Helgarpósturinn - 02.04.1987, Side 36

Helgarpósturinn - 02.04.1987, Side 36
,, MEIRI HLÝJA HÉR EN í VALHÖLL* ‘ „HANN“ dregur aö sér, en þaö er margt annaö, sem skýrir ótrúlega mikiö tylgi Borgaraflokksins Tilkoma Borgaraflokksins á ör- fáum sólarhringum, flokks sem sýn- ir yfir 20% fylgi á Reykjavíkursvœd- inu i skoöanakönnun nokkrum dög- um eftir að hann hefur veriö settur á laggirnar, hefur fœrt pólitísku flokkaskipanina í landinu úr skorö- um — í bili a.m.k. Sjálfstœöisflokk- urinn og allir hinir gömlu flokkarnir hafa reynt aö gera sem minnst úr þessum nýja samkeppnisaöilja. „Tilfinningabylgja sem fjarar út fyrir kosningarnar" „partur afSjálf- stœöisflokknum, sem skríöur sam- an viö hitt íhaldiö, strax eftir kosn- ingarnar“ „enn einn smáflokkur- inn" „enn einn hœgri flokkurinn" „enn einn smáflokkurinn til viöbót- ar yiö vinstri smáflokkana"?! Á þessa lund hljóðuðu yfirlýsing- ar flokksleiðtoga gömlu flokkanna stæðishugsjóninni", og þar með opnaði hún fyrir túlkun um að Borg- araflokkurinn væri angi af Sjálf- stæðisflokki. Það virtist hins vegar ekki koma að sök, því aðrir urðu til að túlka hann öðru vísi, og brátt fór stefnuskrárvinna í gang. Þegar Júlíus Sólnes las upp stefnu- skrána á sunnudaginn mátti glöggt flokkinn sem er amk. nú, í kringum hann einan. Af viðtölum við fólk í Borgaraflokknum má þvert á móti draga ályktanir um að margvíslegir straumar liggi þarna saman og fái útrás. Auðvitað er mest talað um „HANN“, og t.d. sagt, að ,,þó þeir finni helmingi meiri skít á Albert en þegar er fram komið, þá styrkir það okkur bara“. Þarna er viss píslar- inn af götunni", „hér rúmast öll trú- félög“. Þessi sýnishorn af ummælum fólks í Borgaraflokknum gefa ef til vill vísbendingu um þá strauma sem nú fara saman í framboð. Eins og kunnugt er, hefur Sjálfstæðisflokk- urinn í raun verið breiðfylking að mörgu leyti ólíkra afla í stjórnmál- um. Flokkurinn hefur verið mun JIM SMART fyrstu sólarhringana. En skoðana- kannanir um sl. helgi gáfu til kynna að a.m.k. nú væri Borgaraflokkur- inn enginn smáflokkur. 1 ljós kom og að flokkurinn tók ekki einungis fylgi frá Sjálfstæðisflokknum, held- ur öllum flokkunum nema Kvenna- listanum, að því er virðist. En er flokkurinn til hægri eða vinstri við Sjálfstæðisflokkinn? Til að byrja með fór Helena Alberts- dóttir með dálítið klaufalega útlegg- ingu á stefnu flokksins í Stöð 2. Hún kvað nýja flokkinn byggðan á „sjálf- kenna ýmsar fjólur úr urtagarði allra gömlu stjórnmálaflokkanna. Og þar mátti finna angan þess „populisma", sem menn kannast við frá fornu fari frá Albert og fleiri sterkum einstaklingum sem lent hafa í upphlaupi. En einnig má segja, að stefnuskráin afmarki Borg- araflokkinn frá Sjálfstæðisflokknum í nokkrum atriðum. Margir líta á flokkinn einungis út frá persónu Alberts Guömundsson- ar, en því fer fjarri að hægt sé að einskorða þá hreyfingu um Borgara- vættistónn, sem einnig hefur þýð- ingu í pólitík. En borgaraflokks- menn tala um fleiri atriði: „Frjálshyggjan er búin að kála Sjálfstæðisflokknum", „við mótmæl- um flokksræði í öllum flokkunum", „það er niðurbæld óánægja í öllum flokkunum — hún brýst hér fram", „það er alls staðar kuldi og þröng- sýni — hér er umburðarlyndi", „það er búið að lemja á okkur — nú fáum við uppreisn", „hér er miklu meiri hlýja en í Valhöll", „við erum maður- stærri en hægri flokkar nágranna- landanna og með ólíkindum að hann hafi ekki klofnað fyrr. Oft hef- ur legið við borð, en þrátt fyrir gífur- legt sundurlyndi, jafnvel hatur, svo sem í garð Gunnars Thoroddsen og hans manna fyrir örfáum árum, þá hefur flokkurinn ekki klofnað. Þess vegna eru margir þeirrar skoðunar að Sjálfstæðisflokkurinn geti ekki klofnað til langframa — og að Borg- araflokkurinn eigi eftir að skríða til Sjálfstæðisflokksins síðar. Þeir sem eru þessarar skoðunar benda á að ráðherrar úr ríkisstjórn Gunnars heitins, þeir Pálmi Jónsson og Friö- jón Þóröarson leiði enn lista Sjálf- stæðisflokksins í sínum kjördæm- um. Og bent er á að aðalstuðnings- maður ríkisstjórnar dr. Gunnars, Eggert Haukdal, sitji hið næsta for- manni Sjálfstæðisflokksins á lista. Slíkur flokkur geti ekki klofnað til langframa. Hitt sjónarmiðið er að hin ólíku sjónarmið séu með brotthvarfi Al- berts úr Sjálfstæðisflokknum ósætt- anleg — og nú sé komið að þeirri ögurstundu í sögu Sjálfstæðisflokks og flokkakerfisins á Isiandi, að nýr hægri flokkur sé í uppsiglingu. En nú gæti annað og meira verið á ferðinni heldur en einfalt klofn- ingsframboð. Hér er kominn fram Iisti flokks með sjálfstæða stefnu- skrá, andstæða frjálshyggjunni, með áherslu á „mildi, borgaralegt umburðarlyndi, gegn frjálshyggju og flokksforræði", jafnvel bryddað á annarri utanríkisstefnu en Sjálf- stæðisflokkurinn hefur fylgt, svo sem gagnrýni Alberts á flokksfor- ystuna í viðtali við sunnudagsblað Þjóðviljans um sl. helgi ber vott um. Og þeir sem eru þeirrar skoðunar, að Borgaraflokkurinn sé kominn til þess að vera, segja að ýmis öfl sem nú standi að Borgaraflokknum eigi ekkert erindi til Sjálfstæðisflokks- ins. Albert hefur tekið þann kost að beina máli sínu til miðjunnar, um- burðarlyndis og lýðræðis. í Borgara- fiokknum eru til þverpólitískir straumar, andfrjálshyggja, andfor- ræðissinnað fólk, nýir hópar í póli- tísku starfi, fólk úr smábisness, launamenn og fólk úr trúfélögum. Reyndar er sérstök ástæða til að benda á hversu þýðingarmiklir í pólitík hópar um trúarlíf geta orðið. Auðvitað hefur það einnig sitt að segja, þegar leiðtogar launafólks eins og Aöalheiöur Bjarnfreösdóttir bindast slíkum nýjum flokki. Einnig var greinarhöfundi bent á að fjöldi fólks sem farið hefði illa út úr Haf- skips- og Útvegsbankamálum fyndi til vissrar uppreisnar í gegnum þetta framboð og starfaði þar ötullega. Nú þegar hafa yfir 2000 manns látið skrá sig hjá Borgaraflokknum. Ólíkt öðrum framboðum sem koma fram í skyndingu hefur þetta fram- boð úr nokkrum peningum að spila og það er á þeim völlur: t.d. hafa þegar verið tengdar um 15 símalín- ur við nýju kosningamiðstöðina í Skeifunni. Borgaraflokkurinn hefur þegar dustað rykið af gömlum spjaldskrám, úr prófkjörum, forseta- framboði og af nógu að taka. Lýð- skrum um stundarsakir eða frjáls- lyndur borgaraflokkur til frambúð- ar? STÖRKOSTLEGT ÚRVAL PLAKÖT OG MYNDIR RAMMA MIÐSTOÐIN SIGTÚN 20. 105 REYKJAVÍK. SÍMI 25054. 36 HEIjGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.