Helgarpósturinn - 02.04.1987, Qupperneq 26
Bæjarþing Ólafsvíkur tekur undir með Helgarpóstinum:
Innheimtulaunin eru ólögleg
Ályktun dómarans samhljóða skrifum Helgarpóstsins um ólöglega inn-
heimtuþóknun af afnotagjöldum Ríkisútvarpsins
/ desember sídastlidnum birti
Helgarpósturinn grein undir fyrir-
sögninni: 14—18 milljónir I inn-
heimtulaun sem dómstólarnir
hafna. Par var fjallad um innheimtu-
adferdir sem Theódór Georgsson,
innheimtustjóri Ríkisútvarpsins hef-
ur innleitt hjá stofnuninni. I grein-
inni voru rök fœrd fyrir því ad þess-
ar adferdir strída gegn lögum. En
med þeim er skuldurum Ríkisút-
varpsins gert ad greida völdum lög-
mönnum offjár ár hvert.
Á hverju ári felur Theódór 5—6
völdum lögmönnum innheimtu á
þeim 6% af afnotagjöldum Ríkisút-
varpsins sem eru í vanskilum um
áramót. Þessir lögmenn innheimta
síðan afnotagjöldin eins og um
venjulegar skuldakröfur væri að
ræða. Þegar skuldarar gera upp sín-
ar skuldir við Ríkisútvarpið hjá lög-
mönnunum er þeim gert að greiða
innheimtuþóknun, samkvæmt
gjaldskrá Lögmannafélags íslands,
til lögmannsins, auk höfuðstóls,
vaxta og 10% vanskilaálags sem
rennur til Ríkisútvarpsins. I grein
sinni frá í desember áætlaði Helgar-
pósturinn tekjur lögmannanna sex
af þessu á bilinu 14—18 milljónir ár
hvert.
En samkvæmt lögum fylgir af-
notagjöldunum lögveðs- og lögtaks-
réttur og því ber að innheimta þau
eins og aðrar slíkar kröfur. Ef Inn-
heimtudeild Ríkisútvarpsins færi að
lögum í þessu máli ætti að senda
vangoldin afnotagjöld til innheimtu
hjá bæjarfógeta. Sú leið er bæði
fljótvirkari fyrir Ríkisútvarpið og
kostnaðarminni fyrir skuldarann.
Hins vegar missa lögmennirnir við
það spón úr aski sínum.
Viðbrögð lögmanna við þessari
grein Helgarpóstsins voru einkum á
þá lund að benda á að þessi inn-
heimtuaðferð hefði viðgengist í
nokkur ár án þess að amast væri við
henni. En praxis þarf ekki að vera
réttur þó viðgengist hafi.
Þann 19. mars síðastliðinn gekk
dómur í máli Verkalýdsfélagsins
Jökuls gegn Hradfrystihúsi Olafs-
víkur fyrir bœjarþinginu í Ólafsvík.
Mál þetta snerist að hluta til um inn-
heimtuþóknun Arnmundar Back-
mans af kröfu sem fylgdi lögtaks-
réttur. í ályktun Jóns S. Magnússon-
ar, dómara, segir um það atriði:
„Kröfur, sem lögtaksrétt hafa, eru
aðfararhæfar beint. Lögtaksréttur
er veittur vissum kröfum, m.a. til
þess að auðvelda innheimtu þeirra,
og jafnframt til þess að halda kostn-
aði við innheimtuna í lágmarki.
Lögtaksréttur er því settur báðum
aðilum til hagsbóta. Með því að
veita kröfum lögtaksrétt er beinlínis
ætlast til þess, að kröfuhafi snúi sér
beint til fógeta með beiðni um lög-
tak. Fógeti framkvæmir síðan lög-
takið og þarf ekki frekari atbeina
kröfuhafa til. Vilji hins vegar kröfu-
hafi hafa annan hátt á, t.d. fela lög-
manni innheimtuna, er honum það
að sjálfsögðu frjálst, en ekki verður
talið að kostnað við það sé heimilt
að leggja á skuldara, heldur verði
kröfuhafi að bera þann kostnað
sjálfur, þar sem honum var í lófa lag-
ið að biðja beint um lögtak, sem þá
hefði engan aukakostnað haft í för
með sér.“
Niðurstöður dómsins urðu þær að
kröfu Verkalýðsfélagsins Jökuls um
greiðslu innheimtuþóknunar á
hendur Hraðfrystihúss Ólafsvíkur,
var alfarið hafnað.
Þessi rökleiðsla Jóns er nánast
samhljóða grein Helgarpóstsins frá í
desember og mætti jafnvel ætla að
hann hafi frekar stuðst við blaðið en
dómheimildir. Svo er þó ekki, því
hœstaréttardómur frá 1954 um svip-
að mál er nánast samhljóða dómi
Jóns.
Með þessum dómi hafa rök Helg-
arpóstsins fengið viðurkenningu
fyrir dómstólum. Þeir skuldarar Rík-
isútvarpsins sem greitt hafa lög-
mönnum innheimtuþóknun af af-
notagjöldum ættu því að hafa hald-
bær rök í höndunum til þess að
krefjast endurgreiðslu á þeim. gse
Ef máliö
snýst um
EYÐNI
þá hringiröu í
91-62 22 80
GEGN EYÐNI
BÍLALEIGA
Útibú í hringum landið
REYKJAVÍK:.91-31815/686915
AKUREYRI:........... 96-21715/23515
BORGARNES: BLÖNDUÓS: 93-7618 ...95-4350/4568 .
SAUÐÁRKRÓKUR: .... SIGLUFJÖRÐUR: ...95-5913/5969 96-71489
HÚSAVÍK: 96-41940/41594
EGILSSTAÐIR: VOPNAFJÖRÐUR: FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR HÖFN HORNAFIRÐI: . 97-1550 ... 97-3145/3121 : . 97-5366/5166 97-8303
interRent
Boröapantanir
í síma 11340.
Þaðerdýrt
rafmagnið sem þú dregur að borga
Rafmagn er svo snar þáttur
í lífi okkar að við veitum því
varla athygli. Flest heimilistæki
og vélar á vinnustað ganga
fyrir rafmagni og við erum svo
háð þeim að óbeint göngum
við sjálf fyrir rafmagni.
Þessu ,,sjálfsagða“ raf-
magni er dreift til okkar af
rafmagnsveitu. Rafmagnsveita
Reykjavíkur leggur metnað
sinn í stöðuga og hnökralausa
dreifingu til neytenda. Dreif-
ingarkostnaður greiðist af
orkugjaldi.
Ógreiddir reikningar hlaða
á sig háum vaxtakostnaði sem
veldur því að rafmagnið er nær
þriðjungi dýrara hjá þeim
skuldseigustu — þar til þeir
hætta að fá rafmagn.
Láttu orkureikninginn hafa
forgang!
RAEMAGNSVEITA
REYKJAVIKUR
SUÐURLANDSBRAUT 34 SÍMI686222
26 HELGARPÓSTURINN