Helgarpósturinn - 27.11.1986, Blaðsíða 26

Helgarpósturinn - 27.11.1986, Blaðsíða 26
fara vel við húsgögnin og kostar kr. 6.900,- né heldur fjögurra skúffu kommóðu sem henni fannst henta vel í barnaherbergið á kr. 2.455.-. í versluninni CASA varð Hrafn- hildur Valbjörnsdóttir fyrir svörum. Sagðist hún gera ráð fyrir að hús- gögn inn í 90 m2 íbúð myndu kosta í kringum 500.000 kr. ef hjónin vildu nýtískuleg og vönduð ítölsk hús- gögn. Skiptingin yrði þannig: Sófa- sett og borð: 200.000.-, skápasam- stæða kr. 150.000.-, símabekkur með spegli og hiliu kr. 30.000.-, hjóna- rúm og tvö náttborð kr. 80.000.-. Barnarúm, skrifborð og stóll kr. 40.000.-. Casa býður greiðsluskil- mála eftir samkomulagi en yfirleitt er útborgun 20—30% og afgangur á allt að 12 mánuðum. Loks leitaði Stefanía til Ikea þar sem Hulda Haraldsdóttir valdi hús- gögnin. Hún valdi Lund sófa, þriggja og tveggja sæta og Álmhult stól sem hún sagði fara vel við sóf- ann. Þriggja sæta sófinn kostar 19.800.- en sá tveggja sæta kr. 15.490.-. Stóllinn kostar kr. 8.990.-. Ástæðu þess að hún valdi ekki stól í sömu tegund og sófarnir eru sagði hún einfaldlega vera þá að þannig uppröðun væri mikið komin út úr myndinni hjá Ikea og nú væru stólar yfirleitt ekki hafðir eins og sófar heldur frekar ólíkir en færu þó mjög vel við. Við sófasettið valdi hún svart borð með glerpiötu en borð- inu er hægt að breyta í borðstofu- borð og kostar það kr. 6.480.-. Skápasamstæðan er af gerðinni Princip og kostar 46.540,- krónur og speglar í hana kosta 2.540.-. Hvítt hjónarúm með dýnum kostar 19.065.- kr. og hvít náttborð með krómhöldum kr. 4.670- stykkið. í barnaherbergið valdi Hulda Boj rúm sem er hvítt með háum gafli öðrum megin og kostar það með dýnu kr. 9.415.-. Hægt er að velja um hæð gafla. Skrifborðið er 1.60x1.60, hvít plata en gular skúff- ur og gul skáphurð og kostar það kr. 5.790.-. Við skrifborðið valdi hún gulan stól á kr. 1.595.-. Loks ákvað Hulda að setja Járpen símaborð með glerplötu í forstofuna á kr. 1.845.- og stóll í sömu línu kostar kr. 1.590.-. Húsgögnin frá Ikea myndu því kosta kr. 148.480,- séu speglarnir teknir með skápasamstæðunni. Vörurnar hjá Ikea er hægt að fá með afborgunarskilmálum, 'A hlut út og afgangur greiðist með fjórum jöfnum afborgunum. GÆTI ÞETTA ORÐIÐ DÝRARA? Það er ljóst að Stella og Stulli þurfa að hugsa sig vel um áður en þau taka ákvörðun um hvernig íbúðin þeirra á að líta út. Verðið er greinilega mismunandi eftir þessu að dæma og getur verðmunurinn verið allt að 350.000- krónur. Að sjálfsögðu geta þau fengið mun ódýrari húsgögn og líka dýrari, eftir því hvað þau leggja mikið upp úr út- liti og gæðum. Gólfklæðningar eru einnig á mismunandi verði og ef þau vilja mála íbúðina alla í skærum Íitum breytist verð á málningu. Það eina sem ekki breytist er að Stulli mun mála íbúðina sjálfur því hann er sannfærður um að enginn geri það eins vel og hann. En ekki má gleyma því að íbúðin er ekki tilbúin þótt allt þetta sé komið inn. Ljós verða þau að hafa svo og rafmagns- tæki í eldhús, sjónvarp, videó og afruglara. Þá ætti að vera farið að vera hlýlegt í þriggja herbergja íbúðinni.. . (Allt verð sem gefið eru upp í greininni er staðgreiðsluverð en vörur er hægt að fá með afborg- unum eins og fram kemur) Til að flýta fyrir þeim Stellu og Stulla höfum við teiknað upp hug- myndir að íbúðinni með húsgögn- unum sem við kynnum verðið á. Við teikningarnar er stuðst við ljós- myndir af húsgögnun verslananna en við viljum líka benda þeim hjón- um á að á Stór-Reykjavíkursvæðinu eru margar góðar húsgagnaverslan- ir, málningarvöru- og teppaverslan- ir sem áreiðanlega munu reynast þeim eins vel við val og leiðbeining- ar og þessar fimm verslanir reynd- ust okkur. En hvernig var það með þig? Ætlaðir þú ekki líka að gera eitthvað fyrir jólin??? 26 HELGARPÖSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.