Helgarpósturinn - 27.11.1986, Blaðsíða 27

Helgarpósturinn - 27.11.1986, Blaðsíða 27
fróðra að Kjartan Gunnarsson, formaður útvarpsréttarnefndar og framkvæmdastjóri Sjálfstæðis- flokksins, hefur margsinnis gefið út yfirlýsingar um hversu mörgum leyfum nefndin hyggst úthluta til þeirra er vilja setja upp jarðstöðvar til að ná gervihnattasjónvarpi. Þannig er nefnilega mál að sam- gönguráðuneytið eitt hefur heimild til þess að veita slík leyfi að fenginni umsögn póst- og símamálastofn- unarinnar. Það gildir jafnt um þá sem setja vilja upp jarðstöðvar til einkanota og þeirra sem ætla að dreifa efninu frekar. Lögfræðingur- inn Kjartan virðist því hafa oftúlkað valdsvið sitt. . . Svanhvít Magnúsdóttir IjósmóÖir: Móðirog bam |)iufii mikið klk. Þargetur mjólkin haft úrslitaáhrif” Á meðgöngutímanum, og á meðan barn er á brjósti, er konum ráðlagt að bæta við sig um 400 mg. af kalki á dag tii þess að barnið fái nauðsynlegt kalkmagn án þess að ganga á forðann í þeinum móðurinnar. Svanhvít Magnúsdóttir Ijósmóðir þekkir af langri reynslu það lykilhlutverk sem mjólk gegnir í þessu efni. Mjólk er einhver besta leiðin til þess að tryggja líkamanum nægjanlegt kalk. 99% kalksins fertil viðhalds og vaxtar beina og tanna, vaxtar fósturs og mjólkurframleiðslu í brjóstum. Kalkskortur getur á hinn bóginn valdið beinþynningu, bein verða stökk og brothætt um miðjan aldur, líkamsvöxtur breytist, bakið bognar o.s.frv. En mjólkin gefur meira en kalk, hún gefurfjölda annarra bætiefna s.s. A og B vítamín, kalíum, magníum, zinko fl sem eru mikilvægfyrirhúð, augu, taugar, þrek og fyrir almenna heilbrigði. Þess vegna er mjólkin ómetanleg í daglegu fæðuvali okkar - ekki síst ungra stúlkna og verðandi mæðra! E . ■■ftir að Utsýn var lögð niður um síðustu áramót og hiutafélag með sama nafni, Útsýn h/f, tók yf- ir reksturinn, hefur Ingólfur Guð- brandsson hægt og bítandi verið að missa völd til annarra hluthafa. Þegar hlutafélagið var stofnað var gamla fyrirtækið metið á 6 milljónir kr.; þ.e. viðskiptavelvildin, tæki og tól, en Ingólfur tók allar skuldbind- ingar gömiu Útsýnar á sig sjálfur. Hinir hluthafarnir gengu síðan í fé- lagið með 6 milljónir kr. til þess að freista þess að rétta fyrirtækið við. Þýsk-íslenska er skráð fyrir 5,7 milljónum af þessu nýja hlutafé, en þeir Ómar Kristjánsson, forstjóri Þýsk-islenska, Magnús Gunnars- son, framkvæmdastjóri SÍF og Helgi Magnússon, fyrrverandi endurskoðandi og núverandi rithöf- undur, eru skráðir fyrir 100 þús. kr. hver. Ingólfur og sonur hans, Andri Már Ingólfsson, eru síðan skráðir fyrir þeim 6 milljónum kr. er gamla Útsýn var metið á. Eftir þessar breytingar hefur Ingólfur orðið æ valdaminni innan Útsýnar þó hann sé skráður stjórnarformaður félags- ins. Það er t.d. búið að taka af hon- um samningagerð erlendis og markaðsmál hér heima. Það er því orðið annað en áður var er Ingólfur sá sjálfur um nær alla þætti starf- seminnar. Reyndar á Ingólfur fullt í fangi við að hreinsa upp skuldahala gömlu Útsýnar. Fyrirtækið var í full- um rekstri þegar klippt var á skuld- bindingarnar og hefur Ingólfur þurft að ganga hart að skuldunaut- um Útsýnar til þess að endar nái saman. HP hefur frétt af Ingólfi að rukka inn margra ára gamla víxla sem fólk hafði gefið út sem trygg- ingu fyrir skuldbindingum er það tók á sig gegn því að fá frímiða hjá Ingólfi.. . N0™ i, UX*™ JSJ s i Hvað er hæfileg mjólkurdrykkja? eftir dr. Jón Óttar Ragnarsson Ráðiagður Hæfilegur Aldurshópur dagsskammtur mjólkurskammtur ár (RDS)afkalkiímg (2,5 dl glös) Böm1-10 800 2 Unglingar 11-18 Fullorðnirkarlar 1200 3 og konur* Ófriskarkonur 800 2 ogbrjóstmæður 1200 3 * Margir sérfræðingar telja að kalkþörf kvenna eftir tíðahvörf sé mun hærri eða 1200-1500 mg/dag. Reynist það rétt er hæfilegur mjólkurskammtur ekki undir 3 glösum á dag. Jónína Benediktsdóttir, íþrottakennari veit sitt af hverju um næringarfræðina. Hún leysir kalkþörfina með léttmjólk - og heldur fast í þrótt sinn og líkamsstyrk! RAMMA MIÐSTOÐIN SIGTÚN 20 - SÍMI 25054 23 stærðir af álrömmum 20 stærðir af smellurömmum Alhlida innrömmun Opíö alla virka daga frá kl. 8.00 til 18.00 HELGARPÖSTURINN 27 * (Meö mjólk er átt við nýmjólk, léttmjólk og undanrennu),

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.