Helgarpósturinn - 27.11.1986, Síða 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjórar:
Ingólfur Margeirsson og
Halldór Halldórsson
Ritstjórnarfulltrúi:
Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Blaðamenn: Gunnar Smári
Egilsson,Friðrik Þór
Guðmundsson, Helgi Már
Arthursson, Jóhanna Sveins-
dóttir, Jónína Leósdóttir og
Óskar Guðmundsson.
Útlit: Jón Óskar Hafsteinsson.
Ljósmyndir: Jim Smart.
Útgefandi: Goðgá h/f.
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson.
Skrifstofustjóri:
Garðar Jensson.
Auglýsingastjóri:
Steinþór Ólafsson.
Auglýsingar:
Hinrik Gunnar Hilmarsson
Sigurður Baldursson.
Dreifing:
Garðar Jensson
(heimasími: 74471).
Guðrún Geirsdóttir.
Afgreiðsla:
Berglind Nanna Burknadóttir.
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavík, sími
68-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36.
Sími 68-15-11.
Setning og umbrot:
Leturval s/f.
Prentun: Blaðaprent h/f.
LEIÐARI
Fjölmiðlarnir og „valdið7/
Talsverð umræða hefur spunnist um fjöl-
miðla, hlutverk þeirra og ábyrgð. Upphaf
þessara umræðna má sennilega rekja til lítt
ígrundaðra lesendabréfa í blöðum og jafnilla
grundaðra athugasemda Ragnars Kjartans-
sonar fv. stjórnarformanns Hafskips, Helga
Magnússonar fv. endurskoðanda sama fé-
lags og svo athugasemda úttaugaðra stjórn-
málamanna í ráðherrastólum.
Inn á milli hafa svo leynst á köflum ákaflega
einkennilegar athugasemdir í ritstjórnarrými
Morgunblaðsins, þ.e. forystugreinum,
Reykjavíkurbréfum, Staksteinum og Víkverja.
Sá sem hratt umræðunni á stað fyrir alvöru
var Matthías Bjarnason viðskiptaráðherra í
umræðum um þá staðreynd, að Morgunblað-
ið, ríkissjónvarpið og Stöð 2 hefðu komist yfir
eintök af skýrslunni um viðskipti Hafskips og
Útvegsbankans.
Matthías gekk svo langt að lýsa yfir því á Al-
þingi, að hann myndi greiða atkvæði með
lagasetningu, sem skyldaði fréttamenn til
þess að gefa upp nöfn heimildarmanna
sinna. Þarna gat Matthías óvart um grund-
vallaratriði frjálsrar fjölmiðlunar og sjálfur
sjálfstæðismaðurinn vildi svipta fréttamenn
þeim nafnleyndarrétti, sem prentlögin tryggja
þeim. Ekki stóð á viðbrögðunum og Blaða-
mannafélag íslands fordæmdi þessi ummæli
Matthíasar og benti réttilega á, að þau mál,
sem efst hafa verið á baugi í þjóðfélaginu,
Hafskipsmál, Útvegsbankamál og mál Hjálp-
arstofnunar kirkjunnar, hefðu áldrei orðið að
umræðuefni í þjóðfélaginu og lægju senni-
lega grafin, ef ekki hefði reynt á nafnleynd
heimildarmanna fréttamanna.
Fyrir Helgarpóstinn, sem er eina blaðið,
sem reglulega fæst við einhvers konar rann-
sóknarblaðamennsku, er nafnleynd algjört
skilyrði fyrir slíku starfi.
Og kannski er það einmitt þar sem hnífur-
inn stendur í kúnni. Þessir menn eru á móti
gagnrýni og slæmum tíðindum. Matthías og
hans líkar í pólitíkinni eru óðum að átta sig á
því, að þeir eru úr takti við þjóðfélagið, á ská
og skjön við það samfélag, sem er fyrir utan
múra þinghússins eða stjórnarráðsins. Áhrif
þeirraáatburðaráshvunndagsinserusáralítil.
Þess vegna stendur maður eins og Matthías,
holdgervingur stjórnmála 6. áratugarins, og
reynir með offorsi og látum að ná þessum
völdum aftur. Málið er hins vegar það, að þeir
áttu ekki að hafa þessi völd og eiga ekki að
hafa þessi völd.
Dæmi um örvæntingarfulla tilraun þeirra til
að endurheimta einhver völd er t.d. sú stað-
reynd, að nú er búið að loka prófkjörum í öll-
um flokkum. Þar ráða þeir enn.
Matthíasarnir vilja ráða upplýsingastreym-
inu. Þeir vilja ráða því hvort þegnarnir séu fá-
vísir eða upplýstir. Samkvæmt yfirlýsingum
þeirra vilja þeir, að þjóðin sé fávís. Þess vegna
verður að beita öllum tiltækum ráðum til að
hefta upplýsingastreymið.
Og í umræðunni hefur þeim tekist að snúa
spurningunni upp í það hverjir fari eiginlega
með völdin, valdhafarnir eða fréttamennirnir,
og þeir segja fréttamenn enga ábyrgð bera.
I fyrsta lagi snýst þessi spurning ekki um
völd tiltekinna manna, heldur um upplýsingar
sem lagðar eru í dóm lesenda. HP treystir les-
endum sínum þótt Matthías og einhver Þjóð-
viljamatthías geri það ekki. Þeir treysta eng-
um nema sjálfum sér. Þeir eru ritskoðunar-
sinnar. Við berum hins vegar ábyrgð gagnvart
lesendum okkar.
BRÉF TIL RITSTJÓRNAR
Ljódabréf
til
Þorsteins Pálssonar
í nóvember 1984 fékk ég senda
happdrættismiða frá Sjálfstæðis-
flokknum, ásamt bréfi undirrituðu
af Þorsteini Pálssyni.
í því bréfi stóð m.a. „ ... og ég
mundi fagna því að fá nokkrar línur
frá þér um það hvernig yrði best
stjórnað landinu . ..“
Ég tók þessu boði feginshendi, og
sendi Þorsteini eftirfarandi bréf
skömmu síðar, en fékk aldrei svar til
baka. Mig langar að biðja HP um
birtingu á þessu ljóðabréfi mínu.
Ólafur Runólfsson
Bréf í pósti berast mér
býsna mörg um sérhvern vetur.
Reyndar oft þad rukkun er
rím og stuölar geöjast betur.
Flokknum þínum frá, ég hef
fengid bréf og nokkra miöa.
Fremur lítinn gaum því gef
gengur illa, mig aö siöa.
Mér er ekki ennþá tamt
við eöalborna menn aö rœöa.
Línur þínar las ég samt
lítiö var á þeim aö grœöa.
/ því bréfi eitt ég sá
og þaö geöjast huga mínum:
,,AÖ þú mundir fagna aö fá
frá mér bréf, í nokkrum línum"
„Um þaö hvernig yröi best"
okkur stjórnaö nœstu tima.
Ég fer ekki á háan hest
hugsa bara um aö ríma.
Svo, — þú miöa sendir heim
síöan vilt um aura biöja.
Þú bestu þakkir biöur þeim
er baráttuna vilja styöja.
Ríki okkar ráöiö þiö
ég reyni aö taka því er kemur.
Og ég flokka ekki styö
einstaklinga, miklu fremur.
Núna, vitnaö oft er í
yfirstéttar bruöl og hroka.
Fránum augum fyrir því
fyrirbýö ég þér aö loka.
Allir menn, sinn eiga rétt
œöstu kappar, þetta muniö.
Ef þú tapar okkar stétt
yfirbygging gœti hruniö.
Ég er einn, meö launin lág
lítt þér ganga mannaveiöar.
Ennþá kjörin eru bág
aöeins fœ til hnífs og skeiöar.
flla aö stjórna, til nú tekst
títt viö þurfum ól aö heröa.
Úr flokki þínum fylgi hrekst
ef framtíöin mun svona veröa.
Allir menn, sinn eiga draum
einkamálin varla rceöa.
Nú er þörf aö taka í taum
Talsvert mun á því aö groeöa.
Númer eitt, aö lœkka laun
loföunga í efstu sœtum.
Annars miöar ekki baun
afarvel aö þessu gœtum.
Meöan er svo mikiö bil
milli efstu og neöstu þrepa,
og launin ekki löguö til,
lœgra setta mun þaö drepa.
Þjóöin valla þraukar nú
þegnar falla, tapa kaeti.
Margur alla missir trú
mun því halla undan fœti.
Þeir sem hiröa hœstu laun
hafa gnótt af fríöindonum.
Ástand þetta er í raun
undirrót aö byltingonum.
Vissulega veröur er
verkamaöur launa sinna.
En á þessum hólma hér
hann fœr sífellt minna og minna.
Sumir kalla kvennastörf
hvar kaup er lægst í mörgum
stéttum.
Nauösyn rík, og nœsta þörf
aö nái konur launum réttum.
Heyra má aö heimiliö
hornsteinn sé á voru landi.
Ef því splundra œtliö þiö
ei vér geturn varist grandi.
Lœkkun skatta, legg ég til
lánamál aö endurskoöa.
Gjalda og tekna brúa bil
bjarga okkar þjóö úr voöa.
Eitt er þaö, sem okkar þjóö
eflaust mœtti láta standa.
Lífeyris- aö láta sjóö
leysa jafnt úr allra vanda.
Fyrir mér er fjandinn laus
í fáránlegum innflutningi.
Aö setja okkur sjálf á haus
sœmir varla Islendingi.
Ef er framleitt innanlands
allt sem þegnar nota og neyta.
Þá viö fyllum þarfir manns
þessu vœri hœgt aö breyta.
Upp mun renna indœl tíö
ef viö bœtum framleiösluna.
Þeir er stjórna landi og lýö
líka œttu þaö aö muna.
Auöur þjóöar upp þá vinnst
eflast tök á nœgtabrunni.
Þeir bera enn úr býtum minnst
er best hér þjóna framleiöslunni.
Lœgöu sprettinn, lít þér nœr
Listahútíö tek sem dœmi.
Bœr og ríki borgaö fœr
brúsann, þó aö illa sœmi.
Bruöl og snobb, ég biö mér frá
þaö bœtir ekki haginn þjóöar.
En í staöinn efla má
ýmsar fornar dyggöir góöar.
Okkar þjóö er ekki snauö
ef að henni viljum hlúa.
Já, viö margan eigum auö
auöveldlega má hér búa.
Ef viö rœktum réttu trén
rœtur illar burtu skerum.
Og í hugsun aldrei klén
íslendingar sjálfir verum.
Upp í stjórn viö hefjum hœng
hugsanlega fyrir jólin.
Og hann skríöur on'í sœng
eöa bara fer í stólinn.
Lagið ykkar eigið öl og vín
Tómstundaiðjan sem borgar með sér
— verð per ölflösku 0,33 l
aðeins frá kr. 9.00
— verð per vínflösku 0,7 l
aðeins frá kr. 40.00
Magnafsláttur — Tilboð á byrjendasettum
Ármúla 40 - Sími 35320
A/m
0
OL- OG VINEFNI
LAUSN Á
SPILAÞRAUT
Þegar andstæðingur gefur þér
tækifæri til þess að spila á þann
hátt, sem þú myndir annars aldrei
gera, er eins gott að spila með gát.
An þess að spila trompinu aftur frá
austur, mundir þú ráðast á tromp-
litinn með því að spila smá spili til
kóngsins og á þann hátt hirt
drottninguna um leið.
Þannig lágu öll spilin.
8-5-4
D-G-4
D-10-6-2
K-5-3
K-D-9-6-2 Á-G-7
9-8-3 10-7-5
Á-8-7-4 K-9-3
D 9-8-7-4
10-3
Á-K-6-2
G-5
Á-G-l 0-6-2
10 HELGARPÓSTURINN