Helgarpósturinn - 15.04.1987, Side 22

Helgarpósturinn - 15.04.1987, Side 22
Var kallaö kornvikur Við sögðum frá upphafi popp- framleiðslu í HP fyrir hálfum mán- uði. Og eins og lesendur vita var erf- itt að tímasetja upphaf poppfram- leiðslunnar í landinu. Nú hafa okkur borist nánari upplýsingar um það. Sá sem fyrstur hóf framleiðslu poppkorns í Reykjavík hét PéturSig- fússon. Hann hóf framleiðslu á poppi í heimahúsi, nánar tiltekið í Efstasundi 14 — og poppaði á elda- vél fjölskyldunnar frá 1947—1951 að hann festi kaup á sérstakri poppvél. Fjölskyldan var stór og tóku allir fjölskyldumeðlimir þátt í fram- leiðslu og dreifingu. Á árunum 1951—1955 var mikil gróska í framleiðslunni og seldist poppið vel. Árið 1952 ákvað Pétur að markaðssetja poppið undir ís- lenska heitinu kornvikur og seldi það undir þessu heiti fram yfir 1960. Pétur seldi einkum í bíóhús og smærri verslanir í Reykjavík. Pétur var afi Arnaldar Bjarnasonar, nú- verandi bæjarstjóra í Vestmannaeyj- um. Hann og æskuvinur hans, Árni Samúelsson, bíóstjóri, poppuðu og sáu um að dreifa poppinu, eða korn- vikrinum, í bíóhús og smáverslanir. Arnaldur sagði í samtali við HP, að hugmyndina að poppfram- Beínt ínn á borð... Með DHL hraðflutningum kemst sending þín beint inná borð viðtakanda eins fljótt og örugglega og hugsast getur. Eitt símtal og DHL sækir skjölin eða pakkann til þín. Hann er síðan í öruggum höndum stærstu hraðflutningsþjónustu heims. DHL sér um allt! Hafðu samband og kynntu þér þjónustu okkar — hún kemur á óvart. WORLDW/DE EXPRESS R HRAÐFLUTn/nOAR BORGARTÚN 33. 105 REYKJAVÍK. simar: 27622/27737 TING WALASSE TING SVNING I GALLERI 1 1 9 HRINGBRAUT 119, REVKJAVÍK 28. mars - 20. apríl 1987 OPNUN YFIR PÁSKA Skírdagur 14—19 Laugardagur 14—19 Annar í páskum 14—19 leiðslunni hefði afi sinn vafalaust fengið í kjölfar stríðsins, en poppið barst hingað með Bandaríkjamönn- um í seinni heimsstyrjöldinni. Til gamans má geta þess, að korn- vikurinn, eða poppið, var pakkað í cellófónpoka, en það var einmitt faðir Árna Samúelssonar, Samúel Torfason, sem sá um að framleiða pokana utan um poppið. Dagbókin hennar Dúllu Elsku, besta dagbók. Þetta líf er svo rosalegt að maður er bara alltaf meira eða minna í sjokki. Ég er hætt að þola þetta.... ekki bað ég um að fæðast og þurfa að ganga í gegnum allskonar vesen. Til hvers er fólk að leika sér að því að búa til börn, sem hafa ekki gert neinum mein? Svo þarf maður bara að fá hlaupabólu og mislinga og alls konar pestar, lenda í ástarsorgum og lesa undir próf! Mér finnst það fer- leg frekja að kalla þetta yfir sakleys- ingja — ég get svarið það. Svo láta sumir foreldrar sér ekki einu sinni nægja að láta skólana, ástina og allt það um að pína börnin sín, heldur gera þeim eitthvað illt VILJANDI. I alvöru. Það er nú reyndar ekki ég, sem hef persónulega lent í hryllingi árs- ins. Það er Bella vinkona. Hún er líka gjörsamlega í rusli og mér finnst alveg agalegt að horfa upp á þetta. Heldurðu ekki að pabbi hennar hafi sest niður með stelpunum eftir fermingarveisluna um daginn og sagt þeim að hann væri hættur að vera skotinn í mömmu þeirra! Þetta er nú ekkert smáræði... Kallinn er sem sagt orðinn ást- fanginn af annarri konu, fluttur að heiman og þær hér með tilvonandi skilnaðarbörn — einn, tveir og þrír. Og það á fermingardaginn. Ég fatta nú ekki hvernig svona getur skeð. Þau voru alltaf að fara uppstríluð í boð og utanlandsferðir og mamma hennar Bellu er rosa fín kelling með kinnalit og lakkaðar neglur, þó hún sé auðvitað með svolitla vömb eins og mamma mín. Það er alltaf til nóg af bjór og víni hjá þeim og bæði af- ruglari og vídeó. Svo ætla þau að klúðra þessu öllu, rústa familíuna og allt. Ég er viss um að kerlingin verð- ur líka að fara að vinna úti, en hún kann ekki nokkurn skapaðan hlut nema punta sig. Það segir pabbi að minnst kosti og mamma heldur að hún kunni varla stafrófið... Verð að fara og drífa Bellu í bíó. Hún er svo hryllilega leið... á milli þess sem hún hótar að drepa kall- inn. Mamma hennar tekur þessu ekki nærri eins illa. Hún Iiggur bara með ginflösku í rúminu og hefur það gott. Dúlla fcfcW Góðorð ^ duga skammt. Gott fordæmi skiptir mestu máli 22 HELGARPÖSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.