjall. Eftir að hafa hlustað á þennan þátt þurfti ég ekki að velkjast í vafa um að Helgi Hjörvar var þjóðsagnapersóna í lif- anda lífi, einsog það heitir, og í vitund al- mennings á þessum frumbýlingsárum var hann ekkert minna en stofnunin holdi klædd. Þetta var á þeim tíma þegar alþýða' manna til sjávar og sveita klæddi sig í betri fötin áður en hún skrúfaði frá viðtækinu og hlustaði á útvarpsmessur á sunnudags- morgnum; á þeim tíma þegar menn klæddu sig upp á áður en þeir komu í út- varpið og töluðu, og Steinn Steinarr var í vandræðum þegar hann var beðinn um að koma og lesa ljóð í útvapið — hann átti nefnilega engin spariföt... Þetta var sumsé á þeim tíma þegar menn hlustuðu á útvarpið með tilhlýðilegri and- akt, þegar stofnunin naut ómældrar virð- ingar og var einungis vettvangur bestu og grandvörustu manna, sem töluðu þá vönd- uðustu íslensku sem hafði heyrst. Svo sannarlega er flest í heiminum hverf- ult; ætli nokkur myndi nenna að setja það fyrir sig núorðið þótt einhver bögubósinn tæki uppá því að tala nakinn í útvarpið. . . Nú er komin talsvert góð reynsla á nýja sjónvarpsfréttaformið sem lngvi Hrafn Jónsson innleiddi þegar hann tók við fréttastjórninni af séra Emil Björnssyni — og Páll Magnússon aðstoðarfréttastjóri hef- ur síðan fylgt eftir í forföllum Ingva Hrafns. Það sýnir okkur fyrst og fremst að frétta- stofan getur vel leyft sér að vera áræðin í fréttaflutningi, auk þess sem það er löngu orðið ljóst að framsetningunni fer vel að vera lifandi, eins og reyndar þessi miðill gerir ráð fyrir. Eg er ekki einn um þá skoðun að sjón- varpsfréttir hafi batnað verulega á undan- liðnum mánuðum, þrátt fyrir ýmislegt mótlæti, svo sem af hálfu tækninnar og út- varpsráðs. Þetta á jafnt við um inntak frétta og umgjörð þeirra. Upplestur fréttamann- anna sjálfra á tíðindum dagsins er til dæmis til fyrirmyndar, sem helgast einkum af skýrmælgi og öruggu fasi. Fréttirnar eru oftar sagðar af staðnum en áður, orðnar1 langtum myndrænni — og það sem er kannski mest um vert: Fréttamönnum er loksins gefið tóm til að grafast fyrir um hlutina, í stað þess sem var alltof algengt á árum áður; að fréttir sjónvarps væru lítið annað en álit manna á ástandi eða yfirlýs- ingum, sem voru þegar komin fram í öðr- um fjölmiðlum. Fréttirnar eru semsagt fráleitt eins upp- tuggnar og fyrrum. En þær verða seint al- góðar. Og auðvitað er enn margt við þær að athuga. Fréttamat sjónvarpsins er að mínu viti rangt á köflum eða ósanngjarnt; allt eftir því hvað menn vilja kalla hlutina. Mér hefur fundist einum of einblínt á stjórnkerfið í landinu á kostnað annarra þátta, eins og þaðan komi jafnan mikils- verðustu fréttapunktarnir. Fréttaöflun er stundum heldur ekki í samræmi við þau hlutföll sem nú eru í skiptingu atvinnuveg- anna. Viðskipti og þjónusta fá naumast jafn mikla athygli og til dæmis landbúnaður. Einkageirinn verður stundum útundan. Landsbyggðin gjarnan síðasta frétt fyrir veður. Menningarfréttir sjónvarpsins — og þá á ég kannski sérstaklega við skúbb á þeim vettvangi — heyra til algjörra undantekn- inga, ef þess eru þá dæmi á síðustu mánuð- um. Það er ekki laust við að maður haldi að á fréttastofunni ríki visst sinnuleysi gagn- vart þessum geira — sem er víðfeðmur — en hér undanskil ég samt einstaka frétta- menn. Ég efast um að það hafi gerst að ný listafrétt — ekki fyrirséð eða af fundi — hafi komist ofar í upplestrarbunka fréttanna en segjum fimmta blað! Svona fullyrðingar stjórnast vitskuld meira af tilfinningu en undangenginni rannsókn. Og það skal fús- lega viðurkennt. Nóg um það. I næstu viku ætla ég svo að halda áfram að fjalla um sjónvarpsfréttir. Þar verður einkanlega staldrað við fram- setningu þeirra. 38 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.