Helgarpósturinn - 27.11.1986, Page 35
Smartmyndir
Ekkert í uppköstum
— ég sulla bara
Omar Stefánsson opnar kröftuga myndlistar-
sýningu í Gallerí Svart á hvítu við Oðinstorg.
,,Ég er sama og ekkert í uppköst-
um," segir Ómar Stefánsson og
gengur um gólfin á Gallerí Svart á
hvítu; gónir á myndirnar sínar,
bregdur birtu á þœr, hengir upp.
Þetta er á þribjudag, sýningin opnar
á laugardag. Og hann talar áfram
um vinnslu verka sinna...
„Já, ég rissa varla heldur. Ég sulla
bara litunum afstrakt á striga eða
eitthvað... pappír. Og held áfram þar
til ég verð ánægður. Þetta er gjarn-
an margunnið hjá mér, mörg lög
margvíslegra atrenna. Mér er nokk
sama hvort verkið endar sem af-
strakt eða fígúratíft. Það kemur nú
bara í ljós.“
Prófessor Klaus Vussman var að
hleypa honum frá sér eftir fjögur ár
við Hochschule der Kunste í Vestur-
Berlín, en Ómar hafði skrifast út úr
MHÍ ’81. Nýlistadeild.
„Mér er illa við að skilgreina mig
sem listamann. Ég veit ekki hvort ég
geti sagt að ég máli í ákveðnum stíl.
Efalítið er ég samt expressjónískur.
Já, það mætti eiginlega segja mér
það.“
Þetta verður þriðja einkasýning
hans um helgina. Hann sýndi síðast
með Tolla í Berlin október '84. Svo
er sýning með honum og fleiri ung-
um myndlistarmönnum við Vatns-
stíg þessa dagana. Fjölbreyttur ný-
listagustur.
„Eg vil heldur láta frásögnina sitja
á hakanum i mínum verkum heldur
en litasamspil og áferð. Mér finnst
mikils um vert að geta kveikt i
ímyndunarafli fólks, vakið upp
þanka þess og kaliað á svörun við
myndunum. Eg sætti mig ekki bara
við að myndirnar séu fagurfræði-
lega góðar."
Ómar kveðst vera ánægður með
Gallerí Svart á hvítu sem sýningar-
sal. Rýmið sé þægilegt og viðráðan-
lega stórt. Á opnuninni klukkan tvö
á þriðjudag ætlar hann að láta
Gunnar Kristinsson tónlistarlækni
og Óskar Thorarensen leika á
hljómborð og slagverk...
„Og það ætti að verða svolítið
stímúlerandi fyrir ímyndunaraflið.
Þetta verður gleðisýning hjá mér,
sem ég vona að verði aðstandend-
um sínum til sóma. Ég vona bara að
allir sjái sér fært að koma og fari
ánægðir heim. Það er atriði."
-SER.
KVIKMYNDAHÚSIN
AIISTURBÆJARRifl
ASKQLABIO
Stella í orlofi.
★★★
Léttgeggjuð ærsl a la Islanda kl. 5, 7, 9
og 11.
Purpuraliturinn
(The color purple)
★★★
Manneskjulegur og hrífandi Spielberg
kl. 5 og 9 fyrir 12 ára og eldri.
Mad Max III
★★
Tina Turner fáklædd. Endursýnd kl.
5, 7, 9 og 11 fyrir 16 og eldri.
Barnasýning
Kl. 3 á sunnudag.
bMh6uI|
Léttlyndar löggur
(Running scared)
Ný
Önnur jólamyndin, grínlöggumynd
með Gregory Hines undir leikstjóm
Reter Hames. Kl. 5, 7, 9 og 11.
Aliens
★★★★
Splunkuný og spennandi spenna kl. 5,
og 9 fyrir 16 ára og eldri.
Stórvandræði í Litlu Kína
(Big trouble in Little China)
★★
Uppátækjasamt sprell og hrekkir kl. 5,
7, 9 og 11. Bönnuð innan 12.
f svaka klemmu
(Ruthless people)
★★
Sjúklegur ærslaleikur kl. 7, 9 og 11.
Mona Lisa
★★★
Elskuleg mynd, hörku drama og leikur.
Kl. 5, 7, 9 og 11 fyrir 16 ára og eldri.
Lögregluskólinn 3: Aftur í þjálfun
(The Fblice Academy: Run for Cover)
★★
Ágætis ærsl af framhaldi að vera. Kl. 5.
Barnasýningar
kl. 3 laugardaga og sunnudaga. Fjöl-
breytt úrval.
BÍÓHÚSIÐ
Taktu það rólega
(Take it easy)
★
Stuðmynd um unglinga sem... kl. 5, 7,
9 og 11.
Aftur í skóla
(Back to School)
★★
Dillandi grín og hraði kl. 5.10, 7.10 og
9.10.
LAUGARÁS
B I O
Dópstríðið
(Quiet cool)
★
Mynd um græðgi fíkniefnaframleið-
enda og seljenda. Stranglega bönnuð
innan 16. Kl. 5, 7, 9 og 11.
Frelsi
(Sweet liberty)
★★
Notalega létt kvöldstund Alan Aldas kl.
5, 7, 9 og 11.
Psycho III
★★★
Mögnuð mynd milli skinns og hörunds
kl. 5, 7, 9 og 11 fyrir 16 og eldri.
IREGNBOGINN
Draugaleg brúðkaupsferð
(Haunted Honeymoon)
★
Léttruglaður gríntryllir að hætti Gene
Wilder kl. 3.05, 5.05, 9.15 og 11.15.
Guðfaðirinn
(Godfather)
★★★★
Hinn eini og sanni guðfaðir Brandos og
Racinos endursýndur kl. 3, 6 og 9 fyrir
16 ára og eldri.
ÁBENDING!
Alltaf gaman að sjá löggur klúðra um
leið og þær klikka ekki og þvf bendum
við óséð á nýju „jólamyndina" í B(ó-
höllinni Léttlyndar löggur. Þær (þeir)
sem fá þægileg svimaköst fyrir framan
sjónvarpið þegar Selleck leikur Magn-
um geta brugðið sér í augnaveislu í
Regnboganum að sjá Svaðilför til Kína
— og er þá ekkert sagt um myndina
sjálfa. En áfram bendum við á
þungaviktina: Guðfaðirinn og Aliens fá
4 stykki stjörnur, auk þess sem er að
finna 8 myndir sem fá þrjár stjörnur og
teljast þá ekki framúrskarandi — en
mjög góðar þó. Nýjar myndir í þessum
flokki eru San Lorenzo nóttin og Mað-
urinn frá Majorka.
Maðurinn frá Majorka
(The man from Mallorca)
★★★
Sænsk spennulöggumynd kl. 3,5 og 7
fyrir 12 og eldri.
Svaöilför til Klna
Endursýnd ævintýramynd með
Magnum.
Kl. 3.15, 5.15 og 11.15.
Hold og blóð
(Flesh and Blood)
★★★
Ruddamennska frá miðöldum kl. 3,
5.20, 9 og 11.15.
I skjóli nætur
(Midt om natten)
★★★
Notalegur danskur millitryllir kl. 5 og 9
fyrir 16 ára og eldri.
Þeir bestu
(Top Gun)
★★★
Strípur og stjörnur, mökkur af militar-
isma kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15.
Mánudagsmyndin
San Lorenzo nóttin
★★★
Mynd Raolos og Vittorios Tavianis sem
hlaut sérstök verðlaun á Cannes 1982.
Barátta þorpsbúa á Itallu við Þjóðverja
1944. Mánudagsmyndir eru sýndar alla
daga!
Það gerðist I gær
(About Last Night)
★★
Hjartaknúserinn Rob Lowe kl. 5,7, 9 og
11.10.
[ úlfahjörð
(Les Loups entre eux)
★★
Athyglisverður ævintýratryllir kl. 7 og
11.10 fyrir 16 og eldri.
Með dauðann á hælunum
(8 million ways to die)
Spennandi tryllir með Jeff Bridges kl. 5
og 9.
TfBtflfttfi
TÓNABlÓ
Guðfaðir F.B.I.
(J. Edgar Hoover)
Ný
Spennukryddaður ævintýratryllir um
hinn umdeilda Hoover, sem túlkaður er
af Broderick Crawford kl. 5, 7 og 9 fyrir
16 ára og eldri.
★ ★ ★ ★ framúrskarandi
★ ★ ★ mjög góð
★ ★ miðlungs
★ þolanleg
O mjög vond
MYNDBAND VIKUNNAR
Letter to Brezhnev.
★★★
Árgerd 1985.
Framleidandi: Janet Goddard.
Leikstjórn: Chris Clarke.
Adalhlutverk: Peter Firth, Alfred
Molina, Alexandra Pigg, Tracey
Lea, Margi Clarke, Angela
Clarke o.fl.
Rússneskt vöruflutningaskip
siglir í hægðum sínum inn til Liv-
erpoolhafnar. Á dekki standa fé-
lagarnir Pjotr og Sergei, sem eiga
fyrir höndum 24 tíma landvistar-
leyfi í hinum „frjálsborna” heimi
vestan járntjalds. Sergei í fyrsta
sinn, Pétur er öllu sigldari. í einu af
hvunndagslegri úthverfum hafn-
arborgarinnar búa vinkonurnar
Elaine og Teresa sig undir vikulegt
kráarrölt sitt. Elaine atvinnulaus,
Teresa óbreytt verkakona í einni
af verksmiðjum borgarinnar.
Þessir einstaklingar eyða einni
kvöldstund... og nótt saman.
Þegar að því kemur að þeir félagar
þurfa að hverfa aftur austurfyrir
járntjald er svo komið málum, að
Pétur og Elaine eru orðin svo ófor-
betranlega ástfangin hvort af
öðru, að til stórra vandræða horfir.
Stórkostlega skilmerk, en þó
einkar hugljúf dæmisaga um for-
kastanlegan hroka og eðlislægan
fáránleik samskiptatengsla aust-
urs og vesturs. Ein af ágætari perl-
um ensku nýbylgjunnar, sem á
liðnum árum hefur lyft breskri
kvikmyndahefð til þess vegs og
þeirrar virðingar, er hún í eina tíð
naut í augum heimsins. -Ó.A.
HELGARPÓSTURINN 35