Helgarpósturinn - 27.11.1986, Síða 3
FYRST OG FREMST
SLAANDI hvað vörur geta
hækkað á leiðinni yfir hafið.
Daglega ganga sögur af tug eða
jafnvel hundruð prósenta hækkun-
um á vörum sem hingað eru
fluttar utan úr heimi, en sem
betur fer heyrist sjaldnar af þús-
undum prósenta í þessu efni.
Og þó; þessi barst okkur nýlega:
Verslunareigandi mun hafa verið á
ferð í Suðurríkjum Bandaríkjanna
nýlega og festi þar kaup á dá-
góðum slatta af armböndum, sem
mið-amerískir indjánar framleiða
til fjalla úr messing og leðri. Þetta
er í mikilli tísku núna — og það
vissi okkar maður, fékk hvert
armbandið í heildsölu á 3 dollara
og líkaði prísinn, enda rétt rúm-
lega 120 krónur íslenskar.
Nokkrum dögum seinna var
varan svo komin í útstillingar uppi
á íslandi. Og verðmiðinn, frekar
svona aflangur, bar töluna 2.900
krónur. Semsé tuttuguogfjórfalt
innkaupsverðið — og þó svo ríkið
taki náttúrlega sitt, ef varan hefur
þá verið heiðarlega flutt inn í
landið — hefur maður það samt
einhvernveginn á tilfinningunni að
þessi bísnessmaður hafi aiveg í
sig...
GROÐI er annars vinsælt
umræðuefni manna. Nokkrir
kallar sátu saman til borðs niðri á
Borginni á fimmta tímanum í
vikunni — og ræddu vitaskuld
hvar hagnaðarvonin væri mest um
þessar mundirnar. Einn kallanna,
sýnu feitastur, klappaði saman
lófunum (þannig að undir tók í
gullhringunum) og kvað upp úr:
Strákar mínir, ég veit alveg hvað
ég færi út í núna, væri ég ungur
og hress. Auðvitað take-away-stad.
Ég myndi reisa einn slíkan í hvelli,
vitandi vits að allur sá aragrúi
launþega sem hefur ekki lengur
tíma til að búa til kvöldmat vegna
allra fréttatímanna væri ekki lengi
að greiða niður stofnkostnaðinn.
Líkast til nokkuð rétt hjá kalli...
GARUNGARNIR eru áberandi
í íslensku þjóðfélagi, að vísu helsti
óræður hópur en alltaf með
hlutina á hreinu. Karlarnir í heitu
pottunum á morgnana hljóta að
teljast til þessa þjóðfélagshóps, en
þeim reynist alla jafna auðvelt að
leysa hitamálin saman í hring í
fjörutíu gráðum. Eitthvað heyrum
við samt að þeim sé farið að
ganga erfiðlega íþróttin atarna —
og eins og allt annað ku það stafa
af þessum endalausu breyttu
forsendum í samfélaginu. Nú eru
fjölmiðlarnir nefnilega orðnir svó
margir, útvarps- og sjónvarps-
stöðvar farnar að spretta upp í
hverju hverfinu af öðru — og
menn ekki Iengur með tölu á
hvað mörgum blöðum og tíma-
ritum þeir eru áskrifendur að. Þá
var nú veröldin einfaldari í dentid
þegar aðeins var eitt blað, altso
málgagnið, og tvær fréttastofur,
það er rikisins. Fyrrum var svo
býsna auðvelt að varpa upp
málum úr þessum miðlum og reifa
þau við næsta mann í pottinum
eða hvar svo sem menn voru
manns gaman, enda gengu menn
þá að því vísu að viðmælandinn
hefði heyrt um málið. Nú er þetta
úr sögunni. Fréttum og frétta-
tímum rignir yfir fólk, ýmist á
sama tíma, færðir til, skaraðir eða
skotið inn á milli, óvænt, ákveðn-
um ellegar aðeins til áréttingar.
Eftir sitja menn í heitu pottunum
sínum úti um allt land þar sem
enginn hefur heyrt það sama. En
þar er þá líka kominn grundvöllur
fyrir nýjum fjölmiðli.
FAUNA var formlega sett á
laggirnar, stofnun áhugamanna
um náttúruvernd og dýralíf, en
tilgangur þessarar stofnunar er
samkvæmt skipulagsskrá að styðja
með fjárframlögum starfsemi sem
til þess er fallin ,,að vekja áhuga
íslenskra barna og ungmenna á
dýrum, lifnaðarháttum þeirra og
umhverfi og stuðla að auknum
tækifærum ungra og aldinna í
þéttbýli, til að sjá dýr með eigin
augum og kynnast þannig útliti
þeirra og atferli". Sannarlega
göfugur tilgangur nú til dags
þegar þéttbýlisbúar vita varla
hvað snýr fram og hvað aftur á
jafnvel algengustu skepnum nátt-
úrunnar. Og aðstandendur Faunu
eru vissulega mjög áhugasamir. í
stjórnina voru kjörnir Helgi
Jónasson úr Garðabæ og þeir
Tryggvi Hardarson og Rúnar
Brynjólfsson úr Hafnarfirði. Þeir
eru þarna sestir í örugga stóla, því
eftirfarandi kemur fram í skipu-
lagsskránni: „Tilnefning manns í
stjórnina gildir ævilangt."
Þremenningarnir ætla því að hafa
þetta að löngu ævistarfi, en verða
að vísu að halda aftur af sér á
manna- og dýramótum, því það er
einnig tekið fram í skránni að þó
geti dómsmálaráðuneytið „vikið
manni úr stjórn, ef því þykir
ástæða til, svo sem vegna ósæmi-
legs athæfis". Vonandi halda
þremenningarnir sinum hreina
skildi, en óneitanlega stingur
æviráðning i stóla í stúf við þá
umræðu sem fram hefur farið í
þóðfélaginu um réttmæti hennar.
En þetta mun, að sögn Jóns Thors
i dómsmálaráðuneytinu, alls ekki
vera óalgengt og margar stofnanir
og samtök með slíkar hefðir, þó
ekki séu ákvæði um ævilanga
stjórnarsetu alltaf fyrir hendi...
SMARTSKOT
HELGARPÚSTURINN UMMÆLIVIKUNNAR
Að sjá stjörnur
Eitt er sem ég hef viljað voða lengi
vita á meðan ég góni:
Hve „Strengjabrúður" stjörnur margar fengi
á Stöðinni hjá Jóni.
Niðri.
„Ég var ekki útnefndur skotmadur ársins í
fyrra og lét óánægju mína í Ijós."
CARL J. EIRiKSSON BYSSUMAÐUR A iÞRÓTTASÍÐU
DV 26. NÖVEMBER VEGNA ÞESS AÐ HANN HEFUR
NÚ VERIÐ REKINN ÚR SKOTFÉLAGI REYKJAViKUR.
Um næstu mánaðamót tekur Halldór Reynisson, sem undanfarin ár
hefur gegnt stöðu forsetaritara, við prestsembætti í Hruna. Hans fyrra
starfi fylgdu mikil ferðalög og veisluhöld, bæði innanlands og utan, og
oft á tlðum var eiginkona Halldórs, Guðrún Björnsdóttir (fylgdarliöi for-
setans. Við spurðumst fyrir um hvernig það legðist (Guðrúnu að flytja
austur (sveitir með fjölskylduna og hætta kennslu við Hlíðaskóla, þar
sem hún hefur unnið í fimm ár.
Ertu kvíðin?
Guðrún Björnsdóttir,
verðandi prestsfrú í Hruna
„Er ég kvíðin? Þú átt væntanlega við hvernig það leggist í
mig að flytjast austur, vegna þess að maðurinn minn er að
verða þar prestur? Sjáðu til, ég er eiginlega alveg á móti því,
þegar verið er að tala við konur af þeirri einu ástæðu að þær
eru eiginkonur mannanna sinna. Ekki myndi hafa verið hringt
í Halldór, ef ég hefði fengið skólastjórastöðu fyrir austan, er
það? Svo er ég á móti því að vera titluð prestsfrú, því ég er
óskaplega lítil frú í mér.
En þú varst að spyrja um kvíðann og ég verð að segja, að ég
hlakka bara til. Hins vegar verður auðvitað erfitt að yfirgefa
bekkinn minn og allt samstarfsfólk."
— Hvað ætlar Guðrún Björnsdóttir að hafa fyrir
stafni í Hruna?
„Hún ætlar vonandi að kenna, en það er enn óvíst hvort ég
fæ kennslu. Ég er með próf úr Kennaraháskólanum og hef
kennt í Hlíðaskóla undanfarin fimm ár, þannig að kennslan er
mitt fag."
— Hafiö þið hjónin verið í sveit áður?
„Ég var í sveit á sumrin, allt fram á unglingsár. Og hefur alltaf
dreymt um að búa í sveit. Ég er heilmikil sveitakona í mér.
Ég hef unnið úti frá tveimur börnum á undanförnum árum og
starfi Halldórs hefur fylgt töluvert „útstáelsi" eins og maður
segir, svo það verður gott að komast í sveitina. Þetta hefur bitn-
að á börnunum og fjölskyldu manns, því við höfum mikið þurft
að fá pössun fyrir þau. Nú langar okkur að hafa meiri tíma fyrir
þau og á stað eins og Hruna er það einmitt hægt. Þetta er það
umhverfi, sem mann langar til að ala börnin sín upp í.
Strákurinn okkar er að byrja að átta sig á þessu og hlakka til.
Hann byrjar í skóla næsta vetur og fylgir mér þá vonandi, ef ég
fæ vinnu. Það er hins vegar vinsælt að búa á Flúðum og nóg
af góðum kennurum við skólann, svo það er óvíst hvort eitt-
hvað losnar."
— Heldurðu að þú komir til með að sakna einhvers úr
Reykjavik?
„Ef ég þyrfti á einhverju að halda, gæti ég vel sótt í það. Þetta
er ekki nema eins og hálfs tíma keyrsla.
Mér finnst ég annars aldrei hafa nægan tíma til þess að gera
það sem mig langar til á heimilinu. Ef ég fæ þennan tíma, ætla
ég að nýta hann sem allra, allra best.
Það hefur ekki gefist tími til að sinna áhugamálum að neinu
marki í stressinu hér (bænum, en við höfum hugsað okkur að
eignast hesta og stunda einhverja hestamennsku fyrir austan."
— Verðið þið meö annað skepnuhald í Hruna?
„Við eigum enn eftir að athuga með fullvirðisréttinn, en þetta
er heilmikil jörð, sem við reynum auðvitað að nýta einhvern
veginn. Þar að auki eru þarna útihús fyrir 200 kindur, þannig að
vel gæti farið svo að við yrðum með einhverjar kindur.
Ég ætla þar að auki að fá mér (slenskar haughænur. Þær eru
skemmtilega litríkar, en ég sá þær í sumar hjá frændfólki mínu
í Vigur. Kannski fáum við okkur líka kanínur fyrir krakkana."
— Heldurðu að fólk hafi miklar væntingar til þín sem
eiginkonu nýja prestsins?
„Ég hef sagt við fólk fyrir austan eins og vini mína hér, að því
standi allar dyr opnar, ef það þarf á einhverju að halda. Það er
hins vegar af því að ég er ég sjálf, ekki af því að ég er einhver
prestsmaddama. Ég hef mjög gaman af að umgangast fólk."
HELGARPÓSTURINN 3