Helgarpósturinn - 15.04.1987, Page 30

Helgarpósturinn - 15.04.1987, Page 30
I BLUES er ekki ákaflega algengur á tónleikum hér á landi, helst að ein- hverjir utanaðkomandi mæti á sker- ið og blúsi. Úr þessu ætla Blues- hundarnir að bæla næstkomandi fimmtudagskvöld á Hótel Borg, en þeir slógu einmitt í gegn á blues- kvöldi á Borginni 18. síðasta mánað- ar. Þessir Blues-hundar eru ekki af verri endanum, þrautreyndir kapp- ar úr ýmsum hljómsveitum og músíkstefnum í íslenska poppgeir- anum. Fyrstan skal frægan telja Bubba Morthens, næstan hinn snjalla trommuleikara Stuðmanna, Ásgeir Óskarsson. Gítarinn þenur — segir Guðjón Pedersen um siðameistarann í Kabarett sem rokgengur fyrir norðan Guðjón Pedersen er landsmönn- um að góðu kunnur fyrir leik sinn þrátt fyrir að hann eigi ekki ýkja langan leikferil að baki. Hann var einn af forsvarsmönnum Svarts og sykurlauss og stofnandi Frú Emelíu, leikhúss. Um þessar mundir leikur hann siðameistarann í uppfœrslu LA á Kabarett. HP sló á þráðinn til hans og forvitnaðist fyrst um hvern- ig verkið gengi í norðanmenn. „Jú, það gengur mjög þokkalega, við höfum fengið fínar undirtektir. Þetta er ein skemmtilegasta sýning sem ég hef leikið í." Þetta er ekki fyrsta skiptið sem þú leikur á Akureyri, er það? „Nei, ég var í Þremur systrum eft- ir Chekov árið 1982, það var fyrsta feita rullan sem mér bauðst eftir út- skrift. Ég útskrifaðist '81, og var bú- inn að vera í einu stykki í Þjóðleik- húsinu áður.“ Þannig að þú hefur fengið góð hlutverk fyrir norðan. „Já, mér hafa boðist mjög skemmtileg hlutverk hér og það er mjög gaman að leika siðameistar- ann í Kabarett. Þetta er eitt af þeim hlutverkum sem mann hefur alltaf langað tii að leika." Þú bœði syngur og dansar í sýn- ingunni, hvernig líkar þér það? Guðjón Pedersen gnaefir uppúr hópi dansara (Kitt-Katt klúbbnum, f hlutverki sfnu sem siðameistarinn í Kabarett LA. „Það er skemmtilegt. Við höfðum alveg stórkostlegan mann til að semja og stjórna dönsunum, Ken Oldfield. Það er mjög gaman að fá tækifæri til að vinna með honum." Eru Akureyringar öðruvísi áhorf- endur en þeir sem þú átt að venjast? „Já, þeir eru það. Þetta er allt ann- ar bær.“ Þú notar tœkifœrið og leikstýrir Dalvíkingum samtímis. „Já, þetta er eiginlega orðin tradi- sjón að ég leikstýri hjá þeim þegar ég kem norður, ég gerði það líka síð- ast. Núna erum við að setja upp barnaleikrit sem heitir Nornin Baba-Jaga.“ En segðu mér afSvörtu og sykur- lausu, er eitthvað á döfinni hjá því? „Nei, því miður, það er ekki neitt, hinsvegar kemur Frú Emelía til með að gera fleiri hluti." Verður það í náinni framtíð? „Það er ómögulegt að segja, það er svo margt sem spilar þar inní. Ég bíð bara eftir að komast suður. Þangað til veit ég ekki hvað gerist." KK. Hlutverk sem mig hefur alltaf langað að leika Innlit í evrópska bíósali 1 þessu greinarkorni er fjallað stuttlega um þœr kvikmyndir sem njóta hvað mestrar hylli á megin- landi Evrópu í dag. Vissulega eru margar þeirra þegar komnar í ís- lensk kvikmyndahús, s.s. The Color ofMoney, Children ofa Lesser God, A Room With a View o.fl., en slíkar myndir þurfa víst ekki frekari kynn- ingu. PLATOON Fyrsta skal nefna mynd sem hlotið hefur slíkt umtal að undirritaður man varla eftir öðru eins í fjölda ára. Platoon varð sigurvegari Oscars- verðlaunanna og kom víst fæstum á óvart í þessari miklu skrautsýningu fyrir vestan. Myndin er sjálfsævi- saga leikstjórans og handritshöf- undarins Oliver Stone úr Vietnam stríðinu og leikur Charlie Sheen (sonur Martin Sheen og bróðir ungl- ingastjörnunnar Emilio Estevez) aðalhlutverkið, þ.e. Stone sjálfan. Stór hlutverk leika einnig Tom Ber- enger, sem leikur hér tilfinninga- laust illmenni af mikilli fimi, og Will- em Dafoe í hlutverki hins réttláta píslarvotts. Báðir voru kapparnir til- nefndir til Oscars en þurftu að lúta í lægra haldi fyrir Michael Caine í mynd Woody Allens um Hönnu og systur hennar. Platoon verður sýnd í Háskólabiói á næstunni og bíða örugglega margir með eftirvænt- ingu eftir þessari gróðavænlegu mynd (kostaði aðeins 6 milljónir dollara), þrátt fyrir að ekki séu allir á eitt sáttir um ágæti hennar og boð- skap. THE MORNING AFTER Einhver allra virtasti leikstjóri Bandaríkjanna, Sidney Lumet, er nú búinn að hrista eina myndina enn fram úr erminni. The Morning After kallast stykkið og státar af Jane Fonda og Jeff Bridges í aðal- hlutverkum. Lumet á að baki fjöld- ann allan af góðum myndum, og nægir að nefna The Pawnbroker, Network og The Verdict í því sam- bandi, en „Lumet gerir bara góðar myndir" eins og einn gagnrýnand- inn komst að orði. Ekki hefur þessi nýjasta mynd hans hlotið alveg jafn góðar viðtökur og margar af fyrri myndum hans, en í henni kemur hann eins og svo oft áður inn á glæpi og refsingu. Það var þó sjálf Jane Fonda sem átti hugmyndina að myndinni og þykir Fonda sýna af- bragðsleik eins og endranær. Jeff Bridges getur mun betur. ANGEL HEART Nýjasta mynd Bretans Alan Park- er (Midnight Express, Fame, The Wall, Birdy), Angel Heart, var ný- lega frumsýnd í París, en myndar- innar hafði verið beðið með mikilli eftirvæntingu siðustu vikurnar. í henni leikur „Brando níunda ára- tugarins" Mickey Rourke spæjarann Angel, og lendir hann í ýmsum ógöngum er hann vinnur verkefni fyrir neðanjarðarstórkrimma nokk- urn, leikinn af Robert De Niro. í myndinni leika einnig Charlotte Rampling og Lisa Bonet sem ís- lenskir sjónvarpsáhorfendur þekkja sem Denise í Cosby Show. BLUE VELVET Ein allra athyglisverðasta mynd liðins árs er nýjasta mynd hins snjalla David Lynch (The Elephant Man), Blue Velvet. Myndin hefur hlotið lof flestra gagnrýnenda en misjafnar undirtektir almennings. Hún lýsir ástar- og haturssambandi tveggja einstaklinga, leiknir af Isa- bellu Rossolini og Dennis Hopper. Blue Velvet kemur manni mjög á óvart og hér er mjög sérstök mynd á ferðinni. Handrit myndarinnar er sérlega gott og Lynch kann svo sannarlega að notfæra sér mátt myndmálsins. Þá er leikur Dennis Hopper hreint út sagt stórkostlegur og hefur undirritaður sjaldan eða aldrei séð annan eins kvalalosta hjá nokkrum leikara. Það kom því mörgum á óvart að Hopper skyldi hafa verið tilnefndur til Oscarsverð- Iauna fyrir annað og miklu viða- minna hlutverk, þ.e. í myndinni Hoosiers. THE MOSQUITO COAST Ein af þeim myndum sem undir- ritaður hafði beðið eftir með mikilli óþreyju var nýjasta mynd Ástralans Peter Weir. Þessi framvörður ástr- alskrar kvikmyndagerðar hafði varla stigið feilspor í leið sinni upp á tindinn og eru myndir eins og Picnic: at Hanging Rock, The Last Wave og Gallipoli að ógleymdri hinni stór- góðu Witness allt myndir sem bera vott um hæfni leikstjórans. í The Mosquito Coast bregst honum loks bogalistin. Líkt og í Witness leikur Harrison Ford aðalhlutverkið í þess- ari nýjustu afurð Weirs og sýnir hann á sér nokkuð nýja hlið í annars ruglingslega skrifuðu hlutverkinu. Það er einmitt stærsti ókostur myndarinnar hvað handritið er illa unnið. Þrátt fyrir þessa gagnrýni mína er Moskítóströndin alls ekki vond mynd. Maður hlýtur bara að gera miklar kröfur þegar kappar eins og Peter Weir eiga í hlut. BETTY BLUE Fyrst talað er um vinsælar mvndir í Evrópu verður ekki hjá því komist að minnast á vinsælustu innlendu myndirnar í Frakklandi. Betty Blue eða 37°2 le matin, eins og Frakkarn- ir kalla hana, eftir Jean-Jacques Beineix hefur notið fádæma vin- sælda enda var myndin tilnefnd til 9 Cesar verðlauna í Frakklandi. Óþarft ætti þó að vera að fjalla meira um Betty Blue þar sem grein um Beineix birtist í HP nú fyrir skemmstu. Sú mynd sem hefur ver- ið auglýst hvað mest í París um þess- ar mundir er Le Grand Chemin eftir Jacques Hubert. í henni fer Richard Bohringer með aðalhlutverkið en hann lék m.a. í myndunum Diva og Subway. Ef tala á um gamanmyndir sem væntanlegar eru hingað upp eftir skal helst nefna The Golden Child með Eddie Murphy í aðalruliu. Leik- stjóri hennar er Michael Ritchie en hann á að baki hina misheppnuðu The Survivors og hina stórskemmti- legu Fletch með Chevy Chase. Chase leikur einmitt eitt af þremur aðalhlutverkunum í nýjustu mynd John Landis. Landis er óþarft að kynna en hinir tveir aðalleikararnir í myndinni, sem ber heitið Three Amigos, eru þeir Steve Martin og Martin Short. Þorfinnur Ómarsson enginn annar en Björgvin Gíslason, lengi í fremstu röð íslenskra gítar- leikara og fyrrum félagi Bubba úr Egó, Þorleifur Guðbjörnsson plokk- ar bassann. Rúsínan í pylsuendan- um er síðan píanóleikarinn og djass- arinn frábæri, Guðmundur Ingólfs- son. Eftir því sem heyrst hefur munu þeir félagar leika gamlan blues sem rekja má til Mississippi í bland við lög eftir Bubba sem hann hefur fært í bluesbúning. Þeir Blues-hundar verða þó ekki einir um hituna því þeir ætla að bjóða til sín mönnum úr bluesheiminum og láta þá taka lagið með hundunum. 30 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.