Helgarpósturinn - 15.04.1987, Page 33
Morgunblaðið mikla grein eftir Sig-
urð E. Guðmundsson, forstjóra
Húsnæðisstofnunar ríkisins, á mið-
opnu blaðsins. Annars vegar er
greinin vörn fyrir nýja húsnæðis-
lánakerfið. Hins vegar árás á þá sem
gagnrýnt hafa þetta nýja lánakerfi.
Athygli hefur verið vakin á því, að
einn helsti gagnrýnandi nýja hús-
næðislánakerfisins á Alþingi sé
Jóhanna Sigurðardóttir, alþm.
Alþýðuflokksins, og að Sigurður E.,
^em felldur var í prófkjöri krata
vegna borgarstjórnarkosninga fyrir
réttu ári, sé í raun að senda Jóhönnu
tóninn í grein þessari og þakka
flokknum samfylgdina. Er nokkur
kurr í hópi aldinna stuðningsmanna
Sigurðar E. vegna þessa máls og
þykir þeim ómaklega vegið að
Jóhönnu Sigurðardóttur. . .
ft__
Húsnæðisstofnun ríksins sendi frá
sér litla fréttatilkynningu í síðustu
viku. Þar kemur fram, að um 5.300
umsóknir um lán bárust stofnuninni
þá fimm mánuði sem nýja húsnæð-
islánakerfið hefur verið í gildi. f
áætlunum stofnunarinnar um láns-
þörf er gert ráð fyrir 3.800 umsókn-
um á heilu ári, en hér er verið að
tala um fimm mánaða tímabil. Þetta
þýðir að biðlistar eftir iánum lengj-
ast enn og telja sérfróðir menn að
biðtími eftir lánum verði um þrjú
ár þegar á miðju þessu ári. . .
S leiðara Morgunhiaðsins sl.
þriðjudag segir að eldsneytiskerfið,
BÍLALEIGA
Útibú í kringum landið
REYKJAVÍK:......91-31815/686915
AKUREYRI:........96-21715/23515
BORGARNES:..............93-7618
BLÖNDUÓS:..........95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR: .....95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR: .........96-71489
HÚSAVÍK:.........96-41940/41594
EGILSSTAÐIR:............97-1550
VOPNAFJÖRÐUR: .....97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: . 97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: .......97-8303
sem tekið verður í notkun við nýju
flugstöðina í Keflavík í lok mánaðar-
ins sé ,,eitt hið besta í veröldinni
allri“. Stöðvarstjóri Olíufélagsins á
staðnum segir hins vegar, að nýja
kerfið sé í öllum aðalatriðum ná-
kvæmlega eins og það eldsneytis-
kerfi, sem verið hefur í notkun við
gömlu stöðina í upp undir 20 ár...
Ems og við sögðum frá í síðasta
tölublaði, er eldsneytiskerfið við
Flugstöð Leifs Eiríkssonar ekki
tilbúið til notkunar, þó svo stöðin
hafi verið opnuð við hátíðlega at-
höfn. Eldsneytismálunum var hins
vegar bjargað fyrir horn með því að
Varnarmálaskrifstofan í Reykja-
vík fékk bandaríska herinn til þess
að lána 4 stóra tankbíla í þetta verk-
efni. Þar með verða tankbílarnir sjö
alls og bera samtals um 130 þúsund
lítra, sem er þó „helvíti knappt" á
mesta annatímanum, samkvæmt
upplýsingum starfsmanna á flug-
vellinum. En skipunin hefur verið
gefin út og þá er „ekki um annað að
ræða en gera sitt besta", eins og við-
kvæðið var meðal fólksins í stöðinni
nokkrum klukkustundum áður en
korkurinn flaug úr flöskunum.. .
mlr að er kunnara en frá þurfi að
segja að það getur verið illt að glíma
við kerfið. Það fékk maður nokkur
að reyna, þegar hann fékk heim-
sendan reikning frá Póst- og síma-
málastofnuninni fyrir afnot af
síma sínum. Það væri sjálfsagt ekki
í frásögur færandi, nema fyrir það
að reikningurinn hljóðaði upp á
tæpar tvö hundruð þúsund krónur.
Fyrir það verð er hægt að hringja til
New York og tala þangað stanslaust
í nokkra daga. Þar sem maðurinn
hafði ekki gert neitt slíkt, né notað
símann neitt umfram það sem hann
hafði áður verið vanur, fór hann
með reikninginn niður á skrifstofur
Póst- og símamálastofnunarinnar, til
að fá á honum skýringar. Þar brá
svo við að það er ekki hægt að fá
neinar sundurliðanir á reikningum,
umfram fjölda skrefa í hverjum
mánuði. Stofnunin gat því ekki
sannað afnot mannsins á simanum
og hann ekki afsannað uppgefnar
tölur frá stofnuninni. Hann var því
lentur í þeirri aðstöðu, að annað
hvort greiddi hann reikninginn
dýra, eða legði inn símtækið sitt og
biði frekari innheimtuaðgerða frá
stofnuninni. Hann hafði lent í því
sem kalla mætti „óhappdrætti ríkis-
ins“. Það verður hins vegar að telja
í hæsta máta einkennilega að reikn-
ingum Póst- og símamálastofnunar-
innar staðið. Reikningar stofnunar-
innar eru þannig úr garði gerðir að
vafasamt er að þeir standist kröfur
réttargagna. Ef maðurinn hefði
staðið á því fastara en fótunum að
stofnunin hefði lagt á hann of mik-
inn símkostnað, hefði verið erfitt
fyrir stofnunina að afsanna orð
mannsins. Slíkt á reyndar líka við
um okkur hin sem fáum reikninga
fyrir fáeinum umframskrefum...
Aukagisting vegna mikillar eftirspurnar
Þátttakan í Rimini-ferðunum hefuraldrei verið meiri en í sumar. Bið-
listar hafa myndast vegna fullbókaðra flugvéla og gistingar, en
með viðbótarhúsrými á Giardino, vinsælasta íbúðargististað okkar
á Riccione-ströndinni, höfum við opnað enn fleirum greiða leið til
þessarar stórskemmtilegu sólarstrandar. Og nú er um að gera að
bóka sig tímanlega - Rimini á örugglega eftir að standa undir nafni í
sumar sem endranær.
Catlolii .i
FENEYJAR
Fl ÓRFNS
ý íbúðar- og hótelgisting aföllum gerðum
/ Munið barnaklúbbinn
Ódýru Sl-bótelin
- sem foreldrarnir halda mest uppá!
Adriahc Rivicra ol
Emilia - Romagna i
Gatteo a Mare
San Mauro a Mare
Misano Adriatico
Lidi di Comacchio
Savignano a Mare
Bellana - Igea Manna
Cervia - Milano Manttima
Ravenna e le Sue Manne
voru kynnt í lyrsta skipti á Mallorca í fyrra og slógu heldur bet-
ur í gegn - seldust upp á mettima - og nú bjóðum við þau á Rimini og Riccione í fyrsta sinn. Þú pantar SL -
hótel og við finnum það fyrirþig, þægilegt og hreinlegt, stutt frá strönd og með morgunmat og látum þig svo
vitahvaðþaðheitirmeðlOdagafyrirvara-svonaspararðuverulega! ,
Brottfarardagar:
27. maí:8sæti laus
8.júní:örfásæti laus
17. júnf:laus sæti
29.júní:laussæti
B \ú\i: UPPStlT/BIBUSn
20. júlí: laus sæti
29.júlf:örfásætilaus
10. ágúst: 6 sæti laus
19. ágúst: UPPSllT/BIDLISTI
31. ágúst: örfá sæti laus
Italy l
Samvinnuferdir - Landsýn
Austurstræti 12 • Sfmar 91-27077 & 91 -28899
Hótel Sögu viö Hagatorg • 91 -622277. Akureyri: Skipagötu 14 • 96-27200
kr. 24.100
mlöad við 7 saman í 4ja herb. íbúð.
HELGARPÖSTURINN 33