Helgarpósturinn - 02.04.1987, Side 33
D
U^Forgarfulltrúar minnihluta-
flokkanna í Reykjavík hafa gefið út
sameiginlegt blað „Við í Reykja-
vík“. Það eru þau Bjarni Þ. Magn-
ússon, Sigrún Magnúsdóttir,
Kristín Olafsdóttir, Guðrún
Ágústsdóttir, Össur Skarphéð-
insson og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, sem standa að þessu
Haföu
smokk
viö
hendina
Hann gœti
reddad þér
H»
GEGN EYÐNI
framtaki í framhaldi af samstarfi
þessara flokka við gerð fjárhags-
áætlunar borgarinnar. Athygli vek-
ur, að Bjarni P. Magnússon keyrir
stíft á annarri línu í borgarmálum en
Jón Baldvin Hannibalsson í
landsmálum, þar sem Alþýðuflokk-
urinn í borginni vill samstarf við
vinstri flokkana, „lýðræðishluta
borgarstjórnar" eins og borgarfull-
trúarnir kalla það, en formaður
kratanna hefur lagt höfuðáherslu á
samstarf við Sjálfstæðisflokkinn. í
blaðinu segir Össur, að hann ætli að
vinna að því að þessir flokkar og
listar bjóði fram sameiginlegan lista
við næstu borgarstjórnarkosning-
ar.. .
A__,
verðir í Hollywood og Evrópu og
ef til vill fleiri veitingastöðum eftir
því að hópur ungra stúlkna var tek-
inn að stunda staðina. Hinir glöggu
menn sáu strax að stúlkurnar gátu
vart verið eldri en 15—16 ára gaml-
ar, en á hinn bóginn höfðu þær und-
ir höndum að því er virtist fullkom-
lega gallalaus og gild ökuskírteini,
þar sem aldurinn hljóðaði upp á yfir
tvítugt. Það kom hins vegar að því
að dyraverðirnir fóru að heyra hinar
ótrúlegustu sögur og þegar gengið
var í að upplýsa málið kom ýmislegt
fróðlegt í ljós. Stúlkurnar, 15—16 ára
og flestar nemendur í 9. bekk Lang-
holtsskóla, höfðu keypt skírteinin
á 1000—3000 krónur af skólabróður
sínum, 15 ára dreng í 8. bekk. Er tal-
ið að á milli 30 og 40 fölsuð ökuskír-
teini hans hafi komist í umferð. Öll
hin fölsuðu skírteini voru upprunn-
in úr fógetaskrifstofunum í Kópa-
vogi, þau höfðu stimpil réttra yfir-
valda, vélritun var lýtalaus, en á
hinn bóginn voru undirskriftir fals-
aðar. Rannsóknarlögregla ríkisins
var sett í málið samkvæmt heimild-
um HP, en þar var engar upplýsing-
ar um málið að fá. En samkvæmt
heimildum HP var málið látið falla
niður vegna ungs aldurs falsar-
ans...
Opnun sérstaklega fyrir
leikhúsgesti kl. 18.00.
Boröpantanir \ síma 11340.
„ Fermingargjöfin
sem
hefur
vaxið
með
mér##
„Nú eru sex ár frá því ég
fermdist og það er ekki hægt að
segja annað en að spariskírteinið
sem ég fékk í fermingargjöf hafi
notað tímann vel.“
Verðir þú svo heppin(n) að fá
spariskírteini ríkissjóðs í
fermingargjöf er bjart framundan
hjá þér, því spariskírteinið vex
með þér og veitir þér fjárhags-
legan stuðning þegar fram líða
stundir. Kostirnir eru augljósir:
Þú átt örugga peninga, sem vaxa
ört og þú getur gripið til þeirra
þegar þér hentar. Spariskírteini
ríkissjóðs bera 6,5% ársvexti,
eru verðtryggð að fullu og öryggi
þeirra er ótvírætt. Spariskírteini
er sannarlega arðbær framtíðar-
gjöf, sem kemur eigandanum
alltaf að góðum notum.
Spariskírteini ríkissjóðs fást í
fallegum gjafamöppum á öllum
hefðbundnum sölustöðum.
RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS
HELGARPÓSTURINNv^
GOTT FÚLK / SÍA