Helgarpósturinn - 27.11.1986, Blaðsíða 47
FRÉTTAPÓSTUR
Samningaviðræður á fulla ferð
Alþýðusambandið, Vinnuveitendasambandið og Vinnu-
málasamband samvinnufélaganna hafa sett samningavið-
ræður í fjórða gír eftir að formannaráðstefnu ASÍ lauk um
helgina. í samningaviðræðunum hefur ASÍ samþykkt að
fresta ákvörðun um greiðslu launabóta til mánaðamóta, en
samkvæmt ákvæðum febrúarsamningsins skyldu laun
hækka um tæþ 5% í desember en ekki umsamin 2%, þar eð
framfærsluvísitalan fór yfir „rauða strikið". Hjá ASÍ hefur
mikil áhersla verið lögð á verulega hækkun lægstu launa og
er mögulegt að í stað þess að laun hækki um 5% yfir línuna
verði þeirn „gæðum“ misskipt. Ef vel tekst til og fögur orð
fást hjá rikisvaldinu um aðgerðir í skattamálum og fleiri
málum telja samningamenn að vel komi til greina að semja
fyrir 1. desember og það til eins árs. Ekki er ljóst við hvaða
„lægstu laun“ er miðað, en á formannaráðstefnu ASÍ var tal-
að um 32—36 þúsund króna lágmarkslaun á mánuði.
Árangurslaus leit að 2 sjómönnum
Tveggja manna er saknað eftir að trillan Arnar ÍS-25
strandaði um 10 kílómetra austan Grindavíkur. Trillan, 9
tonna, strandaði um kl. 14 á sunnudag og fundu tvær
rjúpnaskyttur flakið og björgunargúmbátur fannst
skammt frá, en neyðarsendir hans var óhreyfður. Fjöldi
manns hefur síðustu daga leitað að mönnunum tveimur, en
án árangurs. Sjómennirnir heita Jón Eðvaldsson, 53 ára,
búsettur i Sandgerði og Jóhannes Pálsson, 34, sömuleiðis
búsettur í Sandgerði. Báðir kvæntir með 3 börn.
Deilt um fréttatima ríkisrásar
Síðustu daga hafa Ingvi Hrafn Jónsson, fréttastjóri ríkis-
sjónvarpsins og Inga Jóna Þórðardóttir, formaður útvarps-
ráðs, deilt harkalega um hvenær fréttir skuli vera í sjón-
varpinu. Eftir sérstaka skoðanakönnun tók útvarpsráð þá
ákvörðun að færa fréttirnar aftur til kl. 20 eftir að hafa áður
fært þær til 19.30. Ingvi Hrafn hefur lýst því yfir að þessi
ákvörðun komi fréttastofunni mjög illa í samkeppninni við
Stöð 2 og gefið í skyn að í útvarpsráði vildu ráðandi öfl
styrkja þá stöð á kostnað ríkissjónvarpsins. Inga Jóna
bendir aftur á móti á niðurstöður úr könnun Félagsvisinda-
stofnunar þar sem yfirgnæfandi meirihluti aðspurðra vildi
hafa fréttirnar kl. 20 eða jafnvel síðar.
Lánskjaravísitalan of há?
Embættismenn í kerfinu eru ósammála um túlkun á
ákvörðun ríkisstjórnarinnar í ágúst 1983 um takmarkaða
hækkun lánskjaravisitölunnar í september það ár. Þá var
ákveðið að lánskjaravísitala fyrir september skyldi hækka
um 5,1% en ekki um 8,1% eins og mælingar gerðu ráð fyrir.
Fram hefur komið það álit manna í Seðlabankanum að ótví-
rætt hafi þessi lækkun átt að gilda áfram. Því væri láns-
kjaravísitalan nú enn þessum 3 % of há og fjölmargir lántak-
endur því mögulega með kröfurétt á ríkisvaldið — upphæð-
irnar gætu numið hundruðum milljóna króna. Félagsmála-
ráðherra, forstjóri Húsnæðisstofnunar og fleiri eru þessu
ósammála og segja hina takmörkuðu hækkun aðeins hafa
átt við þennan eina mánuð. Miðað við þetta kom þessi
ákvörðun aðeins einum aðila til góða, byggingarsamvinnu-
félagi sem var með 20 íbúða fjölbýlishús í smíðum.
Jón og Svavar deildu hart
Á þriðjudagskveldi mættust Jón Baldvin Hannibalsson,
formaður Alþýðuflokksins og Svavar Gestsson, formaður
Alþýðubandalagsins í þættinum „í návígi" á Stöð 2. Fyrir lá
bónorð Alþýðubandalagsins um „jafnaðarmannastjórn"
þessara flokka ásamt Kvennalista og efasemdir Jóns Bald-
vins um slika stjórn — en Jón er sagður vilja viðreisnar-
stjórn umfram allt, en hefur ekki útilokað nýsköpunar-
stjórn þessara flokka og Sjálfstæðisflokks. Umræðurnar í
þættinum leystust upp i vandað karp og stóðu báðir menn sig
vel við að senda hvor öðrum tóninn. Umræðurnar einkennd-
ust fremur af kosningabaráttuskjálfta en öðru og fátt nýtt
kom fram.
Af framboðsraunum
Páll Pétursson sigraði í prófkjöri framsóknarmanna á
Norðurlandi vestra um helgina og stóðst því ásókn Stefáns
Guðmundssonar, en eftir á hafa þeir deilt um aðferðir hvors
annars. Steingrímur Hermannsson hlaut rússneska kosn-
ingu framsóknarmanna í Reykjaneskjördæmi, en Jóhann
Einvarðsson hreppti annað sæti. Eiður Guðnason varð efst-
ur krata á Vesturlandi, en í harðri baráttu um annað sætið
sigraði Sveinn G. Hálfdánarson. í sama kjördæmi vann
Skúli Alexandersson yfirburðasigur i forvali Alþýðubanda-
lags, en í öðru sæti lenti Gunnlaugur Haraldsson.
Fréttapunktar
• Fram hefur komið að á áratugnum 1974—1984 þróaðist
lækna- og lyf jakostnaður á þann hátt, að læknakostnaður á
mann hefur dregist saman um fjórðung en lyfjakostnaður
tvöfaldast á föstu verði.
• Nýjustu Aids-tölur eru á þá leið að fundist hafa 29 smitað-
ir, þar af 4 með Aids á lokastigi og 10 með forstigseinkenni.
• Olafur veitingamaður Laufdal hefur fest kaup á veitinga-
staðnum Sjallanum á Akureyri, en skömmu áður hafði
hann afneitað þeim möguleika.
• Ef virðisaukaskattur verður tekinn upp er talið að mat-
vörur hækki um 10,5% að meðaltali, en framfærslukostn-
aður hækki þó ,,aðeins“ um 1,2% vegna lækkunar ýmissa
liða.
• í Hafnarfirði hefur verið stofnað hlutafélag um fiskmark-
að sem á að opna í febrúar og sömuleiðis stendur fyrir dyr-
um stofnun slíks félags í Reykjavík.
• Eftir talsverðar viðræður forráðamanna viðkomandi fyr-
irtækja hefur verið tekin sú ákvörðun að Skeljungur muni
ekki kaupa eða sameinast Olís.
• Þorgeir Ástvaldsson hættir sem forstöðumaður Rásar tvö
í febrúar þegar skipulagsbreytingar taka gildi og embættið
verður lagt niður.
NQATUN
Nógar vörur í Nóatúni
Sœnsk Jólaskinka
690.- kr. kg.
Kalkúnar og Villigœsir
Kjúklingar
195.- pr. kg.
Reyksodid lambalœri beinlaust
475.- pr. kg.
Nýir Svínabógar í 1/1 hringskornir
(ókeypis úrbeining)
298, pr. kg.
Ný Svínalœri i 1/1 og 1/2
(ókeypis úrbeining)
298, pr. kg.
Nýjar Svínakótilettur
555, pr. kg.
Hangikjöt frá KEA og SÍS
Villikryddaö Lambakjöt
Opið mán-fimm. 9—18.30
Opið fös. 9—19.30
Opið lau. 10—16.00
Nóatúni 17 sími 17261
Rofabæ 39 sími 671200
HELGARPÖSTURINN 47