Helgarpósturinn - 15.04.1987, Síða 12
SKOÐANAKÖNNUN HELGARPOSTSINSl
SÍFURLE6 6ER1UN
06ÓVISSA
Yfir helmingur aöspuröra gefur ekki upp afstöðu sína til flokkanna.
Kvennalistinn og Framsókn í mikilli sókn. Steingrímur að ná öðrum
manni inn með sér í Reykjanesi. Pjóðarflokkurinn kœmi manni á þing.
Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag ogBorgaraflokkur með storminn í fang-
ið. Sjálfstæðisflokkur réttir úr kútnum.
Gífurleg óvissa ríkir nú í stjórn-
málunum ef miöaö er vid skoöana-
könnun Skáís sem framkvœmd var
um sl. helgi. Yfir 50% þeirra sem
nádist í kvádust vera óákveðnir,
œtla að skila auðu eða vildu ekki
svara spurningunni um hvaða
flokkuryrði fyrir valinu efkosið yrði
á morgun. Efeinungis er miðað við
þá sem tóku afstöðu til flokka, er
greinilegt að Kvennalistinn og
Framsóknarflokkurinn eru í mikilli
sókn, sérstaklega í Reykjavík og á
Reykjanesi.
Gerjunin er ofboðsleg eftir þeim
skoðanakönnunum að dæma sem
framkvæmdar hafa verið að undan-
förnu og óvissan æ meiri. Nú er þess
vel að gæta, að skoðanakannanir
eru ekki annað en kannanir, en í
umfjöllun að undanförnu hefur
stundum borið á þeim misskilningi,
að kannanirnar væru „vísindaleg
spá“. Því er ekki að heilsa og aldrei
er nógu kappsamlega undirstrikað
að skoðanakannanir hafa margvís-
lega fyrirvara eins og hér hefur oft-
lega verið bent á.
Frá síðustu könnun HP hafa þær
breytingar helstar orðið, að Fram-
sóknarflokkur og Kvennalisti eru í
stórsókn á kostnað Alþýðuflokks og
Alþýðubandalags — og er þetta sér-
staklega áberandi í Reykjavíkur- og
Reykjaneskjördæmi. Dregið hefur
stórlega úr fylgi Borgaraflokksins
og hefur Sjálfstæðisflokkurinn að
einhverju leyti notið góðs af því.
Þrír aðiljar hafa birt niðurstöður
skoðanakannana allra síðustu daga
og eru helstu frávik þau, að Hag-
vangur mælir meira fylgi til Alþýðu-
flokks, Borgaraflokks og jafnvel
Kvennalista en Skáís og DV mæla á
þessa aðilja. Hins vegar mælir Hag-
vangur minna fylgi á Framsóknar-
flokk, Sjálfstæðisflokk og Alþýðu-
bandalag en Skáís og DV fá út úr
sinni mælingu.
Kvennalistinn er greinilega í mik-
illi sókn í Reykjavík og Reykjanesi
og fær 13,7% fylgi í Reykjavík og
13,3% í Reykjanesi. Sjálfstæðis-
TAFLA A - SKIPTING ÞINGSÆTA
Allt landið: A B D G S V Þ
8 11 20 8 8 7 1
Reykjavík:
A B U b b V
2 1+1 5+1 2 2+1 2+1
Reykjanes: A B D G S V
1 1 3+1 1 2 1+1
(Fyrir aftan +merkið er um að ræða jöfnunarsæti samkvæmt
útreikningum reiknimeistara HP með ýtrasta fyrirvara.)
Könnun Skáís skiptist í Reykjavfk, Reykjanes og svo landsbyggð
eða öll önnur kjördæmi.
GREINARGERÐ SKÁÍS
Þessi skoðanakönnun var gerð
dagana 11. og 12. apríl 1987. Valið
var handahófsúrtak 1474 síma-
númera á landinu öllti samkvæmt
tölvuskrá um símanúmer einstakl-
inga. Spurningum var beint til
þeirra sem svöruðu og voru 18 ára
eða eldri og var miðað við jafnt hlut-
fall kynja.
Úrtakið skiptist í þrjú svæði:
Reykjavík (612 númer), Reykjanes
(339 númer) og önnur kjördæmi
(523 númer).
Þeim sem svöruðu var greint frá
því að þeim væri ekki skylt að svara
og úrtakið tengdist ekki nöfnum
heldur aðeins tölvuúrtaki um síma-
númer.
Spurt var m.a.:
1. Ef kosið væri til Alþingis núna,
hvaða flokk myndir þú kjósa?
2. Kæmi til greina að kjósa ein-
hvern annan lista, — hvaða lista?
flokkurinn er aftur á uppleið í sömu
kjördæmum, sem og Framsóknar-
flokkurinn. Steingrímur Hermanns-
son er alveg öruggur í sínu þingsæti
og virðist geta náð með sér Jóhanni
Einvarðssyni, en hann skipar annað
sæti B-listans. Alþýðubandalagið er
hins vegar á niðurleið, sérstaklega í
Reykjaneskjördæmi eftir þessari
mælingu að dæma. Það kemur hins
vegar mun betur út í mælingu hjá
Skáís í Reykjavík en hjá DV á dögun-
um. Borgaraflokkurinn er aðeins að
lækka flugið, og mælist með 14,2%
í Reykjavík og 16,7% í Reykjanesi.
Alþýðuflokkurinn mælist einnig illa
í Reykjavík (12,3%) og Reykjanesi
með rúm 13%, en í öllum könnun-
um í marga mánuði hefur A-listinn í
Reykjanesi verið með yfir 20% og
stundum yfir 30% fylgi.
Nú er sérstaklega á það að benda,
að í Reykjanesi gefa einungis 120 af
255 upp afstöðu sína til flokka en
135 vilja ekki gefa neitt upp. Útkom-
an í Reykjavík byggir á afstöðu 204
en 225 einstakiingar sem náðist í
vildu ekki gefa upp afstöðu sína;
voru óákveðnir eða vildu ekki
svara.
Þegar landsbyggðin er tekin sér-
staklega saman, mælist Alþýðu-
flokkurinn með um 2% lakari út-
komu en í síðustu könnun HP, Fram-
sóknarflokkurinn bætir við sig
hvorki meira né minna en 5%. Sjálf-
stæðisflokkurinn bætir einnig við
sig um 2% frá síðustu könnun. Al-
þýðubandalagið mælist með yfir
4% lakari útkomu á landsbyggðinni
en í síðustu könnun, Kvennalistinn
bætir við sig rúmu 1%. Borgara-
flokkurinn tapar yfir 7% frá síðustu
könnun á landsbyggðinni. Framboð
Stefáns Valgeirssonar vinnur einnig
á frá síðustu könnun, en þó virðist
Þjóðarflokkurinn mælast með at-
hyglisverðari sveiflu. Þjóðarflokkur-
inn mælist nú með 7,1% á lands-
byggðinni allri. Hann býður ekki
fram í einu stærsta kjördæminu,
Suðurlandskjördæmi, og mældist
síðast með 2,7% atkvæða á lands-
byggðinni. Ef fylgið gengur eftir
þessari mælingu, þá er Þjóðarflokk-
urinn inni með amk. einn þing-
mann.
Óvissan og spennan verður æ
meiri í þessari kosningabaráttu og
ef draga má einhverjar ályktanir af
þessari skoðanakönnun, þá eru það
þær, að stjórnmálaflokkarnir eiga
erindi til hæstvirtra kjósenda, sem
tugþúsundum saman eiga eftir að
gera upp hug sinn 10 dögum fyrir
kosningar...
12 HELGARPÓSTURINN
Ef kosið væri til Alþingis núna,
hvaða flokk myndir þú kjósa?
Allt landið fjöldi % af úrtaki % af þeim sem næst í % af þeim sem tóku afstöðu
Alþýðuflokkur 67 4,5% 6,2% 12,8%
Framsóknarflokkur 86 5,8% 8,0% 16,4%
Bandalag jafnaðarmanna 1 0,1% 0,1% 0,2%
Sjálfstæðisflokkur 151 10,2% 14,0% 28,9%
Alþýðubandalag 67 4,5% 6,2% 12,8%
Kvennalisti 57 3,9% 5,3% 10,9%
Flokkur mannsins 8 0,5% 0,7% 1,5%
Borgaraflokkur 66 4,5% 6,1% 12,6%
Þjóðarflokkur 15 1,0% 1,4% 2,9%
Stefán Valgeirsson 5 0,3% 0,5% 1,0%
Öákveðnir 292 19,8% 27,2%
Kjósa ekki/skila auðu 40 2,7% 3,7%
Neita að svara 220 14,9% 20,5%
Náðist ekki í 399 27,1%
Alls 1474
Þar af náfest f 1075
Þar af tóku afstöðu 523
Reykjavlk fjöldi % af úrtaki % af þeim sem næst í % af þeim sem tóku afstöðu
Alþýðuflokkur 25 4,1% 5,8% 12,3%
Framsóknarflokkur 20 3,3% 4,7% 9,8%
Bandalag jafnaðarmanna 1 0,2% 0,2% 0,5%
Sjálfstæöisflokkur 67 10,9% 15,6% 32,8%
Alþýðubandalag 30 4,9% 7,0% 14,7%
Kvennalisti 28 4,6% 6,5% 13,7%
Flokkur mannsins 3 0,5% 0,7% 1,5%
Borgaraflokkur 29 4,7% 6,8% 14,2%
Þjóöarflokkur 1 0,2% 0,2% 0,5%
Stefán Valgeirsson 0 0,0% 0,0% 0,0%
Óákveðnir 117 19,1% 27,3%
Kjósa ekki/skila auðu 15 2,5% 3,5%
Neita að svara 93 15,2% 21,7%
| Náðist ekki f 183 29,9%
Alls 612
Þar af náðist í 429
Þar af tóku afstöðu 204
I Reykjanes fjöldi % af úrtaki % af þeim sem næst í % af þeim sem tóku afstööu
Alþýðuflokkur 16 4,7% 6,3% 13,3%
Framsóknarflokkur 19 5,6% 7,5% 15,8%
Bandalag jafnaðarmanna 0 0,0% 0,0% 0,0%
Sjálfstæðisflokkur 37 10,9% 14,5% 30,8%
Alþýðubandalag 9 2,7% 3,5% 7,5%
Kvennalisti 16 4,7% 6,3% 13,3%
Flokkur mannsins 3 0,9% 1,2% 2,5%
Borgaraflokkur 20 5,9% 7,8% 16,7%
Þjóðarflokkur 0 0,0% 0,0% 0,0%
Stefán Valgeirsson 0 0,0% 0,0% 0,0%
Óákveðnir 73 21,5% 28,6%
Kjósa ekkifekila auðu 8 2,4% 3,1%
Neita að svara 54 15,9% 21,2%
| Náðist ekki f 84 24,8%
Alls 339
Þar af náðist f 255
Þar af tóku afstöðu 120
önnur kjördæmi % af % af þeim sem næst í % af þeim sem tóku afstööu
Alþýðuflokkur 26 5,0% 6,6% 13,1%
Framsóknarflokkur 47 9,0% 12,0% 23,7%
Bandalag jafnaðarmanna 0 0,0% 0,0% 0,0%
Sjálfstæðisflokkur 47 9,0% 12,0% 23,7%
Alþýðubandalag 28 5,4% 7,2% 14,1%
Kvennalisti 13 2,5% 3,3% 6,6%
Flokkur mannsins 2 0,4% 0,5% 1,0%
Borgaraflokkur 17 3,3% 4,3% 8,6%
Þjóðarflokkur 14 2,7% 3,6% 7,1%
Stefán Valgeirsson 4 0,8% 1,0% 2,0%
Óákveðnir 103 19,7% 26,3%
Kjósa ekki/skila auöu 17 3,3% 4,3%
Neita að svara 73 14,0% 18,7%
Náðist ekki í 132 25,2%
Alls
Þar af náöist I
Þar af tóku afstöðu
523
391
198