Helgarpósturinn - 02.04.1987, Page 17
Þ
að vantaði ekki lætin þegar
hinn nýi Borgaraflokkur var að
safna álitlegum frambjóðendum á
lista sína undir lok síðustu viku.
Þannig greina heimildir okkar frá
því að sl. föstudagsmorgun hafi Al-
bertsmenn haft samband við Guð-
mund H. Lárusson á Akureyri og
boðið honum efsta sæti listans í
Norðurlandskjördæmi eystra. Guð-
mundur mun hafa hlegið dátt og
gantast með tilboð þetta eins og
hvern annan brandara. Um miðjan
dag var þessu hreyft í útvarpsfrétt-
um og þegar Guðmundur var inntur
eftir þessu brosti hann — en hló
ekki. Um kvöldið var hann síðan
orðinn geirnegldur í fyrsta sætið og
gengur nú um með þingmann í
maganum. Má með sanni segja að
enginn viti að morgni hvað dagur-
inn hefur í för með sér...
Þ
etta gerðist allt mjög skyndi-
lega hjá Borgaraflokknum. Heim-
ildir HP greina þannig frá því að AI-
bert Guðmundsson hafi verið
einn allra fyrsti kúnninn hjá nýopn-
aðri auglýsingastofu Magnúsar
Ólafssonar (yngri kynslóðin þekk-
ir hann sem Bjössa bollu), sem aug-
lýsir einmitt „skyndiauglýsinga-
þjónustu" á spottprís, Magnús enda
ekki bundinn samningum Sam-
bands íslenskra auglýsinga-
stofa. Ekki einasta munu Alberts-
menn hafa falast eftir límmiðum og
öðrum áróðursbrögðum í skyndi,
heldur í leiðinni boðið Magnúsi
5.-7. sæti á lista flokksins í Reykja-
nesi, sennilega þó ekki öll sætin þrjú
þó hann sé gildur vel! Magnús af-
þakkaði sætin, en viðskiptin fékk
hann...
Þarftu
ráö?
HÖFUÐBORGIN
í 2. sæti er Finnur Ingólfsson,
viðskiptafræðingur og
aðstoðarmaður sjávar-
egsráðherra. Finnur hefur bæði verið formaður stúdentaráðs
Félagsstofnunar stúdenta. Einarður stuðningur hans við
asjóð námsmanna er landsþekktur og skipulagningin á
rkmenntun fiskiðjufólks er til fyrirmyndar.
Efsta sæti listans skipar Guðmundur G. Þórarinsson,
verkfræðingur. í borgarstjórn og á Alþingi hefur hann eink
beitt sér fyrir nýsköpun í atvinnulífi og alþjóðasamstarfi,
frumkvæði íslendinga að afvopnun á N-Atlantshafi.
Halla Eiríksdóttir,
hjúkrunarfræðingur
er í 4. sæti. Sérgrein
ennar er barnahjúkrun. Auk starfa á Landakoti kennir
Fóstruskólann. Heilbrigðismál eru efst á baugi hjá
i. Hún vill bæta þjónustu heilbrigðiskerfisins með því
nýta ráðstöfunarfé betur.
SIGRIÐUR sa
og kennari við Háskólann. Hún leggur mikla áherslu á
umhverfisvernd og auk þess eru henni öryggis-, varnar-
og menntamál ofarlega í huga. Sigríður skipar 3. sætið.
SIGFUS
5. sætið skipar
Sigfús Ægir Árnason,
verkfræðingur og
framkvæmdastjóri TBR. íþróttir og æskulýðsstörf eru
mál, jafnt í starfi og leik. Hann hefur beitt sér fyrir
markvissri uppbyggingu íþróttamannvirkja, einkum
er þjóna almenningi.
TV T T\ T Anna Margrét Valgeirsdóttir
/ \ I VI I VI / \ í 6. sætinu lauk stúdentsprófi
JLjLJL 1 JL 1JL V í desember sl. og er nú starfsmaður
félagsmiðstöðvarinnar Frostaskjóls. Hún er í stjórn FUF1
Reykjavík og hefur tekið þátt í Norðurlandasamstarfi á vegum
ungra framsóknarmanna. Hún er mjög virk í flokksstarfinu og
sinnir sérstaklega málefnum launþega og unga fólksins.
VIÐ KYNNUM
6 EFSTU MENN
í REYKJAVÍK
FRAMSOKNAR
FLOKKURINN Dll
HELGARPÓSTURINN 17