Helgarpósturinn - 15.04.1987, Síða 29
Hæsta listaverk
landsins rís í júlí
Undirbúningur hafinn að uppsetningu á 24 metra háu
sjónarspili Rúríar norðan við nýju flugstöðina
Hœsta listauerk sem nokkru sinni
hefur verid reist á Islandi mun
standa norðan uið flugstöð Leifs
Eiríkssonar á Reykjanesi, sem vígð
var í gœr. Þetta er skúlptúr listakon-
unnar Rúrí, sem heitir ,,Regnbogi“,
en það var sem kunnugt er annað
verkanna sem vann til fyrstu verð-
launa í samkeppni sem fram-
kvœmdanefnd flugstöðvarinnar
efndi til fyrir tveimur árum um lista-
verk við stöðina. Hitt verkið er
,,Þotuhreiður“ Magnúsar Tómas-
sonar.
Verk Rúríar er 24 metra hátt,
langhæsta listaverk á landinu, en að
því er best er vitað hafa ekki verið
reist hærri verk hérlendis en um tíu
metrar. Lengd Regnbogans verður 6
metrar en breidd hans 4,5 metrar.
Nú er hafinn undirbúningur að upp-
setningu verksins um 200 metra
spöl norðan við flugstöðina, á móts
við aðalglugga byggingarinnar sem
Rúrí.
Módel af Regnboga
listakonunnar. Smart-
mynd.
þegar er kunnur úr fjölmiðlum. Að
sögn listakonunnar á uppsetningu
verksins að ljúka í júlí.
„Regnboginn verður unninn úr
ryðfríum stálrörum, ferhyrndum að
lögun — og steindu gleri," segir Rúrí
og telur upp liti Regnbogans; gulan,
rauðan, grænan og bláan. Regnbog-
inn er ekki að öllu leyti framandi
yrkisefni hjá Rúrí, því hún segist
vera „búin að gera marga regn-
boga. En það eru engir tveir eins.
Og þessi regnbogi fyrir flugstöðina
var alveg sérstaklega unninn fyrir
samkeppnina. Jú, verkið tók sinn
tíma, ætli ég hafi ekki verið tvo
mánuði með sjálft módelið. Ég man
ekki hvað hugmyndin var lengi að
mótast. Það er alltaf óljóst," segir
Rúrí.
Hún segist vera ósköp ánægð
með að verk hennar hafi unnið
þessa samkeppni sem fyrr er getið;
staðurinn sé ári skemmtilegur og
verkið veki líkast til athygli þar eð
hann verði fjölsóttur. Aðaiatriði í
hennar huga sé hins vegar að vera
ánægð með sjálft verkið og fá að
hafa það eins hún hafi ætlað sér.
Hún kveðst munu taka fullan þátt í
uppsetningu verksins suður með
sjó, en útreikningar Almennu verk-
fræðistofunnar liggi nú fyrir á þoli
vinds og burðar og ekkert sé í vegin-
um að hefjast handa.
„Það er vitaskuld ekki hægt að sjá
fyrir um það hvernig Regnboginn
verður á endanum og hvaða áhrif-
um hann veldur, en þetta verður
vonandi heilmikið sjónarspil. Það er
gaman fyrir mig, sem hef unnið svo
lengi við verkið, að eiga eitthvað
spennandi eftir; sjá hvernig birtan
leikur það og verkið hana,“ segir
Rúrí. Þegar rökkva tekur verður
Regnboginn svo upplýstur sem hef-
ur önnur áhrif en dags daglega, „og
svo veit náttúrlega enginn hvað ger-
ist er snjóar,“ bætir listakonan við.
-SER
Kvikmynd og leikrit
Um þessar mundir ganga hér í bíóhúsum tvœr myndir sem eiga þaö sameiginlegt aö vera byggdar á leikhúsverkum sem bœöi hafa
verið sett upp hérlendis. Þetta eru myndirnar Guð gafmér eyra í Háskólabtó og Litla hryllingsbúðin í Bíóhöllinni. Afþessum sökum
hafðiHPsamband við tvo leikara sem léku ííslensku uppfœrslunum, þau Eddu Heiðrúnu Bachmann sem fór með hlutverk Ijóskunn-
ar í Litlu hryllingsbúðinni og Sigurð Skúlason sem lék aðal karlhlutverkið í sýningu á Guð gaf mér eyra, — og innti þau álits á kvik-
myndunum.
Edda: Nánast vanviti
„Mér fannst mjög gaman að sjá
myndina svona stuttu eftir að hafa
leikið í leikritinu, en samt er svo
langt um liðið að maður er búinn að
fá vissa fjarlægð. Ég er eiginlega líka
dauðfegin að hafa ekki séð þetta áð-
ur en leikritið var sett upp því í
myndinni eru týpurnar miklu sterk-
ari, miklu sterkar málaðar heldur
en hjá okkur. Það hefði eiginlega
verið sama hvað við hefðum gert,
það hefði alltaf fallið í skuggann.
Plantan var auðvitað tæknilega
fullkomnari í myndinni en ég er
ekki viss um að hún hafi haft meiri
áhrif, verið meira ógnandi. í leikrit-
inu var maður inní henni og það gaf
henni einhvern leyndardómsfullan
kraft.
Þeir breyttu söguþræðinum að-
eins, og endinum líka, þetta varð
meira svona ,,happy-end“ í mynd-
inni og ég er ekki viss um að það
hafi verið af hinu góða.
Varðandi mitt hlutverk þá fannst
mér það vera mjög vel leyst hjá leik-
konunni en það var allt öðruvísi,
hún var nánast vanviti. Ég gekk
ekki svo langt. Við reyndum að
skapa fallega mynd af ljósku sem
var hjartahrein og góð en í mynd-
inni ná þeir persónuleika hennar út
þannig að í henni tfstir. Mér fannst
líka vera ósamræmi milli talaðs
máls og söngs, það er raunverulega
það eina sem ég get sett útá, en það
er bara tittlingaskítur."
Sigurður: Vantar dramatíser-
ingu
„Ja, ég vil bara lýsa yfir ánægju
minni með það að þessi stúlka
skyldi hljóta Oskarsverðlaunin. Það
dregur athyglina að stöðu heyrnar-
lausra, bæði í hennar heimalandi og
vonandi í heiminum öllum. Þessi
stúlka er það besta við myndina,
hún hefur óvenjulega hæfileika og
ber myndina í raun og veru uppi.
Mér finnst myndin vera falleg og
vel gerð en jjað vantar í hana
dramatíseríngu sem er fyrir hendi í
leikritinu. Það er svona Hollywood-
keimur af henni, af handritsgerðinni
og þá sérstaklega endinum. Það er
lögð meiri áhersla á ,,happy-end“ og
í henni er viss glamúr sem ekki er
fyrir hendi í leikritinu.
En ég naut myndarinnar, hafði
gaman af henni þrátt fyrir að ég hafi
orðið fyrir smávonbrigðum með
William Hurt, ég bjóst við meiri til-
þrifum af hans hálfu.“
Edda Heiðrún Bachmann sem Dollý I uppfærslu Hins leikhússins á Litlu hryllingsbúð-
inni.
11111«
Sigurður Skúlason I hlutverki sfnu I Guð gaf mér eyra.
FROST-FILM vinnur nú sem
óðast að undirbúningi myndarinnar
Foxtrot og ráðgera aðstandendur að
hefja tökur í júní og að þær standi
fram í lok ágúst. Handritsgerð er á
lokastigi en höfundur þess er Svein-
björn I. Baldvinsson, í félagi við þá
Jón Tryggvason, sem einnig er leik-
stjóri myndarinnar, Karl Óskarsson
tökumann, og Lárus Ými Óskars-
son. Eftir því sem fregnir herma eru
þeir Frostfilmarar með öll spjót úti
til að finna fjármagnsaðila um þess-
ar mundir. Myndin á að vera eins-
konar spennumynd og, eins og ein-
hver orðaði það, sem slík verður
hún gjörsamlega óklassísk, þar sem
hinn íslenski raunveruleiki verður
gerður spennandi.
HAMSUN aðdáendur geta farið
að kætast. Almenna bókafélagið og
Norrœna húsið hyggjast standa fyrir
Hamsun hátíð í næsta mánuði í húsi
Alvars í Vatnsmýri, en endanleg
dagsetning iiggur enn ekki fyrir. Því
er lætt að Listapöstinum að þarna
gefist Hamsun aðdáendum kostur á
að heyra upplestra úr nokkrum
kunnustu verkum skáldsins, auk
fyrirlestra um líf hans og list, meðal
annars úr munni Einars Kárasonar
rithöfundar sem ku vera einn mesti
Hamsun lesandi hérna megin Fœr-
eyja. Þá eru líkur á því að á hátíðinni
verði sýndar nokkrar helstu kvik-
myndirnar sem gerðar hafa verið
eftir verkum Knúts.
AIDA hefur nú gengið fyrir fullu
húsi 25 sinnum og sýnt þykir að enn
sé markaður fyrir hendi. Hyggst ís-
lenska óperan halda áfram sýning-
um á Aidu fram í miðjan maí er leik-
árinu lýkur. Óvíst er hvert verður
næsta verkefni íslensku óperunnar
en það verður sett upp á komandi
hausti. Sýningar á Aiclu verða næst
á annan dag páska og föstudaginn
24. apríl...
HELGARPÓSTURINN 29