Helgarpósturinn - 27.11.1986, Blaðsíða 37

Helgarpósturinn - 27.11.1986, Blaðsíða 37
samskipti í vestrænum samfélög- um. Fyrr á öldum skipti trúnaðar- traust aftur á móti miklu máli í öllu samneyti. Til þess að lifa af þurftu menn að vera í nánum tengslum hver við annan hvort sem þeim var það ljúft eða leitt. Nú á dögum geta menn svikið hvern annan í það óendanlega án þess að það hafi alvarlegar afleiðingar. Við verðum þó að sýna meðbræðrum okkar ákveðið lágmarkstraust í dagiegu lífi, en samtímis er okkur ljóst að þeir geta komið aftan að okkur hvenær sem er. Þannig er lífið nú einu sinni. Sú staðreynd að allir sem við kom- umst í snertingu við geta verið smit- aðir af AIDS útskýrir vantraustið í samskiptum fólks. En við verðum jafnframt að horfast í augu við aðal- einkenni mannlegra samskipta í okkar þjóðfélagsgerð — AIDS gerir það að verkum að við sjáum það í hnotskurn. Nú getum við ekki lifað lengur í þeirri sjálfsblekkingu að lágmarkstraust og svik séu sjálfsögð og ekkert til að gera veður út af. Nú eigum við á hættu að fyllast algjöru vantrausti gagnvart öllum. Og það er fjári erfitt að búa við.. . HVERNIG AIDS GAGNAST SAMFÉLAGINU Hér að framan var reynt að varpa ljósi á hvers vegna fólk er svo reiðu- búið að taka þátt í AIDS-harmleikn- um af svo mikilli ákefð. En hvers vegna hættir álitsgjöfum og fjöl- miðlum til að kynda undir hræðsl- unni við þennan sjúkdóm? Hvaða hag hefur samfélagið af því að færa upp þetta leikrit? Til að skilja það verðum við að rannsaka hvað rétt- lætir tilvist þessa samfélags og hvað ógnar henni. Eitt af því sem réttlætir þessa sam- félagsgerð er að hún geti komið í veg fyrir eða haft hemil á öllum skelfilegum vandamálum. í því sam- bandi er daudinn ansi hreint óþægi- legt fyrirbæri sem ógnar öllu skipu- lagi. Þegar AIDS-ógnin er blásin upp er það einkum í viðtölum við lækna og vísindamenn sem gera grein fyrir nýjustu rannsóknum. Bóluefni er í augsýn og fram að því verðum við að koma í veg fyrir smit með því að sýna aðgát og fara í mót- efnamælingar innan ramma kerfis- ins. Hver dauðdagi er bara óheppi- leg afleiðing þess að við höfum enn ekki fundið upp mótefni. Með þessu móti verður AIDS verðugur andstæðingur samfélags laga og reglu, hið Illa sem menn berjast gegn með skipulagningu, rannsóknum og tækni. Samfélagið velur sér réttan andstæðing í vissu þess að það muni sigra í fyllingu tím- ans. Að berjast gegn umferðarslys- um, áfengissýki, sjálfsmorðum eða félagslegri eymd væri hreint og klárt sjálfsmorð fyrir kerfið. í slíkri baráttu kæmu allir veikleikar sam- félagsins í ljós. Það er bara í barátt- unni gegn AIDS og FÍKNIEFNA- NEYSLUNNI að samfélagið er óum- deilanlegur sigurvegari. En það er ekki aðeins hinn óstjórnanlegi dauði sem ógnar sam- félaginu, heldur einnig lostinn, nautnin, fullnægingin. Hægt er að hafa hemil á fólki svo fremi það elt- ist ekki við nautnir. En lostinn getur fengið hvern sem er til að virða lög og reglur að vettugi og á það við bæði um holdsins lystisemdir, áfengisfíkn og aðrar fíknir. Til að koma í veg fyrir að þegnarnir gefi sig lostanum hömlulaust á vald verður samfélagið að undirstrika þær hættur sem holdlegar lysti- semdir geta haft í för með sér, út- mála þær sem af hinu illa. Hið hömlulausa kynlíf er merkt með AIDS og löngunin til að flýja samfé- lagið er merkt með FÍKNISÝKI. Og AIDS-harmleikurinn er færð- ur upp aftur og aftur. í raun höfum við verið að bíða eftir þessum sjúk- dómi í tvo, þrjá áratugi, samanber allar bækurnar og kvikmyndirnar sem snúast um hinn lævísa sjúkdóm á borð við hundaæði, hermanna- veiki, dularfulla geislavirkni eða lífshættulega veiru sem ógnar ein- staklingum, þjóðum, heimshlutum, jafnvel mannkyninu öllu. Handritið var skrifað fyrir löngu, og flest höf- um við kynnt okkur hlutverkaskip- anina. . . Heimildir: Ýmsar greinar i sænska tinía- ritinu Ottar, 1. hefti, 1986. ir HHkratar í Reykjavík virðast afskaplega lukkulegir með skipan þriggja efstu sæta á væntanlegum framboðslista sínum fyrir alþingis- kosningarnar — og harður slagur um fjórða sætið virðist lítt draga úr ánægjunni. Það má á hinn bóginn teljast nokkuð skondið að elsti mað- ur listans Jón Sigurðsson þjóðhags- stjóri og Lára V. Júlíusdóttir, einn þriggja frambjóðenda í fjórða sætið, voru ekki skráðir félagar í Alþýðu- flokknum — fyrr en þau voru sam- þykkt formlega á stjórnarfundi í Alþýðuflokksfélagi Reykjavíkur nú á mánudaginn. Undir venjuleg- um kringumstæðum eru nýir félag- ar teknir inn á félagsfundum, en ástæða þótti til að hafa hljótt um það, hversu miklir nýgræðingar þessir frambjóðendur eru.. . ÍlLeiklistarfræðingar stofnuðu hagsmunasamtök í fyrra en lítið hef- ur frá þeim heyrst og starfsemin að mestu legið niðri. Nú munu leiklist- arfræðingar hins vegar ætla að hressa félag sitt við og gera virkt. Fyrirætlunin er að ná saman öllum menntuðum leiklistarfræðingum á landinu og þrýsta á leikhús og fjöl- miðla að notast við leiklistarfræð- inga en ekki ómenntað fólk í faginu þegar ráðningar í slík störf eru ann- ars vegar. . . TlTorfusamtökin halda almenn- an félagsfund í kvöld, fimmtudag- inn 27. nóvember, að Litlu Brekku (í veitingahúsinu Lækjarbrekku) um hið nýja deiliskipulag Miðbæjar- kvosarinnar í Reykjavík, semsé það hvort eigi að útrýma öllum helstu menjum sem tengjast sögu Reykjavíkur. Á fundinum verða kynntar skipulagstillögur arkitekt- anna Dagnýjar Helgadóttur og Guðna Pálssonar og umræður verða á eftir. Fundarstjóri er Sig- urður Líndal prófessor. Fundurinn hefst kl. 20.30 og eru allir velkomn- ir. Núverandi stjórn Torfusamtak- anna skipa Hjöríeifur Stefánsson arkitekt, formaður, Hörður Ágústsson listmálari, Guðmund- ur Ingólfsson ljósmyndari, Jó- hannes S. Kjarval arkitekt og Guð- jón Friðriksson sagnfræðingur. 21.488, ÞAÐ MÆLIR ALLT MEÐ ÞVÍ AÐ ÞÚ BREGÐIR ÞÉR MEÐ BEINU FLUGI TIL ORLANDO. 11 mm 11 Þaðersagtað veðrið hafi aldrei veriðbetra. Eittervíst. Verðiðhefur sjaldan veriðbetra. Dollarinnerágóðu verði - og þín bíða lystisemdir Fiórída, allt frá dýrindis mat og ævintýraheimi Walts Disneys til tónleika og skemmtana undir berum himni. Líttu til dæmis á þennan útreikning: Verð* Hótel Staður Dvöl A Kr.21.488 Dayslnn Orlando 11 dagar B Kr. 23.952 Days Inn Orlando 18dagar C Kr. 23.766 Gateway St. Pete 11dagar D Kr. 27.686 Gateway St. Pete 18dagar Innifalið fiugferðir, akstur til og frá flugvelli og gisting. * Verð á mann í 4ra manna fjölskyldu (tvö börn undir 12 ára aldri). Gildir til 15. des. 1986. Ótal fleiri ótrúlega ódýrir möguleikar. Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða, umboðsmenn og ferðaskrifstofur. Söluskrifstofan tækjargðtu slmi 690100, Hótel Esju simi 690100, Álfabakka 10 slmi 690100. FLUGLEIDIR Upplýsingasími: 25100 HELGARPÖSTURINN 37

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.