Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 27.11.1986, Qupperneq 24

Helgarpósturinn - 27.11.1986, Qupperneq 24
á það að verðmunur væri nokkur milli ljósra og skærra lita. Þannig kostar lítri af Ijósri málningu í kring- um 200 krónur lítrinn en lítri af skærari litum, t.d. gulum, rauðum, bláum og grænum kostar í kringum 500krónur. Hærri upphæðina sagði hann þó sjaldgæfa og áætla mætti að um 90% af þeirri málningu sem á boðstólum er kosti milli 200—300 kr. lítrinn. Ásgeir sagðist geta út- vegað svo til hvaða lit sem fólki dytti í hug því í gangi hjá þeim væru þrjú blöndunarkerfi og því um 10.000 Iit- ir á boðstólum. Sagði hann verð- mismun aðallega fara eftir litum því tegundir væru svipaðar. Það sem hann kvað Stulla þurfa að eiga til framkvæmdanna voru eftirtaldir hlutir: Málningarrúllu (300 kr. + hólkur á 200 kr. = 500.-), pensla (500 kr.), tvo sparslspada (150 - kr.), sandpapp'trsklossa (200 kr.-), yfir- breidsluplast (kr. 250.-, 50 fermetr- ar), límband (50 metrar á 150 kr.) og einnota hanska (u.þ.b. 100 kr. ef tveir vinna). Samtals munu áhöld því kosta frá 1.700—2.000 kr. Við búumst við að Stella vilji fylgja tískunni og máli stofu og her- bergi í Ijósum lit. Á 40 m2 stofu þurfa þau 20 1 (tvær umferðir) og kostar málningin þá um 4.000 kr. Á 10 m2 barnaherbergi þurfa þau málningu fyrir 1.800 kr. og í 15m2 svefnher- bergi fyrir 3.200 kr. Forstofuna ætla þau að mála skærgula því þannig málningu sáu þau á vegg erlendis og hrifust mjög af. Þá er málningin orðin tiltölulega dýrari og á 3 m2 forstofu fer gul málning fyrir 1.000.- kr. Baðherbergi og eldhús er flísa- lagt og því þarf aðeins að lakka loft- in þar og myndi það kosta um 1.500 kr. Samtals mun máiningarvinna LATIÐ OKKUR TAKA BETRIJ0LAMYND TRONUHRAUNI 8 HAFNARFIRÐI SÍMI 54207 BJARNI JÖNSSON LJÓSMYNDARI (efni og áhöld) kosta þau um 13.000 krónur. TEPPI EÐA PARKETT? En þau verða líka að setja eitthvað á gólfin. Stella getur ekki ákveðið hvort hún vill svokölluð „lykkju- teppi“ (lík Berber-teppunum eða „uppúrklippt efni“ og því var fengið verð á báðum tegundum. Stefanía hringdi í Teppaland og ræddi þar við Ingimund Hákonarson sem reiknaði út hvað muni kosta að teppaleggja stofu og herbergi, setja parket eða kork í eldhús og flísar eða gólfdúk á baðberbergisgólf. Ingimundur varð ekkert hissa á bóninni og sagði að sala á teppum væri yfirleitt meiri á þessum árs- tíma. „Það er ekki óeðlilegt" bætti hann við, „íslendingar eru gjarnir á að miða við jólin." Hann sagði þó að teppin væru ekki ,,á toppnum" núna og hörðu gólfefnin hafi verið að ryðja sér æ meira til rúms. Aftur á móti virtist fólk vilja stök teppi til að hylja hörðu gólfin og þannig jafnað- ist salan. Hann sagði fólk ekki leggja mikið upp úr hvaö er í teppunum, miklu meira upp úr litum. „Fólk virðist leita meira að nýjungum og er orðið frjálsara í litavali síðustu mánuðina," sagði hann. Verðið sem við gefum upp er staðgreiðslverð en Teppaland býður afborgunarskil- mála og hækkar verð þá eðlilega. Öll vinna er innifalin. Teppi á 40 m2 stofu: kr. 22.580,- (lykkjuteppi). Uppúrklippt teppi á herbergi (25 m2) kr. 32.930- (ullar- blanda í báðum tegundum). Korkur é eldhús: 23.656.- (náttúrulegur, lakkaður) og gólfdúkur á baðher- bergi kr. 7.867.-. Ef Stella hins vegar óskar eftir parketti á bæði herbergin myndi það kosta 56.605 - kr. eða tæplega 24.000 krónum meira en teppi. LOPAPEYSUR VÆRÐARVOÐIR Húfur, treflar, vettlingar. Barnalopapeysur í miklu úrvali. Viö förum daglega á pósthúsid meö jóla- sendingar til útlanda. AUar sendingar tryggdar. íslenskur heimilisiðn aður sími 11785. 24 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.