Helgarpósturinn - 15.04.1987, Síða 32

Helgarpósturinn - 15.04.1987, Síða 32
Þessi þunglamalega dramatík... GUÐMUNDUR: Afskaplega leiðinlegir frfdagar fyrir okkur sem erum á gamals aldri. GUÐMUNDUR VALGRÍMSSON, FYRRVERANDI VÉLSTJÓRI Ég hugsa ekkert frekar um páskana en venjulega duga. Þetta er bara gamall hugsanaháttur að halda upp á þetta og hjá mér er þetta bara venja. Ekkert trúarlegt sem spilar þar inn í að ráði og ekki held ég að ég skeri mig úr hvað það varðar, ég er eins og annað fólk. Eg gæti svo sem rætt við þig í hálftíma um álit mitt á trúnni og trúariðkun íslendinga, en mín hugsun hefur ekki verið öðruvísi en sú, að fylgjast með þessari hátíð eins og ég hef gert frá því ég var ungur. Þetta eru frídagar og sem slíkir heldur leiðinlegir, sérstak- lega fyrir okkur sem erum á gamals aldri. SVALA KALMANNSDÓTTIR, AFGREIÐSLUKONA Ég sæki kirkju mikið og ég er í söngkór og því er ég upp- tekin í því. Það er nóg að gera hjá mér um páskana þó ég sé ekki búandi húsmóðir, það eru fermingar og annað. Að baki páskunum er afskaplega mikill boðskapur; og í dag mætti vera meiri mannkærleikur, það hugsar hver allt of mikið um sjálfan sig. Ýmislegt í lífinu mætti vera betra, lífs- kjörin mættu t.d. vera mun betri, en það er alltaf sagt að það séu ekki til peningar, þó alltaf virðist hægt að hækka við þá sem ofar eru í þjóðféiaginu. En ég er ekkert ósátt við lífið, það er gott að lifa þrátt fyrir að ýmislegt mætti betur fara. Ég myndi bara segja að hið góða ætti greiðari leið ef fólk væri sáttara við hlutskipti sitt. THOR VILHJÁLMSSON, RITHÖFUNDUR Páskarnir breyta ekki óskaplega miklu fyrir mér, en ég sé þó fram á að það verði auðveldara að komast áfram í Reykja- vík, af því margir fara á fjöll eða fara til útlanda; víkja sér burt. Svo finnst mér það tilhlökkunarefni, að þegar maður opnar fyrir útvarp þá dynur ekki á manni einhver andskoti sem lemur sálina í klessu, heldur tónlist sem gefur sálinni líf og auðgar manninn. Fólkið fær tækifæri til að lifa raunveru- lega ríku lífi ef það notar sér þetta. En ég ætla ekki að gefa neinar yfirlýsingar um trúmál; það verður hver að hafa sína hentisemi með það. Það eru til nógu margir ólíkir trúflokkar til að flestir fái eitthvað við sitt hæfi. Sumir vilja kannski fara í kaþólsku kirkjuna og þá ef til vill með söknuði eftir Jóni Arasyni og sonum hans sem höggnir voru 1550. Sumir segja að íslendingar hafi þá misst einu raunverulegu trúna sem þeir höfðu. Aðrir vilja kenna sig við lútersku eða Kalvín, en það eina sem ég vona er að þessir andskotans stórglæpa- menn í Ameríkunni sem plokka peninga á trúnni fari ekki að vaða uppi hér. Þeir og aðrir sem kasta á milli sín fjöregg- inu okkar allra, Reaganshjónin í Ameríku og svo hinir í Sovétríkjunum. JENS Á. ANDERSEN, SÖLUMAÐUR Ég hugsa mest til þess hversu gott er að komast í smá frí frá amstri dagsins! Annars hugsar maður óhjákvæmilega til manns sem var uppi fyrir nær 2000 árum og var líflátinn fyr- ir skoðanir sínar og baráttu fyrir trú, von og kærleika og þar með talið sannleika. Og þegar maður hugsar síðan aftur til nútímans, t.d. þess sem hefur verið að gerast í íslenskum þjóðmálum nú undanfarið, þá hlýt ég að hugsa: Mikið óskap- Svala: Hið góða ætti greiðari leið ef fólk væri sáttara viö hlutskipti sitt. THOR: Þá dynur ekki á manni einhver andskoti sem lemur sálina I klessu . . . JENS: Úskandi væri að við færum virkilega að haga okkur eftir þvl sem stendur f hinum góðu fræðum. NAFNLAUS: Páskarnir gefa fólki örlltið frf frá hinu verald- lega stússi. ARNA ÞÚRUNN: Mér leiðast þessir helgidagar. Ég trúi á hið góða I mönnunum. BJARTMAR: Kominn tlmi til að reka alla þessa vlxlara úr musterinu. — Hvaö eru páskarrxir í hugum fólks? Frí frá amstri dagsins námer eitt, tvö og þrjá? Rád- stefnuhelgi meö Guöi? Hverfa páskarnir í skugga kosninga- baráttu eöa öfugt? HP fór í bæinn og spuröi nokkra vegfarendur hvaö þeim vœri efst í huga þegar páskarnir vœru annars vegar... ÁSDlS: Ég vona bara að ég komist á sklði eða hestbak fyrir norðan. lega eigum við langt í land. Stjórnmálin eru mér ofarlega í huga nú vegna eins aðila sem uppvís hefur verið að skatt- svikum og í stað þess að teljast slæm fyrirmynd þá stofnar hann flokk og fær fjöldann til fylgis við sig — án stefnu! Hversu langt getur vitleysan gengið? Ég er ekkert tiltakan- lega trúaður, en óskandi væri að við færum virkilega að reyna að haga okkur eftir því sem stendur skrifað í hinum góðu fræðum. NAFNLAUS VERSLUNARSKÓLANEMI Páskar eru páskafrí. Ég fer í próf eftir páska. Lesa? Nei, nei, ég ætla að sitja heima og slappa af. Boðskapur páskanna höfðar ekki á nokkurn hátt til mín og ég pæli ekkert í kristin- dómnum en vitaskuld á fólk að vera gott við hvort annað. Ég hugsa t.d. mun meira um að það séu að koma kosningar en að það séu að koma páskar. Ég er nokkuð pólitískur. Ég styð allar uppreisnir, allt frá Stefáni Valgeirssyni til Alberts. En svo ég segi eitthvað um páskana, þá skal ég viðurkenna að þeir gefa fólki örlítið frí frá hinu veraldlega stússi og það er auðvitað jákvætt út af fyrir sig. ANNA ÞÓRUNN BJÖRNSDÓTTIR, NEMI Páskarnir? Fyrir mér eru þeir einna helst frí, þeir hafa ekki mikla trúarlega merkingu fyrir mig. Þeir gefa mér sjens á að lesa fyrir prófin eftir páskana. Ég gerði það meira þegar ég var yngri, að hugsa út í tiigang páskanna. Nú orðið leiðast mér þessir helgidagar almennt, en þó væri ég hræsnari ef ég segðist ekki hugsa neitt um trúna að baki. Ég trúi á hið góða í mönnum, þetta góða sem maður sér alltaf af og til, þegar einhver sýnir öðrum hlýtt viðmót. Það mætti nú vera meira gert af því, þá getur fólk orðið sáttara við sjálft sig. Sjálf er ég afskaplega sátt við lífið og tilveruna í augnablik- inu. BJARTMAR GUÐLAUGSSON, TÓNLISTARMAÐU R Mér finnst það sérkennilegt með þessa hátíð kirkjunnar, hvað mönnum hefur tekist að gera hana hræðilega leiðin- lega og fráhrindandi. Kirkjulegar hefðir eru mjög þunglama- legar allar. Ég kemst í pínulítið huglægt ástand á föstudaginn langa, en það er ekkert sérstaklega trúarlegt. Þessi þung- lamalega dramtík er gjörsamlega óþörf. Undanfari pásk- anna er að verða eins og jólin, kaupstefnuhátíð og kominn tími til þess að við fáum einhvern frelsara til að reka alla þessa víxlara út úr musterinu. Nú, hann sagðist ætla að koma aftur og ég verð að trúa á áreiðanleika þess. En hvort ég er trúaður; móðir mín er búin að biðja Guð að blessa mig frá því ég fæddist og gerir það enn þann daginn í dag og ég trúi því ekki að sú ágæta kona biðji einhvern óábyrgan aðila um að passa mig svona vel eins og hún hefur gert. ÁSDÍS FRÍMANNSDÓTTIR, SKARTGRIPASMIÐUR Á páskum fer maður á skíði eða hestbak til Akureyrar, þaðan sem ég er. Páskarnir eru frí frá vinnunni og öðru vana- bundnu. Maður hugsar kannski eitthvað smávegis um Guð en þó aðallega um það góða í öllu. Ég hef afskaplega lítið velt fyrir mér hvers vegna þessi hátíð er, vona bara að ég komist á skíði eða hestbak norður. 32 HELGARPÓSTURINN eftir Friðrik Þór Guðmundsson myndir Jim Smart

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.