Helgarpósturinn - 17.07.1986, Blaðsíða 40
v
ararikissaksoknari, Bragi
Steinarsson, og settur rannsóknar-
lögreglustjóri, Þórir Oddsson,
stóöu í hálfgildings ritdeilu fyrr í vik-
unni, í gegnum blaðamenn. Þeir
deildu hart um það hver hefði vald-
ið til að ákveða hvort þáttur Al-
berts Guðmundssonar í Haf-
skipsmálinu væri fullrannsakaður
eður ei. Þórir gaf út yfirlýsingar um
að hann teldi Albertsþátt fullrann-
sakaðan og Bragi svaraði að bragði
að það hefði komið skýrt fram í bréfi
hans til Þóris að hann óskaði frekari
rannsóknar, og Þórir gæti ekkert
um það sagt hvort þessi þáttur væri
fullrannsakaður þar sem það væri í
valdi ríkissaksóknara að ákveða um
slíkt. Þegar deilan hafði magnast
greip ríkissaksóknari, Hallvarður
Einvarðsson, í taumana enda hlýtt
til bæði ríkissaksóknaraembættis-
ins og rannsóknarlögreglunnar þar
sem hann var stjóri til margra ára.
Hann kallaði deiluaðila á sinn fund
og setlaði málin. Niðurstaðan mun
hafa orðið sú að Albertsþáttur yrði
sameinaður öðrum þáttum Haf-
skipsmálsins á ný en ekki rannskað-
ur sérstsaklega nema að til komi
frekari upplýsingar ersnerta hann.
Og þegar rannsóknarlögreglan
sendir Albertsþátt næst frá sér
ásamt öðrum atriðum Hafskips-
málsins mun ríkissaksóknari að
sjálfsögðu taka ákvörðun um hvort
hann sé nægjanlega rannsakaður. Á
þetta sættust deiluaðilar og undu
þokkalega við sinn hlut.. . .
lESin helsta málsvörn þeirra Út-
vegsbankamanna vegna klaufa-
legra viðskipta bankans við Haf-
skip er sú að hér á landi hafi ekki
verið til sérfræðiþekking á þeim
viðskiptum er Hafskip stundaði.
Sérstaklega vantaði þá Útvegs-
bankamenn sérfræðing í „Trans-
Atlantic“flutningum og því gátu
þeir ekki fylgst með stöðu fyrirtæk-
isins eins og eðlilegt mátti teljast.
Kaup á erlendri sérfræðiþekkingu
kom ekki til greina og því treysti Út-
vegsbankinn á að þær skýrslur er
hann fékk frá Hafskip væru réttar.
En á þeim bæ var heldur enginn sér-
fræðingur í „Trans-Atlantic-flutn-
ingum. Þar sem Útvegsbankanum
var ljóst að enginn íslendingur bjó
yfir þessari þekkingu og yfirmenn
K
■ ^^ostaklárinn Kjarval varð
frægur á svipstundu á landsmóti
hestamanna hér um daginn. Þá
bauð ónafngreindur útlendingur
tvær milljónir króna í gripinn, en
eigendur hans, feðgarnir Sveinn
Guðmundsson og Guömundur
Sveinsson, kváðu nei við. Nú berst
okkur til eyrna að þeim hafi boðist
enn hærra verð fyrir Kjarval, hátt í
þriðju milljón. Það mun hafa komið
frá hrossaræktarsambandi Suður-
lands. Sveinn og Guðmundur sátu
enn viö sinn keip og vildu ekki
selja . . .
R
■ m<ís í hnappagat Hrafns
Gunnlaugssonar. HP er kunnugt
um að forráðamenn sænska sjón-
varpsins hafa nefnt við hann þann
hugsanlega möguleika að hann taki
að sér dagskrárstjórn í þeirri deild
sænska sjónvarpsins sem stendur
meðal annars að gerð leikinna fram-
haldsþátta. Þetta er vitaskuld mikil
viðurkenning fyrir Hrafn, sem eins
og kunnugt er gegnir núna dag-
skrárstjórastöðu innlends efnis hjá
íslenska sjónvarpinu. Þetta tilboð
kemur í kjölfar mikilla vinsælda nýj-
ustu myndar Hrafns, Hrafninn
flýgur, í Svíþjóð auk þess sem lofs-
orði hefur verið lokið á sjónvarps-
myndina Böðullinn og skækjan
sem Hrafn er núna að ganga frá fyr-
ir sænska sjónvarpið. . .
Hafskips verða að teljast til þess
þjóðflokks, er erfitt að skilja þá
blindu trú er bankinn hafði á Haf-
skip. ..
M
lisjöfn er aivaran á bak
við umræðuna um haustkosningar.
En eftir því sem við heyrum er und-
irbúningur í fullum gangi hjá kröt-
um. I Reykjavík og Reykjaneskjör-
dæmi þykja tvö efstu sætin nokkuð
frátekin og óumdeild, en í báðum til-
fellum er þriðja sætið þungt á met-
unum, enda talin líkleg þingsæti. í
Reykjavík er vitað til þess að unglið-
ar gera stífa kröfu um þetta heita
sæti og er einkum bent á Ragn-
heiði Björk Guðmundsdóttur,
sem þótti standa sig vel í kosninga-
baráttunni fyrir borgarstjórnar-
kosningarnar. Munu hinir eldri alls
ekki vera fráhverfir þessari hug-
mynd. I Reykjaneskjödæmi hugsa
Kópavogskratar sér gott til glóðar-
innar og eru hafnar þreifingar fyrir
Guðmund Oddsson bæjarfulltrúa,
en hann stendur vel að vígi sem for-
maður framkvæmdastjórnar flokks-
ins. Garðbæingar telja sig aftur á
móti eiga nokkurn rétt til sætisins.
Síðast var þarna Kristín Tryggva-
dóttir, en ef hún skyldi ekki gefa
kost á sér er bent á að Helga Möll-
er sé vænleg eftir stóran sigur í bæj-
arstjórnarkosningunum í Garðabæ
og hún á vísan stuðning krata-
kvenna í Hafnarfirði. Auk þess er
bent á nauðsyn þess að kona skipi
þetta sæti á eftir körlunum. Á móti
þessari kvennaröksemd eru Kópa-
vogskratar tilbúnir og hafa í hinni
hendinni Rannveigu Guðmunds-
dóttur bæjarfulltrúa. En málið
verður í fyllingu tímans útkljáð í
prófkjöri og bendir allt til þess að þá
verði líf og fjör. . .
Litlar sætar mjúkar, góðar
Fást í heilum, hálfum og 1/4 dósum í næstu verslun.
SVINAKJOT A HEILDSOLUVERÐI
EunCXARO
KJÖTMIÐSTÖÐIN
Laugalæk 2 — S: 686511
Svínslœri 245 kr. kg.
Nýir svínabógar 247 kr. kg.
Nýir svínahryggir 440 kr. kg.
Svínakótilettur 490 kr. kg.
Svínahnakki úrbeinadur 420 kr. kg.
Svínahnakka-fillet 410 kr. kg.
Sœnsk kryddsteik 420 kr. kg.
Úrbeinuð ný svínslœri 310 kr. kg.
Úrbeinaðir nýir svínabógar
295 kr. kg.
Svínagrillpinni m/ananas
og frábœrum lœrisvöðvum aðeins
40 kr. stk.
Ódýra beikonið 250 kr. kg.
Svínalundir 666 kr. kg.
Svínagúllas 475 kr. kg.
Svínasnitchel 525 kr. kg.
Svínaskankar 96 kr. kg.
Svínalifur 125 kr. kg.
Svínahausar ca. 5 kg.
aðeins 100 kr. stk.
OPIÐ LAUGARDAGA
til kl. 16.00
40 HELGARPÓSTURINN